Þjóðviljinn - 27.03.1979, Page 7
ÞriOjudagur 27. mars 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
Stórfelld stéttahreyfing verkalýðsins í síðustu
kosningum hefur gert mögulegt og nauðsynlegt aðj
hefja baráttu fyrir samvinnu verkalýðsflokkanna á
grundvelli hagsmuna verkalýðsins, jafnt innan
Alþingis sem utan.
Hlekkirnir, svipan
og lykillinn I
Einar Baldvin <
Baldursson
Gylfi Páll Hersirj
Vilhelm Norö-i
f jörö
P
Dagskrárgrei n Gests
GuOmundssonar í bjóöviljanum
(30/1 ’79) er að mörgu leyti
athyglisverð. Hún túlkar skýrt,
bæði sterkustu og veikustu
hliðarnar á sjónarmiðum þeirra
vinstri afla utan Alþýöubanda-
lagsins, sem hvorki aðhyllast
stalini'sk viðhorf né heldur bylt-
ingarsinnaðan sósialisma.
Gestur bendir réttilega.á að
„efnahagsvandi islensks sam-
félags” er ekki staðbundið
vandamál, heldur ótvlræður
hluti þeirrar heimskreppu sem
auðvaldsskipulagið hefur búið
viðsiðustu árin og enn er óleyst.
Hann bendir einnig á, að hinn
yfirborðslegi munur á „efna-
hagsráöum” Alþýðubandalags-
ins og Alþýðuflokksins sé i
rauninni sama eðlis og munur-
inn á pest og kóleru. Báðar
stefnurnar miðast i raun að þvi,
að leysa eða öllu heldur minnka
„efnahagsvandann” á kostnað
verkafólks með launalækkunum
og atvinnuleysi. 1 ofanálag miða
„lausnirnar” að þvi, að leysa
innan fjögurra veggja þjóðar-
búsins vanda, sem er alþjóð-
legur.
Lausn „efnahags-
vandans”
Sú grundvallarhugmynd að
leysa kreppuna á kostnaö
verkafólks, viröist nú sameigin-
legt kappsmál borgarastéttar-
innar og „ábyrgra” vinstri afla
um allan heim.
Viö erum sammála Gesti um
lýsinguna á þessum atriðum.
Þau eru eins og Gestur réttilega
bendir á, meðal fyrstu bókstaf-
anna i stafrófi sósialismans.
Þessara bókstafa gætir hins
vegar allt of sjaldan utan raða
skipulagöra byltingarsinnaðra
sósialista.
Veruleikanum er hins vegar
ekki nema að hálfu gerð skil
með lýsingunni einni saman.
Þegar alltkemur til alls er þaö
umbreyting hans sem máli
skiptir.
Er að þvi kemur skiljast leiðir
milli Gests Guömundssonar og
byltingarsinnaðra sósíalista.
Fjötrun verkalýösforystunnar
við rikisvaldið, plús sú stað-
reynd, aö sérhver barátta
verkalýðsins fyrir hagsmunum
sinum hlýtur að leita út fyrir
ramma auövaldskerfisins,
verður til þess að hann ályktar
sem svo, að verkalýöshreyfing-
in hafi misst möguleikann á þvi
aö ber jast. Að áliti Gests hefur
doði og uppgjöf tekið völdin.
Þeir sem áður ræddu pólitlk,
þagna nú er stéttabaráttuna ber
á góma.
Til grundvallar þeirri uppgjöf
og svartsýni, sem ekki er svo
ýkja óskyld þögn þeirra sem
heima sitja, liggur rangur skiln-
ingur á þeim hreyfiöflum, sem
eru aðverki i islenska auðvalds-
kerfinu og reyndar um heim
allan.
Hvað er verkalýðs-
flokkur?
Stærsta vandamál Gests er
ófullnægjandi skilningur á þvi,
hver sé eiginlega mikilvægasti
munurinn á verkalýösflokkum
og borgaraflokkum. Hann ligg-
ur einungis að hluta til i mis-
munandi stefnuskrám flokk-
anna. Tökum sem dæmi verka-
lýðsflokkana tvo. Stefnuskrá
Alþýðubandalagsins er ólikt
róttækari en samsvarandi plagg
Alþýðuflokksins. Munurinn á
stefnu þessara flokka er hins
vegar öllu minni þegar til
kastanna kemur. Sögulegar
heföir flokkanna skipta heldur
ekkiöllu máli.Nei — það eru tvö
atriði önnur sem skipta meira
máli, i réttri orsakaröð.
Verkalýðsflokkarnir byggja á
verkalýðnum og hinni skipu-
lögðu verkalýðshreyfingu.
Fyrri atriðin tvö öölast þvi
aðeins gildi, aö þessi forsenda
sé til staðar. 1 framhaldi af
þessu skiptir einnig máli á
hvaða forsendum verkafólk
fylkir sér um flokkana. Þegar
það velur sér þessa flokka,
hvort heldur það gerist með
atkvæöi, félagsaðild eða stuðn-
ingi innan verkalýðsfélaganna
er um stéttarlegt val að ræða.
