Þjóðviljinn - 18.05.1979, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 18.05.1979, Qupperneq 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 18. mal 1979. ÓLAFUR R. EINARSSON formaður útvarpsráðs: L Hvorki vítur né ályktanir Undanfarna daga hafa átt sér staö blaðaskrif vegna útvarps- ráðsfundar föstudaginn 11. mai og i þeim skrifum hafa komið fram ýmsar fullyrðingar sem mér þykir nauðsynlegt að gera athugasemdir við. Á umrædd- um fundi var undir liðnum „framkvæmd dagskrár” fjallað um bréf „Andófs ’79” og I kjöl- far þess vakti Eiður Guðnason máls á lagakynningu Péturs Péturssonar þular 9. mai. Hér er um tvö aðskilin mál að ræða sem þó eru aö vissu leyti tengd, hvað það snertir að þau eiga að nokkru sameiginlegt upphaf. Mat á „ Andófi ’79” Hvað snertir afgreiðslu Ut- varpsráðs á bréfi „Andófs ’79” er þaö að segja, að ráðið taldi fréttastofu sjónvarps hafa full- nægt þvi atriði að ræöa við höf- uðaðila i málinu, þ.e. fjármála- ráðuneytið og BSRB. I umræð- um á útvarpsráðsfundi kom fram aö ýmsir aðilar töldu að þeir hefðu átt aö fá aö tjá sig um málið. Fram haföi komið þaö sjónarmiö aö stjórnarandstað- an, þ.e. Sjálfstæðisflokkurinn heflii átt að fá að láta i ljós sina skoöun. Fyrir lá bréf Andófs, þannig að ljóst var að hægt hefði verið að leita til margra aðila, en slikt hefði sp-engt takmaik- aðan fréttatima sjónvarps. Ég lét þá skoöun i ljósi á útvarps- ráðsfundinum að ég teldi eðli- legtað leitað hefði verið tii aðila innan BSRB sem lýst höföu yfir andstöðu við samkomulagiö t.d. Félags islenskra simamanna. Starfsmannafélags Rikisút- varpsins o.fl. Ég haföi oröið þess áþreifanlega var að ýmis fjölmenn samtök innan BSRB sem andvig voru samkomu- laginu höföu ekki leitað eftir samvinnu við „Andóf ’79” og að þvi er virtist þeir Andófsmenn ekki beitt sér fyrir samfylkingu allra þessara afla gegn sam- komulaginu. Voru forsvars- menn „Andófs ’79” hræddir um að slikt skyggði að einleik þeirra? Sem áhorfandi aö starfsháttum „Andófs ’79” og skrifum þeirra I blöðum virtist mér allt benda til þess aö það væri ekki sjálfgefið að leita til þeirra eftir úrslitin til aö fjalla um niðurstöðurnar. En kannski sil skoðun min að leita heföi átt til annarra andófsaðila hafi sér- staklega farið fyrir brjóstiö á málsvörum „Andófs ’79”. Ég met andóf fólksins i samtökum opinberra starfsmanna meira en einleik Péturs Péturssonar með svonefndu „Andófi ’79”. Eflaust verða menn seint sam- mála um mat á þessu, en per- sónulegt mat mitt á þessu réði afstöðu minni á útvarpsráðs- fundinum. Gagnrýni Eiðs á störf Péturs Þegar Pétur Pétursson hafði sett fram gagnrýni sina á störf fréttamanna sjónvarps var viö þvi að búast að krókur kæmi á móti bragði. Eiður Guðnason kom fram með harða gagnrýni á störf Péturs Péturssonar sem morgunþular og taldi hann mis- notaaöstöðu sina. Orðrétt sagöi hann: „Raunar hefur viðkom- andi þulur oft notað útvarpið sem tæki til aö koma einkaskoð- unum sinum á framfæri.”. Þau ár sem ég hef setið útvarps- ráðsfundi hefur oft verið vikið að þessu atriði. Einkum hefur það veriö þegar útvörður hægri aflanna „Velvakandi Morgun- blaðsins” hefur sakað Pétur Pétursson o.fl. um „sérkenni- legt” lagaval og orðfar þá daga er andófsmenn gegn her i landi leggja land undir fót. Þá hefur það komið í minn hlut aö verja útvarpsþuli, en i þeim tilvikum hafa fulltrúar Sjálfstæðisflokks- ins I ráðinu ekki látiö bóka neina gagnrýni. Þaö er skoðun min að morgunþulir verði að hafa mjög frjálsar hendur við laga- val og spjall, þó þeir eins og aðr- ir útvarpsmenn verði að virða reglur stofnunarinnar. A um- ræddum útvarpsráösfundi vildi ég koma í veg fyrir aö útvarps- ráð samþykkti „áminningu”, „ávitur” eöa annaö slikt á við- komandi morgunþul. Er Eiður Guðnason hafði látið bóka gagn- rýni si'na á störf Péturs og ýmsir útvarpsráðsmenn tekið undir hana, þá bauöst ég til aö ræða þessa gagnrýni viö Pétur Pétursson fremur en að ráðið væri að senda frá sér ályktun um málið. Var á það fallist og þvl engin ályktun samþykkt heldur mér og útvarpsstjóra falið að ræða málið. 