Þjóðviljinn - 20.05.1979, Síða 22

Þjóðviljinn - 20.05.1979, Síða 22
22 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 20. mal 1979. Bréf Framhald af 5. siðu. liti sem öðrum og kannaðist ég við það, enda eru venjulega hand- laugar á sér salernum hér heima. Si"ðan snéru þær sér aö eldhús- inuaftur. Það var allt i lagi með vatnskranana, skurð- og brauð- brettin, sorpfötuna og uppþvotta- vélina. En diskaþurrkan fékk 3 stig (slæmt) og þvottavélin fór ekki varhluta 'af smávegis sýkla- gróðri. Mér hefði nú aldrei dottið i hug að þvo þvottavélina að innan, enda sögðu þær aö minni hætta væri á sýklum i sjálfvirku vélun- um — kannske afþvi að hinar eru eldri á markaðinum. En hjálpi mér allir heilagir, þegar þær mældu hnifapörin komust þau lika upp i þrjústig —égmundi að um morguninn hafði ég þvegið þau upp úr volgu vatni i vaskin- um, ekkert skolað þau á eftir og þurrkað með tuskunni. Auövitað var okkur öllum kennt að þvoupp matarilát á meðan viö vorum ennþá heima hjá mömmu, en svona fer maður nú aðstundum... Eftir að hafa hlustað á ráðlegg- ingar af ýmsu tagi, sem of langt yröi upp að telja, og horft á fræð- ingana að störfum, fannst mér mikilvægast að muna að halda eldhúsvaskinum hreinum, þvi að i hann fer svo margt, svo sem blóð- vatn af þiddu kjöti og kjúklingum, sem oft ber með sér ýmsa sýkla, óhreint vatn af grænmeti innflutt frá heitari löndum sem ef til vill hefur verið þvegið úr menguðu vatni f heimalandinu og svo alls- konar úrgangur — allt fer fyrst i vaskinn... Hér eftir ætla ég að sótthreinsa hann og vatnslásinn reglulega. Ég var búinnað tala um tuskurn- ar — nú ætla ég að kaupa margar og nota kannske þrjár i einu og hafa þær með mismunandi lit, hvern lit til sérstakrar notkunar. Ég þarf nú ekki að tala um óhreinar bleyjur við þig, þótt þú sért nú trúlofaður, en f ræöingarn- ir sögðu mér að bleyjufatan á hin- um ýmsu heimilum, sem þær hefðu rannsakað væri oft morandi i sýklum. Svona nokkuö þarf nú ekki að kenna húsmæðrum heima, þær sótthreinsa jú bleyju- fötur og annað, eða hvað! Þessar góðu og vel menntuðu stúlkur voru nú ekki annars að setja sig á háan hest út af þessu, enda á þetta að vera hávisindaleg rannsókn. Þær fræddu mig líka á þvl aö margt hefðu þær lært um hreinlæti af húsmæðrunum sjálf- um, þar á meðal gömul húsráö og uppskriftir af hreinsiefnum sem reyndust haldgóö viö að halda heimilum vel hreinum. Ég gæti trúaö aö húsmæöur heima væru ekki slðri en kyn- systur þeirra út f hinum stóra heimi og lumuðu á allskonar upp- skriftum af heimatilbúnum hreinlætislegi og ööru. Meira seinna bróðir sæll og vona að þér gangi vel i prófunum. Þinn Guðmundur (NormaSamúelsdóttir snaraði úrensku) r Opíum Framhald af bls. 3. gangur ókeypis — hér um bil hvert fimmtudagskvöld siðan i marz og mun gera eitthvað á- fram. Matstofan er jafnframt myndlistargalleri og minnir á sumar minnstu krárnar i Kaupin- höfn. Hún er rekin af um hálfri tylft ungra manna og starfskrafta i anda samvinnuhreyfingar og, að manni viröist, mjög beizlaörar gróðahyggju. Stemmningin umrætt kvöld var mjög góð, er ég kom á vettvang, og trióiö I betra formi en nokkru sinni fyrr. Gestir fengu sér mat með múslkinni eða allskonar grösuö tevötn og með þvi og létu