Þjóðviljinn - 14.07.1979, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 14.07.1979, Blaðsíða 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 14. júli 1979. Hvers vegna olíu- sparnaö? Flestum er kunnugt um hinar gifurlegu oliuhækk- anir sem hafa orðið á þessu ári. Gert var ráð fyrir i öllum efnahagsáætlunum að við þyrftum á árinu að greiða um 24 miljarða islenskra króna fyrir þau rif- lega 600 þús. tonn af oliu sem eru keypt til landsins. Verðhækkanirnar á hinum alþjóðlega oliumarkaði hafa hins vegar hleypt þessari tölu upp i hvorki meira né minna en rúmlega 68 miljarða króna. 44 miljarða hækkun Hækkunin sem hefur orðiö á oliu er þvi 44 miljarðar. Það munar um minna, þegar þess er gætt að allur útflutningur okkar fyrir þetta ár er að verðmæti ekki nema 240 miljarðar króna. Það sem við þurfum að borga fyrir oliuna umfram það sem var upp- haflega gert ráð fyrir — 44 miljarðar —- er jafngildi alls þess gjaldeyris sem islendingar fá fyrir saltfiskútflutning og loðnu- útflutninginn að auki. 011 þau verðmæti sem islenskar hendur skapa á þessu ári með vinnslu á loðnu og saltfiski munu þvi hverfa I oliuhitina. Af hverju stafar þetta? Orsakarinnar er að leita I bágu ástandi i oliumálum veraldar- innar. Mannkynið er búið með mikinn hluta þeirrar oliu sem er ódýrt og auðvelt að vinna. Þvi hefur sums staðar dregið úr oliu- vinnslu og jafnframt orðið nauð- synlegt að vinna dýrari oliu úr jörðu. En sfðast en ekki sist hefur oliunotkunin aukist mjög i heim- inum og eftirspurnin raunveru- lega orðið meiri en framboðið. Uppsprengt verð Það hefur aftur leitt til mikillar sóknar i þá oliu sem er seld utan viö langtimasamninga oliurikj- anna og sprengt verðið á henni upp úr öllu valdi. Mest af þessari oliu fer i gegnum skyndisölu- markaðinn i Rotterdam. Oliu- skorturinn veldur þvi að þar er hart barist um hvern dropa og þessvegna rýkur verðið þar upp. Þetta kemur Islendingum við að þvlleytinu.að öll oliukaup þeirra, hvort heldur eru frá Sovétmönn- um, Portúgölum eða vestrænum oliufélögum, eru miðuð við verðið einsog það gerist hverju sinni i skyndisölum i Rotterdam. önnur olia fæst hins "vegar ekki einsog tilboðið um norsku oliuna er hald- best dæmi um. Það er með öllu óvist hvaða á- hrif oliuverðshækkunin hefur á afkomu Islendinga nú og næstu ár. Einsog vanalega má búast við þvi að reynt verði að kasta klyfj- unum sem henni fylgja á axlir alþýðu. Þaö er lika óvist hvort okkur reynist bókstaflega kleift aí fá alla þá oliu sem okkur bráð- vantar fyrir fiskiskip, flutninga- tæki og iðjuver landsins næstu ár- in. Þetta er ekki sagt út i bláinn. Hvort sem okkur likar betur eöa ver, þá hefur enginn viljað selja okkur oliu nema Sovétmenn. En nú eiga þeir sjálfir við alvarleg oliuvandræði að striða. Þvi kann sú stund að renna upp, að Sovét- menn dragi úr olíusölu til okkar eins og þeir hafa gert við bræöra- þjóðir sinar i A-Evrópu. Þar fyrir utan er ljóst, aö efna- hagur okkar mun versna aö mun ef við verðum neydd til að kaupa Einsog sést á linuritinu hefur bensin og gasolia hækkað gifurlega i verði undanfarið. Svartolia hefur ekki hækkað eins mikið. Vegna hækkana á olíuvörum þurfa Islendingar að greiða 44 miljarða umfram það sem áætlað var. Það jafngildir öllum saltfisk-og loðnuútlfutningnum. oliu næstu árin á svimandi verð- um Rotterdammarkaðarins, hvaðþáef hækkanir halda áfram, einsog margt visar til. Við erum þvi nauðbeygð til að skera niður notkun okkar á oliu einsog kostur er. Leiðbeiningar um sparnað En hvernig minnkum við oliu- notkunina? — Með þvi að hraða nýtingu innlendra orkugjafa á borð við jarðvarma og vatnsorku. — Með þvi að flýta framleiðslu á innlendu eldsneyti einsog meta- nóli. — Með þvi að minnka einsog kostur er notkun okkar á oliu og bensini. Það getum við td. með þvi að nýta betur almennings- samgöngur en hvila einkabilinn sem mest. Við getum gert hús- næðið okkar þannig úr garði aö sem minnst orka fari I upphitun, en það skiptir verulegu máli á þeim svæðum sem notast við oliu- hitun. Við getum lika leitað auk- innar hagkvæmni i oliunotkun at- vinnuveganna. Þjóðviljinn ætlar ekki einungis að hvetja menn til sparnaðar heldur mun hann standa fyrir út- gáfu á þremur „kálfum” um orkusparnað sem mun fylgja blaðinu næstu vikurnar. 