Þjóðviljinn - 11.03.1979, Blaðsíða 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur IX. mars 1979.
Bubbi Morthens veröur mebal trúbadora sem troöa upp á laugar- Sönghópur raubsokka mun leggja menningarvikunni liö.
daginn 17. mars.
Fjölbreytt tónlist
Eins og skýrt hefur
verið frá í fréttum verður
innan tíðar haldin menn-
ingarvika á vegum Sam-
taka herstöðvaand-
stæðinga tilað minna á að
30. mars n.k. eru 30 ár lið-
in frá þvi Island gerðist
aðili i Nató. Menningar-
vika þessi er liður i
baráttunni gegn hersetu
Bandarísks herliðs á Is-
landi og heimsvalda-
stefnu ýmissa þjóða um
gervallan heiminn.
Hefur fjöldi fólks starfaö aö
undirbúningi menningarvik-
unnar sem fram fer dagana 16.
— 25. mars á Kjarvalsstöðum.
Mikið um góða
tónlist
Til aö fjölbreytnin veröi sem
mest verður boöiö upp á leik-
þætti, upplestur og fjölbreytta
tónlist svo eitthvaö sé nefnt.
Til aö grennslast fyrir um
væntanleg tónlistaratriöi i dag-
skránni leitaöi Fingrarim til
Björns Björnssonar starfs-
manns Samtaka herstööva -
andstæöinga og Siguröar
Rúnars Jónssonar sem sér um
flest er aö tónlistinni lýtur.
Tjáöu þeir Fingrarimi aö ekki
væru öll kurl komin til grafar
ennþá.
Þó væru ákveöin nokkur dag-
skráratriöi sem óhætt væri aö
gera grein fyrir. Laugardaginn
17. mars veröur heljarmikil
eftirmiödagstónlistardagskrá
aö Kjarvalsstööum. Þar koma
fram eftirtaldir sönghópar og
trúbadúrar: Kjarabót (áöur
Nafnlausi sönghópurinn), Söng-
hópur rauösokka, Neikvæöi
sönghópurinn, Bubbi Morthens,
Kristján Guölaugsson, Olga
Guörún Arnadóttir, Þorvaldur
Arnason, Bergþóra Arnadóttir
og jafnvel einhverjir fleiri.
Aö auki munu nokkrir meö-
limir Sönghóps rauösokka og
Neiökvæða sönghópsins flytja
atrlði úr Sóleyjarkvæöum.
Þessi dagskrá mun væntan-
lega standa yfir frá kl. 14.00 til
19.00.
Klassík, jazz og popp
Mánudagskvöldiö 19. mars
veröur klassisk dagskrá.
Flutt veröa tvö kammerverk
eftir Mozart, flautukvartett I
flutningi Manuelu Wiesler og
meölima úr sinfóniuhljómsveit-
inni og klarinettukvintett i
flutningi Gunnars Egilson,
ásamt félögum úr sinfónlunni.
Einnig veröa nokkur verk
eftir islenska höfunda. Má þar
nefna sönglag eftir Jakob Hall-
grímsson, nýtt verk fyrir flautu,
klarinett, kontrabassa og 2-4
fiðlur eftir Jónas Tómasson og
verk fyrir sópransöngkonu og
strengjákvintett eftir Sigur-
svein D. Kristinsson.
Mjög trúlega veröa fleiri is-
lensk verk til flutnings þetta
kvöld.
Föstudagskvöldiö 23. mars
stendur til að Þursaflokkurinn
flytji nokkur hrynþung stef. Og
á laugardaginn 24. mars veröa
hljómsveitirnar Þokkabót, Eik
og Sjálfsmorðssveitin meö tón-
listarhald.
Meöal efnis veröur verk eftir
Leif Þórarinsson tónskáld,
væntanlega 1 flutningi Sjálfs-
morössveitarinnar.
Einnig mun ætlunin aö fá
heföbundinn jazz inni dag-
skrán^en á þessu stigi er sú hliö
nokkuö óráðin.
