Þjóðviljinn - 18.05.1979, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 18.05.1979, Blaðsíða 3
Föstudagur 18. mal 1979. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 ISvo viröist sem stefni I tug miljóna króna tap á sýningum Z Þjóðleikhússins á söngieiknum I Prinsessan á bauninni. Aösókn ■ aö leiknum er sama og engin en B kostnaöurinn skiptir tugum J miljóna. Þjóöviljinn hefur heyrt Ieftir heimildum, sem hann telur áreiöanlegar, aö kostnaöurinn ■ viö sýninguna sé um 40 miljónir | króna en kostnaöaráætlunin ■ hafi verið á milii 15 og 20 miljón- I ir' Þessar tölur voru bornar und- Iir Svein Einarsson Þjóðleikhús- stjóra i gær og sagði hann þær of í háar. Þá var hann spurður um I hver kostnaðurinnviðsýninguna ■ væri og sagði hann aö ekki væri ÞJOÐLEIKHtJSIÐ: Tugndljóna tap á „Prinsessunni”? Þjóöleikhússtjóri neitar að gefa upp kostnaðinn við sýninguna og segir kostnaðaráœtlunina trúnaðarmál Miðasölustjóri neitar að gefa upp jjölda seldra miða á sýninguna sl. þriðjudag endanlega búið aö gera hann upp, auk þess sem ekki væri siður að gefa upp kostnað við einstaka sýningu heldur i heild. Þá var hann spurður um kostnaðaráætlunina og neitaði hann að gefa upp hver hún hefði veriö, sagði hana trúnaðarmál. Þjóðviljinn haföi einnig af þvi spurnir að einungis 14 manns hefði keypt sig inn á sýningu á leiknum sl. þriðjudag fyrir utan þá sem hafa áskriftarkort. Miðasölustjóri Þjóðleikhúss- ins var að þvi spurður hvort þetta væri rétt og sagði hann að talan 14 væri ekki rétt — það voru aðeins fleiri sem keyptu sig inn, sagði hann. Aftur á móti vildi hann ekki gefa það upp hve margir hefðu keypt sig inn á sýninguna. Hinsvegar staðfesti hann að aðsókn að Prinsessunni á bauninni væri litil, stykkiö gengi illa. Það má furðulegt telja að svo mikil leynd skuli hvila yfir starfsemi Þjóðleikhússins, sem er þó sameign allra lands- manna. -S.dór ‘T ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ ■ I ■ I i ■ I ■ I i ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I Námskeið fyrir hafnarstarfsmenn: V arnir gegn olíumengun Þessi mynd var tekin I gær á námskeiði hafnarstarfsmanna um varnir gegn ollumengun. Um 30 hafnar- starfsmenn viösvegar af landinu sátu námskeiðiö sem stóö yfir I þrjá daga og lauk I gær. Foreldra- og kennarafélag Fossvogsskóla: Býður sjálfboðavinnu við hreinsun dalsins i gær lauk í húsi Slysa- varnarfélagsins á Granda- garði námskeiði um varnir gegn olíumengun sjávar. Siglingamálastofnun rikis- ins stóð fyrir námskeiðs- haldinu. Fluttir voru heilmargir fyrir- lestrar á námskeiðinu auk þess sem þátttakendur fengu að spreyta sig á ýmsum verkefnum . Meöal þeirra sem fluttu erindi á námskeiðinu voru þeir Magnús Jóhannesson deildarverkfræöing- ur, sem flutti 4 fyrirlestra um „Oliu i umhverfi sjávar. hegöun og afdrif”, „Hreinsun oliu úr sjó”, „Oliumengun i höfnum, helstu orsakir og hugsanlegar af- leiðingar” og um „Æskileg skipti rikis og sveitafélaga i baráttunni gegn oliumengun sjávar”. Stefán Bjarnason mengunar- fræðingur flutti erindi um „Hreinsun oliu úr sjó, Flotgirð- ingar og fleytibúnaður” og um „Varnir gegn ollumengun I höfn- um”. Þá flutti einnig Hrafnkell Guð- jónsson starfsmaöur hjá Sjó- mælingum rikisins fyrirlestur um „Yfirborðsstraum umhverfis landið” og Jóhann Jakobsson efnaverkfræðingur ræddi um „Oliu og eiginleika hennar”. Eins og fyrr sagði lauk nám- skeiðinu I gær en það stóö i alls þrjá daga. -«g Þegar sorp er nefnt Hleypur Sjöfn tíl íhaldsins A aöalfundi Foreldra- og kenn- arafélags Fossvogsskóla 7. mai s.l. var samþykkt aö boöa til sjálfboðavinnu félagsmanna tvö kvöld á hverju vori viö snyrtingu og hreinsun opinberra svæöa I Fossvogi I samráöi viö garö- yrkjustjóra borgarinnar. Samþykkt þessi var gerð vegna hvatningar Egils Skúla Ingi- bergssonar, sem var gestur fund- arins. Flutti hann erindi um um- hverfis- og skipulagsmál borgar- innar og lagði á það áherslu að umgengni væri viða ábótavant. Hvatti hann fundarmenn til að stuöla að betri umgengni og fegr- un umhverfis. Fundurinn samþykkti fleiri ályktanir svo sem áskorun til borgaryfirvalda um aö ljúka frá- gangi lóðar skólans þannig að umferð ökutækja eigi sér ekki stað um leiksvæöi lóöarinnar. Þá var samþykkt að leggja sérstaka áherslu á aö