Þjóðviljinn - 03.03.1979, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 03.03.1979, Blaðsíða 2
2 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 3. mars 1979 Af Djöflakló Það er helst árvissra tíðinda á íslandi að á vetri hverjum hleypur andskotinn í þann hóp manna, sem telur þá hugsjón æðsta í lífinu að éta gras. Fyrir allmörgum árum bundust grasbítar þessir samtökum og nefndu þau Náttúrulækn- ingafélag Reykjavíkur. Þetta góða og saklausa fólk, sem átti sér sömu áhugamál og kýrnar og kindurnar, undi árum saman glatt við sitt og gæddi sér á grængresi eða rudda, en hafði töðu og súrhey til hátíðabrigða. Alsælir voru náttúrulækn- ingamenn, þótt þeir hefðu hvorki kepp, laka, vinstur né önnur anatómisk skilyrði til að jórtra og ekki voru þeir síður I andlegu jafn- vægi en búsmali landsmanna í haga. Þá var það á haustmánuðum 1975 að bera fór á einhverri aðkenningu af fídonsanda í röðum grasbíta og lék jafnvel grunur á því að sjálfur myrkrahöfðinginn hefði tekið sér ból- festu í sumum náttúrulækningamanna. Svo forstokkaðir urðu sumir, að þeir hættu að þakka fyrir matinn eins og venja var með orð- unum: ,,Guðiaun fyrir grasið og góðar hægð- ir", en sögðu þessi í stað fyrir matinn og verði ykkur að góðu. Þetta var einmitt um það leyti sem fyrstu skammtarnir af Djöflaklónni bárust hingað til lands, en að því kem ég seinna. Ohætt er að fullyrða að það var í beinu framhaldi af neyslu Djöf laklóarinnar að einhverrar ónátt- úru fór að gæta í röðum náttúrulækninga- manna og þótti mörgum það lítil náttúrulækn- ing að f á í sig ónáttúru í staðinn f yrir náttúru, sem upphaflega hafði verið ætlunin að lækna. Það var sem sagt á aðalfundi Náttúrulækn- ingafélagsins í október 1975, sem fyrst dró til tíðinda, þannig að andlegt heilbrigði sumra náttúrulækningamanna var stórdregið í efa. Fundur þessi var haldinn uppi á Laugavegi og var örtröðin þar slík að fundarmenn urðu að hafast við frammi á gangi, í stiganum , inni í skápum og jafnvel á klósettinu meðan á f undi stóð og voru raunar sumir f undarmanna lagðir til uppi á eldhúsborði í öngviti, en aðrir troðnir undir. Sú dýrmæta reynsla fékkst þó af f undi þess- um að eftir hann var talið óráðlegt fyrir nátt- úrulækningamenn að halda fundi í þröngum húsakynnum, einkum með hliðsjón af því að þrumari er það brauðmeti, sem nýtur einna mestrar hylli í röðum náttúrulækningamanna. Um daginn var svo haldinn frægur fundur í Háskólabíói, en þau húsakynni hafa rómaða loftræstingu. Um þann f und hefur svo mikið verið skraf- aðog skrifað að ekki er á það bætandi, en hins vegar hlýtur alþjóð að spyrja hver djöfullinn sé eiginlega hlaupinn í þetta saklausa fólk, sem hef ur það markmið háleitast að éta gras. Og þar er komið að Djöf laklónni. Djöflaklóin er planta sem vex í Namibíu og eru það rótarhnúðar plöntunnar, sem neytt er og það með þeim af leiðingum að náttúrulausir náttúrulækningamenn frá ekki aðeins náttúruna aftur, heldur verða þeir friðlausir af losta og ofan í kaupin líkastir Agli forðum, þegar hann var búinn að éta vænan skammt af berserkjasveppum. Sem sagt trítilóðir. Við djöfulæði, sem orsakast af ofneyslu á Djöflakló, telja sérfróðir aðeins eitt ráð og það er að láta vígðan mann reka andskotann úr grasætunum. Annað þjóðráð er líka til en það er að gefa þeim „besetnu" Fjandafælu, en sú jurt var jafnan tilreidd til forna, þegar menn þurftu að ná sér eftir ofneyslu á skollafingri, skollafæti, skollagrasi, skollahári, skollakáli eða skollareipi. Að lokum er vert að benda náttúrulækningamönnum á gömul íslensk grös, sem löngum hafa þótt gædd bæði lækn- ingamætti og töf ramætti, en þau eru Mjaðjurt og Freyjugras. Um þessi grös segir svo í Þjóðsögum Jóns Arnasonar: „Mjaðjurt og Freyjugras hafa mikinn lækn- ingamátt en auk þess er Mjaðjurt höfð til að vita hvort stolið hef ur