Þjóðviljinn - 28.12.1978, Síða 3
Fimmtudagur 28. desember 1978.' ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Ecevit, forsætisráðherra Tyrk-
iands. /
Indira Gandhi
Gagnrýnir
áætlanir
um fram-
tíð Ródesíu
SALISBURY, 27/12 (Reuter) —
Ráðherra i stjórn Ian Smith I
Ródesiu, Rolli Hayman að nafni
sagði af sér i dag vegna andstöðu
sinnar við stefnu Smiths. Hann
sagði sig einnig úr flokknum og
sagðist hann aðhyllast tillögur
Bandarikjamanna og Breta um
framtið Ródesiu, fremur en
klaufalegar áætlanir Smiths.
Hann segist vera mjög svart-
sýnn um kosningar þær sem fram
eiga að fara i landinu i april, þvi
þær muni aðeins bjóða
kommúnistum heim. Kosninga-
þátttaka yrði mjög dræm og yröi
rikisstjórnin þvl veik eftir þvl.
Mun skynsamlegra væri að
hafa Breta með I ráðum, þvl
þannig myndi viðskiptabanni
veröa létt af landinu. Hin nýja
rlkisstjórn veröi hins vegar veik,
muni ekki njóta álits umheimsins
og herstyrkur hennar yröi ákaf-
lega takmarkaður. Hún myndi
þvi fljótlega missa landið I
hendur skæruliða
Hayman er fimmti ráöherrann
sem yfirgefur rlkisstjórn Ian
Smiths.
Mótmæla niður-
skurði á aðstoð
TEL AVIV, 27/12 (Reuter) —
Kennarar sem annast kennslu
barna palesttnskra flóttabarna
fóru I verkfall I dag á vestur-
bakka Jórdanár og Gazasvæðinu.
Vildu kennarar mótmæla niður-
skurði á aðstoö Sameinuöu Þjóð-
anna til flóttamanna sem búsettir
eru á hernumdum arablskum
svæðum I höndum Israelsmanna.
ERLENDAR FRÉTTIR
í stuttu
máli
Nýr rektor
Hafnarháskóla
KAUPMANNAHÖFN —
Kosinn hefur verið nýr
rektor við háskólann i
Kaupmannahöfn. Dr. med.
Erik Skinhöj hiaut flest at-
kvæði á móti fráfarandi
rektor Morten Lange.
Hlaut Skinhöj hundrað og
sjö atkvæði á móti 102 sem
féllu Lange í vil.
Úrslit kosninganna eru mikill
sigur fyrir vinstri menn innan há-
skólans, en eins og Skinhöj sagöi
sjálfur, er hvað mest spennandi
að meirihlutinn sem réö útslitum
er vinstra megin viö þaö sem telst
miðja I danskri pólitlk.
Viku áöur höfðu farið fram
kosningar, en þar sem varla var
hægt aö telja annan þeirra trygg-
an sigurvegara, vegna auöra
seðla var kosið aftur i slðustu
viku fyrir jól, með ofannefnri nið-
urstöðu. Talsveröa athygli vakti,
aö tveir fyrrverandi rektorar
höföu lýst yfir stuðningi slnum viö
Morten Lange, en slikt brýtur I
bága við reglur og venjur háskól-
ans, þar sem rektorar eru ekki
vanir að skipta sér af vali á eftir-
mönnum sinum
Vararektor verður Mogens
KoktvegSrd, en hann er mikill
stuöningsmaður Lange. Skinhöj
telur það þó ekki eiga að koma I
veg fyrir góða samvinnu milli sln
og vararektors.
Erik Skinhöj tekur við embætti
1. febrúar n.k.
(Information).
TEHERAN, 27/12 (Reuter) — Óeirðir i Teheran náðu hámarki
sinu I dag, þegar menn úr óreiröalögreglunni byrjuðu aö skjóta
hver á annan I fáti.
Ólæti brutust út um þaö leyti er Ollufélag Irans tilkynnti að
olla yröi skömmtuð vegna samdráttar I framleiðslunni. Iran er
næststærsta olíuútflutningsland I heimi, en aö undanfömu hefur
framleiðslan aðeins numiö tiu af hundraði eölilegrar fram-
leiðslu.
Fimm menn létu lífiö þegar lögreglumaður skaut á kollega
sinn en aðrir beindu skotum sinum að fjöldanum.
Þúsundir friðsamra manna höfðu fylgt kistu prófessors eins
sem lét llfiö I borginni I gær. Hann var slðar jarösettur að viö-
stöddum 10.000 mönnum sem notuöu tækifærið og hrópuðu: Niö-
ur með keisarann.
Flestar verslanir og skrifstofur voru lokaðar I dag.
Stórslys á Indlandi
NÝJA DELHI, 27/12 (Reuter) — Fimmtán manns iétu Hfið og
þrjátiu og tveir særðust, þegar hraðlest ók inn I bifreið á öðrum
degi jóla.
Slysiö varð nálagt bænum Trichur I Keralafylki I sunnanverðu
Indlandi. Að sögn lækna eru fimmtán manns enn I lifshættu af
þeim sem komust llfs af. Meiri hluti þeirra sem létust voru kon-
ur.
Olíuskip brennur viö Tyrkland
ISTANBOL, 27/12 (Reuter) — Ströndum Tyrklands er nú búin
bráð hætta af olfumengun, eftir að griskt ollufiutningaskip
Kosmos-M að heiti brann úti fyrir steinum landsins.
