Þjóðviljinn - 13.07.1979, Síða 16

Þjóðviljinn - 13.07.1979, Síða 16
DJÚDVIUINN Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9 — 20 mánudaga til föstudaga, kl. 9 — 12. f.h. og 17 — 19 e.h. á laugardögum. Utan þess tima er hægt aö ná i blaöamenn og aðra starfs- <■ Ö1111 Kvöldsími 81348 Föstudagur 13. júli 1979 menn blaðsins i þessum slmum: Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285, afgreiðsla 81482 og Blaðaprent 81348. O ÍJJJ Húsnœðismálastjórn 2480 milj. kr. lán veitt í ágúst-okt. 2 miljarða vantar til að fullnœgja lánaþörfinni Húsnæöismá last jórn hefur samþykkt lánveit- ingar að upphæö saman- lagt kr. 2480 miljónir til greiðslu eftir 25. ágúst og eftir 10. október.Er þar með búið að veita hús- næðismálalán í svipuðum mæli og á sama tima und- anfarin ár, en mikil óvissa rikir um þann tíma sem eftir er ársins og vantar um 2 miljarða króna til að fullnægja lánaþörfinni á þessu ári, að því er ólafur Jónsson i húsnæðismála- stjórn sagði Þjóðviljanum. ViöræBur hafa staBiB yfir viB fé- lagsmálaráBherra um þennan vanda. Lánveitingar þær sem nú voru samþykktar verBa sem hér greinir: Lokalán,(3. hluti) skulu veitt til greiBslu eftir 25. ág. n.k. þeim umsækjendum sem fengu frum- lán sin greidd 25. ág. 1978 og miB- lán sin greidd 10 mars 1979. samtals 337 m. kr. G-lán skulu veitt til greiBslu eftir 1. okt. n.k. þeim umsækj- endum sem lögBu inn umsóknir um lán til kaupa á eldri ibúBum á timabilinu 1. jan. 1979-1. aprfl 1979. samtals 1200 m. kr. Frumlán (1. hluti) skulu veitt til greiBslu eftir 1. okt. n.k. þeim umsækjendum, sem sent höfBu fokheldisvottorB til stofnunarinn- ar fyrir 1. júli s.l. og áttu fullgild- ar og lánshæfar umsóknir 1. júli sl. samtais 360 m. kr. Miðlán (2. hluti) skulu veitt til greiBslu eftir 10. okt. n.k. þeim umsækjendum, sem fengu frum- lán sin greidd 1. aprll 1979. sam- tals 400 m. kr. Lokalán (3. hluti) skulu veitt til greiBslu eftir 10. okt. n.k. þeim umsækjendum sem fengu frum- lán sin greidd 1. okt. 1978 og miB- lán sin greidd 10. april 1979. Sam- tals 183 m. kr. -vh Bensínið i 312 kr. Olíuvandi í nefnd Rikisstjórnin staðfesti á fundi i gær ákvörðun verð- lagsnefndar að heimila hækkun bensins upp i kr. 312 á litra. Þetta þýðir að ekki hefur verið felldur niður söluskattur af veggjaldi, eins og til umræðu tnun hafa verið. Skattheimtuprósenta rikissjóðs er þvi óbreytt. I framhaldi af þessu var ákveBið að rikisstjórnin beitti sér fyrir þvi að aukinn hluti af bensinverBi renni til vegamála, og er nánar um þaB fjallað i viðtali við Ragn- ar Arnalds hér i blaðinu. Engin ákvörðun var tekin um hækkanir á svartoliu og gasoliu. Var m.a. rætt um tillögur Alþýðubandalagsins um oliugjald á innflutning, 7% næstú 6 mánuði og 3% aðra 6 mánuði. Engin ákvörBun var tekin i málinu og ákveðið aB skipa nefnd 3 ráðherra til að vinna frekar i málinu og samræma sjónar- miB. Munu i henni verBa þeir Ólafur Jóhannesson, Hjör- leifur Guttormsson og Magnús H. Magnússon. eng Norsk-íslensk fiskveiöinefnd í undirbúningi A vegum sjávarútvegs- og utanríkisráðuneytisins er nú unnið að því að koma á norsk-íslenskri f iskveiðinef nd til að fram- fylgja þvi óformlega sam- komulagi sem náðist í við- ræðum Norðmanna og islendinga um loðnuveið- arnar við Jan Mayen á dögunum. Benedikt Gröndal utanrikis- ráöherra dvelst nú i Bandaríkjun- um og gegnir Kjartan Jóhanns- son sjávarútvegsráðherra störf- um hans á meðan. Er Þjóöviljinn haföi samband viö Kjartan siö- degis i gær, þá kvaðst hann ekki geta gefið neinar upplýsingar um gang þessa máls þar sem hann væri nýkominn heim að utan og heföi ekki haft tima i dag vegna anna i rikisstjórninni til að setja sig inn i máliö. Þjóðviljinn haföi þá samband viö Hörð Helgason ráðuneytis- stjóra i utanríkisráöuneytinu og innti hann frétta af þessum undir- búningi. Höröur kvaðst litiB geta tjáð sig um máliB en sagöi aö reynt yrði aö flýta þvi að þessi nefnd kæmist á laggirnai^ alla- vega fyrir 23. júli en þá hefja Norðmenn veiðarnar. |>j„ Bernhöftstorfan Nú skal tekið til höndum Torfusamtökin sitja ekki