Þjóðviljinn - 14.07.1979, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 14.07.1979, Blaðsíða 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 14. júli 1979. r BALDUR LÍNDAL efnaverkfrœðingur 1 Blaðauki um orku- sparnað Nýtanlegt gas unnið úr úrgangi Úr úrgangi frá mönnum og skepnum má vinna mik- iö magn af gasi einsog þeim er ef til vill kunnugt, sem stundum þjást af meltingartruflunum. Úr skólpi bæja má til dæmis vinna gas, sem má svo brenna til upphitunar. I óöinsvéum i Dan- mörku eru þannig árlega unnir meira en 1.5 miljón rúmmetra af gasi úr þvi sem ibúarnir senda frá sér. Um þriðjundur gassins er notaöur til aö hita upp gerjunar- tanka þar sem gasiö er myndaö af sérstökum bakterium sem lifa þar sældarlifi. Afgangurinn er notaöur til aö hita upp vatn, sem er svo notað til upphitunar á 600 ibúöum. Annaö dæmi má taka af bónda sem býr á Fjóni. Hann á 40 kýr og 40svin. Hannhefur komið sérupp gerjunarkerfi, sem vihnur metangas úr úrgangnum úr skepnunum. Gasmagnið svarar til 60 litra af oliu á dag, og þaö nægir til að hita upp 300 fermetra hús. Það þarf ekki flókinn útbúnaö til aö vinna gasiö úr úrganginum. Fyrst og fremst er nauðsynlegt aö hafa gerjunartank og gasstreymi. 1 tankinum er settur lifrænn úr- gangur, ss. saur og þvag úr mönnum og sýrum, plöntuleifar, etv. eldhúsúrgangur og siðast en ekki sist nokkrar metan- bakteriur, sem framleiða gasiö. Gerjunartankurinn þarf að vera alveg loftþéttur, þvi súrefni úr andrúmsloftinu eyðileggur metanbakteriurnar. Jafnframt þarf hitastigið aö vera jafnt. t Arkansas i Bandarikjunum er _ mjög stórt hænsnabú sem mun von bráöar nota um 100 tonn af hænsnaskit á degi hverjum, til að framleiða metangas, sem svarar til hvorki meira né minna en 54 þús. litra af bensini. Fyrirtækið notar svo gasiö á vélar bifreiöa sinna, sem eru búnar til að geta brennt metangasi. -ÖS Framleiddi vetni í bíl sinn á stríðsárunum Á stríðsárunum ók ■ maður hér í bæ á bifreið | knúinni vetni. Þessi mað- ■ ur er Baldur Líndal efna- | verkfræðingur og frum- • kvöðull að kísilgúrfram- I leiðslu á islandi með J meiru. Þar sem nú er I hafinn undirbúningur að Z metanólframleiðslu á ís- ■ landi og í undirbúningi ■ framleiðsla á vetni, ein- J hvern tímann, þá var ekki J úr vegi að berja upp á hjá ■ Baldri og biðja hann að ■ greina frá hvernig var að | aka um á vetnisknúnum ■ bíl þegar aðrir keyrðu á | bensíni. | Karbatorinn sprakk _ — Það var á námsárum min- I um snemma árs 1945 aö ég og ■ tveir félagar minir ráku kol- I sýruframleiöslu á Akureyri. ■ Reyndar var ég i smá-hléi frá | námi, og okkur datt i hug aö ■ gera tilraunir með aö knýja bif- m reið vetni. Maður var auövitaö I með hugann við það að eftir ■ striöiö gæti orðið skortur á elds- | neyti og hugsuðum tilraunina ■ sem öryggisatriöi fyrst og I fremst. Nú, viösettum upp smá- , verkstæði á Njálsgötu 112, I ný- I byggingu. Þar hófum við fram- I leiöslu á vetni úr vatni með raf- ! greiningu og þjöppuðum við þvi | inn i stálhylki. Við keyptum sið- ■ an bensinvél til að framkvæma 1 tilraunirnar á, og þær tilraunir ' gengu ágætlega.Næsta skrefiö ■ var auðvitað að reyna þetta i ■ bil. Félagar minir voru þeir Sig- 2 urður Sveinbjörnsson og Björg- 1 vin Friðriksen sem báðir eru ■ vélsmiðir. Sigurður átti bil sem | við prófuðum þetta fyrst á, og ■ fórum við með bilinn upp á Ár- I túnshöfða, höfðum vetniskútana J i aftursætinu og tengdum siðan ■ slöngu með stýriventlum fram i ■ karboratorinn. Nú, við keyröum 2 góðan