1 þeim verður bent á leiðir til að spara orku i notkun bila og samgöngum, i húsum og hönnun þeirra og einnig i atvinnuvegum okkar með áherslu á fiskiskipaflotann. A- formað er að „kálfarnir” komi á laugardögum, og þessi er hinn fyrsti. -ÖS Má sparn 20 miljarða? Einsog greint er frá hér i blað- inu hafa oliuhækkanirnar gert það að verkum, að i stað þess að tslendingar greiði 24 miljarða fyrir oliuvörur sinar á þessu ári, einsog var áætlað er útlit fyrir að þeir verði að gjalda 65 milj- arða. Það er næstum þreföid hækkun. Af þeim sökum ber brýna nauðsyn til að minnka oliu- notkun eins og kostur er. Hjörieifur Guttormsson iðnaðarráðherra hefur lagt fram tillögur, sem geta leitt til þess, að Metsöhibillinn Ford FORD FIESTA hefur farlð sann- kallaða sigurför um Evrópu. Þegar Ford Fiesta kom fyrst á markaðinn, var um algjörlega nýjan bil að ræða — ekki aðeins nýtt nafn á gamalli hönnun. Þrátt fyrir það urðu viðtökurnar svo góðar að meira seldist af Fiesta en nokkrum öðrum sam- bærilegum bíl í sögu Evrópu. Annað sölumet ekki síðra fylgdi á eftir. 1 milljón bíla seldist á fyrstu28mánuðunum sem Fiesta var á markaðnum. Astæðurnar fyrir þessum góðu móttökum eru auðfundnar— Ford Fiesta býður upp á einstakt samspil sparneytni, öryggis, lítils viðhaldskostnaðar og fallegs útlits. Ef þú ert að hugleiða kaup á nýj- um bil, væri þá ekki rétt að líta á Ford Fiesta, og kynnast hinum ótalmörgu kostum, sem Fiesta hefur upp á að bjóða? Sýningarbílar eru alltaf til staðar og að reynsluaka nýjum Ford Fiesta kostar ekki neitt. Ford Fiesta.örugglega bíll fyrir flesta. SVEINN EGILSS0N HF FORD HUSINU SKEIFUNNI 17 SIMI 85100 FORD FIESTA er boðin I tveim gerðum: Fiesta 1100 L og Fiesta 1100 Ghia Eftirfarandi útbúnaður er í báðum þessum gerðum: • Vél 1117 cc 53 hö din • Framhjóladrif, 4ra hraða gírskipting • Tannstangarstýri • Diskahemlar að framan • Aftursæti, sem hægt er að leggja fram og auka þar með farangursrými • Framsæti með stillanlegum bökum og höfuðpúðum • Tau-áklæði á sætum • Þurrka og rúðusprauta á afturrúðu • 3 dyra • Upphituð afturrúða • Tveggja hraða þurrkur og miðstöð Ford Fiesta eyddi aðeins 5.3 lítrum á 100 „ km í sparaksturskeppni BIKR 13. maí s.l. á nokkrum árum lækki oliu- reikningurinn um nálega þriðj- ung eða um heila 20 miljarða miðað við núverandi verð- lag. Þessar tillögur Hjörleifs eru i nokkrum þáttum: 1. Húshitunaráætlun.Með þvi að útrýma oliukyndingu húsa, með betri einangrun og lækkuðu hita- stigi i oliukyntum húsum, betri hitakerfum og bættri hönnun húsa er unnt að minnka oliureikning- inn um 10 miljarða króna á fá- einum árum. 2. Svartoliuvæðing fiski- skipa. Með þvi að skipta úr gas- olíu yfir i svartoliu á skuttogara- flotanum er talið að kleift sé að spara um Smiljarða króna. Þá er ótalinn sá möguleiki að skipta yfir i svartoliu strandferða- skipum íslendinga, og jafnvel skipum Eimskips, sem kaupa ætið einhvern hluta oliu sinnar hér heima. 3. Aðrar úrbætur á fiski- skipum.Með þvi að nýta oliu- eyðslumæla, sem gefa hagkvæm- asta hraðann með tilliti til oliu- eyðslu, má spara um 8% af elds- neytiseyðslu skipa. Með skipu- legri og skynsamlegri stjórnun veiða, og botnhreinsun á skipum, þannig að mótstaða sjávar verði sem minnst, má einnig spara. Nýting kælivatns, bætt hönnun skipa og hagkvæm vélar- stærð valda einnig minnkun oliu- eyðslu. Þessar úrbætur munu samtals spara um 2 miljarða. 4 Samgöngur. Með þvi að stefna - að 5% minnkun á notkun bensins má spara 3 miljarða. Þá er ótal- inn annar sparnaður, sem má örugglega ná fram i samgöngum. Samtals gerir þetta 20 miUjarða minnkun á oliureikningnum. —ÖS r < Blaöauki um orku- sparnað

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.