Sunnudagskvöld 25. mars lýk-
ur svo þessari menningarviku.
Allt er á huldu um dagskrá þess
kvölds enn sem komið er.
Sjálfboðavinna
Allir aöilar sem aö þessari
menningarviku standa, gefa
sina vinnu til hagsbóta þessum
brýna málstaö. Þaö er vonandi
að meö þessum hætti takist aö
Sigurður Rúnar Jónsson, eða
Diddi fiðla einsog hann er jafn-
an kallaður, sér að mestu um
tónlistarundirbúning menn-
ingarvikunnar.
opna augu landsmanna fyrir
mikilvægi þeirrar baráttu sem
herstöövaandstæðingar hafa
háö i 30 ár.
Sá stóri hópur sem leggur
málstaðnum lið vikuna 16. — 25.
mars ber vísan vott um samhug
i herstöövamálínu.
Þaö má geta þess aö 31. mars
verða svo haldnir tónleikar i
Háskólabiói þar sem fjölmenn-
ur hópur tónlistarmanna úr
stétt poppara jafnt sem sinfónfu
flytur baráttudaeskrá
Zamla Mammaz Manna;frá vinstri. HansBruniusson slagverk.Eino
Haapala gitar, Lars Holmer hljómborð og Lars Krantz bassi.
Zamlarnir flognir
1 siðasta Fingrarimi var fjall-
að litillega um sérstæða hljóm-
sveit sem stödd var hérlendis I
tónlistargjörningum sinum.
Jafnframt var lofað aö fjalla
nánar um sveinana I Zamla
Mammaz Manna. Fingrarim vai
búiö aö bindast fastmælum viö
Zamlana að fá að rekja úr þeim
garnirnar áöur en þær færu af
landi brott. En þar sem um-
boðsmaður þeirra hér lendis tók
þá sérkennilegu ákvörðun i
skyndingu að senda Zamlana
heim i býtið á þriðjudagsmorg-
uninn i stað þess aö láta þá fara
á fimmtudag eins og búiö var að
ákveöa, varð ekkert úr frekara
viðtali.
Voru Zamlarnir búnir aö
ákveöa spilverk á Litla Hrauni
og viöar en af þvi varö ekki aö
sinni. Þó má geta þess aö
strákunum likaöi þaö vel viö Is-
lenska áheyrendur aö þeir hafa
ákveöið að skella sér með
Smyrli til Islands aö hausti.
—J.G.
FINGRARI
Neytendapunktar poppara
A nýbyrjuðu ári er mikið um dýrðir i
hljómplötubransanum erlendis. Stór-
stjörnur jafnt sem minni postular
senda frá sér hljómplötur af öllum
stærðum, litum og gerðum.
• George Harrison fyrrverandi bitill sendi frá
sér plötu fyrir nokkrum dögum eftir um
tveggja ára þögn. Biöa eflaust margir
Bitla/Harrison.aödáendur spenntir eftir skif-
unni.
• Frank Zappa furöufugl m.m. á I miklum
vandræðum þessa dagana. A hann i deilu viö
Warner Bros. hljómplötuútgáfuna sem hann
hefur veriö á samning hjá siöastliöin 9 ár.
Astæöan er sú aö kappinn hefur gert samning
við CBS og er plata aö koma út frá honum á
þvi merki. Jafnframt er W.B. aö senda á
markaöinn plötuna Sleep Dirt meö Zappa.
Hóta W.B. aö setja lögbann á CBS plötuna ef
hún kemur út áöur en Zappa lýkur gerö
1 tveggja platna sem þeir telja sig eiga rétt.á
frá kappanum áöur en samningurinn er úti.
• Bram Tcaikowski fyrrum aöalsprauta
hljómsveitarinnar Motors er nú aö reka
endahnútinn á nýja hljómplötu sem kemur út
i næstu viku.
