Þjóðviljinn - 27.03.1979, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 27.03.1979, Qupperneq 1
UOÐVIUINN Þriðjudagur 27. mars 1979—72. tbl. —44. árg. Taka á fullt tillit til samþykktar VMSÍ Alþýðuflokksmenn og Alþýðubandalagsmenn náðu saman á formanna- ráðstefnu Verkamannasambandsins, og „guðfeður” samkomulagsins brosa hér hvor til annars á fundinum. Karl Steinar tii vinstri og Guö- mundur J. t.h. Nú er spurningin hvort það veit á samkomulag I rikis- stjórninni. (Ljósm. Leifur) Alþýðubandalagid styður kröfii um láglaunabætur Þjóðviljinn á Lone Pine Hinn vinsæli skákfrétta- maður Þjóðviljans Helgi ólafsson teflir nú á Lone Pine mótinu f Bandarikjunum. Hann mun senda okkur fréttir og skákir daglega sem birtast munu f skákþættinum. Fyrsta umferð var tefld á sunnudaginn og þá sigraöi Helgi Bandarikjamanninn Tallozzi, Guðmundur Sigur- jónsson gerði jafntefli við DeFirmbian, en Margeir Pétursson tapaði fyrir rúm- enska stórmeistaranum Gheorghiu. Sjá 13.síðu Vllja hækka áburðinn um 56,2% Stjórn Áburðarverk- smiðjunnar hefur lagt til, að áburður verði hækkaður i verði um 56,2%. Verð- lagsnefnd hefur málið til meðferðar og mun skila áliti síðar í vikunni. —vh Eftir öllum sólarmerkj- um að dæma verður nú reynt til þrautar á næstu dögum hvort hægt er að ná samkomulagi milli st jórnarf lokkanna um kjarahliðina á efnahags- frumvarpi forsætisráð- herra. Formenn stjórnar- flokkanna þriggja hittust tvisvar sinnum um heigina til áþreifinga og af hálfu forsætisráðherra hafa ver- ið reifaðar samkomulags- leiðir sem snerta verðbóta- kaflann, bindiskyldu fjár i Seðlabanka og umorðun á verðlagsmálakaf lanum. Þingflokkur Alþýðuflokksins mun á fundi um helgina hafa ósk- að eftir hugmyndum Alþýðu- bandalagsins aö samkomulags- grundvelli. A sameiginlegum fundi stjórnar verkalýðsmála- ráðs, framkvæmdastjórnar og þingflokks Alþýðubandalagsins i gær var samþykkt að lýsa þvi yfir að flokkurinn væri reiðubúinn til samkomulags um afgreiðslu efnahgasmálafrumvarpsins á þeim grundvelli sem formanna- fundur Verkamannasambandsins hefur gert ályktum um. Þvi er einnig lýst yfir i samþykkt fundarins i gær, að Alþýöubanda- lagið sé eindregið sammáia þeirri tillögu Verkamannasambands- ins, að sérstakar launabætur verði teknar upp á lægri laun tii þess að koma i veg fyrir skerð- ingu þeirra iauna með þvi nýja formi sem frumvarpið gerir ráð fyrir. Alþýðubandalagið telur að eðlilegt sé að taka fullt tillit tii Framhald á blaðsiðu 14. Viatöi urn af iýashreyfing- arinnar Gangan kemur niður Bankastræti. Þúsund manns í kröfugöngu ,yiljum betri bamaheimili” A laugardaginn gekkst sam- starfsnefnd um dagvistunarmál fyrir kröfugöngu frá Hlemmi nið- ur að Lækjartorgi og lauk henni með útifundi. Talið er að um þús- und manns hafi tekið þátt i göng- unni, og setti ungt fólk með börn svip á gönguna, enda á það fólk brýnustu hagsmuna að gæta i þessu máli. Kjörorð göngunnar var: Næg og góð dagvistarheimili fyrir öll börn, en auk þess voru bornar fram kröfur um dagheimili I öll hverfi, fleiri skóladagheimili strax, gegn niðurskurði borgar- yfirvalda og nokkrar kröfur um bætta aöstöðu á dagvistar- heimilunum, bæði fyrir fóstrur og börn. Þá var krafist jafnréttis- uppeldis. Gangan var mjög hressileg, mikið var sungið og slagorö hróp- uð. Segja má að „söngur dags- ins” hafi verið italskt baráttulag með nýjum islenskum texta sem byrjar svo: „Við viljum betri barnaheimili/ þar sem allt er fullt af fóstrum og fjarskamargt að hugsa um...” Útifundurinn heppnaðist einnig vel, en mörgum þótti hann helst til langur, enda kalt i veöri þótt sóiin skini og vindar heföu hægt um sig. Margrét Sigurðardóttir flutti ávarp á fundinum fyrir hönd nefndarinnar. Leikfélag Kópa- vogs flutti atriöi úr barnaleikrit- inu Gegnúm holt og hæðir, og söngsveitin Kjarabót, Barnalaga- sönghópurinn og Ljóðafélagið skemmtu með tónlistarflutningi. Samstarfsnefndin vinnur nú aö söfnun undirskrifta undir kröfuna um næg og góð dagvistarheimilij fyrir öll börn. Ætlunin er aö safna 15—20 þúsund undirskriftum, og verða listarnir siðan afhentir borgaryfirvöldum. Undirskrifta-, söfnunin mun standa i u.þ.b. tvo mánuði, en hún hófst 8. mars s.l. ih HERSTÖÐVAANDSTÆÐINGAR: Baráttusamkoma í Háskóiabíói á laugardag I tilefni af þvi að 30 ár eru liðin frá 30 mars 1949 efna Samtök herstöðvaandstæð- inga til baráttusamkomu í Háskólabíói n.k. laugardag. Þar mun Sveinn Skorri Höskuldsson flytja ræðu.en auk þess verða þar mörg baráttu- og skemmtiatriði. Sérstakur leikþáttur, sem saminn er fyrir þennan atburö, verður fluttur af ýmsum leikurum undir stjórn Brynju Benediktsdóttur. Þá mun stór hljómsveit (Big Band) leika,en i henni eru bæöi hljóðfæraleikarar úr poppheiminum og Sin- fóniuhljómsveit tslands. Söngsveitin Kjarabót heldur aðallega uppi söng og syngur gömul og ný baráttulög sem Sigurður Rúnar Jónsson hefur útsett.en hann stjórnar einnig sveitinni. Önnur baráttuatrtöi samkomunar verða augiýst betur á næstu dögum. —GFr 1 ■ I I i I ■ I ■ I ■ I ■ J

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.