Þjóðviljinn - 14.07.1979, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 14.07.1979, Blaðsíða 2
2 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 14. júli 1979. Ltimenition Skelfunnl 3e*Simi 3*33*45 Blaðberar óskast SELTJARNARNES: Sólbraut (frá 16. júli) DIOÐVIUINN Simi 81333 LOKAÐ i réttarhléi frá 1. júli til 1. september 1979. Þó verður skrifstofan opin alla fimmtu- daga á þessu timabili og bréfamóttaka er hvern virkan dag. Ingi R. Helgason hrl. Laugavegi 31. £4Aí. Sáluhjálp i viólögum Ný þjónusta — Simaþjónusta frá kl. 17-23 alla daga vikunnar. SIMI 81515 Þjáist þú af áfengis- vandamáli? Er áfengisvandamál einhvers náins að eyðaleggja þitt lif? Hringdu - og ræddu málið SAMTÖK AHUGAFOLKS UM ÁFENGISVANDAMÁLIÐ Hreint land — fagurt land Búrhvalaveiðar ætti að banna Ókannað hvaða áhrif veiðamar hér við land hafa á heildarstofninn, segirArm Waag „Náttúruverndarmenn eru að sjálfsögöu mjög ánægöir meö þann áfanga, aö hvalveiöar frá verksmiöjuskipum skuli hafa veriö bannaöar,” sagöi Arni Waag, stjórnarmaöur i Náttúru- verndarfélagi Suövesturlands I samtali viö Þjóöviljann i gær. ,,En ég legg áherslu á aö þetta er aöeins áfangi og meiri friöun komi til síöar.” Arni sagöi aö I raun heföi þurft aö banna allar búrhvalveiöar, amk. um tima. „Búrhvölum fer stöðugt fækkandi i heimshöfun- um, en þaö er alveg ókannað hvaða áhrif búrhvalaveiöarnar hér við land hafa á heildarstofn- inn. Hér eru eingöngu veiddir tarfar, sem ekki hafa náð i maka. Búrhvalir eru fjölkvænisdýr, og þeir sem ná sér i kýr halda sig aö_ kúnum i hlýjum sjó og fara ekkf noröur á bóginn, en hinir fara hingað I ætisleit.” Banniö viö hvalveiöum frá verksmiöjuskipum sagðist Arni telja geysilega stórt skref i áttina. Framhald á 22. siöu. Alþjóðahvalveiðiráðið: Friðar hvali í Indlandshafí — en leyfir búrhvalaveiðar A fundi sinum i London i gær samþykkti Alþjóöahvalveiöiráöiö 10 ára friðun hvala í Indlandshafi. Tillaga um aö búrhvalir yröu alfriöaöir i þrjú ár hlaut hins vegar ekki nægilegan stuöning. Tillagan uni friöun hvala I Ind- landshafi var borin fram af full- trúa Seychelles-eyja og nær hún til alls Indlandshafs og innhafa þess norðan 55. gráöu suöl. breiddar. Hún var samþykkt meö 16 at- kvæöum gegn atkvæöum Japans, Suöur-Kóreu og Sovétrikjanna en þrjú önnur rlki sátu hjá. Þar meö náöist sá 3/4 meirihluti atkvæöa, sem þarf til aö tillagan nái fram aö ganga. Tillagan um þriggja ára bann á veiði búrhvala (sem friðunar- menn segja að veriö sé aö út- rýma) hlaut hins vegar ekki nægilegan stuöning. Fulltrúar 11 rlkja greiddu atkvæöi meö, en fulltrúar Islands, Danmerkur, Japans, Suöur-Kóreu, Perú og Sovétríkjanna voru á móti. Full- trúar 5 rikja sátu hjá. Að sögn Reuter voru hval- friðunarmenn fremur ánægöir meö úrslitin, einkum friöunina I Indlandshafi og töldu að bann við hvalveiðum af verksmiöjuskipum nægði liklega til að foröa búrhvöl- um frá útrýmingu. Friðun hvala I Indlandshafi er aö mestu leyti táknræn, þar eö einungis 7% árlegrar hvalveiði fæst þar. Heimildarmenn Reuters I London hermdu að málningu heföi veriö skvett á japanska full- trúa I fyrrinótt, og jafnframt aö hvalfriðunar- og umhverfis- verndarsamtök hefðu fordæmt verknaöinn. Mikill hótel- bruni á Spáni Lúxushótel i borginni Sara- gossa á Spáni brann i fyrradag meö þeim afleiöingum aö 71 maöur fórst og 47 særöust. Þetta er mesti hótelbruni sem oröiö hef- ur i heiminum i átta ár. Bruninn hófst snemma morg- uns meðan flestir hinna 300 gesta voru I fastasvefni. Spænskir embættismenn segja að kviknaö hafi I útfrá kleinuofni á neðstu hæö hússins, eldurinn siöanboristum eldhúsiö og þaðan út í loftræstikerfiö. Embættismennirnir töldu úti- lokað aö um ikveikju heföi veriö aö ræða. I gær gáfu blöö i Saragossa þaö I skyn aö bruninn kunni aö hafa verið verk ETA skæruliöa