Skipið flytur 18.000 tonn af ollu frá Sovétrikjunum til Júgó-
slaviu, en slðan kviknaði I þvl vegna vélabilunar. Nú er jafnvel
hætta á að skipið sökkvi vegna vatnsmagns þess sem nú iþyngir
skipinu eftir tilraunir til slökkvistarfa.
Ahöfninni varö bjargað I gær, en tvö tyrknesk skip eru nú við
skipið i von um að bjarga þvi frá að sökkva.
Ekki er ár liðiö stðan oliuskipið Amoco Cadiz strandaði fyrir
utan ströndum Bretagne-skaga og olli þar stórkostlegu tjóni á
náttúrullfi sem og mannlifi.
Mannskaðar og mikif flóö
á Suður-Indlandi
NÝJA DELHI, 27/12 (Reuter) — óttast er að fjörutfu og niu ung-
menni hafi látið lífiö þegar flóð f Ramanathapuram hremmdu
fólksflutningabll. 1 bifreiðinni voru sextiu manns á leið til vinnu f
eldspýtnaverksmiöju. Þegar henni var ekið yfir brú eina barst
hún I fljótið og gat ökumaður og nokkrir farþegar synt burt. Ótt-
ast er að hinir hafi drukknaö.
Miklar rigningar hafa veriö á Suöur-Indlandi undanfarna daga
og munu um áttatiu þúsundir manna hafa misst heimili sin I
borginni Tamil Nadu I Madras-fylki.
Hinn nýi rektor Erik Skinhöj
Morten Lange fráfarandi rektor
Lögreglumenn skutu hver á annan
Mótmœla skipulaginu
KAUPMANNAHÖFN, — i slöustu viku gripu fbúasamtök Norö-
urbrúar I Kaupmannahöfn og kaupmenn til aðgerða. Vildu þeir
þar með leggja áherslu á kröfu sfna um að strætisvagn nr. 3 æki
um Blagardsgade á nýjan leik, en það hafði hann gert þar til fyr-
ir ári. Nú ekur hann um götu samhliða Blagardsgade.
Fólkið leigði strætisvagn sem látinn var aka venjulega leið, aö
þvi tilskildu að honum var ekið um Blagardsgade eins og áður
var. Þvi var fagnaö meö að klippa á silkisnúru sem girti götuna
af.
Aðgeröir þessar voru ekki af „nostalglu” sprottnar, heldur
hefur breytingin á áætlunarleiðum nr. 3 valdið miklum búsifjum
kaupmanna i Blagardsgade. Slðan nr. 3 brá út af gömlu leiðinni
hafa tuttugu og tveir kaupmenn neyðst til að loka verslunum sin-
um og aörir orðið fyrir stórkostlegu tapi.
Atburöur þessi var liður I aögeröum ibúasamtakanna til að
benda á of litil áhrif borgaranna á skipulag umhverfis sins.
Strætisvagni nr. 3 fagnað þar sem honum er ekib um Biágarðs-
götu á Norðurbrú.
Indira laus
úr fangelsi
NÝJA DEHLI, 27/12 (Reuter) —
Indira Gandhi fyrrum forsætis-
ráðherra Indlands var látin laus
úr fangelsi i dag, en þar hafði hún
setið i eina viku. Hún var svipt
þingsæti sinu sem hún hafði ný-
iega fengið, vegna meintra mis-
ferla i embætti sem forsætisráð-
herra.
Hún hvatti þingflokk Congress-
flokksins til að berjast af öllum
mætti gegn núverandi rlkisstjórn
undir forystu Moraji Desai.
Skipuleggja bæri fundi og kröfu-
göngur til að fræða fólkiö vlðs-
vegar um landið.
Hún sagðist myndu reyna að ná
þingsæti á ný og kæmi þá jafnvel
til greina að starfa með mönnum
úr Jantara-flokknum sem nú situr
viö völd. Nefndi hún þar mann aö
nafni Charan Singh sem er fyrr-
um ráðherra I stjórn Desai.
Stuðningsmenn Indiru hafa
mótmælt kröftuglega fangelsun
hennar. Þeir hafa gripið til flug-
rána, árása og óeirða til að fá
hana lausa úr haldi. Að minnsta
kosti nltján manns hafa látið llfið
I óeirðum þeim sem orðið hafa
eftir að fréttist um handtöku.
Indiru.
Herástand
í Tvrklandi
ANKARA/ Tyrklandi/ 27/12
(Reuter) — Tyrknesk yfir-
völd hafa nú.lýst yfir hern-
aðarástandi í þrettán hér-
uðum af sextíu og sjö sem í
landinu eru. Var gripið til
þessa ráðs eftir gifurlegar
óeirðir í borginni
Kahramanmaras í suð-
austurhluta Tyrklands þar
sem 97 manns létu lífið.
Hundrað og sjötíu manns
særðust en sjötíu og fimm
menn voru handteknir.
Meðal borga þeirra þar sem
herlögin gilda eru höfuðborgin
Ankara og Istambul, en önnur
héruð sem sett voru undir sömu
lög eru i austur- og suðaustur-
hluta Tyrklands.
Mikil skálmöld hefur rlkt I
Tyrklandi á þessu ári og hafa um
sex hundruö manns látið llfið I
óeirðum. Til samanburðar má
geta þess að á árinu 1977 létu 267
manns llfið á sama hátt.
Rlkisstjórn Ecevits hefur nú
setiö I tæpt ár, en hún er sam-
steypa úr krötum og flokki hægra
megin viö þá. Hún er mikill þyrn-
ir I augum hægri manna og telja
þeir réttast að hún fari frá völd-
um.