Þetta val getur byggst á
óskýrum og jafnvel mótsagna-
þrungnum forsendum. Slfk eru
nú einu sinni vaxtarskilyrði
verkalýðsvitundar I auövalds-
kerfinu. Bandalagspólitík
verkalýðsflokkanna við
borgarastéttina bætir ekki úr
skák.
Það sem máli skiptir er að
verkafólk velur sér þessa flokka
til að gæta hagsmuna sinna —
gagnvart borgarastéttinni. Þeir
hagsmunir, sem geta birst i
hinni smæstu launakröfu, eru
stéttarhagsmunir. 1 þessu felst
kjarni málsrns.Þessar stéttar-
legu forsendur og vitundin um
mátt andstæðingsins er grund-
völlur þeirrar tryggðar og lang-
lundargeös sem verkalýðurinn
oftlega sýnir flokknum sinum.
Verkalýðsflokkarnir geta undir
öllum kringumstæðum og eink-
um þegar þeir eru hlekkjaðir
við rikisvaldið, verkað sem
svipa á alþýðufólk.
Þvi er nauðsynlegt að greina
milli forystu þessara flokka og
almennra félaga þeirra og jafn-
vel I enn frekari mæli milli
forystu og áhangenda flokkanna
I samfélaginu. I þessu ljósi birt-
ast okkur straumhvörfin I sið-
ustu kosningum sem annað og
meira en blind tiltrú verkalýös-
ins til kosningaloforða verka-
lýðsflokkanna sem nú hafa
verið svikin. Straumhvörfin
birtast okkur sem upphaf stór-
felldrar stéttahreyfingar.
Munurinn á tæpu 30% fylgi
verkalýðsflokkanna fyrir kosn-
ingar og rúmum 40% eftir kosn-
ingarnar er ekki spurning um
meiri eða minni áhrif þeirra
sem flokka. Meginmunurinn
felst I allt öðru.
Krafan um
verkalýðsstjórn
Stórfelld stéttarhreyfing
verkalýðsins i siöustu kosning-
um hefur gert þaö mögulegt og
raunar algerlega nauðsynlegt
aö hefja baráttuna fyrir sam-
vinnu verkalýösflokkanna á
grundvelli hagsmuna verka-
lýðsins, jafnt innan Alþingis
sem utan. Slik samvinna byggð-
ist á þvi að samflotiö með
Framsókn hefði stöðvað og af-
létt þeim höftum sem þvi eru
fylgjandi. Hafin verði miskunn-
arlaus barátta gegn borgaraöfl-
unum með það fyrir augum aö
ná meirihluta ogmynda verka-
lýösstjórn.
Doðinn i verkalýösstéttinni er
vissulega mikill. Hægur vandi
er hins vegar aö imynda sér
hvilikur baráttuhugurrisiinnan
verkalýðsstéttarinnar ef verka-
lýðsflokkarnir sameinuðust um
stefnu er afneitaði öllum launa-
lækkunum. Stefnu sem fæli i sér
að kaupráni atvinnurekenda
yrði mætt með kröfunni um opn-
un allra reikninga og þeirri hót-
un að fyrirtækiþeirra sem ekki
teldu sig færa um að reka þau
án þess að lækka launin, yröu
einfaldlega tekin eignarnámi og
sett undir lýðræðislegt eftirlit
þeirra sem þar störfuðu.
Þetta kann aö virðast
óraunsætt. En við skulum hafa
það i huga að innan verkalýðs-
félaganna og ASl, hefur I viss-
um tilfellum verið gerlegt að
knýja slika samvinnu i gegn.
Þar með hefur náðst meiri
árangur I kröfugerö en ella.
Samstaða verkalýðsins vekur I
sjálfu sér auknar vonir og meiri
kröfur. Þegar stór fjöldi
Isiensks verkafólks kaus verka-
lýðsflokkana i siöustu kosning-
um, margir I fyrsta skipti, fólst i
þvi krafaum aö kauprán hægri
flokkanna yrði aftur látið
ganga. Þetta eru engar smá-
kröfur á islenskan mælikvarða.
Gagnvart svo stórfelldri
hreyfingu sem hér um ræöir,
dugar ekki að fallast i faðm við
vofu vonleysisins. Gegn þvi sem
hér hefur verið sagt má með
réttu benda á að flokkarnir og
núverandi forysta þeirra er ekki
likleg til svona stórræða. Það er
hins vegar ekki forysta flokk-
anna sem er afl þeirra hluta
sem gera skal. Þá stefnu sem
þarf aö liggja til grundvallar
baráttunni fyrir verkalýðs-
stjórn veröur að móta utan
þessara flokka. Það er hlutverk
byltingarsinnaðra sósialista að
móta hana og vinna henni
fjöldafylgi.
