Þjóðviljinn - 19.05.1979, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 19.05.1979, Blaðsíða 6
6 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 19. mal 1979. Svar við fyrirspurn Geirs Gunnarssonar Allur aflirin seldur er- lendis síðustu 6 mán- uði hjá sumum skipum t svari viö fyrirspurn frá Geir Gunnarssyni um sölu óunnins fiskaflaerlendis siöustusex mán- uöi kemur fram aö suniir togarar og fiskiskip viröast selja allan afla sinn erlendis. Þau sem mest hafa selt eru togararnir ögri og Vigrisem hafa selt samanlagt um 2600 tonn. Af minni togurum eru tveir sem skera sig úr, þe. Ýmir HF ogSigurey SI en þeir hafa selt 90-100% afla sins á tlmabilinu er- lendis 5-600 tonn hjá hvorum. Af bátum erutveirsem selt hafa all- an afla sinn erlendis á þessu timabili Rán GK meö tæp 500 tonn og Ársæll Sigurösson HF tæp 400 tonn. Frumvarp Stefáns Jónssonar um sérstakt framlag til fiskræktar ber árangur 900 mlljónlr til fiskræktar á fimm árum tillaga fjárhagsnefndar efri deildar Fyrr í vetur f lutti Stefán Jónsson ofl. frumvarp um sérstakt framlag til Fram- kvæmdastofnunar ríkisins til eflingar fiskrækt. Fjár- hags- og viðskiptanef nd efri deildar sem málið fékk til meðferðar hefur nú lagt f ram f rumvarp um breytingu á lögum um lax- og silungsveiði þess efnis að ríkissjóður leggi fisk- ræktasjóði til 900 miljónir króna á næstu f imm árum. Frumvarpiö er svohijóöandi: l.gr. „Við 91. gr. laganna bætast tvær nýjar málsgreinar, svo- hljóðandi: Rikissjóöur leggur Fiskræktar- sjóði til 900 milljónir króna með jöfnum greiöslum á næstu fimm árum. Fiskræktarsjóöi er heimilt, að fengnu samþykki rikisstjórnar, aö taka lán til starfsemi sinnar, bæöi innanlands og erlendis. Rlkissjóður ábyrgist allar skuld- bindingar Fiskræktarsjóös. Nú tekur Fiskræktarsjóður lán meö gengistryggingu eða visitölukjör- um, og er þá heimilt að binda greiðslur vaxta og afborgana af endurlánum sliks lánsfjár vísitölu eða gengi á sama hátt. 2. gr. Við 92. gr. bætist ný málsgrein, svohljóöandi: Fiskræktarsjóði er heimilt að veita lán til fiskeldis, allt að 50% af stofnkostnaði, einnig að veita óafturkræf framlög til grundvall- arrannsókna og tilraunastarf- semi á sviði fiskræktar. 3. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.” Þá kemur fram I svarinu sem er skriflegt og gefið af Fiskifélagi tslands samkvæmt beiðni sjávar- útvegsráðherra að söluverð er- lendis á þessum fiski er 5.1 milj- arður frá dregst um 1 miljaröur i erlendan kostnað og áætlað er að oliukostnaðurinn vegna sigling- anna sé um 250 miljónir. Nettó er þvi söluverö um 3 miljaröar og 850 miljónir. A hinn bóginn er upplýst að út- flutningsverðmæti þessa afla ef hann færi allur til frystingar mundi nema um 3.6 miljörðum og af þvi eru 900 miljónir vinnulaun verkafólks. Er þá miðað við út- flutningsverð án flutningskostn- aðar á markaöi (fob) og án ágóða við fullvinnslu i íslenskum fyrir- tækjum erlendis. Ekki er að efa að margar spurningar hljóta að vakna þegar upplýst er aö nokkur fiskiskip viröast gerð út með það I huga eingöngu aö sigla með aflann óunninn. Menn hljóta aö spyrja hvort á þvl sé verulegur munur og aö leyfa veiðar útlendinga i is- lenskri landhelgi,ekki sist þar sem vitað er aö sums staðar erlendis hefur verið erfitt að koma i veg fyrir að útlendir útgeröaraðilar komi sér upp innlendum leppum þar sem aðstæðureru svipaðar og hér sgt Samþykkt á Alþingi í fyrradag: Lögin um aðstoð við þroskahefta breytingartillaga við fjárhagskaflann felld í fyrradag voru samþykkt á Alþingi lög um aöstoð viö þroska- hefta sem lögö voru fram þar fyrir skömmu. í meðferð efri deildar voru þær breytingar gerðar á frumvarpinu aö tekin voru inn i það ákvæði úr frumvarpi um framkvæmdasjóö öryrkja. Þessi ákvæði gera ráö fyrir þvi að ríkissjóöur leggi sjóðnum til amk. einn miljarð króna sem miðast við þetta ár en upphæðin hækki siðan eftir visi- tölu. Tveir þingmenn neðri deild- ar þeir Páll Pétursson og Sverrir Hermannsson lögöu fram breytingartillögu þess efnis aö rikissjóður legði fram fé „allt að 1 miljarði” og felld yröu brott á- kvæðin um verðtryggingu upp- hæðarinnar. Þessi tillaga var felld að viðhöföu nafnakalli með 27 atkvæðum gegn fjórum en nokkrir voru fjarstaddir þar á meðal Tómas Arnason fjármála- ráöhera. Ekkieraðefa