Þjóðviljinn - 18.05.1979, Qupperneq 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 18. mal 1979.
UOBVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýðs-
hreyfingar og þjóðfrelsis
l tgefandi. l'tgáfufélag Þjóðviljans
Kranikva*nidastjori: Eiður Bergmann
Kítstjorar \mi Bergmann. Einar Karl Haraldsson.
Krettastjori: \'ilborg Harbardóttir
l nisjonannaóur Sunnudagsblaós: lngóllur Margeirsson
Kekstrarstjóri: Úlfar Þormóösson
Auglýsingastjóri: Rúnar Skarphéöinsson
Afgreiöslustjóri: Filip W. Franksson
Blaöamenn: Alfheiöur Ingadóttir, Einar Orn Stefánsson, Guöjón
Friöriksson. Ingibjörg Haraldsdóttir, Magnús H. Glslason. Sigurdór
Sigurdórsson.
Erlendar fréttir: Halldór Guömundsson. lþróttafréttamaöur:
Ingólfur Hannesson. Þingfréttamaöur: SigurÖur G. Tómasson
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Leifur Rögnvaldsson.
Útlit og hönnun: Guöjón Sveinbjörnsson, Sævar Guöbjörnsson.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar
Safnvöröur: Eyjóifur Arnason
Auglýsingar: SigriÖur Hanna Sigurbjörnsdóttir. Þorgeir ólafsson
Skrifstofa: Guörún Guövaröardóttir. Jón Asgeir SigurÖsson.
Afgreiösla : Guömundur Steinsson. Hermann P Jónasson. Kristin Pét-
ursdóttir
Slmavarsla: Ólöf Halldórsdóttir. Sigrlöur Kristjánsdóttir
Bílstjóri: Sigrún Báröardóttir
Húsmóöir: Jóna Siguröardóttir
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir. Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir.
t'tkeyrsla: Sölvi Magnússon, Rafn GuÖmundsson.
Kitstjórn. afgreiösla og auglýsingar: Siöumúla 6. Reykjavik. sími 8 13 33
Prentun: Blaöaprent hf.
Kratar skila auöu
• Fyrir hálfum mánuði lagði Alþýðubandalagið fram
tillögur í rikisstjórninni um aðgerðir til þess að verja
launastef nu stjórnarinnar. ( þeim fólst að sett yrði þak á
verðbótagreiðslur við400þúsund króna mánaðarlaun, og
sömuleiðis yrðu verðhækkanir bundnar þannig að engar
hækkanir yrðu leyfðar umfram vísitöluhækkun launa. í
tillögunum fólst einnig að 3% grunnkaupshækkun til
allra þeirra sem hafa upp að tvöföldum daglaunum
verkafólks yrði lögfest nú þegar um leið og gerðar yrðu
sérstakar ráðstafanir til þess að skattleggja hæstu
tekjur í þjóðfélaginu.
• Framsóknarflokkurinn lagði skömmu síðar fram
sinar tillögur sem hnigu mjög í sömu átt nema hvað það
er skoðun Framsóknarmanna að á móti 3% grunnkaups-
hækkun með lögum verði að koma bann við frekari
grunnkaupshækkunum, svo og bann við verkföllum og
verkbönnum fram til áramóta.
• Loks eftir að hafa þagað í hálfan mánuð kynntu
Alþýðuf lokksmenn afstöðu sína í ríkisstjórninni í gær.
Henni er best lýst með einu orði: Uppgjöf. Alþýðuflokk-
urinn leggur semsé til að stjórnin aðhafist ekkert. 3%
grunnkaupshækkun verði ekki lögfest og hvatt verði til
þess að aðilar vinnumarkaðarins geri nú þegar með sér
nýja kjarasamninga.
• Þessa uppgjöf ráðherra Alþýðuflokksins verður að
skýra á þann veg að stjórnarandstæðingar í þingliði
flokksins ráði nú ferðinni. Tilvísun á samninga nú án
þess að taka á hálaunavandamálinu eða á verðhækk-
unum þýðir nýja verðbólguholskeflu og langvinn verk-
fallsátök. Afstaða atvinnurekenda er sú að í raunini eigi
að afnema allar verðbótagreiðslur á laun þetta árið og
að ávísa á þá er sama sem að bjóða almennu launafólki
uppá 20% kaupmáttarskerðingu það sem eftir er ársins.
