Þjóðviljinn - 14.07.1979, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 14.07.1979, Blaðsíða 7
Laugardagur 14. júli 1979. ÞJÓDVILJINN — SIÐA 7 Finnskar myndir Um helgina Frá sýningunni i Stúdentakjallaranum. Stúdentakjallarinn: Kúbönsk í Stúdentakjallaranum vi6 Hringbraut eru um þessar mund- ir sýndar myndir frá Kúbu. Allt eru þetta grafikmyndir, hluti af farandsýningu sem komið var upp i tilefni af 20 ára afmæli kúb- önsku byltingarinnar. Á sýning- unni eru 26 verk eftir 13 unga myndlistarmenn sem allir eru menntaðir á Kúbu. grafík Það er vináttufélag íslands og Kúbu sem standa að sýningunni ásamt Félagsstofnun stúdenta. Myndirnar eru allar til sölu og kosta 15 þús. kr. Auk þess geta gestir notið búkanskrar tónlistar ásamt veitingum af léttara teg- inu. Sýndingin stendur til 18. júli. — ká i Háskólabíó Hingað til lands eru væntanleg- ir þrír finskir kvikmyndafrömuð- ir og munu þeir dveljast hér til mánaðamóta. Þeir eru hingað komnir tii að kynna sér islenska kvikmyndagerð og einnig munu þeir sýna þrjár nýlegar finnskar myndir sem þeir hafa I fórum sin- um. Næstu tvo mánudaga verða sýningar I Háskólabiói á myndun- um Skáldið, Ar hérans og Mannlif. Skáldið er frá árinu 1978 og fjallar um 5 ár iilifi finnska ljóð- skáldsins Eino Leino. Myndin lýsir litriku lifi hans, innri bar- áttu og sambandi hans við eigin- konu og hjákonu. Leikstjóri er Jaakko Pakkasvirta. Ar héranssegir frá manni sem vinnur á auglýsingastofu og er orðinn þreyttur á streitu borgar- lifsins. Einn daginn ekur hann utan i héra sem skaddast litillega og það hefur þau áhrif að hann ákveður að segja skilið við fyrra lif og helga sig náttúrunni. Mynd- in er óður til náttúrunnar sam- timis þvi að vera aðvörun til manna um hversu búið er að raska öllu jafnvægi hennar. Leikstjóri er Risto Jarva, en Framhald á 22. siðu. Blaðamannafundur f Listasafninu,- myndir van Velde á veggjunum. Litografiur van Velde Gjöf til listasafnsins I Listasafni Islands stendur yfir sýning á verkum hollenska lista- mannsins Bram van Velde sem hann gaf Listasafninu nýlega. Bram van Velde er fæddur i Hollandi 1895 en hefur verið bú- settur I Paris árum saman. Á sýningunni eru 65 myndir. sú elsta frá ’65 en bær nýjustu eru frá þessu ári, allt litografiur. Lista-. maðurinn kom hingað til lands til að vera við opnun sýningarinnar og sagði við það tækifæri að þetta væri stærsta sýning sem haldinn hefði verið á verkum sinum. Sýn- ingin stendur til 29. júli og er opin daglega frá kl. 13.30 til 22. —ká r Olafur sýnir á Selfossi ólafur T. ólafsson opnar sýningu i Safnahúsinu Selfossi i dag, laug- ardaginn 14. júli og verður hún opin til 24. júli kl. 2-10 daglega. Þetta er fyrsta einkasýning Ólafs, sem um nokkurt skeið vann að myndlist sem áhugamaður en drei f sig siðan i Myndlistarskól- ann og lauk námi þar i vor. Ölafur sýnir 57 myndir, þar af 24 oliumálverk. Hann málar eink- um fólk, atvik og svo tiðindi sem heita mega pólitisk. Ein myndin heitir t.d. „Hreint land, fagurt land” og segir nafnið sina sögu. —áb Þýskt brúöuleikhús á Kjarvalsstöðum Um næstu helgi sýnir Albrecht Redlich frá V-Þýskalandi brúðu- leik á Kjarvalsstöðum og nýtur hann tii þess aðstoðar Islenskra brúðuieikhúsmanna. Albrecht Redlich sýnir ævin- týraleiki um Kaspar og verða tvær sýningar kl. 15 og kl. 17 hvorn dag. laugardag og sunnu- dag. Aðgöngumiðar, sem kosta 500 krónur verða seldir við inn- ganginn. Albrecht Redlich er frá tTber- lingen við Bodehsee I V-Þýska- landi og mun Sigriður Hannes- dóttir og fleiri Isl. brúðuleikhús- menn aðstoða hann við sýning- arnar. Sýningin „Sumar á Kjarvals- stöðum” er opin daglega kl. 14-22. Þar sýnir „Septem-hópurinn” málverk og höggmyndir i vestur- sal, „Galleri Langbrók” vefnað textilþrykk teikningar og graflk á göngum,og myndir eftir Jóhannes S. Kjarval eru i austursal. Um aðra helgi bætist siðan Mynd- höggvarafélagið I hópinn (21. júli). Aðgangur á sýninguna er ókeypis, en skrá og veggspjald er selt á 500 krónur. SIMCA ER SUMARAUKI Eigum fyrirliggjandi hinn eftirsótta lúxusbíl SIMCA 1307 og 1508, sem er fimm manna, fimm dyra, framhjóladrifinn f jölskyldubíll í sérflokki. SIMCA 1307/1508 er ekki aðeins traustur og þægilegur bíll, heldur hefur hann einnig orð á sér fyrir að vera sparneytinn á eldsneyti og sem dæmi um það má m.a. geta þess að í sparaksturs- keppni Bifreiðaíþróttaklúbbs Reykjavíkur 13.5. ’79 reyndist Simca 1508 eyða aðeins 6.95 1 pr. 100 km. SIMCA bílar hafa margsannað ágæti sitt hér og eru eina bílategundin sem hefur f jórum sinnum sigrað í rallkeppnum á íslandi. I dag velur þú þér SIMCA CHRYSLER SUÐURLANDSBRAUT 10. SÍMAR; 83330 - 83454 Ö llökull hf. Byggingarhappdrætti Sjálfsbjargar 9. júfí 1979 Aðalvinningur: Bifreið FORD MUSTANG ’79, nr. 33562 10 sólarlandaferðir með Úr- vali, hver á kr. 250.000,- 89 vinningar á kr. 20.000,- hver (vöruúttekt) 50 sólarferð 16103 28473 92 16407 31106 161 16526 31167 272 17014 31504 737 17379 31652 1049 17721 sólarferð 31844 1681 18970 32386 sólarferð 2368 19063 32708 2369 19082 32728 3273 19647 sólarferð 33562 billinn 3274 20481 34519 3287 20549 34877 sólarferö 5089 20617 36762 5916 20687 37619 5917 21661 37751 6568 21662 39916 6647 22019 40321 6653 22049 sólarferð 40322 7366 22727 40808 7661 sólarferð 23290 40809 8900 23513 40960 9021 24497 40972 9112 24687 41142 9251 24899 41283 9901 25313 42228 11466 25323 42398 11656 26081 42595 11732 26212 sólarferð 42839 12551 26937 43241 12630 27284 43253 12834 27445 sólarferö 44063 13931 27675 44619 14715 28281 44653 sólarferð 15340 Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra Ilátúni 12, Reykjavik. Simi 29133.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.