verið, en Freyjugras er haft til að vita, hver frá manni stelur." Og vert er að minnast auglýsingarinnar góðu: Ef þér finnst þú eitthvað linur, ekki tekst að gagnast snót, innbyrtu þá, elsku vinur, elexír af Djöflarót. Flosi. Eyðsla Bifreiðaeftirlits ríkisins Fimmtudaginn 15. þ.m. birtist á 5 siðu Þjóðviljans grein með aðalfyrirsögn: „Bif- reiðaeftirlitið eyðir jafn miklu og Utanrikisráðu- neytið”. Birtur var út- reikningur á eyðslu nokkurra ráðuneyta og rikisstofnana. Niður- staða útreikninganna var sú, að Bifreiðaeftir- litið skákaði Utanrikis- ráðuneytinu i eyðslunni. Hvað lagði blaðamaður- inn svo til grundvallar? Tekin voru heildarútgjöld og i þá tölu deilt meB starfsmanna- fjölda viökomandi stofnunar um áramót. Sem dæmi um nákvæmnina reiknaBi blaBa- ma&urinn eyBshi BifreiBaeftir- litsrikisins þannig út, aB hann tók heildarútgjöld stofnunarinnar yfir allt landiB en starfmanna- fjöldann f Reykjavik einjgöngu. Næsta dag reit hann grein sem birtist á sömu siBu og fyrri grein- in i ÞjóBviljanum. I fyrirsögn þeirrar greinar „sýknaBi blaBa- maBurinn BifreiBaeftirliBiB af eyöslunni”. Nú var tekiB allt fast- ráBiB starfsfólk sem var hjá stofnuninni um áramót og deilt 1 heildarútgjöldin. útkoma reikn- inganna varB aB vlsu allmiklu hagstæBari fyrir BifreiBaeftiriitiB en i fyrra dæminu. Þó var enn sú skekkja í dæminu, aB kaup laus- ráBins starfsfólks var reiknaB sem útgjöld, en ekki tekiö inn i starfsmannafjöldann. Greinarhöfundur gat þess, aB eigin tekjur af námskeiBahaldi og númerasölu hafi numiö 55,4 mil- jónum króna. Þess má geta, aö auk þeirrar upphæöar innheimt- ust i skráningar- skoöunar- og prófgjöld kr. 173.7 miljónir á árinu 1977. Vantaöi þvi ekki nema nokkrar miljónir upp á, aö inn- heimt gjöld vegna starfsemi stofnunarinnar nægöu fyrir út- gjöldum. IniBurlagi greinarinnar baöst blaöamaöurinn velvirö- ingar á mistökum. En aöalmistökin viöurkenndi blaBamaBurinn ekki, þ.e. aö nota reikningsaöferö sem gaf enga raunhæfa útkomu um eyBslu viö- komandi stofnunar. Þarf þaB t.d. aö vera eyösla aö nota tölvutækni viö skráningarverk? Viö getum hugsaö okkur aö afnot af tölvunni kosti kr. 350 þús. á mánuöi en hún sparartvo starfsmenn, sem kosta hvor um sig kr. 230 þús. á mánuöi. Þetta kemur illa út i útreikning- um blaöamannsins, en er samt beinn hagnaBur fyrir viökomandi stofnun. Nokkur dæmi úr starf- semi Bifreiðaeftirlits- ins. BifreiBaeftirlitiB kaupir númeraplötur og sdur aftur sem næst kostnaöarveröi. Númera- kaupin reiknar blaöamaöurinn sem útgjöld. Hér er um aö ræöa kaup og sölu á vöru. KaupverB vörunnar er reiknaö sem útgjöld á hvern starfsmann en söluverö kemur ekki inn I dæmiö. Fróölegt væriaB sjá kostnaö á hvern mann t. d. hjá Afengis- og tóbakseinka- sölu rfkisins ef nota&ur er út- reikningur blaBamanns ÞjóB- viljans. BifreiöaeftirlitiB hefur sem sér- verkefni aö sjá um námskeiö fyrir þá sem öölast vilja réttindi til atvinnureksturs og til aB aka stærri geröum vörubifreiöa. ViB þessi námskeiö vinnur einn fast- ráöinn starfsmaöur en öll kennsla er i höndum stundakennara. Nemendur greiöa sjálfir sem næst allan kostnaö af námskeiö- unum, en hann var á árinu 1977 u. þ.b. kr. 26.6 miljónir. Sam- kvæmt útreikningum blaBa- mannsins varö kostnaöur viö þennan eina starfsmann kr. 26,6 milj. Kaup stundakennaranna voru reiknuö sem útgjöld, en þeir voru ekki teknir inn i reiknaöan starfsmannafjölda. Námskeiös- gjöld nemenda voru ekki heldur dregin frá útgjöldunum. (Jtreikn- ingar blaöamannsins heföu komiö nokkru betur út fyrir stofnunina ef ráönir væru nokkrir heilsárs kennarar á þessi námskeiB. Okkur sem stöndum aB nám- skeiöunum viröist hins vegar aB sú leiö yröi allmiklu kostnaöar- samari. Verkefnum Bifreiöaeftirlitsins er þannig háttaö, aB þau koma meö mestum þunga á seinni hluta vetrar, voriö, sumariB og fram á