Þjóðviljinn - 11.03.1979, Blaðsíða 17
Sunnudagur IX. mars 1979. ÞJÓDVILJINN — SIDA 17
Unnid aA samsetningu „Venera” millihnattarannsóknarflaugar.
Rannsóknarflaugar til
V enusar
mérheldur ekki svo mjög úr jafn-
vægi. En þeir atburöir eru til, úr
baráttusögu verkalýöshreyf-
ingarinnar, sem eru af slikri
gerö, aö ég þoli illa aö sitja
þegjandi hjá, ef þeir eru biaðir
út.einkum ef þeir, sem valda eru
sveipaðir einhverju hýjalini
kenndu við sósialisma. Október-
byltingin rússneskaer einn þeirra
atburða.
Stéttabaráttan
„Þá riöu hetjur um héruö”; þú
kemur viöa viö i svari þinu. ÞU
tekur undir það hjá mér að vafa-
samt sé að kalla þessa rikisstjórn
vinstri stjórn. Ekki fannst mér
það samt i byr jun nóvembermán-
aöar, sbr. ræðunaþina á ársfundi
Verkalýösmálaráös AB, og
Þjóðviljinn birti 12ta nóv. s.l.
„Vinstri stjórnin, sem nú hefur
verið mynduö, tekur viö miklum
efnahagsvanda”,segir þú þar. Þú
telur mig gleyma þvi stundum aö
i „rikisstjórn Islands sitja með
okkur menn eins og Benedikt
Gröndal og Tómas Arnason”, að
ekki sé minnst á kapteininn, úr
skipsrúmi Geirs Hallgrímssonar
heildsala. Nei, éghef ekki gleymt
því, ekki nokkra stund. „Flokkur-
inn okkar á aö verastéttabaráttu-
flokkur, gegn afturhaldinu,
auðvaldinu, borgarastéttinni”,
segir þú fullum fetum úr
Arnarhvoli og lýsir ógeöi þinu
á stéttasamvinnu stéttarinnar.
A þetta leggur þú mikla áherslu
og ert brúnaþungur á myndinni,
sem fylgir greininni. En þaö má
ég vita ,,og þaöþurfaallir aö vita,
aö Alþýðubandalagið mun jafnan
sæta þeim lýöræðislegum leik-
reglum, sem fólkið i landinu setur
sér, þeim reglum sem Islend-
ingar sjálfir ákveða”.
Ein stór fjölskylda?
1 fyrri tilvitnuninni, hér á
undan er blásiö i herlúöra, verka-
lýösstéttinni skipaö i fylkingar
(undir forystu AB) gegn liði
borgarastéttarinnar, væntanlega.
Nú skal látið sverfa til stáls.
Markmiöiö.borgarlegt lýðræöi og
þingræði, sem er hið póliti'ska
form fyrir alræði borgara-
stéttarinnar skal afnumið og nýtt
rikisvald, sem er i höndum
verkalýðs og alþýöu, reist á rúst-
um þess gamla,alræði öreiganna.
Er þaö ekki einhvern veginn
svona sem þú hugsar þér aö fari
þegar Alþýðubandalagiö er orðið
eins og þaö á að vera? Þetta er
alveg i samræmi viö þá uppgötv-
un Karls Marx: aö stéttabaráttan
hljóti óhjákvæmilega „aö leiöa til
alræöis öreiganna”. 1 hinni siðari
tilvitnuninni kveöur viö nokkurn
annan tón. Þar svífur ekki andi
stéttabaráttunnar yfir vötnunum,
enda erum vér allir Islendingar
ein stór fjölskylda meösameigin-
lega hagsmuni, fólkiö llandinu.
Hinu borgaralega lýðræöi og
þingræöi eru svaröir ævarandi
trúareiöar, viö alræöi borgar-
stéttarinnar skal ekki hróflaö,
þaö má ég vita ,,og þaö þurfa allir
aö vita”. Þetta eru dýrir eiöarog
þeim hæfir auðvitaö mun meiri
viöhöfn bæöi hvaö varöar tima-
setningu og framkvæmd.