og nefhdu þvi' til stuðnings aö meöal þeirra sem sluppu naumlega voru ekkja Francos einræðisherra og ýmsir ættingjar hans. Spænsk yfirvöld hafa alfariö neitaö þessum möguleika. Þaö mælir gegn honum aö ETA hætti sprengjuherferð sinni fyrir viku þegar gengið hafði verið að mikil- vægustu kröfu samtakanna. Palestínskir skœruliöar Hertaka egypskt sendiráð Fjórir palestinskir skæruliöar hertóku I gær sendiráö Egypta i Ankara höfuöborg Tyrklands. Tveir tyrkneskir veröir voru drepnir i árásinni en taliö er aö skæruiiöarnir haidi nú 20 gislum 1 sendiráöinu. Skæruliöarnir krefjast þess aö fá flugvél til umráöa til aö komast til einhvers Arabarikis og aö tveir palestinskir fangar i Egyptalandi veröi látnir lausir. Þeir hóta aö drepa gisla sina veröi ekki látiö aö kröfum þeirra. Skæruliöahópur i Beirut, „Ern- ir byltingarinnar”, lýsti sig ábyrgan fyrir þessari atlögu sem væri beint gegn „sviksömum stjórnvöldum Egyptalands”. Khalil forsætisráöherra Egyptalands sagöi aö stjórn landsins myndi gera heildarsam- tök Palestinuaraba PLO ábyrg fyrir þessum atburöum. PLO hafa hins vegar neitaö aö eiga þarna nokkurn hlut aö máli. I gærkvöldi höföu tyrkneskir hermenn umkringt bygginguna en stjórn Egyptalands haföi fall- ist á aö Tyrkir mættu reyna aö ráöast inn i sendiráð ef allt annaö brygðist. Arni Waag: Bann viö hvalveiðum frá verksmiöjuskipum er stórt skref I áttina. Tían á loft Flugmálayfirvöld Banda- rikjanna afléttu i gær flug- banni því sem þau settu á DC-10 vélar sem skráöar eru I Bandarikjunum 6. júni s.I I tilkynningu yfirvaldanna sagöi aö þau væru ánægð með niðurstööur þeirra rannsókna sem þau létu gera I kjölfar flugslyssins mikla I Chicago 25. mai. „Rannsóknin sýndi aö DC- 10 vélin er, sé henni rétt viö haldið og gott eftirlithaft mef henni, i grundvallaratriðum örugg flugvél,” sagöi I til- kynningu yfirvaldanna. Jafnframt var tekiö fram að þær ráöstafanir sem grip- ið hefur veriö til yllu þvi aö almenningi ætti aö vera full- komlega óhætt að feröast i þessum vélum. Evrópsk flugmálayfirvöld afléttu flugbanninu á DC-10 fyrir sitt leyti fyrir mörgum vikum. Ahöfn DC-10 vélar Flug- leiða (sem er skráö i Banda- rikjunum) er i New York svo ekkert ætti aö vera þvi til fyrirstööu aö vélin komist i notkun nú þegar. Hún er væntanleg til Islands á sunnudag. Norðmenn taka ámóti 3000 Vktnörnum Frá Þorgrlmi Gestssyni fréttaritara Þjóöviljans I Noregi. Norömenn hafa ákveöiö aö gera stórátak til þess aö aö- stoða flóttamenn frá Viet- nam. Tekið verður á móti 3000 flóttamönnum á næst- unni og auk þess nánum ætt- ingjum þeirra Vietnama sem þegar eru komnir til lands- ins. Aætlað er aö þessar hjálp- araðgeröir komi til með að kosta norska rikið um 100 miljónir norskra króna aö þvi er Dagbladet i Osló skýr- ir frá i gær. Til skamms tima stóö norska rikisstjórnin fast á þeirri stefnu sinni að ekki skyldi tekið við öörum flótta- mönnum frá Vietnam en þeim sem teknir væru um borö I norsk verslunarskip. Nú hefur yfirmaöur flótta- mannaráös Sameinuöu þjóö- anna, Daninn Poul Hartling beðiö þau lönd sem ætla aö taka þátt I ráöstefnunni um flóttamannavandamáliö I Suöur-Frakklandi i næstu viku, aö ákveöa hversu marga flóttamenn þau hafa hugsað sér aö taka. Þá hefur gifurlegur þrýstingur frá al- menningsálitinu i Noregi og ýmsum samtökum fengið þingiö til aö breyta afstööu sinni. Fyrir skömmu voru mynduö samtökin „Bod til Vietnam” eöa Bátur til Viet- nam I þvi skyni að festa kaup á báti til að taka upp flótta- menn frá Vietnam. Tekist haföi aö safna nægu fé til að tryggja rekstur bátsins i einn mánuö. „Þaö veröur áö hugsa um aö útvega þessu fólki atvinnu og varanlegt húsnæöi seinna” segir Leif Rigten fulltrúi I félagsmálaráðu- neytinu i samtali viö Dag- bladet i morgun.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.