Þjóðviljinn - 06.03.1979, Síða 14
14 StÐA — ÞJÓÐVILJINN ÞriCjudagur 6. mars 1»7«.
Þjóðleikhúskórinn:
Óperur
ogsöng-
leiki
árlega
A a&alfundi Þjööleikhúss-
kórsins var Þorsteinn
Sveinsson endurkjörinn for-
maöur. Aörir i stjórn eru
Svava Þorbjarnardóttir
gjaldkeri, Hafsteinn
Ingvarsson ritari og Jónas
Magnússon varamaöur.
Fundurinn samþykkti
eftirfarandi áskorun um
óperuflutning:
„Aöalfundur þjóðleikhúss-
kórsins, haldinn i Kristalsal
Þjóöleikhússins 19. febrúar
1979, skorar á Alþingi og
rikisstjórn, aö sjá svo um aö
Þjóðleikhúsinu veröi veitt
nægilegt fé til flutnings
óperu nú á þessu ári og aö
ákvæöi 3. greinar laga um
Þjóöleikhús, frá 3. mai 1978,
verði virt varðandi flutning
óperu- og söngleikja árlega,
meö sérframlagi i þessu
skyni á f járlögum rikisinsj’.
Herdis Þorvaldsdóttir I hlut-
verki Fröken Margrétar
Fröken
Margrét
hér á ný
Brasiliska leikritiö um
kennslukonuna Fröken Mar-
gréti hefur i vetur gert vfö-
reist um framhaldsskóla
Reykjavikur og nágrennis og
reyndar fariö viöa um lands-
byggöina, svo sem til Akur-
eyrar, Egilsstaöa, Vest-
mannaeyja, Neskaupstaöar
og meira segja út I Grimsey.
Þessi vinsæla sýning meö
Herdisi Þorvaldsdóttur i
hlutverki Margrétar hefur
nú veriö tekin til sýninga á
ný i Þjóöleikhúsinu og verö-
ur 83. sýning verksins á Litla
sviöinu i kvöld. Fyrirhugaö
er aö hafa nokkrar sýningar
á verkinu en þeim, sem enn
hafa ekki séö þetta sérstæöa
verk, er bent á aö draga þaö
ekki of lengi. Um páskana
fer Herdis Þorvaldsdóttir
ásamt föruneyti til Helsinki
og sýnir þar á leikhúsviku
fyrir tilstilli Norrænu leik-
listarnefndarinnar.
Leikstjóri sýningarinnar
er Benedikt Arnason, leik-
mynd eftir Birgi Engilberts
en þýöingu verksins geröi
Úlfur Hjörvar.
Það sem eitt sirni
hefur verið hugsað
' Sverrir Hólmarsson
1 skrifar
leikhúspistil
Leiklistarsviö
Menntaskólans
við Sund sýnir
EÐLISFRÆÐINGANA
eftir
Friedrich Diírrenmatt
Leikstjóri:
Þórir Steingrímsson
Þýðing: Halldór
Stefánsson
Eölisfræöingar Diirrenmatts
voru samdir áriö 1962 og verkiö
var sýnt i Iönó áriö 1963, enda
voru leikhús vor á þeim dögum
betur vakandi fyrir nýjustu
straumum erlendis frá en nú er.
Verkiö tekur til umfjöllunar
ábyrgö visindamannsins og segir
frá eölifræöingnum Möbiusi sem
hefur flúiö inná geöveikrahæli
vegna þess aö hann óttast þær af-
leiöingar sem uppgötvanir hans
gætu haft fyrir mannkyniö. En
tilraun hans til aö fela vitneskju
sina fyrir umheiminum mistekst
og niöurstaöa verksins er m.a. sú
aö þaö sem eitt sinn hefur veriö
hugsaö veröur ekki aftur tekiö. 1
lokin er þaö hálfgalin forstööu-
kona hælisins sem stendur uppi
meö pálmann i höndunum og hef-
ur notaö sér verk Möbiusar til aö
byggja upp voldug f jölþjóöafyrir-
tæki.