auð- um höndum þessa dagana. FriOun Torfunnar virOist loksins i höfn eftir margra ára baráttu og ekki seinna vænna að snúa vörn I sókn og koma húsunum i gott lag, borgarbúum til augna- yndis og ánægju. í vor var lokið við aö þrifa húsin aö innan og nú standa frekari framkvæmdir fyrir dyrum. Undanfarin kvöld hefur hópur fólks fengist viö að þrifa lóðina aftan viö gamla bakariið, þar hefur veriö sléttað og mold borin á, enda á að tyrfa blettinn á næstunni. A laugardag á að hefjast handa viö Landlæknishúsið þar á aö setja gler i glugga og hefja aðrar lagfæringar. Eins og gefur að skilja kosta framkvæmdir sem þessar nokk- uð fé, en þeim peningum sem safnast hafa sem ágóði af happ- drætti samtakanna og jólasölu verður varið til viðgerða. Guðrún Jónsdóttir formaður Torfusamtakanna tjáði Þjóð- viljanum að mikið stæði til, teikning af lóðinni er tilbúin og ef þær áætlanir sem þar getur aö líta komast i framkvæmd biður Torfunnar glæst framtið og var sannarlega tími til kom- inn. -ká A meðfylgjandi mynd er skipulagsuppdráttur af Torfunni og á honum sést að á svæðinu er gert ráð fyrir leiktækjum, grasbölum, runnum, bekkjum, ogöðru þvier prýða má útivistarsvæöi I miöri borg. A bilasölum borgarinnar er mikið framboö á stórum bilum, en fremur dræm sala. Nú vilja allir eiga litla og sparneytna biia. Spurningin er: Hvað eyðir hann miklu? Samdráttur í sölu stórra bila Oiian og bensíniö veröa greini- iega viðfangsefni þessa sumars. Rikisstjórnin ræöir máliöogbúist er viö nýjum hækkunum. En hvaöa áhrif skyldu umræður um orkusparnað og eldsneytis- hækkanir hafa á bilasölu og bila- innflutning? Þjóðviljinn hafði samband við nokkra innflytjendur ogbilasala I gær til aö forvitnast um hvort samdráttar heföi oröið vart. Hjá Sambandinusem flytur inn mikiöaf stórum og eyðslufrekum bilum fengust þær upplýsingar að salan væri þokkaleg, verkfallið hefði sett strik i reikninginn en þó nokkur sala væri I nýjum bilum. Hins vegar væri greinilega dræmari sala á notuðum bllum. Sömu sögu hafði sölumaður i Heklu að segja. Hann sagöi að menn hugsuðu sig um núna og töluvert væri um að komið væri meðstóra ameriska bila og boðin skiptí. „Hér áður spurði fólks hversu hátt væri undir bilunum, en nú er spurningin hvað billinn eyöir miklu.” sagði sölumaöurinn. A Bilamarkaönum við Grettis- götuna fengust þau svör að greinilega væri samdráttur i sölu stórra bila. Það væri töluvert framboð á þeim en þeir seldust litið. Nú vildu allir litla og spar- neytna bila. Sölumanni Bilasölu Guðfinns barsaman viðsiðasta ræöumann, sagði að greinilega væri minni hreyfing og mest sóst eftir litlum bilum. -ká Skattskrá Norðurlands eystra KEA langhæst Skattskrá Norðurlands eystra varlögð fram i gær. Heildargjöid á einstaklinga nema samkvæmt skattskránni 8.572 miljónum króna, en þar koma til frádráttar barnabætur og ónýttur persónu- afsláttur að upphæð samtals um 1.188 miljónir. Heildargjöld á fyrirtæki, að undanskildum atvinnurekstrargjöldum, nema 1.372 miljónum. Kaupféiag Eyfirðinga Akur- eyri, KEA, ber langhæsta skatta af fyrirtækjum eða 319.548.823 krónur. Næst i röðinni er Johns Manvillehf. Húsavík, sem er gert að greiöa 110.076.381 kr. Slipp- stöðin á Akureyri greiðir kr. 99.144.933og Otgerðarfélag Akur- eyringa hf. er með 79.190.157 kr. ólafur óiafsson, lyfsali á Húsa- vik, greiöir hæstu gjöld einstak- linga, 10.647.134 krónur. Annar i röð hæstu skattgreiðenda á Norðurlandi eystra er Jóhann H. Traustason, forstjóri á Akureyri, með 10.483.282 kr. Ingólfur Lilliendahl lyfsali á Dalvik greiðir 9.822.615 kr. og Óskar H. Asgeirsson, pipulagningamaöur á Akureyri 9.713.778 kr. —eös Þjóðviljinn á morgun: Blaðauki um orkumál í Þjóðviljanum á morgun verður hinn fyrsti af þremur blaðaukum sem helgaðir eru orkumálum og orkusparnaði. Blaðaukinn á morgun verður 8 síðuraðstærðog er í honum f jallað um orkumál og orkusparnað á mjög breiðum grundvelli. Ýmis góð ráð til orkusparnaðar verða i blað- aukanum að finna, bæði í húsum og bílum. L_________________:______J

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.