Þjóðviljinn - 14.07.1979, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 14.07.1979, Blaðsíða 3
Laugardagur 14. júlí 1979. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 Lýst ekkert á þetta segja starfsmenn skiptiborðs stjórnaráðsins „Okkur lýst engan veginn á þessar fyrirhuguöu aðgerðir eftir helgi og reyndar finnst okkur að þær komi til með að lenda aðal- lega á okkur frekar en þeim sem þær eiga aö beinast gegn” sögðu simaverðirnir i skiptiborði Stjórnarráösins i samtali við Þjóðviljann i gær. „Við höfum ekki nema tvö skiptiborð meö tuttugu linum hvort, þannig að þau verða fljót aðfyllastogoft dugaþau reyndar ekki. Hingað til hefur verið minnst að gera i júli og þess vegna erum við einum færri en vanalega, og ekki kemur það til með að bæta um. En þU mátt hafa það eftir okkur aö okkur list engan veginn á þessar skipulögðu simahringingar“ sögðu starfs- menn skiptiborðsins. —ig. B ifreiðareigendur m ó tmœla bensin verðhækkun Hringingar í ráðu- neytin eftir helgi Samstarfsnefnd hagsmuna- félaga bifreiðaeigenda hefur ákveðið að hvetja almenning til að hringja i stjórnarráöið n.k. mánudag og þriöjudag og bera spurningar um siðustu bensin- vertíhækkun og bensinverð al- mennt undir ráðherra eöa embættismenn ráðuneytanna. Með þessu móti hyggjast samtök bifreiðaeigenda mótmæla óbreyttum bensinskatti og háu bensinverði. Sveinn Oddgeirsson framkvæmdastjóri FIB sagði i samtali við Þjóðviljann i gær- kvöldi að ekki væri gott að spá um hver þátttakan yröi en samstarfs- nefndin býst þó við góðri þátt- töku. Með þessum aðgerðum vildu þeir benda fólki á hvar það gæti fengið svör við hinum ýmsu spurningum sem vakna upp hjá bileigendum vegna sihækkandi bensínverðs. Varðandi ummæli starfsmanna á skiptiboröi stjórnarráðsins sem birteru hér á siðunnisagði Sveinn að ef þátttaka yrði góö yrði sjálf- sagt mikið álag á þeim þar sem þær væru fyrsti hlekkurinn til aö ná í ráðuneytin. „Það er þeirra starf að svara i simann og yfir- leitt er mikið að gera hjá þeim, þannig að það ætti ekki að breyta svo miklu þó álagið aukist eitt- hvað þessa daga. -»g Galleri Suðurgata 7 Sýning Peter Schmidt Breski myndlistarmaðurinn Peter Schmidt opnar sýningu i Gallerf Suðurgötu 7 I dag. Hann sýnir vatnslitamyndir sem hann vann hér á landi á sfðasta ári. Schmidt hefur lagt stund á flestar greinar myndlistaren þekktastur er hann fyrir samstarf sitt við tónlistarmanninn Brian Eno, en hann hefur gert- mörg plötuum- slög fyrir hann. Sýningin stendur til 29. júli og er opin daglega frá kl. 4-10 en 2-10 um helgar. TOYOTA CRESIDA TOYOTA TERCEL Söludeild — Varahlutir — Viðgeröarþjónusta allt á einum stað Vandaðir bílar fyrir vandláta kaupendur Viötal við Hjörleif Guttormsson iðnaðarráðherra um olíumálin Oliuskattur sérstakur er hið eina sem til þessa hefur komiO fram I tillöguformi á ráOherra- borO, en líkur benda til einhvers konar málamiölunar milli þeirra hugmynda og annarra á næst- unni. Þetta mátti ráöa af viötali Þjv. viOHjörleif Guttormsson, en hann á ásamt Ólafi Jóhannessyni og Kjartani Jóhannssyni sæti