Ég geri þaö aö tillöguminni aö
28unda dag júlimánaöar áriö 1982
veröi eitthundraö og nlu helstu
stórmenni Alþýöubandalagsins
látin sverja borgaralegu lýöræöi
og þingræði ævarandi hollustu
eiöa. Athöfnin skal vera opinber
og rakilega auglýst og aö sjálf-
sögöu fara fram á þinghólnum i
Kópavogi. Kopavogsdeild AB
skal faliö aö undirbúa
seremóniuna, enda mun ekki
veita af aö hressa uppá móralinn i
þeirri deild sbr. dagskrárgrein
Finns Torfa Hjörleifssonar i
Þjóðviljanum 30/11. Meö tilliti til
væntanlegrar Islandssögu er rétt,
aö sáer siðastur fer meö eiöstaf-
inn (gæti sem best verið þú) væri
látinn tárfella litið eitt. Tillögu
lokiö.
Ólafur
Jónsson
vitavörður
svarar
Svavari
Gestssyni
r
A hvitum hesti
Alþýöubandalagiö „flokkur
allra stétta” mun af miklum
krafti berjast fyrir ýmis konar
umbótum i þágu allra Islendinga,
innan ramma rikjandi skipulags
sem leiöa til þess aö meirihluti
kjósenda áttar sig smátt og smátt
á yfirburðum flokksins, sumir i
dag og aörir á morgun. Róöurinn
veröur túrlega þungur á stundum
eins og dæmin sýna: „1 staö þess
aö ganga i liö meö Alþýöubanda-
laginu og afhjúpa EFTA-blekk-
ingarnar héldu iönrekendurnir
sig i ihaldsherbúöunum”. (ölafur
Ragnar Grimsson Þjóöviljanum
9/1). En bráöum kemur betri tiö
og iönrekendur, sem um langa
stund hafa helst haft sér þaö til
dundurs i hinni daufu herbúðavist
aö kyrja Daviössálma og belgja
sig út af Tropicana hafa nú veriö
vaktir af dvalanum. „Vakniö til
veruleikans, islenskir iðnrekend-
ur”. (ÓRG Þjóöv. 9/1, sama
grein). Hver áfangi i umbóta-
baráttunni færir Islendinga, fólk-
iö i landinu,skrefi nær framtiöar-
landi Alþýöubandalagsins, sem
þessa stundina vakir og biöur
langt úti sólglitrandi framtiöinni,
sunnan viö sól og austan viö
mána. „Allir munu vera okkar
vinir, sagöi hún, þvi fólkinuliöur
vel. Og þrælakistan leggst niöur á
Bessastööum, sagöi hann. Þvi i
landi þar sem fólkinu liður vel eru
ekki framdir glæpir. Og viö riöum
um landiö á hvitum hestum, sagöi
hún.”. (Eldur i Kaupinhafn.).
Algjör forgangur
Þú segir mig hafa lagt þér i
munn setningu, sem hljóðar svo:
„Ef nahagsmálin skulu hafa
algjöran forgang”. Rétt er nú
þaö. Þú bregst illa viö, svona
viðurstyggð takir þú þér ekki I
munn vegna þess aö „þessi setn-
ing endurspeglar þá borgaralegu
lágkúru, sem læsir sig fasta i
sósialdemókratlska flatneskjuna
svo langt sem augaö eygir”. Þú
skorar á mig aö ég komi meö eitt
einasta dæmi um aö þetta séu þin
orö. Mikiö gengur nú á. Auövitaö
á ég vont meö þaö, vegna þess aö
hér veröur ekki hlaupiö i gömul
blöö né aörar heimildir þegar á
þarf aö halda.
Þó hef ég fyrir tilviljun ræöuna
þina frá ársfundinum, sem ég
vitnaöi áður ti^ og skal þér nú
Ólafur Jónsson, vitavöröur.
(Ljósm. Kristinn H. Þorsteinsson).
gerö nokkur úrlausn. „Vinstri
stjórnin, sem nú hefur verið
mynduð, tekur viö miklum efna-
hagsvanda. Veröbólgan er 50%,
verðbólgufjárfesting æöir áfram,
vextir eru aö sliga útflugningsat-
vinnuvegi okkar... Spurningin
snýstum þaö hvernig rikisstjórn-
in ræður við þann efnahagsvanda,
sem nú er viö aö glima. Rikis-
stjórnin verðurdæmdaf þvi”. Og
enn kvaöhann: A næsta ári mun-
um viðaövisusetjast niöur viöaö
semja nýjan málefnasamning
flokkanna... Þar munum viö aö
sjálfsögðu fjalla um þjóöfrelsis-
málin og kjördæmamálið. En
staðan til þess aö knýja þar fram
árangur ræðst af úrslitum eftia-
hagsmálanna. Það skulum viö
gera okkur alveg ljóst”.
