Þjóðviljinn - 23.12.1978, Síða 15
Laugardagur 23. desember 1978Í ÞJtJÐVÍLJINN — SIÐA 15
Piastpokamir of fáir
MANNLEG MISTOK
■■
Kæra siða!
Um langt skeið hafa plaslpokar
verið notaðir á hverju heimili. Mitt
heimili er ekki undantekning þar frá.
Ég nota mest poka nr. 15 undir sorp, i
vor tók ég eftir þvi að ég átti afgang af
bindilykkjum. Ég taldi þvi pokana i
næstu rúllu af plastfix nr. 15. Á um-
búðunum stendur að 50 pokar séu i
rúllunni og bindilykkjur fylgi.
Framleiðandi er Plastprent hf. Á
rúllunni taldi ég 48 poka. Siðan hef ég
margoft taiið þá og niðurstaðan er
alltaf sú sama, 48 pokar, þó á umbúð
unum standi „50 pokar I rúllunni”.
Ég óska eftir að þetta bréf verði birt
og jafnframt að Neytendasiðan geri
kðnnun á þessu mili. Þáð eru hsg
heimatökin, þessir pokar fást hjá flest-
i matvðruverzlunum og I kjör-
búðum Sláturfélagsins og i kaupfélög-1
unum.
Einnig spyr ég Neytendasamtökin
hvort hér sé um eðlilegan verzlunar- ]
máta að ræða á 20. öld?
Þá væri vert að kanna hvort svona i
sé lalið i aðrár pakkningar.
Þetta hlýtur einnig að varða verð
lagsstjóra, þvi 96 pokar í stað 100 /
svara til liðlega 4% hærri álagningar.
Með þökkum fyrir birtinguna.
PJS.
Svan
Eggert Hauksson framkvæmda-
stjóri Plastprents sagði að mannleg ,
mistök gætu alltaf átt sér stað og lik-
lega værí sú skýríngin á að pokamir (
væru ekki nema 48.
DS
Athyglisvert neytendamál:
Margt smátt
gerir eitt
stórt
Nauðsynlegt að eftirlit sé haft
með því að rétt sé talið
og viktað í neytendapakkningar
A neytendasiöu Dagblaðsins
sl. mánudag er greint frá þvi aö
á piastpokartillum frá Plast-
prent h.f. séu 48 pokar i staö 50.
Þjóöviljinn leitaöi álits hjá
Plastós h.f. á þeim ummælum
Eggerts Haukssonar fram-
kvæmdastjóra Plastprents h.f.
aöhér væri um aö kenna mann-
legum mistökum, sem alltaf
gætu átt sér staö.
Hjá Plastós h.f. varö fyrir
svörum Siguröur Oddsson.
Hann taldi skýringu Egger'tá
Haukssonar vægast sagt mjög
ófullnægjandi. „Plastpokar eru
afgreiddir á tvennskonar hátt”,
sagöi Siguröur „þaö er i búntum
og á rúSum. 1 búntum eru pok-
arnir lausir hver frá öörum.
Þegar vélin hefur höggviö niöur
þaö magn, sem óskaö er i hvert
búnt gefur hún hljóömerki og er
þá tekiö frá henni. Sé sá starfs-
maöur sem stendur viö vélina
ekki nógu vakandi getur átt sér
staöaöofmikiö eöa oflitiöfarii
búntiö. Þettajafnarsig þóuppá
næsta búnti þannig aö ef fram-
leitt er fyrir sama kaupanda þá
á heildartalan alltaf aö vera
rétt.
Mannshöndin kemur
ekki nærri
Þegar framleitter i rúllur eru
pokarnir samfastir, en þaö er
einmitt þaö tilfelli sem hér um
ræöir. Þá er teljari pokavélar-
innar stilltur á ákveöiö magn
t.d. 50stykki eöa 48 stykki. Vélin
vefur upp á rúllu þeim fjölda
sem beöiö er um, skilur siöan
frá og byrjar á næstu rúllú. Hér
kemur mannshöndin ekki nærri
aö ööru leyti en þvi aö þegar
framleiösla er hafin er teljari
vélarinnar stilltur á ákveöinn
fjölda og siöan er rúllunum
pakkaö.
Af þessum ástæöum tel ég
skýringu Eggerts Haukssonar
um mannleg mistök út I hött. Ég
tél mig vel vitnisbæran um
þetta þvi aö i þessari fram-
leiöslu eru hjá Plastós h.f. og
Plastprent h.f. notaöar vélar frá
sama framleiöanda.”
