Þjóðviljinn - 19.05.1979, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 19.05.1979, Blaðsíða 13
Laugardagur 19. mai 1979. ÞJóÐVILJlNN — SÍÐA 13 um helgina t salnum sem kenndur er viö meistara Kjarval situr þessi myndarlega valkyrja. Afmœlissýmngunni að Kjarvals- stöðum lýkur um helgina Afmælissýningu Myndlista- og Handiðaskóla íslands lýkur að Kjarvalsstöðum um helgina. A sýningunni kennir margra grasa, allar deildir skólans sýna vinnu nemenda og I anddyri hússins er minningarsýning um Kurt Zier sem lengi var skólastjóri MHl. Sýningin er opin frá kl. 2 — 10 laugardag og sunnudag. tir Tófuskinninu Sýning Listdansskólans Nú um helgina verður hin ár- lega nemendasýning Listdans- skóla Þjóðleikhússins, þar sem milli 70 og 80 nemendur skólans sýna dansa, sem skólastjórinn, Ingibjörg Björnsdóttir hefur samið og æft. Er um að ræða tvo balletta: Dagdraum Jóhönnu við tónlist eftir Albanoz og Dægra- styttingu við tónlist Iberts. Þá mun tslenski dansflokkurinn og nemendur skólans dansa hinn vinsæla leikdans Tófuskinnið, sem finnski danshöfundurinn MarjoKuusela samdi fyrir Þjóð- leikhúsið eftir smásögu Guð- mundar Hagalin . Sem fyrr seg- ir er það Ingibjörg Björnsdóttir, sem á veg og vanda af nemenda- sýningunni en sýningarnar verða á laugardag og sunnudag klukkan I5báöa dagana. Bænadagur á morgun Beðið fyrir „andlega og trú- arlega vannærðum” börnum Hinn almenni bænadagur islensku þjóökirkjunnar er á morgun, 20. mai og hefur biskup tslands aö vanda valiö deginum sérstaktbænarefni. Vill hann, aö I tilefni barnaársins veröi viö guðs- þjónustur prédikaö og beöið fyrir kristnu UPPELDI BARNA A ÍS- LANDI. I ávarpi vegna dagsins ræðir hann um „andlega vannærð börn” sem foreldrarnir gefi sér ekki tima til að vera með, og um „trúarlega vannærð börn” i land- inu, sem ekki fái svalað þeirri trúarþörf, sem hverju barni sé i brjóst borin. —vh Svissnesk mánudagsmynd Hér á landi hefur litið boriö á svissneskri kvikmynda- gerð. Þó eiga Svisslendingar nokkra góða kvikmynda- gerðarmenn sem eru hægt og bitandi að byggja upp kvik- myndagerö i heimalandi sinu. úr þessum hópi eru þeir Claude Goretta og Alain Tanner liklega þekktastir en þeir hafa kynnt land og þjóö mikið með myndum sinum. Háskólabió hefur nú fengið til sýningar mynd eftir Alain Tanner sem ber heitið MIÐJA HEIMSINS (Le Milieu du Monde) frá 1974 og mun sýna hana sem mánu- dagsmynd næstu 3 mánu- daga. MIÐJA HEIMSINS fjallar um samband tveggja ein- taklinga i svissneskum smá- bæ, sem stóð aðeins i 112 daga. Hún er af itölsku bergi brotin og vinnur á litlu kaffi- húsi en hann er framagjarn verkfræðingur sem er að þreifa fyrir sér á vettvangi stjórnmálanna. Fljótlega koma i ljós andstæö lifsviö- horf þeirra sem mótast af ólikum bakgrunni svo þau fjarlægjast hvort annað smátt og smátt. Bak við þennan einfalda söguþráð leynast svo stjórnmála og sálarfræðilegir þættir sem Tanner meðhöndlar af miklu öryggi. Alain Tanner er fæddur i desember 1929 og verður þvi fimmtugur á þessu ári. Hann gerði sina fyrstu mynd 1957 i Bretlandi i samvinnu viö landa sinn Claude Goretta en áður hafði Tanner þvælst viöa um heim. Arið 1962 sneri hann alfariö til Sviss og hefur starfaö þar siðan. Hann á að baki 7 myndir af fullri lengd en þekktastar þeirra eru La Salamandre sem hann gerði 1971 (og var sýnd sem mánu- dagsmynd 1975), Le Retour D’ Afrique (1973) og Jonas, Qui Aura 25 Ans en L’ An 2000 (1976). Þá er ótalin nýjasta mynd hans sem ber heitið Messidor en hún var frum- sýnd á kvikmyndahátiöinni i Berlin sl. febrúar við mikið lof gagnrýnenda. Þess má einnig geta að Haskólabió hefur fest kaup á annarri svissneskri mynd en þaö er verölaunamyndin Knipp- lingastúlkan (La Den- telliere) sem Claude Goretta leikstýrir. Bandarísk listakona 1 Gallerl Suöurgötu 7 stendur yfir sýning banda- risku listakonunnar Mary Beth Edelson. Hún sýnir þar ljósmyndir af helgiathöfnum og myndir af samstarfskonum sinum viö heldur óvenjulegar að- stæður. Sjón er sögu rikari. Sýningin er opin frá kl. 2 — 10 um helgina. Mary Beth Edelson viö eitt verka sinna Dagur hestsins á Melavellinum A sunnudaginn verður „dagur hestsins” á Melavellinum. Þar verða sýndir flestir bestu gæð- ingar landsins i atriðum sem aldrei áður hafa veriö á hesta- mótum hér á landi. Sýningin hefst kl. 2 og verður endurtekin kl. 4.30. Rögnvaldur Sigurjónsson planóleikari Rögnvaldur Sigurjónsson með tónleika í Mosfellssveit Rögnvaldur Sigurjónsson planóleikari heldur tónleika aö Hlégaröi I Mosfellssveit kl. 15:00 I dag. A efnisskránni eru verk eftir Mozart, Beethoven, Schumann, Debussy og Chopin. Það er Tón- listarfélag Mosfellssveitar sem gengst fyrir tónleikunum og er öllum heimill aðgangur. Listiðnaðar- sýningu að ljúka í Norræna húsinu Nú um helgina lýkur i Norræna húsinu sýningu á dönskum list- iðnaöi. Hún veröur opin frá kl. 2 — 10 laugardag og sunnudag. Glervasi á sýningunni I Norræna Húsinu Umboðsmaður óskast i Garðabæ til afleysinga i sumar i 1 til 2 mánuði. Upplýsingar á afgreiðslu Þjóðviljans i sima 81333. DIOÐVIUINN Auglýsið í Þjóðviljanum DIÚÐVIUINN

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.