sér liöa vel. Músikin var ekki há- værari en svo að vel mátti ræðast við án þess að þurfa að garga upp i fuglabjarg, ný reynsla og merki-^ leg. Lagaval flokksins kom á ó-’ vart með ótrúlegri fjölbreytni. Auk jassrepertúars slöasta mannsaldurs gat að heyra hluti eins og islenzkar barnagælur og jojk-kveðandi lapplenzkra skrið- finna, fleytt áfram af magnaðri (N.B. ekki I desibelum taldri) sveiflu. Þaö vantaði bara bless- aðan bjórinn. Þarna gefst fólki (fékk ég upp- lýst), sem er með eitthvað i pokkahorni, kostur á aö spila eöa syngja, hvenær sem er á opnun- artima matsofunnar á næstunni, að höföu samráði við forstöðu- menn staöarins, liklega gegn ein- hverjum kaffidreitli, ef þvi er aö skipta. „Þetta eru kaup kaups,” sagöi Þokkabótarmaðurinn Ing- ólfur Steinsson, sem er einn þeirra sem að staönum standa. ,,Ef einhver hefur áhuga á aö fá að spila, þá munum við leggja til húsnæðið.” í ráði er að efna til einhvers konar visnasöngskvölda, en hvaða tónlist sem er, nú og ljóða- lestur t.d., eru velkomin. Ætti aö vera upplagt fyrir reynslulitlar kammergrúppur tónlistarnemenda aö losa sig við sviðsskrekkinn á næstu grösum á óformlegan hátt. Nú er spurning- in hvort áhuginn sé fyrir þendi, ef húsnæðið er það. Mér heyrðist vera hinn bezti hljómburöur á staðnum... —RÖP Lýðræðisflokkur Framhald af bls. 6. Með öðrum orðum: Að mlnu viti á bylting fullan rétt á sér og er nauðsynleg ef um sérstakar kringumstæður er aö ræða. En slikar kringumstæður hafa aldrei veriö fyrir hendi hér á Islandi. Ég var á slnum tlma einn af stofnendum Kommúnistaflokks- ins, síðar Sóslalistaflokksins og loks Alþýðubandalagsins.Var raunar um langa hrlð einn af innstu koppunum I búri þessara Tökum að okkur viðgerðir og nýsmiði á fasteignum. Smið- um eldhúsinnréttingar; einnig viðgerðir á eldri innréttingum. Gerum við leka vegna steypugalla. Verslið við ábyrga aðila. TRÉSMIÐAVERKSTÆÐIÐ j Bergstaðastræti 33, símar 41070 og 24613. Umboðsmaður óskast i Garðabæ til afleysinga i sumar i 1 tii 2 mánuði. Upplýsingar á afgreiðslu Þjóðviljans i sima 81333 vomi/m flokka og ætti þvi að vera tiestum hnútum kunnugur. Ég veit með vissu að aldrei hefur þaö hvarflað að neinum Islenskum kommún- ista, sósialista eða Alþýðubanda- l lagsmanni að stofna til byltingar | hér á Islandi, byltingar i svipuð- i um dúr og kommúnistar gerðu i ! Rússlandi og kommúnistar i ! ýmsum öðrum löndum hafa gert i sínum heimahögum. Sú var tið að bcrn voru hrædd með Grýlu, óvætti i liki kerlingar. Jón Arnason þulurinn mikli segir um þetta i Þjóðsögum sinum: „En eptir að farið var að hætta aö hræða börn I uppvextinum með ýmsu móti, hefur Grýlutrúin lagzt mjög fyrir óöal”. Um áraraðir hafa fulltrúar „lýðræðisflokkanna” reynt að blása nýju llfi I þessa Grýlutrú.og á 30 ára afmælinu geröu þre- menningarnir sitt besta. Hin nýja Grýla eru kommúnistarnir, „börnin” sem verið er að hræða eru kjósendur landsins. 