Þjóðviljinn - 19.05.1979, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 19.05.1979, Blaðsíða 8
8 SIÐA — ÞJÖÐVILJINN Laugardagur 19. maí 1979. Vlöa er pottur brotinn, og jafn- réttismálin eru mörg sem berj- ast þarf fyrir. Eitt erfiöasta og viöamesta máiiö er dagvistun barna. Upp úr áramótunum för af staö hreyfing sem setti sér þaö markmiö aö vekja athygli á brýnni þörf á dagvistun fyrir öll börn. 1 upphafi var skrifaö til 65 fé- laga og þeim boöin þátttaka, en aöeins 14 standa aö þessu sam- starfi enn I dag. Tvenns konar aögeröir voru hafðar í huga. i fyrsta lagi kröfuganga um borgina og I ööru lagi undirskriftasöfnun. Kröfugangan var farin 24. mars, en undirskriftasöfnuninni lýkur nú um mánaöamótin. Jafnréttissiöan' fór á stúfana til aö kanna hvernig undir- skriftasöfnunin gengi. t Sokk- holti viö Skólavöröustig, þar sem samstarfsnefndin er til húsa, hittum viö Margréti Sig- uröardóttur. Hún er fulltrúi ibúasamtaka Þingholtanna og hefur unniö sleitulaust undan- farna mánuöi aö dagvistarher- ferðinni. Hvernig hefur samstarfiö gengiö, Margrét? — Mjög vel, þetta hefur veriö ágætis samstarf. Aö visu duttu nokkur félög út, og sumir hafa veriö ansi latiö viö að mæta á fundi, en það eru 14 félög sem hafa unniöaö þessum aögeröum okkar. Hvernig hafa viötökur fólks veriö viö undirskriftasöfnun- inni? — Yfirleitt mjög góöar. Þaö er mikil vinna aö skipuleggja svona söfnun. Viö létum fjölrita 1000 lista og dreiföum þeim, en þaö er seinlegt aö ná þeim inn aftur. Hafiö þiö ekki oröiö vör viö andstööu gegn kröfunni um næg oggóödagvistarheimili fyrir öll börn? — Jú, sumir misskilja alveg tilgang okkar. Fólk heldur að við viljum þvinga öll börn inn á barnaheimili, en viö viljum aö öll börn hafi rétt til aö njóta dagvistunar. Hvernig hafiö þiö hagaö söfn- uninni? — Viö sendum út lista til fólks og báöum þaö aö safna. Fólk hefur staðiö viö verslanir, safn- aö var i kröfugöngunni 24. mars, og 1. mai, og einnig höfum viö gengiö i hús. Viö eigum enn þá eftir stðr hverfi eins og Arbæ. Þaö hafa fariöhópará hverju kvöldi núna undanfariö og fara áfram næstu kvöld, en viö ætlum aö ljúka söfnuninni um mánaðamótin. Hvaö tekur þá viö? — Viö ætlum að afhenda borgarstjórninni undirskrifta- listana, ensiöanermeiningin aö fylgja málinu eftir, en þaöhefur Umsjón: Guðrún Ögmundsdóttir Hildur Jónsdóttir Hjördís Hjartardóttir Kristín Ástgeirsdóttir Sólrún Gísladóttir Enn er stórátak eftir Rætt viö Margréti Sigurðardóttur um dag- vistarherferð sem lýkur nú um mánaðamótin ekki enn þá verið rætt hvernig þaö verður gert. Þaö má t.d. hugsa sér aö nota fjölmiölana meira en gert hefur veriö. Veit nokkur hvaö þörfin fyrir dagvistarrými er mikil? — Nei. Þaö hafa veriö gerðar litlar kannanir, t.d. geröu tbúa- samtök Vesturbæjar könnun og viö í Ibúasamtökum Þingholt- annaerum meö könnun i gangi. Alls staöar kemur i ljós aö þörf- in er geysileg. En þaö er auövit- að ekki nóg að fjölga barna- til aö leggja áherslu á kröfuna um næg og góö dagvistar- Efnt var tíl kröfugöngu 24. mars heimili fyrir öll börn. heimilum stögöugt. Þau veröa aöveragóð, meö þægilegri aö- stöðu fyrir börnin og starfsfólk- iö, og þar veröur aö fara fram uppbyggjandi starf. Barna- heimili eiga ekki aö vera ge ymslus to fnanir. Lokaorö , Margrét? — Ég skora á alla sem styðja kröfuna um næg og góö dagvist- arheimili fyrir öll börn aö safna undirskriftum oghafa samband viö okkur á fimmtudögum kl. 5-6.30 aö Skólavöröustig 12, i Sokkholti. Enn er stórátak eftir. Ævintýri á gönguför Umræöur um barnaheim ili, vöggustofur og leikskóla hafa staöiölengi. Eftír aðkonur fóru aö streyma út á vinnumark- aöinn varö þörfin á barnagæslu slik, aö ihaldið sem alla tiö mælti gegn slikum stofnunum (áleit þær komnar beint frá Moskvu og vera gróörarstfu kommúnismans) varö undan aö láta. Viö skulum til gamans vitna i Atómstööina eftir Halldór Lax- ness. Ugla er oröin ófrisk og sér fram á mikinn vanda: ,,Af hver ju vill ekki alþingi og bæarstjórn aö min börn hafi vöggustofu einsog yöar börn? Eru ekki min börn efnafræði- lega og lifeölisfræöilega jafngóö