að lögum þessum verður viða fagnað en þau eru samin I nánu samstarfi við lands- samtökin Þroskahjálp. —sgt. Frá Sjómannafélaginu Jötni: Um helgarfrí sjó- manna í Eyjum í sumar t framhaldi af yfirlýsingu Sjó- mannafélagsins Jötuns, um helgarfrl á tog- humar- og spær- lingsveiöum, og svari (Jtvegs- bændafélags Vestmannaeyja, vill Sjómannafélagiö Jötunn árétta eftirfarandi: Þegar þaö atriði var sett inn i sjómannasamninga, að helgarfri skyldu vera á togveiðum aöra hverja helgi, taliö frá sjómanna- degi, þá var stuðst við það að sjó- mannadagurinn á að vera fyrsta sunnudag I júni. Nú hefur það gerst að sjó- mannadagurinn er færður til og þannig raskað samningsgrund- vellinum. Eins og sjómannadag- urinn er I ár, þ.e.a.s. annan sunnudag í júni, þá verða helgar- fri aðeins 6, en hefði sjómanna- dagurinn verið fyrsta sunnudag i júni þá hefðu helgarfriin oröiö 7. Þannig er verið að hafa af sjó- mönnum tvo fridaga. Einnig má segja að eins og útgerðarhættir hafa verið hér i Eyjum, þá sé sumarúthaldi lokið hjá minni bát- unum i' lok ágúst, þannig tapast hlutfallslega fleiri fri. Lærir herfræði í Noregi Þjóöviljinn haföi I gær sam- band viö Róbert T. Árnason út- varpsþul og áhugamann um vestræna samvinnu i tílefni þess oröróms sem gengur um borg- ina aö hann hyggist stunda nám I herstjórnafræöum INoregi nú I haust. Róbert sagði það rétt vera að hann hygði á nám i Noregi i haust. Ekki væri beint hægt að kalla þennan skóla, sem er i Osló, herstjórnarskóla heldur væri þetta meira varnarmála- skóli. Þar væri aðallega farið itar- lega i gegnum alþjóöastjórnmál og öryggismálNorðurlanda eins þaðer kallað með tilliti tilNorð- ur-Atlantshafsins og sambúðar- innar við Sovétrikin. Aðspurður um hvort skólinn væri rekinn af Nato svaraði Ró- bert þvi neitandi, heldur væri hann rekinn af norska varnar- mála- og utanríkisráðuneytinu en náttúrlega væru Norömenn i Nato. Róbert sagði að Norömenn heföu boðið honum upp á þessa skólavist þegar hann var úti i Noregi I fyrra og hefði hann beðið utanrikisráðuneytiö hér heima aö athuga þessi mál bet- ur fyrir sig. Ráöuneytið heföi tekiðvel i þá bón og væri verið að athuga betur með þetta nám hjá þeim enenn væriekki komið fullnaöarsvar frá Norömönn- um. Hann sagði að skólinn stæði yfir i niu mánuði og hann ætti aö hefjast núna 23. september i haust. Ekki kvaöst hann vita um aöra sem hygðust stunda þar nám i vetur og sér vitanlega hefði enginn Islendingur stund- að nám f þessum skóla áður. 1 skólanum verða 25 nemend- ur, þar af 12 frá norska hernum, en ýmis hagsmunasamtök og stjórndeildir velja hina 13 nem- endurna. Aðspurður um hvernig hann hyggðist nýta sér þá sérþekk- ingu i hernaðarmálum sem námið byði uppá svaraði Róbert þvi til aö hann vonaði náttúr- lega að þeir stjórnmálamenn I öllum flokkum, sem alltaf væru aö tala um aö það vantaði is- lenska sérfræðinga, notfæröu sér þá islenska sérfræðinga þegar þeir væru til en létu ekki útlendinga segja sér fyrir verk- um - Ig Róbert T. Arnason útvarpsþulur 1 þeim kjarasamningum, sem nú er róiö eftir, eru sjómenn á togbátum undir 160 tonnum þeir einu sem ekki eiga nema 4 fri- daga visa, frá áramótum til og með sjómannadags. Ætli margar stéttir vilji sætta sig við slfkt??? A togskipum 161 tonn og stærri eru hásetum tryggðir minnst fjórir fridagar i mánuði allt áriö. A netabátum eru trygg fri alla sunnudaga ársins auk annarra helgidaga. — Þvi telja sjómenn á togskipum undir 160 t. (humar og spærlingsveiðar eru lika togveið- ar), sjálfsagt réttlætis-og mann- réttindamál að þeir fái aukin fri, þó ekki sé nema yfir sumariö. Alkunna er aö friða þarf fisk- stofna við Island, sú friðun veröur aöeins raunhæf meö minnkaöri sókn. Þessar aögerðir Jötuns voru jafnframt hugsaðar sem framlag félagsins til friðunar. Hjá þeim stéttum öðrum, sem þurfa eöli starfsins vegna, að vinna í löngum lotum, þá er gert ráð fyrir frium á milli, án launa- missis. Svo er ekki með sjómenn á bátaflotanum, einu friin sem þeir fá, eru þau fri sem tekin eru launalaust t.d. ef skip stöðvast milli úthalda o.þ.h. A meðan lög um 40 stunda vinnuviku vernda landverkafólk frá ótímabundinni vinnuskyldu, þá er gert ráð fyrir aö sjómenn á Framhald á 18. siðn

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.