haustiö. Til þess aö mæta þessari auknu verkefnaþörf fær stofnunin lausráöiö starfsfólk yfir þennan tlma. Meö útreikningum blaöa- mannsins kæmi miklu betur út aB hafa fastráöiBstarfsfólk allt áriö i, þessi verk, þótt þaö heföi ekkert aö gera nokkra mánuBi aö vetr- inum. Röng reikningsaðferð MeB útreikningum blaöa- mannsins kæmi þaö mjög vel út, aB hafa starfsfólk I heilsársstarfi, sem ekkert heföi aö gera. ÞaB heföi aö sjálfsögöu sitt fasta kaup en annar kostnaöur viö þaö gæti veriö mjög litíll. Þaö þyrfti ekki einusinni aö nota blek eöa pappir og feröakostna&ur yröi aö sjálf- sögöu enginn. 1 minum huga eru þvi niöur- stööur beggja greina blaöa- mannsins jafn marklausar. Greinarnar segja okkur ekkert hvort stofnanir sem um er ritaö eru vel eöa illa reknar. Blaöa- ma&urinn notar einfaldlega ranga a&ferö. Enginn má skilja þessar línur minar þannig, aö ég vilji ekki aö rlkisstofnunum sé veitt aöhald og aö fylgst sé meö hvernig þær eru reknar. Þaö er alveg sjálfsagöur hlutur. Þeir sem gera athuganir á rekstri stofnana veröa bara aö setja sig þaö vel inn I viðfangsefn- iö, aö þeir skilji nokkurn veginn hvaö þeir eru aö reyna aö reikna. Kópavogi, 23. febrúar 1979 Guöni Karlsson Utboð Stjórn Verkamannabústaða i Reykjavik óskar eftir tilboðum i eftirfarandi verk- þætti i 18 fjölbýlishús, 216 ibúðir i Breiðholti: 1. Eldhúsiimréttingar 2. Skápar 3. Innihurðir 4. Sólbekkir og fieira (Jtboðsgögn verða afhent á skrifstofu V.B. Mávahlið 4 frá mánudegi 5. mars 1979 gegn 20 þús. kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð föstudag 16. mars 1979 kl. 14.00 á Hótel Esju. Athugasemd Þann 16. febrúar birtist hér I Þjóöviljanum útskýring á þvi hvaöan og hvernig viökomandi tölur um rekstur ráöuneyta og rlkisfyrirtækja vorufengnar, en þó viröist þörf fyrir aö endurtaka þaö hér. 1 þessu tilviki er ekki við nákvæmni, tölur eöa reiknings- kúnst blaöamanns aö sakast, heldur rangt uppsetta rikis- reikninga sem notaöir voru sem heimild (gagnrýnislaust að vísu og lái þaö hver sem vill blaöa- mönnum) svo og samanburöar- grundvöll sem Hagstofa Islands sendi fjölmiölum fyrr I febrúar um rekstarkostnaö ráöuneyta miöaö viö mannafla. Þegar Hagstofan var á þann hátt borin saman viö önnur ráðuneyti kom I ljós aö hún reyndist ódýrust I rekstri en utanrlkisráöuneytiö dýrast. Þjóöviljinn fékk ábendingar og beiðni um aö Hagstofan væri á sama hátt borin saman viö rlkisfyrirtæki og var þaö gert I blaöinu þann 15. febrúar. Þá kom I ljós aö a.m.k. tvö rikisfyrirtadki reyndust ódýrari en Hagstofan (þ.e. Ríkisendur- skoöun og Tollstjóraskrif- stofan), en vegna rangt upp- settra rfldsreikninga var niöur- staöan sú aö Bifreiöaeftirlitiö I Reykjavik skákaöi utanrikis- ráöuneytinu I eyöslu. Þegar sú villa haföi veriö leiörétt m.a. vegna ábendinga Guöna Karls- sonar og staðfestingar frá Rikisendurskoöun, kom I ljós aö Bifreiöaeftirlitiö var þarna mitt á milli. Þegar miöaö er viö heildarút- gjöld hlýtur að veröa aö taka laun lausráöins starfsfólks og afleysingafólks innl myndina, þvi laun þeirra teljast I reikn- ingum útgjöld, hvernig svo sem starfi þeirra, sparnaði af þvi aö ráöa frekar lausrá&iö fólk um tlma og öörum atvikum er háttaö. Hvort innheimt gjöld eöa eigin tekjur viNcomandi stofnunar nægja fyrir útgjöld- um eöa ekki, breytir engu um rekstarkostnaöinn. Auðvitað er erfitt aö bera saman jafnólikar stofnanir og utanrlkisráðuneyti og Bifreiöa- eftirlit, Rlkisendurskoðun og Tollstjóraskrifstofu. Vel kann llka a& vera aö annar saman- buröargrundvöllur gefi raun- hæfari mynd af rekstri þessara stofnana en sá sem hér var notaöur, — aö miöa viö kostnaö pr. mannafla. Eina meginreglu veröur þóaö hafa I heibri, þegar samanburöur er geröur, og hún er sú aö láta eitt yfir- alla ganga _______________ —AI

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.