Athyglisvert er að áður en þesssi uppgjöf Alþýðu-
flokksins var gerð opinber hafði Magnús Magnússon
félagsmálaráðherra margendurtekið að nú þyrfti að
fara að stjórna landinu og verið með vangaveltur um
almenna grunnkaupsbindingu í ætt við tillögur Fram-
sóknarf lokksins.
• Þótt Alþýðuf lokkurinn vilji nú ekki lengur taka þátt í
að stjórna landinu verður að minna á að sú lagaleið sem
ríkisstjórnin hefur farið í kjaramálunum var hugsuð
sem leið til þess að tryggja launafólki betri útkomu en
líkindi væru til að fengjust í beinum átökum við at-
vinnurekendur. Slíkum afskiptum stjórnvalda var og er
verkalýðshreyf ingin hlynnt að því tilskyldu að þær komi
réttlátlega niður.
• Stjórnarf lokkarnir eru þrír og hafa þrennskonar af-
stöðu til athafna eða athafnaleysis í kjaramálunum.
Framsóknarf lokkurinn vill grunnkaupshækkanir og
bann við verkfallsaðgerðum, Alþýðubandalagið vill taka
hálaunum tak, setja á verðhækkanaþak, lögfesta 3%
grunnkaupshækkun og gera ráðstafanir í skattamálum.
Afstaða Alþýðuf lokksins er að gera ekki neitt þrátt fyrir
eindregin tilmæli ASI og Verkamannasambandsins um
að stjórnin verji launastefnu sína af hörku.
• Alþýðubandalagið gerði á rikisstjórnarfundi í gær
tilraun til þess að ná samkomulagi um skref í áttina sem
gæti ieitt kjaramálin inn í ákveðinn farveg og stuðlað að
því að stjórnarflokkarnir hefðust handa við að stjórna
landinu. Miðlunartillagan var í því fólgin að þegar í stað
yrði lagt fyrir Alþingi stjórnarfrumvarp um lögfestingu
á þaki á verðbótagreiðslur við 400 þúsund kr. mánaðar-
laun. Á laun þar fyrir ofan kæmi jöfn krónutala. I annan
stað yrði þegar í stað sett þak á verðhækkanir með laga-
setningu, til þess að koma í veg fyrir að framreikningur
á verðbólgu komi sjálfvirkt inn í verðlagsákvarðanir. I
þriðja lagi gerði Alþýðubandalagið tillögu um sérstakan
hátekjuskatt eða hátekjuútsvar.
• Tillögur þessar voru lagðar fram í Ijósi þess að um
þessi atriði virtust stjórnarf lokkarnir áður nokkuð sam-
mála. Hinsvegar bauðst Alþýðubandalagið til þess að
fresta ákvörðun um lögfestingu 3% almennrar grunn-
kaupshækkunar þar til stjórnarflokkarnir hefðu gert
það mál upp sín á milli endanlega. Með því að fallast á
þessa miðlunartillögu hefði stjórnin getað lagt að
minnsta kosti hluta nauðsynlegra kjaramálaaðgerða í
dóm Alþingis.
• En nú þegar Alþýðuflokkurinn hefur tekið upp
stefnu Sjálfstæðisflokksins er óvíst hvort tekst að brúa
bilið milli stjórnarflokkanna.
—ekh
Spámaður
áttræður
Friedrich A. Hayek er mikill
J dýrlingur og fyrirmyndar-
■ maöur hjá þeim sem nú um
• stundir ganga fram fyrir
5 skjöldu í þjóömálaumræBu og
| hafa hátt um að frelsi geti ekki
■ þrifist án kapitalisma — þessi
I viska er kölluö frjálshyggja.