5 Þaö er augljóst að nú gætir nokkurrar hægri sveiflu I stjórn- málum,bæðihér á landi og I ýms- um öðrum löndum. Allir þrir „lýðræðisflokkarnir” hafa komið fram með nýja hugmyndafræði og I henni birtist ómenguö hægri stefna. Er það mikil breyting frá þvi sem áður var, þvi þrátt fyrir allt var hægt að telja bæði Al- þýðuflokkinn og Framsóknar- flokkinn vinstra megin og Sjálf- stæðisflokkurinn var orðinn hentistefnuflokkur I orðsins fyllstu merkingu með þeim af- leiðingum aö hann lagöi nokkuö oft góðum málum Iið. Oddvitar Alþýðuflokksins eru margir hverjir ungir hávaðasam- ir menn sem hafa ekki i sér snefil af sósialistiskum þankagangi, enda hafa fæstir þeirra dýft hendi i kalt vatn. Þegar þeir tóku vöidin I flokknum var meö öllu snúið baki við sósialdemókratiskum hugsjónum. í stað Björns Jóns- sonar, hins þaulreynda verka- lýðsforingja, er kominn Vilmund- ur Gylfason og er þá nóg sagt um breytinguna á flokknum. Rauði þráðurinn I bægslagangi hinna ungu manna er að stuöla aö þvi að upp komi sú pólitlska staöa að þeir komist i rlkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum, þá dreymir um nýja Viðreisnarstjórn. Þegar Framsóknarflokkurinn var stofnaður taldi hann sig með nokkrum rétti vera sérstakan for- svara bænda og annars sveita- fólks og þá hafði hann hugsjón samvinnustefnunnar að leiðar- ljósi. A siðustu áratugum hefur flokkurinn slfellt verið aö fjar- Iægijaist hvorttveggja, bæði fólkiö til sveita og hugsjónina og nú hef- ur hann tekið lokaskrefið. Ný- kjörinn formaöur flokksins hefur lýst þvi yfir aö flokkurinn sé ekki Iengur flokkur bænda og hugsjón samvinnunnar er gleymd og graf- in. Eftirtektarvert er að yfirlýs- ingin er gefin á sama tima og erfiðleikar landbúnaðarins brenna hvað mest á bændastétt- inni og öðru fólki til sveita. Sjálfstæöisflokkurinn hefur ný- verið birt stefnuskrá sina um efnahagsmál: Endurreisn i anda frjálshyggju. Megininntak henn- ar er aö einstaklingurinn skuli skipa öndvegið, eins og Morgun- blaðið segir. Hann — einstakling- urinn — skal vera frjáls að þvi að athafna sig á flestum sviðum þjóðllfsins. Dregiö skal úr um- svifum rikisvaldsins, hlutverk þess á að vera það eitt að vernda frelsi einstaklingsins. Um þessa stefnuskrá hafa fariö fram mjög fróðlegar orðræður i Morgunblaðinu milli þeirra Jón- asar Haralz, Þrastar Olafssonar og Vilmundar Gylfasonar. t ágætri grein sinni 7. april sl. fer Þröstur niður i saumana á stefnu- skránni og kemst aö þeirri niður- stöðu, að flokkurinn sé að marka sér nýjan bás sem er mjög svo til hægri. örugglega er þetta rétt ályktun. Vegna rúmleysis er ekki kostur aö orðlengja um stefnuskrána en Pípulagnir Nýlagnir, breyting- ar, hitaveituteng- ingar. Simi 36929 (milli kl. 12 og 1 ogeftir kl. 7 á kvöldin). þó skal eitt atriði hennar tekið til athugunar. Fyrirkomulag gjaldeyrisvið- skipta skal verða gert „frjáls- legt, einfalt og fljótvirkt og reglur um erlendan gjaldfrest og lántök- ur verði frjálslegar” segir Jónas Haralz i grein sinni 23. mars sl. Sem kunnugt er hafa erlend stórfyrirtæki orðið að hlýða ströngum skilyrðum til þess aö geta starfrækt atvinnurekstur hér á Islandi. Þessi skilyrði voru á sinum tima sett I lög og áttu aö vera einskonar varnagli gegn þvi að erlent fjármagn næði tökum hér á landi. Okkur íslendingum er lifsnauðsyn að viðhalda þessum skilyrðum ef við viljum vera sjálfstæð þjóð I landinu — ef við viljum ekki verða „feitir þjónar Hamborgarkaupmanna.” Oti I hinum stóra heimi er gifurlegur skortur á orku, oliu- lindir ganga til þurrðar innan tiltölulega