Þjóðviljinn - 28.12.1978, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 28.12.1978, Blaðsíða 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 28. desember 1978. ólatrésskemmtun Hins íslenska Prentarafélags verður haldin i Lindarbæ þriðjudaginn 2. jan. og hefst kl 15. Aðgöngumiðar verða seldir á skrifstofu félagsins 28. og 29. des. milli kl. 17 og 19 og við innganginn ef ein- hverjir verða eftir. Skemmtinefndin. Kjarvalsstaðir Umsóknarfrestur um stöðu listráðu- nauts Kjarvalsstaða hefur verið fram- lengdur til 7. jan. n.k. Laun skv. kjara- samningi Starfsmannafélags Reykja- vikurborgar. Listráðunauturinn skal vera listfræðingur að mennt eða hafa staðgóða þekkingu á myndlistarmálum og öðru þvi, er snertir listræna starfsemi. Umsóknum skal skila til stjórnar Kjarvalsstaða. Reglur um notkun steinefna í steinsteypu A fundi byggingarnefndar Reykjavikur 14. desember sl. var lögö fram tillaga frá formanni nefndarinnar um ráðstafanir vegna tiöra skemmda á steinsteypu i byggingum i borg- inni. Gert er ráö fyrir þvl i tillögunni, aö settar veröi eftirfarandi reglur um notkun steinefna til steinsteypugeröar, til aö vinna gegn alkall-kisilvirkni I steinsteypu: Steinefni úr sjú veröi þvegin, þannig aö saltmagn fari niöur fyrir 1/10 af þvl, sem nú er mest, þ.e. veröi minna en jafn- gildi 0.25 kg. natrlumoxiös I rúm- metra af steypu. Miöaö viö 2000 kg, af þurru steinefni I rúmmetra i steypu svara þessi mörk til 0,02 kg af salti i 100 kg af þurru steinefni (fylliefni). Aörar kröfur veröa settar fram síöar. Lagt er til aö eftirfarandi bráöabirgöakröfur gildi frá 1. janúar 1979 til 30. júni 1979: Stein- efni úr sjó veröi ekki notaö i steinsteypu nema þannig, aö saltinnihald veröi minna en jafn- gildi 0.65 kg natriumoxiös I rúm- metra af steypu, eöa minna en 0.05 kg af salti i 100 kg af þurru steinefni. I útveggi veröi eingöngu notaö sement meö lágu alkaliinnihaldi (nema aö allt steinefni sé óvirkt), þ.e. lægra en 0.85% jafngildi natriumoxiös. í byggingarhluta, sem veröa mjög útsettir fyrir veörum, skal nota óvirk steinefni. Aö lokum leggur formaöur byggingarnefndar til, aö aukiö veröi eftirlit meö framleiöslu og miöurlögn steinsteypu, meö aör- ar skemmdaorsakir i huga, t.d. frostskemmdir. Veröi ráöinn til þess sérstakur starfsmaöur, er hafi eftirlit meö steypuefna- framleiöslu, blöndun steypu og niöurlagningu hennar á byggingarstaö. —eös. Störf sjómanna eru undirstaða velmegunar landinu. Því skipta líf og kjör þeirra alia ís lendinga máli íslendinga vinna við fiskveiðar og fiskvinnsiu. eru sjómenn útflutningsverðmæta eru sjávarafurðir. í 40 ár hefur VIKINGURINN verið málsvari sjómanna Að kröfu tímanna hefur efni og útlit tekið breytingum, en markmiðið er hið sama og fyrr: Mp ’ að kynna málefni sjómanna og sjávarútvegs. * -*' 15653 Hringið og gerist áskrifendur. 13,2% 5,2% 80,0% Sjomannablaðið Víkingur Borgartúni 18 105 Reykjavík. erienaar bækur The Great Archaeologists and their Discoveries as origin- ally reported in the Pages of The Illustrated London News. Edited by Edward Bacon. Secker & War- burg 1976. Ahugi fyrir gömlum minjum er samfara áhuganum fyrir liönum tima og viröist eölislægur. Hadri- an keisari safnaöi fornminjum og þótt Herodótus sé talinn faöir sagnfræöinnar þá lifðu og lifa frumstæöir þjóöflokkar fortiöina á margvislegan hátt. Söfnun forn- minja sem tómstundagaman má rekja til endurreisnartlmans, en fornminjafræöi I nútima merk- ingu verður vart rakin lengra en hundraö til hundraö og fimmtiu ár aftur. Þessi bók byggir á The Illustrat- ed London News sem heimild. Þaö var stofnað I maimánuöi 1842 á stjórnarárum Viktóriu drottn- ingar, hún haföi þá rikt I fimm ár, og enn kemur þetta ágæta blaö út þegar sonar-sonar-sonar-dóttir Viktóriu hefur rikt I 25 ár. Blaö þetta hefur verið valiö sem heimild um fornleifafundi sökum þess áhuga sem rit- stjórarnir hafa alla tiö sýnt forn- minjarannsóknum. Þegar I fyrstu blööunum voru birtar fréttir af fornminjafundum og á vissu timabili var fastur þáttur I blaö- inu mánaöarlega, þar sem greinar birtust um fornminjar á- samt ágætum myndum. Þaö er þvi gjörlegt aö rekja sögu helstu Framhald á l'4i siðu Sovésk timarit á erlendum tungumálum gefa lesendum glögga innsýn I llfiö I Sovétrikjunum: landiö, fólk- iö, og hvernig þaö lifir og starfar. Timaritiö Sovét Union, Sputn- ik og Travel to the USSR birta reglulega greinar um margvisleg sjónarmiö varö- andi efnahagsþróun og fram- kvæmdir i ólikum héruöum og lýöveldum Sovétrikjanna. Nöfn annarra timarita tala sinu máli sjálf: Soviet Woman, Sport in the USSR, Soviet Literature, Sovir et Film, Culture and Life, Chess in the USSR,Soviet Mili- tary Review, Foreign Trade. Utanrikisstefna Sovétrikj- anna, alþjóöamálefni þau sem efst eru á baugi o.fl. i þeim dúr eru tekin til meö- feröar i International Affairs, New Times og XX Century and Peace. Visindamenn er fást viö þjóö- félagsleg vandamál munu finna margt áhugavert i blaö- inu Social Sciences. Fréttablaöiö Moscow News er einnig mjög vinsælt meöal er- lendra lesenda. Lesið og gerist áskrif- endur áð sovéskum tímaritum. Sendiö áskrift yöar til Bókabúðar Máls og menníngar Laugavegi 18, Reykjavik.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.