og yöar börn? Af hverju megum viö ekki hafa þjóðfélag sem sé hagkvæmt fyrir min börn jaftit ogyöarbörn?” (Atómstööin bls. 192). Og seinna segir Búi Arland viö Uglu: ,,Ég get glatt yöur meö þeim tiöindum aö nú þarf einginn framar aö gerast kommúnistí sakir v öggust of uley sis . Reyndar segja nýu skáldin aö aungvir nema illmenni vaggi börnum, og aö aöeins kvalarar sýngi bl bí og blaka, svo þér skuluöekki halda þaö hafi veriö sársaukalaust sem viö sam- þykttum slikt glæfrafyrirtadci I bæarstjórn. Ég er ekkert aö leyna yöur því: viö svitnuöum talsvert og titruöum allmikiö, meira aö segja froöufeldum litilsháttar: „kona” var Jíka búin aö margskrifa i blööin Undirskrifta- söfnun í Breiðholti hvert hneyksli væri aö láta vagga börnum kommúnista á almennlngskostnaö.” (Atómstööin bls 240) Mikið vatn er runniö til sjávar frá þvi aö átökin voru þessu lik, en þó eigum viö langt f land nægilegrar dagvistunar og góöra barnaheimila. Viöhorf fólks til dagvistar- stofnana hafa breyst mikiö frá timum Búa Arlands og Uglu, en þó eimir enn eftir af þeim; „konur” finnast enn. Þvi kynnt- umst viö á gönguför um Breiö- holt i siöustu viku: já, margt er ihaldiö. „Húsmóðir fram í fingurgóma” Hópur fólks hefur aö undan- fömu fariö hvert kvöld tíl aö safna undirskriftum þeirra sem styöja kröfúna um næg og góö dagvistarheimili fyrir öll börn. Lesendum til fróöleiks skal nú greint frá ævintýrum sem geröust á þeirri gönguför. Þetta kvöld var veöur skap- legt og flestir voru heima aö horfa á sjónvarpiö. Meöan viö gengum upp og niöur stíga, úr einum stigaganginum i annan, fylgdumstviö bæöi meö Vöku og framhaldsmyndaflokki sem var aö hefja göngu sina. Af hljóöunum aö dæma má búast viö miklu drama í þeim þætti, slik voru hljóöin og stunurnar. Flest sem komu til dyra tóku okkur vel, skrifuöu undir umsvifalaust og buöust jafnvel til aö styðja kröfuna tvöfalt. „Þetta er fyrir barnabörnin”, sagöi gamall maður og lokkaöi konuna sína til aö skrifa undir lfka, þó hún væri komin f rúmiö. Sumir voru hikandi, kannski var þaö hræösla viö undir- skriftasafnanir frá þvi hérna um áriö, þiö vitiö. Sumum fannst máliö ekki koma sér viö, ýmist vegna þess aö börnin voru löngu vaxin úr grasi eða þá að þeirra börn þurftu ekki á vistun aö halda. Ung kona sagöist nú vera „húsmóöir fram f fingurgóma”. (Börnin hlupu út og inn, bökunarilminn lagöi úr eldhús- inu, sjónvarpiö var i gangi og eiginmaöurinn lá f húsbónda- stólnum ogdottaöi yfir draman- u áöumefnda). Eftír nokkrar viöræöur komst hún aö þeirri niöurstööu aö aörir kynnu aö þurfa á hennar stuöningi aö halda og skrifaði undir. Þessar eilífu kröfur Þá er aö segja frá hinum sem neituöu. Nokkrir þreytulegir karlmenn visuöu málinu frá sér og sögöu: „Heyröu, ég skal kalla á konuna”. FuDorðinn maöur býsnaöist yfir þessum kröfum. Hann sagði aö þjóöinni væri aö fækka, fólk vildi ekki lengur eiga börn. Svona ungar og fallegar stúlkur (!) ættu aö eiga fullt af börnum og vera heima! FuUoröin kona setti f heröarnar þegar hún heyröi er- indiö og spuröi reiöilega, hvort viö vissum hvaö þaö kostaöi að reisa fleiri barnaheimili. Við fórum nú nærri um það, en bent- um henni á aö þaö væri hag- kvæmt fyrir bæjarfélagiö aö sinna barnagæslunni. Hún hnussaöi viö því, en bætti þvi hneyksluö viö mál sitt, aö þaö væri skammarlegt aö Reyk- vikingar þyrftu aö kosta börn námsmanna utan af landi (Reyndar greiöa viökomandi bæjarfélögfyrir þau). Þá fannst henni aö viö ættum aö sinna gamla fólkinu og haröneitaöi aö skrifa undir. Gömul kona tautaöi bara: „Þessar kröfur, þessar eilifu kröfur”. Undirtektir sem þessar voru undantekningar sem betur fer, en þær sýna hvaöa rökum fólk beitir gegn dagheimilum. Enda þótt söfnunin hafi gengið vel þetta kvöld sem önnur, þá er andbyrinn minnisstæöari. Hann sýnir aö enn ber nokkuö á ihaldssömum viöhorfum. Hinar góðu viötökur hjá venjulegu launafólki I Breiöholti sýna þó enn betur, aö þörfin á nægum og góöum dagvistarheimilum er mikil og aö ekki má láta hér staöar numiö. Baráttunni verö- ur aö halda áfram.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.