Svona talaöir þú nú i laukagarði
Alþýöubandalagsins i byrjun
nóvember. „Spurningin snýst um
efnahagsvandann — allur ár-
angur ræöst af úrslitum efnahags
málanna.” Er ekki hér veriö
að segja, meö örlitið ööru oröa-
lagi þó: „Efnahagsmálin skulu
hafa algjöran forgang”? Ég sé
ekki betur. Hefur ekki drjúgum
hluta af efni Þjóðviljans veriö
variö i umræðu um efnahagsmál-
in og efnahagsvandann frá þvi
þessi rikisstjórn var mynduö? Ég
veit ekki betur. Hafiö þiö ekki
verið önnum kafnir viö aö leysa
fyrsta-septembervandann, fyrsta-
desembervandann, febrúar-
vandann og nú siöast fyrsta-
marsvandann eða hvað þeir nú
heita allir efnahagsvandarnir
ykkar? Efnahagsvandinn, sem
likaer ekkert annaö en sú kreppa,
sem nú fer um auövaldsheiminn.
M.ö.o. enn ein auðvaldskreppan...
Ég helt aö þú þekktir kreppueöli
auðvaldsskipulagsins i stórum
dráttum.
Ég sagði i fyrri grein minni og
ég segi enn, að samstarfeyfirlýs-
ing rikisstjórnarinnar er viö þaö
miðuð aö bjarga auöstéttinni i
landinu frá kreppunni á kostnað
verkalýðsins og allrar alþýðu.
önnur leiö er ekki til, nema sú
aö afnema sjálft auövaldsskipu-
lagiö. Stefna stjórnarinnar er i
öllum meginatriöum andstæö
hagsmunum vinnandi fólks i
iandinu enda eru hagsmunir
þessarar rikisstjórnar hagsmunir
borgarastéttarinnar. Þetta
verður verkalýösstéttin og öll
alþýöa aö gera sér ljóst og hefja
virka, markvissa baráttu gegn
rikisstjórninni og öllu hennar
athæfi. Alþýöubandalagiö ber
fulla ábyrgö á stjórnarstefnunni.
Undan þeirri ábyrgö er ekki hægt
að skjóta sér meö þvi aö benda á
aö menn á borö viö Benedikt
Gröndal, Tómas Arnason og ólaf
Jóhannesson séu ráöherrar i
stjórninni.
Staöhæfingar þinar um að
rikisstjórnin beri sérstaka
umhyggju fyrir alþýöu landsins
hljómar ákaflega ankannalega i
minum eyrum, séu þær skoöaöar
i ljósi þeirra kynna, sem ég hef af
henni haft. Sýslungar þinir hafa
reyndar söku sinnum tjáö fólki
ást si'na meö dálitiö sérstæöum
hætti. Um eitt slikt tilvik má lesa i
gamalli bók: Þá mælti Bolli:
„Muntu segja meö þaö móöir, at
mér er forvitni á at vita? Hverj-
um hefir þú manni mest unnt?’ .
„Fast skorar þú þetta, sonur
minn”, segir Guörún „en ef ek
skal þat nokkrum segja, þá mun
ek þik helst velja til þess”. Bolli
bað hana svo gera. Þá mælti
Guörún: „Þeim var ek verst, er
ek unna mest”. 1 þeirri ferö sem
alþýöa þessa lands á fýrir hönd-
um um Svinadal borgarastéttar-
innar hefur hún tvennt fram yfir
Kjartan foröum, hún mun
fjölmenna i þá för, og svo hitt:
hún veit af ykkur viö Hafragil.
Galtarvita um miöjan febrúar.
Þinn einlægur,
Ólafur Þ. Jónsson
vitavöröur.
Sovéskir visinda- og tæknimenn
hafa stigið nýtt skref I rannsókn-
um á Venusi. 21. desember 1978
haföi „Venera-12” millihnatta
rannsóknarflaugin lagt að baki á
98 dögum meira en 240 miljónir
kílómetra og var komin I grennd
við reikistjörnuna. Lendingarfar-
ið lenti mjúkri lendingu á yfir-
borði reikistjörnunnar og sendi i
110 minútur visindalegar upplýs-
ingar til jarðar. „Venera-12”
flaugin fór framhjá Venusi i 35
þúsund kflómetra fjarlægð og
heldur áfram flugi sinu I geimn-
um.