• Stranglers sem skutust til Islands I fyrra til
aö kynna tslendingum nýbylgjuna og blaöa-
mönnum nýja plötu, sendu nýveriö frá sér
hljómleikaplötu. Er hún mjög hrá einsog við
var að búast og gefur ágæta mynd af
Kyrkjurunum á tónleikum. Þó er hvergi á
plötunni aö finna þá æsingu og óeiröahug
þann sem áhorfendur Stranglers viröast ööl-
ast á tónleikum hljómsveitarinnar. Ber
skemmst aö minnast óeiröa og djöfulgangs á
tónleikum hljómsveitarinnar i Astraliu i siö-
ustu viku. Þar lenti m.a. i brýnu milli lög-
regluþjóna sem vildu stööva tónleik piltanna
og Kyrkjaranna sjálfra. Reyndar var enginn
kyrktur, en Jean Jaques Burnel bassaleikari
þjarmaöi hressilega að tveimur lögreglu-
þjónum og hinir þrir lentu i ryskingum.
• Meatloaf, sá feiti hlunkur, er aö vinna aö
nýrri hljómplötu af krafti. Biöa eflaust ýmsir
eftir aö heyra árangur þeirrar vinnu. Meat-
loaf sem heitir reyndar Marvin Aday réttu
nafni, þarf aldeilis aö gera góöa hluti á þess-
ari plötu ef hann á aö geta haldiö sinu striki.
Heyrst hefur aö Meatloaf komi kannski til
hljómleikahalds á Islandi i sumar.
• Linton Kwesi Johnson reggae-skáld, sem
fjallaö var um i Fingrarimi fyrir nokkru,
vinnur nú aö nýrri hljómplötu fyrir Island
Records. A þvi merkí er höfuögoð reggae
tónlistarinnar, Bob Marley, einnig.
• Þaö er greinilegt að Nýbylgjan og reggae
tónlistimeruaö hasla sér völl sem ráöandi öfl i
poppinu I dag. Ahrif reggeasins er aö finna I
lagasmiö ýmissa eldri poppara núoröiö og
nýbylgju-hljómsveitir sem voru margar
hverjar óþekktar með öllu fyrir ári siðan,
skipa sér i fyrstu sæti lista um allan heim.
Elvis Costello, Ian Dury og Blondie viröast
hafa sannaö ágæti þessarar tónlistar svo um
munar.
• Elvis Costello er aö ná svipuöum vinsældum
og Abba ef marka má fréttir af honum og
félögum hans i Attractions i poppblöðum um
allan heim. Lagiö hans Oliver’s Army hefur
til dæmis rutt sjálfum Bee Gees úr fyrsta sæti
breska listans. Um þessar mundir eru fyrstu
sæti þess lista næstum eingöngu skipuö
nýbýlgjulistamönnum. Má nefna Costello,
Blondie, Lena Lovich, Sid Vicious & the Sex
Pistols og Members. Er þessi þróun mjög
merkileg.
• tslensk hljómplötuútgáfa er aö fara af staö.
Fálkinn sendi nýveriö frá sér I veruleik
Þokkabótar. Hljómplötuutgáfan undirbýr nú
útgáfu rokkplötu með Halla,Ladda og Helga.
Ýmirsendir frá sér 4 laga barnaplötu núna I
vikunni og er meö plötu Helga Péturssonar
fyrrv. Rió-lims I vinnslu. Fálkinn er aö undir-
búa útgáfu nýrrar plötu meö Mannakorn sem
veriö er aö leggja siöustu hönd á. Steinar
gefa út tvöfalt albúm á næstunni með hljóm-
sveitinni Trúbrot. Annarsvegar er þaö verkiö
Lifun i heild sinni og hinsvegar brot af öðrum
plötum Trúbrots. Platan kemur út á 10. af-
mælisári Trúbrots. Af plötu Megasar sem
hljóðrituö var á tónleikum i M.H. á síöasta
ári er þaö aö frétta aö hún er I vinnslu
Umsjón: Jónatan Garðarsson