Þjóðviljinn - 14.07.1979, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 14.07.1979, Blaðsíða 11
Laugardagur 14. júll 1979. ÞJÓDVILJINN — SÍÐA 11 Eldsneyti framtíöarinnar VETNI Vetni er hráefni við vinnslu metanóls, sem er aftur hráefni fyrir gerð til- búins bensins, sem margar þjóðir hafa hug á, og Bandaríkjamenn hyggjast senn framleiða. Það er því spurning hvaða efni af þessum þremur við kjósum að framleiða. Tilbúiö bensín er um 30% dýr- ara en metanól, sem er aftur 30% dýrara en vetnið. Vetniö hefur hins vegar þann ókost, aö mjög fjárfrekar breytingar þarf aö gera á vélum svo hægt sé aö knýja þær meö vetni. Þaö er enn- fremur erfitt i flutningum. Sé þvi dreift i loftkenndu formi þá stafar mikilli sprengihættu af þvi, en i fljótandi formi er ekki hægt aö flytja þaö nema kæla niöur á min- us 243 C. Til aö dreifa vetninu þyrfti þvi að byggja algerlega nýtt dreifikerfi, sem yröi þjóöinni afar dýrt, og þvi er taliö hag- kvæmara i bili aö beina átakinu aö metanólvinnslu. En eftir svosem hálfa öld, þá mun vetnið aftur koma sterklega til greina. Æskan i dag á þvi ef til vill eftir aö aka á vetnisknúöum farartækjum. —ÖS 1 dag er framleitt vetni í áburöarverksmiöjunni f Gufunesi til aö gera áburö. Ef til vill veröur þar seinna eldsneytisframleiösia fyrir tslendinga. Orku- vinnsla úr sorpi á 16 stöðum í Banda- ríkjunum Sorphaugar borganna eru risavaxnir. Það verður æ meira vandamál að losna við úrgang, en nú hafa vísindamenn í Banda- ríkjunum og raunar víðar, hafið tilraunir með að nýta sorpið til orkuvinnslu. Á þann hátt er hægt að losna við sorpið og fá um leið dýrmæta orku. Taliö er aö minnsta kosti 16 stöövar i Bandarikjunum fram- Verður framleitt hér á landi eftir sjö ár Svo kann að fara að strax árið 1986 verði bensinið leyst af hólmi með innlendu eldsneyti —metanóli. Gangi allt að óskum, munu allir islensk- ir bílar verða knúnir af metanólinu strax árið 1995. Mörgum þótti fyrir skömmu sem hugmyndir framsýnna manna um metanólvinnslu væru byggðar á sandi. Slhækkandi oliu- verð hefur þó gert það aö verkum, aö i dag er taliö aö metanóliö standist bensininu snúning, hvaö verö áhrærir. Bílar metanólknúðir 1995 Meö litlum breytingum má breyta vélum bifreiða á þann hátt, að þær geti nýtt metanól- íblandað bensin. Slik blanda væri þá um 15% 'metanól — 85% bensin. Hins vegar þarf mun dýr- ari og veigameiri breytingar til að vélar bifreiða geti algerlega gengiö fyrir metanóli. Best er taliö, aö lögbjóöa aö innfluttar bifreiöar veröi meö vélum, sem brenna metanóli, frá og meö þvi ári sem væntanleg metanólverksmiöja tekur til starfa. En meðan skiptin á elds- neytinu ganga yfir, veröur samt sem áöur nauösynlegt aö hafa tvö leiði raforku úr sorpi. Þessar stöövar eru enn ekki stórar aö vöxtum, en tækninni fleygir fram og borgir á viö New York og Chicago verja umtalsveröum fjármunum i tilraunir á þessu sviöi. Nýjasta sorpbrennslustööin sem framleiöir rafmagn er i Hempstead i New York riki. 1 Hempstead eru 865 þús. ibúar. Borgarstjórnin reisti hina nýju stöö fyrir 73 miljónir dollara og stööin brennir á degi hverjum um 2000 tonnum af úrgangi. Úr þvi fæst raforka, 40 MW (mega- wött), sem