1.4 miljón mismunur
BlaöamaöurbaöSiguröum aö
áætla hvaö 48 pokar i staö 50
gætu gert mikiö i krónutölu yfir
lengra túna, en eins og fram
kemur i Dagblaösgreininni
viröist þessi háttur hafa veriö
viöhaföur siöan i' vor.
„Ef viö miöum viö eitt ár og
þaö aö plastpokar til heimilis-
nota hafi ekki hækkaö umfram
heimildir verölagsnefndar
veröur útkoman þessi. Varan
hækkar i veröi um 4% viö fækk-
un poka úr 50 i 48. Hver einstak-
ur kaupandi skaöast litiö, en
margt smátt gerir eitt stórt.
Ef viö gerum ráö fyrir aö árs-
framleiöslan sé 10 þúsund
pakkningar af Plaxtfix 15 meö
10 rúllum I hverri þá eru þaö 5
miljón plastpokar. Séuaöeins 48
pokar I hverri rúllu gera þaö 4.8
miljónir í ársframleiöslu. Mis-
munurinn er 200 þúsund pokar
sem aftur eru 4000 rúllur meö 50
pokum og cirka 4160 meö 48 pok-
um á rúllunni. Rúllan I dag kost-
ar 350 krónur. 1 fyrra dæminu
hefur aukagróöi fyrirtækisins
oröiö 1.4miljónir króna og I hinu
slöara 1.454 þúsund.”
Neytendasamtökin
annist eftirlit
Aöspuröur um hvernig eftir-
liti ætti aö vera háttaö meö
framleiöslu af þessu tagi sagöi
Siguröur Oddssonaö þetta hlyti
aö vera mál bæöi neytenda I
heild og Neytendasamtakanna.
Neytendasamtökin skorti fjár-
magn til þessaösinnaeftirliti af
þessutagi, en þaö þyrftu þau aö
hafa til umráöa, hugsanlega
fengist þaö meö þvi aö þau
kæröu fyrirtæki og fengju mis-
muninn sem þau heföu haft af
neytendum til sin i því skyni aö
standa undir kostnaöi viö
starfsmenn sem heföu eftirlit
meö þvi aö rétt væri taliö og
viktaö í hinar ýmsu pakkningar
sem á neytendamarkaöi eru.
— ekh.
MINNING:
Njáll Markússon
F. 18. des. 1913. — D. 15. des. 1978
Idag 23. desemberer tilmoldar
borinn frá Leirárkirkju Njáll
Markússonbóndi á Vestri-Leirár-
göröum i Leirársveit, en hann
andaöist 15. desember á Sjúkra-
húsi Akraness.
Njáll var fæddur aö Olviskrossi
i Hnappadal 18. desember 1913 og
var næstyngstqr 16 systkina.
Eftirlifandi kona hans er Friöa
Þorsteinsdóttir, lika upprunnin i
vinalegum fjallafaömi Hnappa-
dalsins og einnig fædd á Olvis-
krossi.
Börn þeirra eru tiu og þau
yngstu enn á æskuskeiöi. Ekki er
ástæöa til aö fjölyröa um þaö
verkefni sem þeim hjónum var
búiö, aöala upp slikanhópogekki
heldur um þaö hvernig þaö er af
hendi leyst, en þaö er meö mikl-
um ágætum. Þaö má öllum vera
ljóst aötil þess aö svo mætti vera
hafa þau hjónin oröiö aö leggja á
sig mikla vinnu, en um slikt var
ekki fengist.
NjállogFriöabyrjuöubúskap á
Gautastööum l Höröudal i Dala-
sýslu i tvibýli við Olgeir bróður
hennar. Þá voru þau I Ystu-Görö-
um i Kolbeinsstaöahreppi fæöing-
arsveit sinni, i tvibýli á móti
Benjamin, bróöur Njáls, en
Arndis, kona Benjamfns, og Friöa
eru systur. Frá Ystu-Göröum
fluttust Njáll og Friöa aö
Jarölangsstööum i Mýrasýslu og
þaöan flytja þau aö Vestri-Leirár-
göröum, voriö 1948.
Nokkuö mun þaö hafa sætt tiö-
indum, aö þetta sama vor gerast
þri'r brasöur Njáls einnig bændur i
Leirársveitinni: Björn I tvibýli á
móti Njáli og Hafsteinn og
Marteinn I Vogatungu. Mun það
fátitt, ef ekki einsdæmi, aö fjórir
bræöur hefji búskap samtimis, i
sama hreppi fjarri átthögum sin-
um.
