Þjóðviljinn - 28.01.1979, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 28.01.1979, Qupperneq 5
Sunnudagur 28. janúar 1979. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 Rjarni fer inn i Bandarikin. Þess má geta, aö allur er varinn góöur. Bjarni <og fjórir blaðakommar aörir) fengu sérstaka áritun, sem gilti aöeins i eina heimsókn til skamms tima, meöan aörir islenskir blaöamenn fengu áritun upp á aö þeir mættu koma eins o'ft og passarþeirra dygöu. Þar aö auki var sérstakt númer á áritun Bjarna og annarra tortryggilegra manna. Þegar Bjarni Þórðarson fór til Bandaríkjanna Aldrei hafði borist jafn ískyggileg umsókn Hér er mynd sem á skilið að komast í annála. Hún er af sögulegri stund. Hún sýnir Bjarna Þórðarson, fyrrum bæjarstjóra á Austurlandi, horfa kank- vísan á bandaríska konu sem hefur fengið það merkilega verkefni að stimpla passa hans og hleypa svo þessum höfuð- bolsa inn í landið. Myndin er tekin i vetur þegar Flugleiðir buöu hópi blaöamanna til Bandarikjanna. Tilefniö var aö opna nýja áætlunarleið til borgar- innar Baltimore. Meöal gesta voru ritstjórar blaða úti á landi, en eitt af afrekum Bjarna, og þau eru mörg, er einmitt aö hafa vel og lengi haldiö út vikublaöinu Austurlandi. Eins og menn vita er þaö enn þann dag i dag plagsiöur i banda- riskum sendiráöum aö láta út- lendinga svara spurningum um þaö, hvort þeir hafi verið i ein- hverjum þeim samtökum sem Bandarikin telja kommúnisk, en þaö hefur stundum tognaö drjúg- um á þvi húgtaki i meðferö skrif- finna. Segir sagan aö Bjarna hefi verið mjög skemmt þegar aö þvi kom aö hann þurfti aö fylla út sinn spurningalista. Hann hefur nefnilega veriö meölimur i öllum rauöum sam- tökum og samfylkingum landsins og ef ekki rauöum þá áreiöanlega „andamriskum”. Bjarni tiundaöi þetta allt mjög skilmerkilega. Stofnandi Kommúnistaflokks Islands. Stofnfélagi I Sósialistaflokkn- um Stofnandi Alþýöubandalagsins Stofnandi samtaka hernáms- andstæöinga Stofnandi Mir.... Og svo mætti lengi telja. Sögur herma þaö ennfremur, aö uppi hafi oröiö fótur og fit þeg- ar skýrsla Bjarna kom á skrif- borö vegabréfsáritara i banda- riska sendiráöinu hér. Mennirnir höföu aldrei séö jafn hrikalegan og opinskáan pólitiskan afbrota- feril á einu blaöi. Flýttu þeir sér aö taka gott ljósrit af vegabréfs- umsókn Bjarna og festa hana upp á vegg, komandi kynslóöum til upplýsingar og upplyftingar. Og Bjarni Þóröar fór svo til Amríku eins og myndin sannar. Og kom heim aftur. Carter situr enn I Hvita húsinu. áb Erlendar bækur Democracy and Classical Greece. J.K. Davies. Fontana History of the Ancient World. Fontana/Coil- ins 1978. Höfundurinn er nú starfandi viö háskólann I Liverpool. Hann hef- ur skrifað talsvert um hellensk efni. Bók hans Athenian Propertied Families 600-300 f. Kr. kom út 1971. Þaö er einlægt veriö aö endur- bæta og endurskrifa sögu Hel- lena, og kemur þaö til aö nýjum viöhorfum, en kveikju þeirra eru rannsóknir fornminja, nýir fundir og endurmat annarra heimilda, og sfðast en ekki sist breytingar á samfélagsháttum og mati nú á dögum. Hver kynslóð leggur sitt mat á fyrri tiöa sögu og aöra megináherslu á ýmsa þætti, sem fyrri kynslóö sinnti e.t.v. litt. Þaö hefur löngum veriö álitiö aö menningarblómi Hellena hafi náö hæst á fimmtu og fjóröu öld f. Kr., og þá sérstaklega i Aþenu. Davies rekur nú þessa þróun samkvæmt eigin skilningi á þeim heimildum sem eru fyrir hendi, en þær eru fornleifar, rústir hofa og húsa. áletranir á steina og töfl- ur, styttur og leirker, mynt og grafir, ásamt skrifuöum heimild- um sagnfræöinga, skáldskap og heimspeki. Sá sem tekur sér siöan fyrir hendur aö raöa saman heimildum sem fyrir liggja veröur aö treysta á hugkvæmni og stundum hreina getspeki svo að sagan veröi rakin, sönnunargögnin eru oft I hæpnara lagi, og þá er úr vöndu aö ráöa. Davies hefur tekist aö setja sam- an frásögn byggöa á samtima- oh reyndar stundum siðari tima heimildum, sem hann hefur nýtt vel, og auk þess notar hann óbein- ar heimildir sem vinsa má úr bókmenntum og heimspekiverk- um þessara tima, og þannig tekst honum aö glæöa frásögnina meira lifi. Fullkomið hjólbaiðaverkstæði við HJOLBARÐA VIÐGERÐ VESTURBÆJAR hefur nú opnað nýtt og fullkomið verkstceði vestur við Ægisíðu (ESSÓ-bensínstöðin). VEL BÚIÐ TÆKJUM. Verkstceðið er búið öllum fullkomnustu tcekjum sem völ er á. ÖLL ÞJÓNUSTA INNAN DYRA. Öll þjónusta verður veitt í hlýjunni innan dyra, í rúmgóðu húsnceði. HJOLBARÐAVIÐGERÐ VESTURBÆJAR Söluaðili ffyrir ATLAS 03 | <$>YOKOHAMA

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.