Þjóðviljinn - 11.03.1979, Blaðsíða 7
Sunnudagur 11. mars 1979. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
Holocaust er bandarisk sjón-
varpskvikmynd, sem tekur7 tima
i sýningu og er skipt upp i ein-
staka þætti. Myndin fjallar um
Weiss-fjölskylduna, sem er af
gyöingaættum og örlög hennar i
striöinu. Kvikmyndin hefct á þvi
aö elsti sonurinn sem er listamað-
ur, giftist ungri þýskri stúlku.
Þetta er árið 1935: nasistar búnir
að taka völdin og ofbeldisverkin
gegn gyðingum hafin. Systur
listamannsins er nauögað af nas-
istum, hún biður tjón á sálu sinni
og er send á geðveikrahæli, þar
sem hún er tekin af lifi. Hörm-
ungarnar halda áfram. Elsti son-
urinn i fjölskyldunni er tekinn
fastur, þýsku hermennirnir mis-
þyrma honum og siðar er hann
drepinn i útrýmingarbúðum nas-
ista.
Foreldrarnir eru fyrst i staö
sendir i gyðingahverfið i Varsjá,
en siðan I útrýmingarbúöir, þar
sem þau eru tekin af lifi. Yngsti
sonurinn gengur i neðanjarðar-
hreyfingu gyðinga og kynnist þar
ungri, fallegri gyðingastúlku,
sem hann gengur að eiga. Hún
lætur lifiö i bardaga viö nasista
skömmu eftir brúökaupið. Þján-
ingarsaga Weiss-fjölskyldunnar
endar i lok striðsins, en þá er
yngsti sonurinn einn fjölskyld-
unnar á lífi. Myndin er hlaðin of-
beldissenum, flestum leiknum, en
einnig eru gamlar heimilda-
myndir klipptar inn I.
Úr sjónvarpskvikmyndinni: Naktir gyöingar bföa eftir aö vélbyssur nasista brytji þá niöur
Ómerkileg sápuópera
eöa þörf
áminning?
Eru bandarisku sjónvarpsþættirnir Holocaust
(Brennifórn/ Ragnarökjvel gerðirog fróðlegir þættir um
hryllilegustu glæpi mannkyns — útrýmingu nasista á
gyðingum í heimsstyrjöldinni síðari, — eða eru þeir
ómerkileg bandarisk sápuópera?
Undanfarnar vikur hafa miklar deilur átt sér stað í
Evrópu um gæði ofangreindra sjónvarpsþátta, og menn
hafa t.d. ekki veriö á einu máli um hvort sýna ætti Holo-
caust í sjónvarpsstöðvum Norðurlanda eða ekki.
Myndir úr veruleikanum: Nasistar Ifma andgyöinglegan áróöur á búö-
arglugga gyöingakaupmanns.
Sápuópera?
Holocaust fjallar um grimmd-
arverk nasista gegn Gyðingum,
en heldur sig viö öriög einnar
ákveðinnar fjölskyldu. A líkan
hátt og sjónvarpsþættirnir Hætur
höföar Hoiocaust beint til áhorf-
andans með skirskotun til tilfinn-
inga, umhyggju og væntumþykju
til einstakra sögupersóna. Holo-
caust er gerð fyrir bandariskan
markað, og hún er klippt meö til-
liti til auglýsinga, sem skotið er
inn i þættina. Þótt auglýsingarnar
detti niður á evrópskum sjón-
varpsmaraði, ber samtenging
myndarinnar engu að siður keim
af þessari samsetningu. En deil-
urnir um hvort sýna bæri Holo-
caust á Noröurlöndum eða ekki
stóöu ekki aðallega um þetta at-
riöi, heldur um túlkun kvikmynd-
arinnar á hörmungum gyðinga.
Eða, eins og Rigmor Hansson
Rodin, deildarstjóri norska sjón-
varpsins, orðaði það: „Ég tel aö
kvikmyndin einfaldi útrýmingu 6
milljóna gyöinga. 1 fyrsta lagi
veltir hún sér upp úr hörmungun-
um og klippt eru inn einstök of-
beldisatriöi til að ná meiri tökum
á áhorfendum, eins og tiökast i
ameriskum sápuóperum. t öðru
lagi er rangt farið meðsögulegar
staöreyndir. Þaö er blandað sam-
an raunverulegum persónum og
sögupersónum, þannig aö sá, sem
ekki þekkir til sögu seinni heims-
styrjaldarinnar og útrýmingar-
herferöar nasista, hefur engin tök
á aö fá heillega yfirsýn yfir það
sem gerðist i raun og veru. Þætt-
irnir gefa heldur ekki almennt
yfirlit: óhugnaöinum og angist-
inni i útrýmingárbúöunum er lýst
i smáatriðum, en hvergi fjallað
um forsendur hörmunganna:
hugmyndafræði nasismans”.
Neitað i upphafi
Bæði Danir og Norðmenn voru
á einu máli um aö sýna ekki þætt-
ina. Stjórnir útvarp/sjónvarps
þessara tveggja landa voru I
meginatriðum sammála ofan-
greindum rökum, sem mæltu
gegn sýningu kvikmyndarinnar.
Siðar urðu þó sjónvarpsstöðvar
beggja landa að láta i minni pok-
ann fyrir kröfu almennings.