1 Morgun- blaðinu birtist frétt laugardag- inn 12. mai að Pétur hafi verið „áminntur” á útvarpsráðs- fundi. Það rétta er að engin á- lyktun „áminning” eöa „vitur” hafa verið samþykktar á út- varpsráðsfundi. Aðeins stendur „bókun Eiös Guðnasonar” þar sem fram kemur gagnrýni á störf Péturs. Ef fram hefði komið ályktun af þessu tilefni. þá hefði ég greitt atkvæði gegn henni. Fundurinn sem aldrei var haldinn! Eftir útvarpsráösfundinn 11. mai' sagði maður nokkur viö mig, „Égheld þú sért vitlaus að halda aö hægt sé að ræða þessi mál við Pétur Pétursson”. Ég svaraði þvi strax til að ég hefði alla tiö átt ánægjulegar viöræð- ur við Pétur, enda hefðum viö mörg sameiginleg áhugamál. Og þó ég tæki aö mér aö koma gagnrýni annarra á framfæri gæti það vart hindrað spjall okkar. En þar skjátlaðist mér. Mat mitt á „Andófi ’79” olli þvi að Pétur hellti úr skáium reiöi sinnar. Það geröi hann i grein I Morgunblaðinu 15. mai. Hann valdi að svara ummælum sem eftir mér voru höfð I Þjóðviljan- um, meö skammargrein i Morgunblaðinu og dregur inn i þær skammir blaðamanninn sem viö mig ræddi. Þeim skömmum svara égekki,enda á Pétur þaö sammerkt með blaðamennsku fjórða áratugs- ins aö vera æði persónulegur I skammarskrifum. Þann rithátt hef ég ekki tamið mér. En vikjum aftur að fyrirhug- uðum viðræðum. Utvarpsstjóri ræddi við Pétur Pétursson um að hitta okkur kl. 16 þriöjudag- inn 15. mai. Pétur setti þá það skilyrði fyrir viðræðum aö fyrir lægi vottfest útskrift á ummæl- um hans 9. mai og vottfest út- skrift á fundargerð útvarps- ráðs. Útvarpsstjóri tilkynnti mér þetta og kom okkur saman um aö ef fullnægja ætti þessum skilyrðum, þá yrði samþykkt .fundargerð að liggja fyrir. Sá háttur er á meðferð fundagerða útvarpsráðs að þær eru sam- þykktar á næsta fundi á eftir. Umrædd fundargerð var þvi ekki staðfest fyrr en á útvarps- ráðsfundi kl. 17 þann 15. mai. Af fundinum með Pétri gat þvi ekki oröiö vegna skilyrða Pét- urs. Viðbrögö Péturs i þessu máli sýndu hins vegar að viðræður formanns útvarpsráös og Pét- urs þjónuðu engum tilgangi. Auk þess er það hlutverk út- varpsstjóra en ekki formanns að koma á framfæri viö starfe- fólk gagnrýniá starfshætti þess. Þar að auki var mér orðið ljóst þann 15. mal að viöbrögð Péturs bentu til þess aö viðræöur væru tilgangslausar. Enn heldur hann þvi fram I Morgunblaðinu 17. mai að útvarpsráð hafi sam- þykkt „ályktun” og að hann hafi átt að „veita viðtöku vitum”. Mér býður i grun að ég hafi gert honum slæmangrikk með þvf að draga úr gagnrýni ráðsmanna og bjóða upp á viðræður. Ég verð þvi að biöja hann afsökun- ar á þvi, — „vltur” viröast þjóna betur lund hans. Fundur mín, útvarpsstjóra og Péturs var aldrei haldinn, þvi Pétur vildi íremur „vottfest” skrifleg tjáskipti, en viðræöur. Mér þyk- ir leitt að Pétur hafi hafnað þvi að viðhafa mannleg tjáskipti en velja fremur hina skrifræðis- leguleið. Enmestundrastég að „andófsmaöur allra íma" Pét- ur Pétursson skuli kjósa sér Morgunblaöið til aö atyrða mann. Þar velur hann þann vettvang þar sem áður hefur hvaðharðast veriö ráðistá störf hans hjá útvarpinu. Ég lærði það hins vegar i æsku að á með- an maður væri skammaður I Morgunblaðinu þá væri maður að verja góðan málstaö. ólafurR. Einarsson form.