Tæpur helmingur i'slensku
þjóðarinnar kaus verkalýðs-
flokkana til að vernda kjör
þeirra I samræmi við einhverja
bestu samninga sem istensk
verkalýðsstétt hefur náð. Til
þessa fólks verður aðhöfða. Þaö
veröur best gert með þvi að
stiga skrefi lengraen þetta fólk,
á sömu forsendum. Segja
verður: Þið kusuðþessaflokka til
að verja kjör ykkar. Þið verðið
að krefjast þess að þeir rjúfi
samstarfið við stéttarand-
stæðinginn og stefni að þvi að
mynda verkalýösstjórnmeð það
höfuðmarkmið að verja kjör
verkalyös^ns. Til aö verjakjörin
verður hins vegar aö gripa til
ótölulegra ráðstafana sem
ganga miklu lengra.
Eins og Gestur segir hlýtur
barátta verkalýðsins að stefna
út fyrir ramma auðvaldskerfis-
ins. Verkalýöurinn kann að
virðast lamaður i dag. Svo mun
þó ekki standa lengi. Slagorðið
um verkalýðsstjórn felur i sér
tilhneigingu þeirrar baráttu
sem kemur. Vinnum við á
forsendum slikrar stefnu mun
stjórnmálaáhugi félaga okkar
án efa vakna á ný.
Einar Baldvin Baidvinsson
Gylfi Páll Hersir
Vilhelm Norðfjörí
Um bíla-
kaup
fatlaðra
Jón Guðmundsson
hringdi og gerði að umtals-
efni opinbera styrki til
bílakaupa fyrir fatlaða, í
tilefni af þvi að nú er verið
að ræða um það á alþingi
að auka þessa styrki.
Ég er alls ekki á móti
þvi, sagði Jón, og mér
finnst sjálfsagt að fatlaðir
njóti þessara styrkja. En
sá er hægur á þessu máli,
að meira en helmingur
þessara bíia kemst aldrei í
hendur þeirra sem þeir eru
ætlaðir. Margir komast
ekki einu sinni i það hérað
þar sem viðkomandi styrk-
þegi er búsettur.
Ég veit ekki hvernig eftirliti
með þessu er háttað, en mér
finnst að félagsskapur fatlaðra
ætti aö sjá til þess, að ættingjar
fatlaðra geti ekki notfært sér
þessa styrki til að komast yfir
ódýra bila. Þarna er um herfilega
misnotkun að ræða.
frá
fesendum
Þá sagði Jón þaö algengt, að
menn sem væru i fastri atvinnu
hjá þvi opinbera — t.d. strætis-
vagnabilstjórar, lögregluþjónar
og slökkviliösmenn, fengju sams-
konar styrki til bllakaupa og
leigubilstjórar. Nú eru þrenginga
timar, sagði Jón, og alltaf verið
að tala um að spara — væri þá
ekki ráð að hreyfa þessum mál-
um? Ég viðurkenni að nauðsyn-
legt sé að styrkja þá til bilakaupa
sem mjög þurfa á þessu að halda,
og mætti sá styrkur gjarnan
hækka. En mér þykir undarlegt ef
það er rétt, að 400 manns hafi þörf
fyrir slika styrki á þessu ári. Svo
skilst mér að styrkina geti sömu
menn fengið 5 hvert ár.
Jón sagðist hafa gert tilraun til
að afla sér upplýsinga um þetta
mál fyrir nokkrum árum, en þá
verið neitað um lista yfir þá sem
fá þessa bila.
3r þetta
hægt?
Ég ætla aöbiöja lesendur
Morgunblaðsins að lesa
með athygli blaðsíðu 11 í
blaðinu miðvikudaginn 21.
mars. Þar eru tvær fyrir-
sagnir, sem eiga engan
sinn líka. önnur hljóðar
svo: „Rausnarlegar gjafir
til þriggja kirkna".
Efni hennar er útgáfa fimm
fræðslubæklinga um getnaðar-
varnir og kynsjúkdóma. Hin
fyrirsögnin er: „Fræðslubækling-
ur um getnaðarvarnir og kyn-
sjúkdóma” og efni hennar er, að
Gisli Sigurbjörnsson hafi gefið
þrem kirkjum kr. 250.000,- hverri.
Svona vinnubrögð eru forkastan-
leg og benda til þess, að starfs-
menn blaðsins séu ekki vanda
sinum vaxnir og ættu að sjá sóma
sinn i að biðja afsökunar eða
hætta störfum ella. Ég veit að af-
sökunin verður látin heita sem
svo: „leið mistök”, en það er ekki
alltaf hægt að afsaka sig með
þeim.
Séra Sverrir Haraldsson.
Breiðfirðingaheimilið h.f.
Aðalfundur Breiðfirðingaheimilisins h.f.
verður haldinn miðvikudaginn 24. april
1979, kl. 20.30 siðdegis að Hótel Borg.
Dagskrá:
Samkvæmt félagslögum.
önnur mál.
Reikningar félagsins fyrir 1978 liggja
frammi hluthöfum til athugunar 10 dögum
fyrir fund á skrifstofu félagsins i Breið-
firðingabúð frá kl. 13-14 siðdegis.
Stjórnin
F ríkirk jusöf nuðurinn
í Reykjavík
Aðalfundur safnaðarins verður haldinn i
Frikirkjunni sunnudaginn 1. april n.k., og
hefst kl. 3. e.h.
Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf.
önnur mál.
Safnaðarstjórnin