nægir til aö sjá 15% ibúa i Hempstead fyrir nægu raf- magni. —ÖS dreifikerfi i gangi annað fyrir metanól en hitt fyrir bensin. Þau mætti ef til vill samnýta, þannig að úr þeim væri lfka hægt að fá metanólblandað bensin i fyrr- nefndum hlutföllum. Þannig mætti spara enn meira bensin, meöan á skiptitimanum stendur. Ef gert er ráö fyrir þvi aö bila- floti landsmanna endurnýist á 10 árum og að metanólvinnslan hefjist árið 1986, þá munu allir bilar ganga fyrir metanóli árið 1995, eins og fyrr segir. Gífurlegur sparnaður Metanólverksmiöjan mun kosta fullbyggö um 45 miljaröa og afkastageta hennar verður þá 250 þús. tonn af metanóli á ári. Heildarfjárfestingunni má þó dreifa, meö þvi aö byggja verksmiöjuna i t.d. fimm 50 þúsund tonna áföngum. Sé miðað viö þaö, og jafnframt gert ráð fyrir að bensinveröiö haldist óbreytt, þá mun verk- smiðjan fullbyggö spara um 16 miljarða króna i gjaldeyri og munar um minna. A móti kemur, aö kol þarf aö kaupa ár- lega fyrir um tvo miljaröa. Mestu skiptir hins vegar, aö metanóliö mun leysa okkur af klafa útlendra oliufursta, og veita okkur um leiö aögang að eldsneyti sem er nær óþrjótandi. os Kemur aö þvl aö Reykvikingar vinni orku úr sorpinu, sem I dag er eytt i sorpeyöingarstööinni? Erlendis eru menn viöa fariiir aö prófa metanól á farartæki sin. Innlent eldsneyti í stað bensíns Metanól Mó og surtar- brandi — breytt í eldsneyti Þegar vinnsla menanóls hefst, verður að likindum hægt að nota innlend hráefni, svo sem mó og surtarbrand. Öld mótekjunnar virðist því eiga eftir að renna upp á nýjan leik. Ennfremur kann að reynast mögulegt að brenna sorpi i stórum stíl og nota til metanól- vinnslu. I stórum dráttum fer metanólvinnslan þannig fram. að mikilli raforku, sem fæst viö beislun fallvatna, er beitt til aö rafgreina vatn. Viö þaö fæst vetni. Meö sérstökum efna- fræöilegum aöferöum er vetniö bundið kolefni þannig aö metanol myndast. En kolefniö þurfum viö aö vinna úr innfluttum kolum a.m.k. til aö byrja með. Hins vegar má lika afla kolefnis úr mó. Sérfræðingar telja aö næg- ar móbirgöir séu nú til 2000 ára. En mórinn endurnýjast einmitt á um 2000 ára bili, þannig aö allt útlit er fyrir aö viö höfum I land- inu óþrjótandi hráefni til metanoivinnslunnar, þar sem er orka fallvatnanna og mórinn. ___________________—OS Bensíneyðslu- mæli í bíla? Benslneyösla bifreiöa er mjög mismunandi, eftir þvi á hvaöa hraöa er ekiö. Hins vegar er ekki auövelt fyrir ökumenn aö sjá út i fljótu bragöi, hvaö hraöi er hag- kvæmastur meö tilliti til bensin- eyöslu. Nú hefur hins vegar islenskt fyrirtæki, Tæknibúnaöur h/f, framleitt oliueyöslumæli I skip, sem getur sparaö átta prósent af eldsneyti sen skipin eyöa I dag. Bandariskt fyrirtæki, Avicon, hefur gert svipað viö flugvélar. En hvi dettur engum i hug að reyna aö búa út bensíneyðslumæli á bila? Ef þaö væri gert, meö þeim árangri, aö átta prósent eldsneytissparnaöur næöist hjá bileigendum, myndu þeim spararst 2.4 miljarðar islenskra króna. I gjaldeyri myndu lands- mönnum þá sparast verðmæti 800 miljóna. Þetta eru aö sjálfsögöu bara vangaveltur, en hvi ekki aö reyna? — ÖS

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.