skamms tima, þaö er alltaf að koma betur og betur i ljós að kjarnorkuverin geta ekki leyst vandann. Hér á íslandi eru hinsvegar óhemju miklir mögu- leikar á þvi að framleiða orku, við höfum vatnsföll og hita I iðrum jarðar. Með hliösjón af þessu sem nú er sagt er ofurskiljanlegt, að er- lendir auðhringar lita girndar- augum til íslands, þeir vilja fá aðstöðu til að stunda hér margs- konar atvinnurekstur. Og þá er það að stærsti stjórnmálaflokkur- inn lýsir þvi yfir sem sinni stefnu aö rýmkva skuli á skilyrðunum. Mann rennur grun I að nafniö „Sjálfstæðis”-flokkur sé jafn mikið öfugmæli og orðin: Stétt meö stétt. Allir vita aö þaö er mjög náið samband á milli flokksins og Vinnuveitendasambands Islands. 1 áliti sambandsins sem það birti um frumvarp Ólafs Jóhannesson- ar, forsætisráöherra, um efna- hagsmál segir svo m.a.: „....Vinnuveitendasamband Is- lands telur það höfuðatriði, að stjórnvöld á hverjum tima hagi almennri stjórn efnahags- og pen- ingamála á þann veg að atvinnu- fyrirtækin hafi möguleika á að skila arði og mynda eigiö fé....”. Þetta er mergurinn málsins: aö fá aðstöðu til „að skila aröi og mynda eigið fé”. Þessu markmiði verður aldrei náð nema með þvi einu að halda niðri lifskjörum meginþorra fólksins I landinu. Eða sagt með öðrum orðum: Þessu markmiði verður ekki náð nema með þvi að skerða lýöræðið i landinu. A milli raunverulegs lýðræðis og góðra lifskjara eru órofa tengsl. Haukur Hclgason l?ÞJÖ0LEIKHÚ31fi NEMENDASVNING LISTDANSSKÓLANS i dag kl. 15 Sfðasta sinn PRINSESSAN A BAUNINNI 7. sýning i kvöld kl. 20 Appelsinugul kort gilda 8. sýning miövikudag kl. 20 STUNDARFRIÐUR þriðjudag kl. 20 Uppselt A SAMA TIMA AÐ ARI fimmtudag (uppstigningar- dag) kl. 20. Fáar sýningar eftir. Miðasala 13.15-20. Simi 1-1200. LKIKFF.lAe; RFYKIAVIKUR ER ÞETTA EKKI MITT LIF Eftir: Brian Clark Leikstjórn: Maria Kristjáns- dóttir. þýðing: Silja Aðalsteinsdóttir leikmynd: Jón Þórisson leiktónar: Gunnar Reynir Sveinsson. lýsing: Daníel Williamsson Frumsýning i kvöld Uppselt 2. sýn. miövikudag uppselt Grá kort gilda 3. sýn fimmtudag uppselt Rauð kort gilda 4. sýn laugardag kl. 20.30 Blá kort gilda. STELDU BARA MILLJARÐI föstudag kl. 20.30 Fáar sýn. eftir Miðasala i Iönó kl. 14—19 simi 16620. NORNIN BABA-JAGA Aukasýning I dag kl. 15 Allra siðasta sinn TÓNLISTARKVÖLDVAKA i Lindarbæ i kvöld 20. mai kl. 20,30 Fjölbreytt tónlist. Flytjendur: Söngsveitin Kjarabót, Musica Nostra og Tritiltoppakvartettinn. VIÐ BORGUM EKKI mánudag kl. 20,30 Uppselt Fáar sýningar eftir Miðasala I Lindarbæ alla daga kl. 17-19. Sunnudaga frá kl. 13. Slmi 21971 B Y GGING AFRÆÐINGUR með 14 mán. starfsreynslu i almennri hönnun, kostnaðaráætlunum, útboðs- og tilboðsgerð og eftirliti, óskar eftir starfi. Þeir aðilar sem hefðu áhuga á þessu eru vinsamlegast beðnir að leggja inn fyrir- spurnir á afgreiðslu blaðsins merkt: 205. V erslunarhúsnæði til leigu Verslunarhúsnæði við Skólavörðustíg til leigu. Húsnæðið er 100 ferm. að stærð og er laust nú þegar. Upplýsingar í síma 81290 og 28655. .• Blikkiðjan Ásgarði 7, Garðabæ önnumst þakrennusmiöi og uppsefningu — ennfremur hverskonar blikksmíði. Gerum föst verðtilboö SÍMI53468

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.