Þjóðviljinn - 24.03.1979, Síða 3
Laugardagur 24. mars 1979 ÞJÖÐVILJINN — SIÐA 3
Hrapallegur misskilningur Morgunblaðsins:.
Sovétmenn vilja ad
olíufélögin stækki
Hvers vegna vilja
Rússar eignast
hér olíustöð?
Sovézki flotinn hefur stærstu
Kola-skaganum við landam^
skip þeirra suður á bógin- t \e'
leið er ísland.
Þorsteinsso*-
_ . a
W\a
■'
Jní) É
_ XseM&i
, eða mitti
md liggur sem'
o herbraut. ... Lega
erum í fremstu víglínu á
standa."
láta til sín taka á öllum
heiiAÍ^Sunum hefur samhliða örri smíði skipa einkennzt
af viðleitni til þess að koma á fót flotabækistöðvum í sem
flestum löndum. Hefur þeim tekizt þetta í nokkrum ríkjum
og einkum orðið ágengt þar sem hugmyndafræði kommún-
ismans ræður stefnu stjórnvalda.
íShna
Leiðari Morgunblaðsins þar sem sagt er að beiðni Sovétmanna um
oliustöð i Reykja vik sé fyrsta skrefið að soVéskri oiiuhöfn.
Viðskiptaráðu-
neytið hefur
beðið þau að
kanna
möguleika
á auknu
birgðarými
Fréttir og forystugreinaskrif I
Morgunblaðinu ‘um að Sovét-
menn hafi farið þess á leit að
byggja hér oliustöð á eigin
snærum eru vægast sagt byggð-
ar á misskilningi. Þjóðviljinn
fékk þær upplýsingar hjá ollufé-
lögunum I gær að þeim hefði 24.
nóvember sl. borist bréf frá
verslunarfulltrúá Sovétrfkjanna
á tslandi þar sem tekið var upp
gamalkunnugt mál. Sumsé það
að Sovétmenn sem selja tslend-
ingum oliu telja nauðsynlegt að
auka við tankrými I Reykjavfk-
urhöfn til þess að röskun á áætl-
un sovéskra olfuflutningaskipa
þurfi ekki að stofna birgðahaldi
oliufélaganna hér i hættu. 1
bréfinu bjóðast Sovétmenn til
þess að selja ollufélögunum efni
I tanka, enda hafi þeir það á lag-
er. Það er allur fóturinn fyrir
þvi að Sovétmenn hafi beðist
leyfis að fá að reisa hér ollustöð.
Ölíufélögin telja sig hvorki
hafa peninga til þess að ráðast i
byggingu nýrra tanka að svo
stöddu, og ekki efni á frekari
birgðasöfnun. Viðurkennt er þó
að aðstaða öll I Skerjafirði sé
orðin úrelt og þörf sé úrbóta.
Eins og stendur er tankrýmið
hér nægjanlegt til þess að rúma
tveggja mánaða birgðir. Við-
skiptaráðuiieytið hefur ritað
ollufélögunum bréf og beðið þau
að gera áætlun um aukið tank-
rými. Ráðuneytið telur þörf á
stærri birgðastöð I Reykjavlk af
ýmsum ástæðum. Siglingaleiðir
hingað eru langar, kuldatimabil
geta stóraukið oliunotkun og
verðsveiflur mæla með því að
nokkrum birgöum sé safnað.
Telur ráðuneytið að hér þyrfti
að vera birgöarými til 4 mánaða
notkunar en ekki 2 mánaða eins
og nú er.
Að sjálfsögðu munu oliufélög-
.in sjálf taka ákvörðun um hvort
tilboöi Sovétmanna um efni I
nýja tanka, ef af byggingu
þeirra veröur, verður tekið,
enda er hér um hreint viöskipta-
tilboð að ræða. Væntanlega yrði
þvi ekki tekið fyrr en að undan-
gengnu útboði.
