Þjóðviljinn - 03.03.1979, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 03.03.1979, Blaðsíða 8
8 SIÐA — ÞJ6ÐVILJINN Laugardagur 3. mars 1979 Raðhús meö verulegum staöbundnum skemmdum, sprungum útfrá buröarvegg og gúlfplötu. Alvarlegar alkalískemmdir hafa aukist jafnt og þétt Skýrslan „Steypu- skemmdir — ástands- könnun”, sem nýlega kom út, fjallar um niðurstöður rannsókna á ástandi steyptra út- veggja húsa. Þær rann- sóknir hafa verið fram- kvæmdar af Rann- sóknastofnun byggingariðnaðarins, en kostaðar af Steinsteypu- nefnd. Reynt var að láta rannsóknina ná til sem flestra skemmda, sem finna má i steyptum út- veggjum. Þrír flokkar skemmda Orsakir skemmdanna eru fjöl- þættar og myndir þeirra marg- breytilegar, en skemmdum er oft skipt í þrjá flokka eftir frumor- sök: 1. Hönnunarvillur, 2. Skemmdir vegna útfærslu og frá- gangsgalla. 3. Efnisgallar. f könnun Rannsóknastofnunar byggingariönaöarins voru skoöuö rúmlega 300 hús f Reykjavík og nágrenni, þar af 30 byggö fyrir 1956, en hin á tlmabilinu 1956 — 1972. A Akureyri voru skoöuö tæp- lega 250 hús, byggö á árunum 1956 — 1972. Skemmdir vegna rýrnunar eða hitabreytinga begar steypa þornar og harön- ar, rýrnar hún og dregst saman. Sé þessi samdráttur hindraöur á einneöa annan veg myndast tog- spennur i steypunni, sem á þá á hættu aö fá sprungur. Þaö er hlut- verk hönnuöa aö koma f veg fyrir aö þessar sprungur veröi til baga meö raufum og réttri járnbend- ingu. Draga má hins vegar mjög ilr hættu á rýrnun á steypu meö þvi aö halda vatnsmagni hennar lágu. Sé vatni bætt i steypuna á byggingarstaö getur rýrnunar- hættan aukist um 100% eöa meira. Skemmdir af völdum rýrnunar eru mjög likar skemmdum sem stafa af hitaþenslum. 1 flestum islenskum hUsum fylgir hiti Ut- veggjanna hitastigi Uti, en inn- veggir og plötur fylgja innihita. Miklir þvingunarkraftar geta þvi myndast þar á milli og myndaö sprungur á útveggjum. I niöurstööu könnunarinnar kemur m.a. fram, aö lóöréttar sprungur eru I útveggjum 44% einbýlishúsa i Reykjavik, sem byggö eru eftir 1956. Sambærileg tala fyrir raöhúser 53% og blokk- ir 63%. 1 skýrslunni segir, aö þessar tölur sýni greinilega aö hönnuöum hafi almennt ekki tek- ist aö leysa þau vandamál, sem hitasveiflur og rýrnun hafi i för meö sér, einkum hjá stærri húsum Meira hefur veriö byggt af fjöl- býlishúsum á siöari árum en áö- ur, en þeim er mun hættara viö skemmdum af þessu tagi en ein- býlishúsum. Þannig hefur heildartiöni lóöréttra sprungna I útveggjum aukist úr 30% á hús- um byggöum fyrir 1956 I u.þ.b. 50% á húsum byggöum á timabil- inu 1956 — 72. Skemmdir viö plötuskil i göfl- um fjölbýlishúsa reyndust einig mjög tiöar, eöa i heild i 63% hús- anna, en alvarlegar skemmdir af þessu tagi voru i 35% þeirra. Frostskemmdir Frostskemmdum viröist fækka eftir þvi sem húsin eru nýrri. 