útvarpsráðs. 1 ■ I 1« I ■ I ■ I ■ I ■ I i ■ I B I i ■ I ■ I ■ I i i ■ I ■ I ■ I ■ I I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I J Alþýðuflokkurinn krefst þess að Alþingi sitji áfram 1 gær uröu nokkrar umræður utan dagskrár i upphafi fundar i sameinuöu þingi. 1 þessum umræðum kom fram aö Alþýðu- flokkurinnn krefst þess aö þingiö sitji áfram þar til rikisstjórnin hefur lagt fram úrræöi við þeim vanda sem við blasir I efnahags- og kjaramálum. Jafnframt kom þaö fram aö Alþýöuflokkurinn gerði um það sérstaka samþykkt á þingflokksfundi sem stóð fram til kl. 3 I fyrrinótt aö ekkert skyldi aðhafst af fíkisstjórnarinnar hálfu. Umræður þessar hófust með þvi að Matthias A. Mathiesen kvaddi sér hljóös og spurði fjár- málaráðherra hvaö liði áform- uðum niðurskurði rikisútgjalda i samræmi viö ákvæði efnahags- frumvarpsins en þar er gert ráð fyrir þvi aö þau veröi skorin niður um 1 miljarö. Tómas Arnason svaraöi þvl til að aöeins eitt ráðu- neyti hefði svarað tilmælum fjár- laga- og hagsýslustofnunar um þetta. Kvaðst hann mundu itreka erindið. Þá kvaddi sér hljóös Geir Hallgrimsson og bar fram tvær fyrirspurnir til forsætisráðherra. 1 fyrsta lagi spuröi Geir um þing- haldiðog kvaö hann ekki óeðlilegt að menn væru farnir að hugsa til þingslita þegar þessi tlmi væri kominn. Kvað hann stjórnarand- stöðuna ekki mundu torvelda af- greiðslu þeirra mála sem rikis- stjórnin legði kapp á aö fengju þinglega meöferö, þótt Sjálf- stæðisflokkurinn væri þeim efnis- lega andvigur. Þingmenn flokksins væru hinsvegar ekki ánægðir með gang mála. Nefndi Geir Sérstaklega aö nokkrir og bíði eftir tillögum Al- þýðuflokksins stjórnarþingmenn virtust ætla að halda uppi málþófi um þings- ályktunartillögu Eyjólfs Konráðs Jónssonar ofl. um beinar greiöslur til bænda. Kvaö Geir það fullkomlega óeðlilegt ef ein- stakir þingmenn gætu komi i veg fyrir að mál fengju þinglega meðferö þótt þau væru ekki á óskalista ríkisstjórnarinnar. Þá spurði Geir um stefnu rikis- stjórnarinnar I kaup- og kjara- málum og rakti að nokkru það sem birst hefur i blöðum um til- lögur Alþýðubandalagsins og Framsóknarflokksins en lýsti þingsjá jafnframt eftir tiilögum Alþýöu- flokksins. Þá itrekaði hann spurningu sina frá þvl er hann talaöi utan dagskrár fyrir uþb. hálfum mánuði og spurði for- sætisráöherra um stefnu rikis- stjórnarinnar I þessum málum. Aö lokum sagði Geir aö þeir Sjálf- stæðismenn gerðu þá kröfu til rlkisstjórnarinnar aö þingi yröi ekki slitið fyrr en hún hefði birt úrræöi sin i kaup- og kjara- málum. Aövaraði hann rikis- stjórnina að gripa til þeirra vinnubragöa aö fara á svig viö meirihlutavilja Alþingis með bráðabirgðalögum og tilskip- unum sem ekki nytu meirihluta- fylgis þar. Þinglausnir 23. mai 1 svari ólafs Jóhannessonar kom ma. fram að stefnt er að þinglausnum miðvikudaginn 23. mal. Þá sagði forsætisráðherra að ekki heföi verið gerö nein sam- þykkt I rikisstjórninni um launa og kjaramál. Rlkisstjórnin hefði skipaö sáttanefndj yfirstandandi kjara- deilum og hún yröi að fá hæfilegt ráörúm til starfa. Forsætis- ráðherra kvað ástæöulaust að hann gæfi á þessu stigi nokkrar yfirlýsingar um hvað beri aö gera i þessum efnum. Ástæðulaus ótti Hann kvað þaö hinsvegar fullkomlega ástæðulausan ótta aö rikisstjórnin mundi gripa til bráðabirgðalaga sem hún hefði