B Vinir Hayeks hérlendir vitna
■ ekkisisttilbókar eftir hann sem
■ nefnist „Leiðin til ánauöar”.
Z Ölafur Björnsson prófessor
I segir svo: „Meginboöskapur
■ þeirrar bókar er sá aö efling
| rikisvaldsins fram yfir ákveðin
■ mörk hljóti óhjákvæmilega að
■ leiöa til alræðis, ekki einungis á
“ sviði efnahagsmála, heldur
■ einnig á sviöi stjórnarfars og
I menningarmála og raunar á
■ öllum sviöum mannlifsins”.
Samkvæmt þessari hugsun er
■ m.a. taiiö aö einnig hófstilltir og
I velviljaöir sósialdemókratar
B geti teymt þjóöirnar inn i
■ alræðiö i einskonar pólitisku
; meðvitundarleysi.
Hayek átti áttræöisafmæli um
• daginn, og gat Morgunblaöiö
í þess i þvi sambandi aö nýlega -
I væri komiö út siöasta bindi rits
■ hans „Frelsi, lög og löggjöf”.
| Blaðiö segir aö Heyek „deili þar
■ á kenningar Marx, Freuds,
| visi ndatrúarmanna og
■ jöfnunarsinna”. En ýmislegt á
_ þó blaöiö ósagt um siöasta verk
I og liklega erfðaskrá þessa
■ átrúnaðargoös ungtyrkja Sjálf-
| stæöisflokksins.
j Lýðrœðið
: er skaðlegt
m Klippari hefur að sönnu ekkí
| séö þetta nýja rit. En ef marka
■ má umsögn I Guardiati, þá
! getur þaö varla oröiö neitt
I fagnaöarefni þeim sem vilja
■ setja traust sitt á sæmilega
I virkt lýöræði. Þaö væriofdjúpti
■ árinni tekið, segir þar, aö Hayek
■ hafni lýðræði, en hann vill setja
' marga fyrirvara um þaö marg-
j lofaða fyrirbæri, sem honum
I finnst „jafna út eignamun og
■ gáfnamun” — en þaö er liklega
þetta sem Morgunblaöiö á viö
■ þegar þaðsegir að Hayek deili á
„jöfnunarsinna”.
Nú hvetur Hayek til þess aö
, „pólitfk sé steypt af stóli” eins
I og þaö heitir, vegna þess að
■ honum finnst aö pólitiskir
I flokkar og þrýstihópar hljóti
■ alltaf að brjóta hinar almennu
| leikreglur, sem rikið setur (og
' við þá reglusetningu á hlutverk
! rikisins í stórum dráttum að
I takmarkast samkvæmt kenn-
■ ingu Hayeks). Til þess að vinna
| gegn valdi flokka og öðrum
■ spillandi áhrifum lýðræðis, eins
■ og það hefúr verið iökaö, hefur
j Hayek fundið upp mjög sérstætt
| kerfi.
| Öldungaráð til
j 15 ára
■ Guardian lýsir þvi á þessa
| leiö:
■ Hayek telur aö lagasetning sé
I i reynd fólgin i almennum
\ reglum, en lúti ekki sókn ein-
■ hverra sérstakra hagsmuna.
• Þess vegna vill hann koma upp
L_............
Hugmyndafrsðingur með eina
af afurðum frjálshyggjunnar.
Hannes hefði ekki einu sinni aldur
til að kjósa I öidungaráð Hayeks.
Hayek
áttræður
1 DAG er Friedrich A. Hayek,
kunnasti frjálshygKjuhuKsuður
nútímans ok Nóbelsverðlaunahafi
í haKÍræði, áttræður. Hann fædd-
ist í Vín í Austurríki 8. mí 1899,
lauk doktorsprófum í lö({fræði og
haKfræði, hefur kennt við háskóla
í Austurríki, Bretlandi, Banda-
ríkjunum og Vestur-Þýzkalandi,
en fékk Nbelsverðlaunin 1974.