Þetta verk fjallar um alvarleg
og timabær efni og gerir þaö meö
bráösnjöllum hætti. Þaö er geysi-
haganlega samiö, gamansamt,
þétt fléttaö, rökfast. Niöurstaöa
þess er aö visu afar bölsýn, en er
einhver ástæöa til aö vera bjart-
sýnn þegar þessi mál ber á
góma? Verkiö hefur aö mér finnst
ekki látiö á sjá sföan þaö var
samiö, boöskapur þess er ekki
siöur timabær nú en þá, og þaö er
þvi skiljanlegt aö ungt áhugafólk
um leiklist velji þaö til sýningar.
Mér virtist Þóri Steingrimssyni
hafa tekist vel aö búa til sýningu
meö þessum leikhóp. Uppsetning
hans er framar öllu hreinleg og
vönduö, linur lagöar skýrt og
greinilega og áhersla lögö á aö
koma boöskap verksins sem best
til skila. Þetta tekst ágætlega
miðaö viö aöstæöur. Þaö eru auö-
vitaö dauflegir kaflar i sýning-
unni, einkum i oröræöum eölis-
fræöinganna, þar sem reynslulitl-
ir leikarar megna ekki aö gæöa
textann þvi lifi sem I honum býr,
en lengst af heldur sýningin at-
hyglinni ágætlega og tekst aö
skila gamansemi verksins meö
prýöi, t.d. I atriöunum meö lög-
reglufulltrúanum og atriöinu þar
sem Möbius kveöur fjölskyldu
sina. Framganga leikendanna
var auövitaö misjöfn eins og
gengur og ástæöulaust aö gefa
þeim einkunnir, en mig langar þó
aö nefna Hróbjart Jónatansson
sem sýndi mikiö öryggi I leik sin-
um i hlutverki Voss lögreglufull-
trúa, og sömuleiöis hjúkrunar-
mennina þrjá sem skiluöu litlum
en mikilvægum hlutverkum sin-
um af sérstakri alúð og ná-
kvæmni.
Leikmyndin, sem unnin var af
hóp nemenda, var prýöisgott
verk, og lýsing var meö ágætum.
Þýöing Halldórs Stefánssonar er
vandaö verk en dálitiö stirö og
bókmálsleg.
Þegar á heildina er litiö var
þetta ánægjuleg sýning og aö-
standendum sinum til sóma.
Sverrir Hólmarsson
Ráðstefna Sambands ísl. sveitarfélaga
Fjallað um mál-
efni aldraðra
Samband íslenskra
sveitarf élaga efnir til
tveggja daga ráðstefnu um
málefni aldraðra miðviku-
dag og fimmtudag, 7. og 8.
mars á Hótel Sögu. Á ráð-
stefnunni verða m.a.
kynntar niðurstöður kann-
ana, sem nýlega hafa verið
gerðar á högum aldraðra í
ýmsum sveitarfélögum og
í heilu héraði, og erindi
flutt um ný viðhorf í mál-
efnum aldraðra á Noður-
löndum.
Fjallaö veröur um þjónustu
sveitarfélaga i þágu aldraöra, fé-
lagsmálastarfsemi og heimilis-
hjálp svo og húsnæöi, sem ætlaö
er öldruöum.
Þátttakendum gefst kostur á aö
skoöa ýmsar stofnanir á höfuö-
borgarsvæöinu, sem vista aldr-
aöa, og sérstaklega veröur rætt
um heilsugæslu og atvinnumál
aldraöra. Jón Björnsson félags-
málastjóri Akureyrar flytur er-
indi um atvinnumálin og Þór
Halldórsson læknir, form. Oldr-
unarfræöifélagsins, talar um
heilsugæsluna. Gisli Sigurbjörns-
son forstjóri Grundar fjallar um
framtiö aldraöra og Siguröur E.
Guömundsson framkvæmdastjóri
Húsnæðismálastofnunarinnar um
fjármögnun ibúöa. Um ný viöhorf
I málefnum aldraöra talar
Kristján Guömundsson félags-
málastjóri Kópavogs. Geirþrúöur
Bernhöft ellimálafulltrúi talar
um félagslega þjónustu og Jónfna
Pétursdóttir forstööukona heim-
ilishjálpar i Rvk um heimilis-
þjónustu. Sturla Böövarsson
sveitarstj. Stykkishólmi tekur
fyrir þjónustu viö aldraöa i strjál-
býli, en þau Ásdis Skúladóttir fé-
lagsfr. og Gylfi Guöjónsson arki-
tekt tala um skipulagningu öldr-
unarþjónustu. Þá mun Hans Jör-
gensen form. Samtaka aldraöra
flytja Sjónarmiö aldraöra.