ekki þingmeirihluta fyrir. I löngu máli Sighvats Björg- vinsonar kom m.a. fram að hann teldi óeölilegt aö þingið færi fram meðan menn ræddu um laga- úrræöi til lausnar kjara- og kaupgjaldsmálum. Las Sighvatur upp úr stjórnarskránni til rök- stuðnings þvi að forsætisráðherra hefði ekki heimild til þess að „leysa upp þingið” eins og hann orðaði þaö nema með samþykki rikisstjórnarinnar. Sighvatur las siöan ma. upp tvær samþykktir þingflokks Alþýðuflokksins. Aðra þess efnis að flokkurinn fæli ráð- herrum sinum að koma þvl á framfæri að ekki sé rétt að slita þinginu fyrr en fyrir liggi til hvaða ráðstafana rikisstjórnin hyggist grlpa I launa- og kjara- málum en hina um aö ekki kæmi til greina að rlkisstjórnin gripi til neinna ráðstafana I kaup- og kjaramálum. Vakti sérstaka at- hygli þeirra sem fylgst hafa með tillögu- og málflutningi Alþýðu- flokksmanna i vetur að Sighvatur lagði áherslu á að lagasetning um kjaramál væri I grundvallarand- stöðu við stefnu Alþýðuflokksins um frjálsa samninga. „Akvæði um kaupgjald á aö takast I fr jálsum samningum aðila vinnu- markaöarins” sagði þing- maðurinn. Kemur ekki á óvart ólafur Jóhannesson benti á aö ákvörðun um þingslit 23. mai heföi fyrir löngu veriö rædd I rlkisstjórninni, við forseta þingsins og formenn þingflokka og ætti þvi ekki aö koma nokkrum á óvart. ósk um framlengingu Alþingis hlyti aö vera fram komin vegna þess að Alþýðuflokkurinn ætlaöi sér að gripa' inn i kjara- mál með lögum. Þá sagði Ólafur aö aukaþing mætti kalla saman meö mjög skömmum fyrirvara. Þá kvaöst hann vilja vek'ja at- hygli á þvi að orðalagið aö leysa upp þingið heföi ævinlega þýtt aö rjúfa þing en það væri væntan- lega ekki það sem siðasti ræðu- maður hefði átt við. Aö svo mæltu snaraöist hann úr stólnum. Sighvaturkom nú aftur og kvað þaö rétt vera að þinglausnir hefðu verið ræddar I rlkisstjórninni. En sjávarútvegsráðherra sem þvl miöur væri ekki viöstaddur heföi mótmælt þessu. Eftir hverju biða kratar? ólafur Ragnar Grfmsson sagði ma. að Sighvatur virtist hafa krafist þess aö þingiö sæti þar til rikisstjórnin heföi tilbúnar til- lögur um úrræði i efnahags- og kjaramálum og jafnframt að Alþýöuflokkurinn hefði engar til- lögur fram að færa I þeim efnum. Það væri I meira lagi furðulegt ef þingiö ætti aö biða eftir þvi sem ekki ætti að verða neitt! Eftir langar og erfiöar fæðingarhríöir hefði niöurstaöa Alþýöuflokksins orðið núli. Ólafur sagði aö efri deild væri i þann veginn aö ljúka störfum, þvi flest mál sem til hennar heföu komiö væru nú búin eða langt komin. Það yrði þvl að gera kröfu til Alþýðuflokksins að hann sæi deildinni fyrir verk- efnum ef hún ætti að blða og gerði einhverjar tillögur um aðsteðj- andi vandamál. Albert Guðmundson kvað það vera ljóst að stjórnarsamstarfinu væri lokið. Alþýðuflokkurinn hefði alls engar tillögur fram að færa. óþægir hásetar Geir Hallgrimsson tók i sama streng og Albert. Hann spurði hvl ekki hefði verið skipuð sáttanefnd i kjaradeilunum fyrr og sagðist gruna að rikisstjórnin hefði ætlað sér aö fara sina venjulegu leið með þvi að skipa fyrir um kaup og kjör. Þá gagnrýndi hann ótima- bærar yfirlýsingar einstakra ráö- herra um kjaradeilur og skoraði á Ólaf Jóhannesson að hafa stjórn á hásetum sinum. Geir Hallgrimsson sagði ma. að allt það sem gagn mátti gera i efnahagsfrumvarpi forsætis- ráðherra hefði verið strikað út úr lögunum en engu að siður heföu þingmenn stjórnarflokkanna þessi lög að engu með sifelldum tillöguflutningi. sgt

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.