Astæðan fyrir þvl að Morgun-
blaöið tekur málið upp er talin
sú að afrit af bréfi sovéska
verslunarfulltrúans var sent
hafnarstjórninni I Reykjavlk, og
hjá Sjálfstæðismönnum þar
mun sá misskilningur hafa orðið
til, sem verður Morgunblaðinu
tilefni að viðamikilli útleggingu
um ásókn Sovétmanna I aðstöðu
hér á landi, sem siðan er sett i
vlðara samhengi. Engum get-
um skal að þvi leitt hvað Morg-
unblaöinu gengur til með þess-
um fréttaflutningi nema ef vera
skyldi yfirlýstur ásetningur
blaðsins að flytja öllum lands-
mönnum sannar og fræöandi
fréttir.
— ekh
„Met í móðursýki”
segir Guðmundur J. Guðmundsson
„Þetta er móðursýkismet hjá
Morgunblaðinu”, sagði
Guðmundur J. Guðmunds-
son, fulttrúi Alþýðubandalagsins
I hafnarstjórn Reykjavikur, i
gær. ..Það hefúr lengi verið
baráttumál hér I borginni að
komiðyrði upp oliuhöfn. Við vit-
um að Skerjafjörðurinn er úr
leik og núverandi aðstaða er öli
mjög frumstæð. Ástæðan fyrir
þvi að vel hefur gengið er að
Sovétmenn viðhafa glfurlegar
öryggisráðstafanir á skipum
sinum og fullkomin dælubúnað.
Og olfufélögin og Reykjavikur-
höfn hafa á að skipa frábæru
starfsliði. Hin góða samvinna
þessara aðila hefur tryggt það
að vel færi.”
Guðmundur J. Guðmundsson
sagði að vitað væri að Sovét-
menn vildu taka upp stærri skip
I olluflutningum til landsins og i
samræmi við þaö vildu þeir
gjarnan að hér væri meira
öryggi og stærri tankar.
Um þaö væri engin deila aö
aðstöðuna til oliumóttöku I
Reykjavlk þyrfti að bæta hverj-
ir svo sem oliuna sköffuðu.
„Þaö er allavega ljóst að ef
hingað tækju að koma „sjó-
ræningjaskip” frá Panama,
Llblu eöa Singapore með ollu
færiaö kárna gamanið. Þá væri
útbúnaðurinn hér hvergi nærri
nógu góður til þess að tryggja
iryggiö. Og þaöer einungis hinn
ágæti útbúnaður Sovét-
mannanna og gott starfelið hér,
eins ég sagði áðan, sem hefur
forðað okkur frá þvi aö fá oli'u-
farm 1 Faxaflóann.” - sagði
Guðmundur J. að lokum.
-ekh
Guðmundur J. Guðmundsson:
Fleiri en Sovétmenn sem
dreymir um oliuhöfn.
Góður afli í Grímsey
Aflabrögð Grímseyjarbáta hafa verið
með eindæmum góð í vetur, áður en hafis
tók að hamla veiðum.
Tveir bátar hafa róið með net og einn með llnu.
Netabátarnir hafa aflað mjög vel og er sá hærri
kominn með 180 tonn, en fékk samtals 130 tonn á
allri vetrarvertíðinni I fyrra. Bjarni Magnússon
hreppstjóri sagði I samtali við Þjóðviljann, aö
aflinn hefði verið svo mikill að varla hefði verið
hægt að anna honum i landi.
—eös
Samningar undirritaðir I fjármálaráðuneytinu i gær — ljósmyndarar
festa augnablikið á mynd. (Ljósm: Leifur)
Eftir atvikum
skynsamlegt
segir Tómas
Árnason fjármála■
ráðherra við
undirritun sam-
komulags
við BSRB
„Ég tel að þetta sé eftir
atvikum skynsamlegt
samkomulag eins og málin
standa nú", sagði Tómas
Arnason í samtali við Þjóð-
viljann í gær um hádegis-
leytið er hann hafði nýlokið
við að skrifa undir sam-
komulagið við BSRB.
Það var 6 manna viðræöunefnd
BSRB sem skrifaði einnig undir
og greinilegt var á öllu aö hún var
öllu ánægðari með árangurinn en
ráðherrann. 1 henni sitja Kristján
Thorlacius, Haraldur Steinþórs-
son, Einar Olafsson, Hersir Odds-
son, Kristln Tryggvadóttir og Or-
lygur Geirsson.
Samkomulagið var undirritað
með þeim fyrirvara að það veröi
samþykkt I allsherjaratkvæða-
greiðslu félagsmanna BSRB.