i sérstakri ráöherranefnd sem mun fjalla um þessi mál á mánu- dag. Sá mikli vandi, sagði Hjörleif- ur, sem við er að fást vegna þess að olia hefur hækkað um 200% á tíu mánuöum, verður auðvitað ekki leystur meðpennastriki eða I eitt skipti fyrir öll. Fyrir nokkr- um vikum geröu menn sér enn vonir um að oliuverðhækkunin væri ti'mabundin og við þær að- stæöur voru m .a. geröir samning- ar um fiskverð um mánaðamótin mai'-júnf og þar meö gefin viss fyrirheit um fast oli'uverð út fisk- verðstimabilið. Gildandi gasolfu- verö er sem kunnugt er 103 kr á litra en raunverð á birgðum sem nú eru notaðar er 155 kr. Nú er flestum að veröa ljóst, aö við get- um ekki búist við lækkandi verði ánæstunni, fremurhið gagnstæða og meö þaö í huga verðum við að skoða þann vanda sem við blasir. — Oghvaöhefur stjórnin gert? — Hún hefur rætt viðhorfin nú um nokkurra vikna skeið. Fyrstu ráðstafanir hennar auk skipunar nefnda til viðtækrar könnunar á olíuverslun og til aö leita hag- stæðari kjara á oliukaupum voru ráðstafanir til orkusparnaðar og hagkvæmari orkunýtingar og út- vegun viðbótarfjár til orkufram- kvæmda. Aðlögun Nú er framundan að laga atvinnurekstur I landinu að hin- um breyttu kostnaðarforsendum og um það stendur umræöan inn- an rikisstjórnarinnar þessa dag- ana. Það er auðvitað ljóst að eng- ar þær ráöstafanir sem gripa verður til verða vinsælar en ööru fremur þarf að hafa i huga að þær valdi ekki óbætanlegri röskun á okkar atvinnulifi, jafnhliða þvi sem ýta þarf undir lifvænlega atvinnuþróun og sparnað I til- kostnaði við atvinnurekstur — og er þar af mörgu að taka. Sjávarútvegurinn verður hér vissulega fyrir þungu áfalli og er ekki óeðlilegt aö menn hafi hugs- að til miflifærsluaðgerða I hans þágu I von um aö um timabundna olluverðþróun væri að ræöa. En mér vitnanlega hefur engum komið ihug að taka upp styrki til langframa til þessarar meginút- lutningsgreinar okkar. Hagur iðnaðarins og skilyröi til iðnþróunar skipta ogmiklu rnáli í þessu sambandi og ég tel að við þær aðgerðir sem nú eru til um- ræðu verði i senn að tryggja hag útflutningsiðnaðar okkar og við- unandi jarðveg til iðnvaxtar i landinu. Þar megum við ekki stiga nein skref til baka. Reynir á málamiðlun — Nú hefur þegar spurst um tillögur um sérstakan oliuskatt á innflutning, hvað líður henni og hvað um aðrar tillögur? Alþýðubandalagiö hefur lagt framhugmyndir til lausnar vand- ans i rikisstjórninni. Þær komu m.a. fram i tillögu um innflutn- ingsgjald sem lögð var fram af nefnd ráiSierra i öllum stjórnar- flokkunum. Aðrar ákveðnar til- lögur liggja enn ekki fyrir. Þessi mál eru á umræðustigi. Miklu varðar um að ná samstööu um frambærilega lausnog þar reynir efalaust á málamiðlun milli sjónarmiða og fiókinna hags- muna. Ahrif olfuverðhækkana á kynd- ingarkostnað eru svo sérstakur þáttur sem taka verður á og afla tekna til aö létta undir með þeim sem þegar bera gifuriegan kostn- að af oliuhitun. Þar er ekki á bæt- andi. Þessi mál verða til umræöu I ráðherranefnd á mánudaginn og á vettvangi stjórnarflokkanna og i rikisstjórninni