Sjáifvirka flaugin „Venera-ll”,
sem er eins aö gerö og þjónar
sama tilgangi og „Venera-12”,
komst i grennd viö Venus 25. des-
ember og lendingarfar hennar
mjúklenti á yfirboröi Venusar
um 800 km frá lendingarstaö
„Venera-12”. Sjálfvirka geim-
stööin „Venera-ll” tók á móti og
sendi til jarðar upplýsingar frá
lendingarfarinu, á meöan hún fór
framhjá reikistjörnunni. Eftir aö
geimstööin ,,Venera-ll” var
Akveðiö hefur verið aö gera
Byggingaþjónustuna, sem Arki-
tektafélag tslands stofnaði og
hefúr starfrækt siöan 1958, aö
sjálfscignarstofnun að tilhlutan
Arkitektafélagsins, Húsnæðis-
málastofnunar rikisins og Rann-
sóknarstofnunar byggingariðnað-
arins. Verður öðrum aðilum þá
jafnframt gefinn kostur á aðild,
en i flestum menningarlöndum
erustarfandi hliðstæðar stofnanir
og reknar af opinberum aöilum i
samvinnu við ýmis samtök sem
láta sig varða húsnæðis- og
byggingamál.
Framað þessu hefur starfsemi
Byggingaþjónustunnar aðallega
verið fólgin i aö hafa daglega
sýningu á byggingarvörum og
veita hlutlausar upplýsingar
um verð, gerö og meöhöndlun
þeirra, fylgjast meö nýjungum og
miöla upplýsingum auk þess sem
Byggingaþjónustan hefur staöiö
fyrir námskeiöum, ráöstefnum og
fyrirlestrahaldi um bygginga-
málefni viösvegar um landið i
samvinnu viö sveitarstjórnir og
fagfélög.
Byggingaþjónustan mun áfram
vinna aö sömu markmiöum og
verkefnum sem sjálfseignar-
komin út fyrir útvarpssamskipta-
sviöiö og móttöku frá lendingar-
farinu lauk, hélt hún áfram flugi
sinu á braut um sólmiöju.
Um borö i báöum stöövunum
eru skildir meö vangamynd af
Vladimir Lenin, og i lendingar-
förunum eru skildir meö skjald-
armerki Sovétrikjanna.
1 framtiöinni munu þessar tvær
sjálfvirku millihnattageimstööv-
ar halda áfram aö senda upplýs-
ingar um visindalegar mælingar
og rannsóknir, sem hófust á leið-
inni frá jöröinni til Venusar.
A undanförnum árum hafa so-
véskar geimstöðvar aflaö mikilla
upplýsinga um Venus. Allt frá þvi
áriö 1967, þegar stööin „Venera -
4” sendi fyrstu upplýsingarnar
um beinar mælingar, sem geröar
voru á loftþrýstingi og hitastigi
andrúmslofts reikistjörnunnar,
hafa 8 aörar sjálfvirkar sovéskar
geimstöðvar komiö inn i and-
rúmsloft reikistjörnunnar. Meö
rannsóknum á Venusi fá menn
upplýsingar, sem beinlinis varöa
jörðina.
stofnun, aö þvi er fram kom á
blaöamannafundi er efnt var til
nýlega, en meginmarkmiö
Byggingaþjónustunnar er:
Aö hún sé vettvangur íslenskra
byggingarmála, m.a. með því aö
auðvelda mönnum kynni af hvers
konar byggingarefnum og notkun
þeirra, aö gangast fyrir umræö-
um um málefni byggingariönaö-
ar, byggingartækni og
byggingarlistar, aö stuöla aö
endurmenntun og fræöslu fag-
manna á sviöi þessara faggreina,
aö gefa húsbyggjendum og tækni-
mönnum kost á hlutlausum upp-
lýsingum um byggingarmálefni,
aö leggja áherslu á kynningu á
islenskri byggingarefnafram-
leiöslu, aö starfrækja tæknibóka-
söfn.aöhalda byggingarefnaskrá
og starfrækja veröbanka og aö-
stoöa viö kostnaöaráætlanir og
útboösgerö.
Byggingaþjónustan er opin
virka daga kl. 10 — 12 og 14 — 18.
Aögangur og upplýsingar eru ó-
keypis. Framkvæmdast jóri
Byggingaþjónustunnar er ólafur
Jensson, en I stjórn hennar sl. ár
voru Gunnar óskarsson formað-
ur, Njöröur Geirdal og Magnús K.
Sigurjónsson. _vh
Byggingaþj ónus tan
sj álfseignars tofnun