Auk erindaflutnings og skoö-
anaferöa veröur starfaö i um-
ræöuhópum og loks veröa al-
mennar umræöur um niöurstööur
hópanna. Jón G. Tómasson form.
Sambands isl. sveitarfélaga setur
ráöstefnuna og Magnús H.
Magnússon félagsmálaráöherra
flytur ávarp.
-vh
erlendar
bækur
The Chronicles of Thomas
Covenant the Unbeliever.
I: Lord Foul’s Bane. II: Iliearth
War. III: The Power that
Preserves. Stephen Donaldson.
Fontana/Collins 1978.
Donaldson er Bandarikjamað-
ur, hann ólst upp á Indlandi þar
sem fabir hans var holdsveikra-
læknir og minningarnar frá þeim
árum hafa kveikt þær hugmyndir
sem birtast i þessarifantasiu-bók,
þar sem segir frá undralandi og
yfirnátturlegum atburöum, bar-
áttu ills og góös, vantrú og
trúnaöartrausts. Saga þessi kom
út I Bandarikjunum 1977 og var
henni likt viö sögur Tolkiens, og
þeir sem lesa þær sögur ættu
endilega aö lesa þessa fantasiu,
sem er reyndar nokkuö löng, milli
1300 og 1400 blaðsiður.
Drabble,
Margaret: The Ice Age. Penguin
Books 1978
Margaret Drabble er vinsæll
höfundur á Englandi og hefur
samiö talsvert af skáldsögum og
hlotiö viöurkenningar ýmiskonar
stofnana fyrir sögur sinar. Ice
Age er siöasta skáldsaga
Drabble, kom út i fyrstu útgáfu
1977. Þetta er samtima saga sem
gerist á Englandi, einkum meöal
athafnamanna og braskara; fleiri
koma einnig viö sögu. Þetta er
nokkuö ísmeygileg saga og vel
þess viröi aö hún sé lesin.
Wordsworth. Dorothy
and William Wordsworth:
Home at Grasmere.
Extracts from the journal of D.W.
and from the Poems of W.W.
Edited by Colette Ciark. Penguin
Books 1978.
Otgáfan er i bókaflokknum
Penguin English Library. Þeir
sem lesa Wordsworth skyldu ekki
láta þessa bók ólesna; hér segir
frá tiloröningu sumra kvæöa
skáldsins meö oröum systur hans.
Auk þess er hér ágætlega lýst
samveru tveggja ágætra skálda,
Coleridges og Wordsworths og
Dorothy, sem dagbókina skrifa.
Þetta er góö lýsing á lifsháttum
persónanna I umhverfi sem varla
gat veriö þeim ákjósanlegra og
fjarri hinni iöandi kös.
Kaiser Heinrichs Rom-
fahrt.
Die Bilderchronik von Kaiser
Heinrich VII und Kurflirst Baldu-
in von Luxemburg 1308-1313. Mit
einer Einleitung und Erlauter-
ungen herausgegeben von Franz-
Josef Heyen. Deutscher Taschen-
buch Verlag 1978.
Bókin var gerö um 1340 og er
þetta nákvæm eftirprentun i lit-
um, ásamt skýringum útgefand-
ans og inngangi. Ein ferð þýskra
landstjórnarmanna og keisara til
afskipta á Italiu. og allar lukust
þær ferðir ööruvisi en ætlaö var.
Selected Poemsand Prose.
Matthew Arnold. Edited
with an Introduction and
Notes by Miriam Allott.
J.M.Dent 1978.
Arnold var skáld og gagn-
rýnandi og er nú þekktastur fyrir
bókmenntagagnrýni sina og einn-
ig samfélagsgagnrýni. Skrif hans
um þau efni halda enn fjölmörg
fullu gildi sinu þótt langt sé um
liöiö frá birtingu þeirra. Otgef-
andinn leitast viö aö mynda
sýnishorn skrifa Arnolds og
skrifar ýtarlegan inngang, og I
bókarlok eru athugasemdir og til-
vitnanir. Þetta er vel gert
sýnishorn af verkum Matthews
Arnolds.