i næstu viku. Ég vænti þess að það taki ekki mjög langan tima. Við meðferð mála mun Alþýðubandalagið sem fyrr gefa sérstakan gaum að hag laun- þega. Ber þá einnig að hafa I huga að atvinnuöryggi og æskileg atvinnuþróun er þeirra hagur. —áb. HTOYOTA Hjá Toyota er vei fylgst meö þróun timans. Þess vegna framleiðir Toyota ávallt bfla fyrir þá veröld sem við lifum i. Toyota hefur þannig hlotnast margvfsleg viðurkenning fyrir góða og vandaða framleiðslu: T.d. tvisvar hin eftir sóttu amerfsku Demning-verðlaun, veitt fyrir vandaða framleiðsiu og tækninýjungai I Danmörku hefur Félag danskra bifreiðaeigenda kosiö Toyota þrisvar, sem þann bilinn sem mmnst bilar og sé með bestu endursölu. t Englandi hafa bresku Neytendasamtökin veltt Toyota viðurkenningu fyrir vandaðan bil. í Sviþjóð hefur sænska Bifreiöaeftirlitlö eftir athugun á 127.000 bifreiöum, sett Toyota I efsta sæti með ástand og gæði. Bandarfsku Neytendasamtökin hafa eftir athugun á 225.000 bifreiðum, gefið Toyota urvalsgóða viðurkenningu. HVM) KAUPA SVO JAPANIR SJÁLFIR? Jú samkvæmt nýjustu tölum jók Toyota sölu sina um rúm 26% I Japan á sfðasta ári. Vilji menn kaupa bil I háum gæðaflokki, jafnframt þvf að gera góöa fjárfestingu, bfl, sem svarar kröfum framtiðarinnar, þá er valið TOYOTA. trr, TOYOTA UMBOÐIÐ NÝBÝLAVEGI 8 KÓPAVOGI SÍMI 44144 TOYOTA STARLET Fulltrúar Steypustöðvanna 1 Reykjavfk á fundi með blaöamönnum Steypustöðvamar Hóta lokun Steypustöðvarnar i Reykjavik hafa ákveðið að hætta afgreiðslu steinsteypu i óákveðinn tfma frá og með þriðjudeginum 17. júli. Astæðan er sú að ekki hefur feng- ist afgreitt erindi steypustöðv- anna hjá verðlagsnefnd. Steypustöðvarnar boðuðu til blaðamannafundar i gær til að greina frá ástandinu. Þar kom fram að verði rekstri steypu- stöðvanna haldið áfram er fyrir- sjáanlegur verulegur halli. A siðasta fundi verðlagsnefnd- ar var beiðni steypustöðvanna tekin fyrir, en var ekki útrasdd. Krafa þeirra er 14% hækkun, en verðlagsnefnd hafði áður sam- þykkt 7 1/2% hækkun. Forsvarsmenn steypustöðv- anna segja að veruleg hækkun hafi orðið á öllum kostnaði þar á meðal oliu en steypuverðið hafi ekki fylgt þeirri þróun. Þá hafa fyrirtækin ekki haft bolmagn til að endurnyja tækjakost sinn sem veldur verulegri hækkun á rekstrarkostnaði. Var nefnt sem dæmi að steypubilar Steypu- stöðvarinnar h.f. eru að meðaltali 7—8 ára gamlir og þurfa mikið viðhald. Þeirfélagar sögðu að þessi að- gerð þeirra væri ekki mótmæla- aðgerð, heldur treystu þeir sér ekki til að halda rekstri áfram við rikjandi aðstæður. Víglundur Þorsteinsson frá BM Vallá sagði aö nú vantaði um 9—11 miljarða til að endar næðu saman og þeir færu ekki fram á annað en hallalausan rekstur. Hann sagði að meö þvl að fresta hækkunum til haustsins eins og verðlagsstjóri talaði um, væri verið aö velta hækkunum yfir á húsbyggjendur sem kaupa steypu i haust og tap fyrirtækjanna yrði enn meira, þar sem þau seldu steypu með bullandi tapi yfir há- annatimann. —ká. Þar reynir eflaust á málamiðlun...

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.