Einnig hafði samninganefnd
BSRB samþykkt aö fresta 3%
grunnkaupshækkun sem koma
átti til framkvæmda 1. aprll,
fram yfir allsherjaratkvæöa-
greiösluna sem fram mun fara I
byrjun mai. _ GFr
ALYKTUN LANDSSAMBANDS
V ÖRUBIFREIÐ ASTJÓRA:
Stjómin standi
við fyrirheitin
Stjórn Landssambands vöru- hækkanir í krónum, ráðstafanir
bifreiðastjóra hefur gert eftir-
farandi ályktun um frumvarp
forsætisráðherra um stjórn efna-
hagsmála og ráðstafanir til þess
að draga úr verðbólgu:
„Stjórn Landssambands vöru-
bifreiðastjóra telur aö ekki verði
um það deilt, sist innan samtaka
launafólks að eitt brýnasta verk-
efni stjórnvalda sé aö haga svo
rekstri þjóðarbúsins að full at-
vinna haldist I landinu. Sú rikis-
stjórn sem nú situr hefur haft það
að kjörorði að hún sé til fyrir
launastéttirnar og að stjórnað
veriö i samvinnu viö þær. Það
veröur þvl eftir þvi gengiö og á
því hlýtur stuðningur launa-
stéttanna að byggjast að staðið
verði viö þessi fyrirheit.
Verkalýðshreyfingin hefur
bundið miklar vonir við þá rlkis-
stjórn sem nú er við völd og það af
augljósum ástæðum, auk þess
sem áður er aö vikið og vitnað er
til. Það eru fórnfrekar þær aö-
geröir I hvaða formi sem þær
birtast, sem verklýöshreyfingin
grlpur til I þvi skyni að verja
samningslegan rétt sinn og jafna
metin ef þessi réttur hefur verið
skertur. Það eí þvi augljós hagur
fyrir launastéttirnar að við völd
sé vinsamleg rlkisstjórn sem
hægt sé að treysta og að orö
hennar og gerðir séu I samræmi.
Verklýðshreyfingin hefur sýnt
það, að hún er þess albúin að tak-
ast á við vandamál llöandi
stundar I efiiahagsmálum, I sam-
vinnu við stjórnvöld, ef þær ráö-
stafanir sem hugsaöar eru miöast
ekki viö ksertan kaupmátt, sam-
drátt og I kjölfar þess atvinnu-
leysi.
Varðándi kjaramál hefúr verk-
lýðshreyfingin marg lýst þvl yfir
að hún metur, ekki siður en kaup-
sem gerðar eru til styrktar kaup-
mættinum auk félagslegra um-
bóta sem launafólk metur mikils.
Það hefur meö öðrum oröum
veriö meginn tónn I allri kröfu-
gerð verklýðssamtakanna á slð-
ustu árum, aö kaupmátturinn
væri ekki skertur, hvernig það
væri tryggt, væriekki aðalatriðiö.
Eins og áður hefur fram komið
fer það ekki á milli mála að sam-
tök launafólks þurfa á þvi að
halda, eins ognú er ástatt I þjóö-
félaginu, ogekki slstþegar útlitið
framundan er skoöað, að við völd
sé rikisstjórnsem launastéttirnar
ilandinugeta treyst, ogerþvl þaö
samráð sem lofaö var að komið
yrði á milli stjórnvalda og laun-
þegasamtakanna mjög þýðingar-
mikið og algjör forsenda þess, að
til frambúðar geti tekist heilbrigt
og heiöarlegt samstarf.
Stjórn Landssambands vöru-
bifreiöastjóra skorar þvi eindreg-
iðá Alþingiogríkisstjórnaö leysa
úr þeim ágreiningi I verðbóta- og
kjaramálum, sem nú rlkir, meö
þvimóti aö veita sérstakar launa-
bætur til láglaunafólks, er verði I
senn raunhæfar og varanlegar.”
Banaslysið
í Hrísey
Pilturinn sem varö undir
fiskkassastæðu I Hrlsey I gær
hét Vilhjálmur Guðjónsson.
Haún var fjórtán ára gamall.
Vilhjálmur var sonur
Guðjóns Björnssonar, frétta-
ritara Þjóðviljans I Hrlsey.