Tvennt kom til. 1 fyrsta lagi var
búið að f jalla svo mikið um Holo-
caust i ræðu og riti, aö geysileg
forvitni og eftirvænting hafði
skapast eftir þessari forboðnu
vöru. I öðru lagi sýndi V-Þýska-
land myndina, og vakti hún ótrú-
lega athygli sjónvarpsáhorfenda.
Fyrstu kannanir leiddu i ljós, að
um 15 miljónir manna höföu horft
á þættina. Flestir Danir geta
horft á þýsktsjónvarp og voru þvi
búnir aö sjá þættina, þegar deil-
urnar hófust um sýningar í
danska sjónvarpinu. Sömu sögu
er að s egja af No römönn um. Þeg -
ar umræöurnar voru komnar á
það stig, aðforvitni allra var vak-
in, tóku kröfurnar um sýningu
myndarinnar að streyma inn til
norska sjónvarpsins. En útslagið
kom, þegar sænska sjónvarpiö
ákvaö aö sýna Hotocaust. Meiri-
hluti norskra sjónvarpsneytenda
getur nefnilega tekið inn sænskt
sjónvarp á skerminn. Norska
sjónvarpið setti þó tvo varnagna,
þegar sýningar á Hotocaust voru
ákveðnar: — klipptar yrðu út
verstu ofbeldis- og pyntingaatrið-
in, og umræður l beinni útsend-
ingu færu fram i sjónvarpssal eft-
ir sýningu þáttanna.
Ekki voru þó allir á eitt sáttir
um hvort vinsældir Holocaust
stöfuöu af efni þáttanna eöa um-
ræðum I kringum þá. Norski fjöl-
miðlafræöingurinn Hans Fredrik
Dahl setur fram ákveöna kenn-
ingu um þrýstihópana á bak viö
Holocaust. I grein, sem birtist i
Dagbladet, segir hann: „Þaö
liggja ákveðnar ástæöur aö baki
þvi, að útvarpsráö Noröurlanda
ákveöa aö sýna Holocaust þvert
ofan i fyrri yfirlýsingar. Hoto-
caust er nefnilega „fjölmiölafyr-
irbæri”. Þaðerfyrirtækiö World-
vision, sem búiö hefur til þetta
fjaðrafok i kringum kvikmynd-
ina. Worldvision dreifir myndum
bandarisku sjónvarpsstöövarinn-
ar NBC á Evrópumarkað, þar á
meðal Hotocaust, Þessu fyrirtæki
hefur með alþjóðlegri söluherferð
tekist að selja Hotocaust til
flestra Evrópuþjóða. (Holocaust
eru dýrustu sjónvarpsþættir, sem
NBC hefur selt á Evrópumark-
að). Ein heista stoð þessarar
söluherferðar er samvinnan við
trúarsamfélög gyðinga i Evrópu,
og stuðningshópa tsraels. Það er
hægt að sanna þessa samvinnu
meöheimildum og rekja hvernig
dreifingafyrirtækið hefur beitt
lykilpersónum i evrópskum gyð-
ingasamtökum I þvi skyni að
þrýsta á sjónvarpsstöövarnar að
sýna Holocaust. Worldvision hef-
ur hins vegar eitt takmark i' sjón-
máli: Að selja sem flestum lönd-
um þættina fyrir sem hæst verð.
Hvernig stendur þá á þvi að ýms-
ir skynsamir og þekktir menn,
sem styðja ýmis samtök gyðinga
mæla með þessum ómerkilegu
þáttum, þótt þeir viti mætavel að
hér er um dæmigerða ameriska
söluherferð aö ræða? Svarið hlýt-
ur bara að vera á einn veg: öll
auglýsing fyrir málstað gyðinga
er góð auglýsing.”
Gagnrýni gyðinga
Eflaust álita margir að slik um-
mæli feli I sér andgyðingleg við-
horf. Vera má aö svo sé, en hins
vegar er ekki hægt að neita þeirri
staðreynd alfarið að kvikmynda-
iönaður Bandarikjanna og stór
hluti sjónvarpsstöðvanna eru i
eigu gyöinga, og vera má, að ein-
hver pólitisk sjónarmið liggi þar
á bakviö eins og við gerð kvik-
myndanna „Exodus” og „Arásin
á Entebbe-flugvöll” á sinum
tima.
Hins vegar hafa margir frægir
gyöingar i Evrópu gagnrýnt
Holocaust harðlega fyrir yfir-
borðslega umfjöllun á útrýmingu
gyðinga og þá tilhneigingu mynd-
arinnar að umbreyta hörmungum
i skemmtiefni fyrir sjónvarps-
áhorfendur. Einn þeirraer rithöf-
Framhald á bls. 22.
Landsins mesta úrval af
HEYRNARTÓLUM:
Audio-tédhnica
Alba
Koss
Pickering
AKG
Sennheiser
Stanton
Toshiba 30 gerðir alls
Gerið samanburð og veljið
heyrnartólið að yðar smekk.
Allar tengisnúrur
Seljum allar gerðir
af hljóðtengisnúrum
Aðstoðum við val á
hljómf lutningstækjum.
HLJÓMTÆKJAÞJÓNUSTAN LAUFASVEGI 1.
Opið 10-1 og 2-6
Simi 29935
)