byggö veröi sund- laug við Fossvogsskóla og var stofnaður sjóöur til styrktar henni og hafa þegar safnast I hann 300 þús. krónur. Einnig var mótmælt þeirri stefnu fræösluyfirvalda aö fjölga I bekkjardeildum. Fulltrúar foreldra i stjórn fé- lagsins eru Héðinn Emilsson for- maður, Elin Bergs, Ingibjörg Jó- hannsdóttir og Stefán Arnórsson. Auk þeirra eru skólastjóri og tveir kennarar skólans i stjórn- inni. -GFr Sumir þingmenn hafa ekki „húnor” fyrir svona mynd- um. Þessi mynd af Halldóri E. Sigurössyni birtist i VIsi Svona myndir vilja þingmenn ekki Ljósmyndarar eru hættu- leg stétt manna. Á ólikleg- ustu stööum geta þeir legiö i leyni og smellt af á afar óheppilegum augnablikum. 1 vetur hafa þeir venju fremur lagt leiö sina i alþingishúsiö og náö mörgum góöum myndum af þingmönnum. Byrjaöi þetta allt meö hinu bráöskemmtilega Þingiyndi Þjóöviljans. Er nú svo komiö aö sumir þingmenn þora vart aö klóra sér i höföinu af , ótta viö aö Ijósmyndarar liggi I leyni. Aö mati sumra þingmanna tók þó út yfir núna I vikunni þegar Visir birti mynd af Halldóri E. Sigurðssyni geispandi út aö eyrum. Kunnu þeir ekki aö meta slikan „húmor” og nú hefur Þjóöviljinn frétt aö takmarkaöur veröi aðgang- ur ljósmyndara aö þinghús- inu. Blaöiö bar þetta undir Friöjón Sigurösson skrif- stofustjóra Alþingis. Friðjón sagði að alltaf hefðu gilt þær reglur um ljósmyndum i þinghúsinu að sækja yrði um leyfi til þing- varða en nokkuð hefði skort á að þeim reglum heföi verið framfylgt i vetur. Ljósmynd- arar hefðu vaðið leyfislaust um allt hús eins og þeir ættu það og setið heilu dagana viö til að reyna að ná myndum af þingmönnum i óþægilegum stellingum. Menn yrðu að gera sér ljóst að þingmenn yrðu að hafa starfsfrið og þvi ætti núna að fylgja fyrr- greindum reglum strangara eftir. Þá haföi Þjóðviljinn sam- band við Gils Guðmundsson forseta Sameinaðs þings og sagði hann að þetta mál hefði ekki borið fyrir sin eyru og það kæmi sér á óvart ef ætti að setja sérstök takmörk á ljósmyndun i þingsölum. Það mál hefði aldrei boriö á góma á fundum forseta þingsins. —GFr Neytendasamtökin um stöðvun mjólkurdreifingar: Kúgun sem á enga stoð í lögum Sjöfn Sigurbjörnsdóttir, borg- arfulltrúi Alþýöuflokksins, viröist fara úr jafnvægi og hlaupa yfir til ihaldsins i hvert sinn sem sorp ber á góma. 1 gær lá fyrir borgarstjórn til- laga frá framkvæmdaráði um samræmingu á svokölluðu auka- gjaldi sem tekið hefur verið um langan tima vegna aukasorp- hirðu. Sjöfn taldi að hér væri ver- ið aö lauma að á ný tillögu sem hún stóð að þvi að fella i desember um almennt sorpgjald sem er allt annars eðlis. Studdi hún frávisunartillögu frá Davlð Oddssyni sem var sam- þykkt með 8 atkvæöum gegn 7. —gfr Stjórn Neytendasamtakanna hefur sent frá sér eftirfarandi ályktun varöandi verkfall mjólkurfræöinga: „Sú furðulega staða hefur kom- ið upp, að mjólkurfræöingar eru I „verkfalli” en vinna fulla vinnu nema 4, að þvi er fréttir herma. Dreifing mjólkur er mjög tak- mörkuð og þvi mjólkurskortur. „Verkfall” mjólkurfræðinga bitnar þvi eingöngu á hinum al- menna neytanda. Þeir aðilar, sem semja við mjólkurfræöinga, þ.e. Vinnu- málasamband samvinnufélaga og Vinnuveitendasamband tslands hafa tekið þvi tilboöi mjólkurfræðinga, að vinna mjólkina til þess að verkfallið bitnaöi ekki á bændum en gegn þvi skilyröi, að mjólkinni og unn- um mjólkurvörum verði ekki dreift nema þá I vissum undan- þágutilfellum, sem mjólkurfræð- ingar koma til með að veita. Það eru ekki störf mjólkurfræð- inga að annast flutning og dreif- ingu mjólkur og mjólkurafurða. Mjólkursamlögin hafa hins vegar fyrirskipaö mönnum, sem ekki eru i neinu verkfalli, að leggja niður vinnu, en þeir eru að sjálf- sögðu á fullum launum, sem neytendur að siðustu greiða og með þeim afleiöingum, eins og áður greinir, að verkfallið bitnar nú einvörðungu á neytendum en ekki þeim aöilum, sem mjólkur- fræðingar eiga i verkfalli við. Með visun til þess, sem aö framan greinir, mótmæla Neytendasamtökin harðlega, að þeir, sem vinna að dreifingu mjólkur, skuli hafa verið látnir leggja niður vinnu með framan- greindum afleiðingum og skora á stjórnvöld að stöðva slika kúgun, sem enga stoð á i lögum um vinnudeilur.”

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.