Þjóðviljinn - 28.01.1979, Qupperneq 9
Sunnudagur 28. janúar 1979. j»JÓÐVILJINN — SIÐA 9,
( - -K/J
j ■•w/y.
Frægur alþýðulistamaður
frá Chile
Ginés Contreras
Ginés Contreras er
fæddur í litla sveitarþorp-
inu Nacimiento, í Bio-Bio-
héraði í Chile. Hann flutt-
ist til borgarinnar
Conceptión er hann hóf
listnám sitt. Conceptión,
sem liggur í Suður-Chile er
þekkt fyrir stúdentaupp-
reisnir og baráttu alþýð-
unnar fyrir þjóðlegu f relsi.
Þar hélt Contreras fyrstu
sýningar sínar og varð
fljótlega víðfrægur fyrir
listaverk sín. Verk hans
lýsa alþýðulífi og hvers-
dagsleik í Chile og hafa
vakið athygli innan Chile
sem utan. Contreras hefur
oft verið heiðraður og
verðlaunaður fyrir verk
sín.
• 1950 hlaut hann verölaun fyrir
verk sin á listsýningu, sem haldin
var I tilefni 400 ára afmælis
borgarinnar Conceptión.
• 1964 hlaut hann fyrstu verö-
laun fyrir grafik og málverk á
listamannasýningunni i
Valparaiso.
• 1964 var hann kjörinn besti
listamaöur Valparaiso-héraðs
viö haustsýningu bæjarfélagsins.
• 1965 hlaut hann fyrstu verö-
laun viö haustsýninguna á
Vaíparaiso og fyrstu verölaun á
sýningu chiliskra listamanna.
Auk þess voru verk hans valin á
bandarisku grafiksýninguna, sem
haldin var annaö hvert ár i Santi-
ago de Chile.
• 1969 fékk hann gulloröuna viö
haustsýninguna i Valparaiso,
önnur verölaun viö sumarsýning-
una i Vina del Mar og fyrstu verö-
laun viö vorsýninguna i Villa
Alemana. Mörg verk hans hanga
nú á söfnum og i einkaeign bæöi i
Evrópu og i Ameriku.
• 1970, i stjórnartima Salvador
Allendes, hóf Contreras mikil af-
skipti af kjörum og menntun
listamanna i Chile og hefur ferö-
ast mikið um landiö til aö kenna
og sýna myndlist I þvi skyni aö
styrkja og varöveita hina þjóö-
legu alþýöulist.
Ginés Contreras er alhliða
myndlistamaöur; hann teiknar,
málar og gerir grafikmyndir.
Grafikmyndir hans, sem hér birt-
ast, eru skornar i viö, og eru allar
frá árinu 1974.
Neruda um Conteras
Hiö kunna nóbelsskáld frá Chile, Pablo Neruda, orti þ. 4. aprll 1970
eftirfarandi ljóö um Ginés Contreras:
Ginés Contreras
lýkur upp augum,
vinnustæðum,
mönnum sem eru yfirgefnir,
stúlkum i gluggum,
sólblómum með viðargljáa
alsettum þráðum frá hinni þöglu fjarlægð,
sem verða að söng i höndum Ginés.
Voldug samhljóman i svörtu og bláu
þvingar fram sáttmála i sálu okkar;
snúum bökum saman,
látum drauma vora rætast
svo við getum svifið á sömu vængjum.
(Þýö: —im>