Njáll var róttækur i skoöunum
eins og þeir bræöur fleiri. Ýmsir
undrast þaö, aö menn hafi oröið
sér úti um sósialiskar skoöanir i
fásinninu upp i sveit snemma á
öðrum aldarfjóröungnum. Nú
hefur þaö veriö svo, og er enn, aö
sveitafólk fylgist ekki siöur en
þéttbýlisfólk, meö stormum og
straumum sinnar tiöar og eins
hitt, sem ég þekki dæmi um mér
nákomiö og þykist geta heimfært
upp á Njál og þá bræöur, aö þeir
þurftu ekki aö veröa sér út um
sósialiskar skoöanir, þær voru
þeim einfaldlega i blóö bornar.
Njáll var góöur liösmaöur á
þessum vettvangi sem annars
staöar. Hann var aö vonum ein-
dreginn andstæöingur herstöðva
á tslandioghvers kyns erlendrar
ihlutunar. Til dæmis var hann
einn aöal hvatamaöur þess aö
fundurinn frægi var haldinn l
Heiöarborg i Leirársveit 1. mai
1976, um málefni Grundartanga
oglagöi auk þess drjúgan skerf i
umræöur á fundinum. Þá var
hann vel ritfær og birtust m.a.
greinar eftir hann i Þjóöviljan-
um.
Njáll var mjög hesthneigöur og
ágætur reiömaöur. Var þaö mjög
i samræmi viö alla hans gerö aö
hafa yndi af hestum. Hann var vel
hagmæltur og á ég i fórum min-
um margar hestavlsur eftir hann.
Leirárgaröar eru ekki I þjóö-
braut þeirra, sem aðeins feröast
meö bifreiöum. En þegar viö
hestakarlaraf Skaganum riöum í
Olver, eöa lengra f þá áttina,
liggur leiö okkar þar um hlaöiö.
Munu margir sakna vinar i staö á
ókomnum árum sem fara þar um
ágamianþjóölegan máta. Mér er
hugsaö til þess nú, aö glaövært
hestaspjall viö Njál yfir kaffi-
boröi í eldhúsinu tilheyrir aöeins
fortlðinni. Kynni okkar Njáls eru
ekki neitt stundarfyrirbrigöi, en
þau ná yfir hátt á fjóröa áratug.
Fyrir þessi kynni þakka ég aö
leiöarlokum.
Friöu, börnunum og öörum aö-
standendum votta ég samúö
mina.
Hannes A. Hjartarson.
Slakaö á setulögum
HARTFORD, Connecticut, 21/12
(Reuter) — íbúar Connecticut-
fylkis i Bandarikjunum geta nú
varpaö öndinni léttar, þaö eö
fylkisstjórinn hefur breytt lögum
um lögun klósettseta I frjálslynda
átt.
1 fjörutiu ár hafa lög Connecti-
cut-fylkis kveðiö á um aö klósett-
setur ættu að vera skeifulaga, af
hreinlætisástæðum. Allar aörar
geröir klósettseta hafa þvl veriö
ólöglegar og brotiö i bága viö allt
sem nefnist hreinlætisöryggi.
Nú hafur veriö slakaö á taum-
unum og geta menn þvi fengiö sér
8-lagaöa setu, ef þeim sýnist svo.
Rauði Danni úr útlegðinni
PARIS,21/12 (Reuter) — Daniel
Chon-Bendit,. sem þekktari er
undir nafninu rauði Danni og var
einn forkólfanna I stúdentaóeirö-
um Parisarborgar fyrir áratug,
er nú veitt leyfi til aö koma til
Frakklamds á ný. Hann var
sendur i útlegö á sinum tima og
býr hann I Vestur-Þýskalandi.
Hann segist þó ekki hafa löngun
til að setjast aö I Frakkalndi.
Bækur Lystræningjans
S lÆKKUNARGI.tR
UNDIR SMÁSJÁ
mt
I A\/a
Börn geta alltaf sofið
eftir Jannick Storm i þýðingu Vernharðsi Linnets.
Frábær lýsing á drengnum Ralf, sem óttinn og
nývakin kynhvöt móta. Áskrifendaverð kr. 3.500.-
Skáld-Rósa
eftir Birgi Sigurðsson. Leikrit Birgis er ekki siður
skemmtilegt aflestrar en skáldsaga væri. Áskrif-
endaverð kr. 3.000,-
Vindurinn hvílist aldrei
eftir Jón frá Pálmholti. Þetta er fimmta ljóðabók
þessa ágæta skálds. Tölusett og árituð. Áskrifenda-
verð kr. 2.500,-
Stækkunargler undir smásjá
eftir Jónas E. Svafár. Fyrsta ljóðabók þessa fyndna
skálds i tiu ár. Tölusett og árituð. Askrifendaverð
kr. 2.500,-
Lystræninginn