75% húsa sem byggö voru fyrir 1956 höföu frostskemmdir, en siöan fækkar skemmdunum jafnt og þétt í öfugu hlutfalli viö aldur húsanna, og frostskemmdir reyndust á 35% húsa, sem byggö voru 1971 — 72. Alkalískemmdir Til þess aö alkaliskemmdir komi fram f steypu þarf þrennt aö vera til staöar: Hátt alkalimagn I steypunni, alkalivirk fyliiefni og nægúegur raki i harönaöri steyp- unni. Vanti einn þessara þriggja þátta þarf ekki að búast viö al- kaliskemmdum. Engar skemmdir af völdum alkalfvirkni voru þekktar hér- lendis fyrr en 1976, er merki fundust um alkalíefnahvörf á háu stigi f borkjörnum úr skemmdu húsi, en þeir voru rannsakaðir i Danmörku. Aukning aikalískemmda Eins og sést á meöfylgjandi linuriti, hafa alvarlegar alkalí- skemmdir aukist jafnt og þétt meö árunum. Ef reiknaö er meöaltalþeirra húsa, sem grunur leikur á um aö hafi skemmst alvarlega vegna alkaliefna- hvarfa á árunum 1956 — 1972, kemur i ljós, aö búast má við aö a.m.k. 6,6% húsa byggðra i Reykjavik á þessu timabili hafi alvarlegar alkalfskemmdir. Þar sem skemmdirnar koma frekar hægt f ljós, má búast viö aö þessi tala kunni aö hækka þegar fram lfða timar. Orsakir Islenska háalkalisementiö (alkaliinnihald 1,3— 1,5%) kom á markaðinn haustiö 1958. Um leið jókst hættan á alkallskemmdum. Ariö 1962 var byr jaö aö nota fylli- efiii, sem dælt er upp af hafsbotni, en þau reyndust alkalfvirk. Auk þess bera efnin meö sér töluvert magn af seltu, sem hækkar alkalfmagn steypunnar. Notkun þessara fylliefna hefur stööugt aukist og hafa þauveriö nær alls- ráöandi á Reykjavikursvæöinu siöustu árin. Lélegur frágangur I skýrslunni kemur fram aö ýmis hönnunarleg atriöi eins og þakgerö, stærö þakbrúna og yfir- borösmeöhöndlun steypunnar hefur áhrif á skemmdatiöni. Lé- legur frágangur kallar oft fram skemmdir. Einkum á þetta viö um þakbrúnir og þakkanta, sem oft eru óvaröir og vatn getur staö- iö á. Veggir og kantar sem veöur mæöir á frá báöum hliöum skemmast einnig tiðar og fyrr en hinir. Þetta gildir bæöi fyrir alkalf-og frostskemmdir, en áhrif slagregns á þær er einnig mjög greinilegt. Þessu atriði hefur ver- iö alltof litill gaumur gefinn. Sprungunet Eitt af einkennum alkaliefna- breytinga er sprungunet á yfir- borðinu og þá gróft net meö vfð- um sprungum og fingerðara neti á milli. Sprungunet getur þó einn- igstafaöaf öörum orsökum. Mjög greinilegur munur er á útbreiöslu sprunguneta eftir þvi f hvaöa átt veggirnir snúa. Skemmdirnar voru undantekningarlaust alvar- legastar i slagregnsáttum, og komu stundum fram eingöngu á veggjum sem sneru mót þeim átt- um. Skemmdirnar eru algengari i vissum hverfum I Breiöholtinu en t.d. i Fossvoginum. Skemmdir eru einnig algengar i Arbæjar- hverfinu og vissum götum i Tíðni lóðréttra sprungna í útveggjum húsa í Reykjavík byggðra á árunum 1956-1972. Tíðni frostskemmda almennt í Reykjavík Bygginga- tími fyrir 55 56-58 59-61 62-64 65-67 68-70 71-72 Einbýlishús Raðhús Blokkir 44% 53% 63% Skemmda- prósenta 75 64 57 51 43 41 35 1

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.