Samband ungra sjálfstæðismanna
gaf útrdrátt úr bók hans, Leiðinni
til ánauðar (The Road to Serf-
dom), út 1946 og aftur 1978.
sérstakri þingdeild til aö setja
þessar almennu reglur. Til aö
koma I veg fyrir léttúö og sveifl-
ur vill Hayek aö í þetta lagaráö
verði kosnir aöeins þeir sem
orðnir eru 45 ára, og séu þeir
kosnir til hvorki meira né minna
en fimmtán ára i senn og þá af
jafnöldrum sinum!
Hayekgerir auk þess ráðfyrir
fulltrúadeild þingsins sem kosin
væri meö svipuöum hætti og nú
er gertog þar væri málum ráðiö
eftir þeim pólitisku linum sem
viö könnumst við — en þetta
fulltrúaþing værium leið bundiö
í báða skó. Bæði af hinum
„almennu reglum” laga-
setningarsamkundu öldunga og
svo af hæstarétti.
Sósíalismi
allsstaðar
Þetta er mjög fróðlegt: Aöal-
postuli frjálshyggjunnar sýnist
vera að hverfa aftur til stjórn-
skipunar sem líkist þeirri sem
Evrópuþjóðir notuðu sem
áfanga á leiöinni frá konunglegu
einveldi til þingræðis. Guardian
telur liklegt að það sem ráði
þessari merkilegu afturhalds-
semi sé fýrst og fremst ósáttfús
andúð á allri jafnaðarsstefnu.
Hayek segir reyndar, að hin
nýja stjórnarskrá sem hann
boðar eigi að stöðva það að
samfélög eins og renni inn í
sósialismann. Þaö vill nefnilega
svo merkilega til, að það er sem
Hayek sé að verulegu leyti sam-
mála marxistum sem telja að
allar leiðir liggi meö nokkrum
hætti til sósialisma á okkar öld.
Hayek segir:
„Sterkastur stuðningur við
tilhneigingar til sósialisma
koma nú um stundir frá þeim,
sem halda þvi fram, að þeir vilji
hvorki sósialisma né kapital-
isma, heldur „miðjuveg” eða
„þriöja heim”. Það er örugg
leið til sósialisma að fylgja
þeim, þvi að þegar við á annað
borö höfum gefið stjórnmála-
mönnum leyfitil að skipta sér af
sjálfvirkri skipan markaðsins i
þágu einstakra hópa, þá munu
þeir ekki geta neitað neinum
hópi, sem þeir þurfa aö sækja
stuðning til, um sömu Iviln-
anir”.
„Frjálshyggja”
gegn lýðrœði
Hayek er með öörum orðum
að segja — rétt eins og fjár-
málahöfðingjar Trilateral-
nefndarinnar með sinum hætti
— að það sé ekki lengur hægt að
nota borgaralegt lýðræði til að
stjórna. Hayek vill bersýnilega
snúa hjólinu aftur á bak. Sé
þanki hans yfirfæröur á i'slensk-
ar aöstæður eru ekki aðeins
kratar stórhættulegir braut-
ryöjendur Gúlags, heldur
Framsóknarmenn einnig (sem
vilja „hvorki sósialisma né
kapitalisma”) — og margur
Sjálfstæðismaöurinn mun reyn-
ast hafa æöi vafasama pappira.
Hannes Hólmsteinn, Halldór
Blöndal, Daviö Oddsson,
Friðrik Sophusson og aðrir
„uppreisnarmenn” frjáls-
hyggjunnar fá sannarlega nóg
aö gera viðaö moka út úr hinum
sósi'alisku Agiasarfjósum
islenskra stjórnmála — vilji
þeir ekki gera lærifeðrum
sinum skömm til. Verst að þeir
hafa ekki einu sinni aldur i
öldungaráöiö hans Hayeks.
En þvi' var nú á þessa bók
minnst, að það er timi til þess
kominn, aö menn veiti þvi at-
hygli að frjálshyggjuherferöin
svonefnda er ekki til þess farin
aö „stækka riki frelsisins”.
Þvert á móti: Að baki hennar
greinir i tilræði við þau
lýöræðislegu réttindi sem menn
þó njóta hér um slóðir.
—áb