spöl á þessu, en þar kom I að karboratorinn sprakk og ■ varð þviekki meira úr keyrslu á | þeim bil i bili. ■ Ég var hins vegar ólmur að " halda þessum tilraunum áfram ■ og keypti mér Humber station • bil frá hernum á 4500 krónur og J við settum kúta i þann bil. Við BIll Sigurðar Sveinbjörnssonar. Þessi bill var keyrður nokkurn spöl á vetni I mars 1945, eða þar til karboratorinn sprakk, en þaö var fyrsta tilraun Baldurs Lindals eins og um getur i greininni. (Myndin er i eigu Sigurðar Sveinbjörnssonar véivirkja). keyrðum nokkuð lengi á þessum bil, en eftir striðið tók Elliði Norðdahl hann i sina vörslu, en hann var aðstoðarmaður minn við þessar tilraunir. Geymslan á vetninu — Hvernig gáfust tilraunirn- ar? — Mjög vel, vélin gekk alveg ljómandi á vetninu, en aðal- Vetnisafurðir koma ekki í stað — Hvaða skoðun hefur þú á þeim tilraunum sem nú eru gerðar með framleiðslu á met- anoli og ef til vill vetni i náinni framtið? — Metanólið er mun betra til framleiðslu þar sem ekki eru fyrir hendi þau geymsluvanda- mál sem vetninu fylgir. Ég hef ekki trú á þvi, að vetnisafurðir sem eldsneyti komi alfarið i staðinn fyrir bensin. Þær verða hins vegar ein af mörgum elds- neytisgjöfum sem við munum hafa i framtiðinni. Þó er óliklegt að bifreiðar verða mjög al- mennt knúnar sliku eldsneyti. Ég hef meiri trd á að stærri tæki og vélar verði knúnar þessu, svo sem strætisvagnar, flugvélar og jafnvel verksmiðjur. Þetta elds- neyti er heppilegra til notkunar i sllkum tilfellum en á bifreiðar, sagði Baldur að lokum. — Þig Baldur Lfndal efnaverkfræðingur ók um á vetnisknúðu farartæki á striðsárunum. vandamálið voru auðvitað kút- arnir, sem eru mjög þungir. Þeir eru reyndar eina fyrir- staðan enn þann þann dag I dag, og hefur gengiö illa að leysa það vandamál að koma eldsneytinu fyrir á sambærilegan hátt og bensini er komið fyrir bil. Að visu hefur oröið mikil framför 1 þessu á siðustu árum, og hefur m.a. tekist að koma vetninu i fljótandi form. Annað vanda- mál, sem kom upp hjá okkur, var vetnisstýringin. Við þurft- um algjörlega að handstýra vetninu inn á karboratorinn, ef svo má að orði komast. Þá var alltaf viss hætta samfara þessu, á að karboratorinn springi. Nú hafa hins vegar verið fram- leiddir sérstakir gas-karbora- torar. — Hvers vegna hættuð þið þess- um tilraunum? — Vandamálið meö kútana sem var óleysanlegt á þessum tima dró úr okkur mátt til að halda þessu áfram. — Var vetnið ódýrara I fram- leiðslu en bensinið? — Við hugsuðum þetta aldrei þannig á þessum tima. Ahugi okkar byggðist fyrst og fremst á þvi að gera þessar tilraunir á þeim forsendum að hér væri um að ræða öryggissjónarmið. Ef skortur yrði og skömmtun eftir striðið, mætti ef til vill gripa til eldsneytisframleiðslu I landinu i þessu formi. f Ahugamenn smíða sparneytinn bíl Eyðir rúmum þremur dfeellítrum á hundraðið Orkukreppan hefur hrint margvislegum tilraun- gngau6 sTínnl? ™|SneytnÍ um til orkusparnaðar úr vör. Tveir bilaáhugamenn Perkins diseivéi. aö auki íeiddu sem höfðu áður verið i kappakstursliði Ford bif- j*:lr. hluta af lofttegundum úr reiðaverksmiðjanna bjuggu fynr skommu til nyjan, túrbinuhjói sem snerist og jók afar sparneytinn bil. þrýstinginn við blöndu eldsneytis r J og súrefnis við brunann. Möo. nokkurs konar forþjappa. Sökum starfs sins kringum kappakstursbila vissu þeir gjörla bestu eiginleika hinna ýmsu véla- hluta úr mismunandi tegundum, sem þeir höfðu áður prófað. Þess- um eiginleikum komu þeir saman i eina vél, gerðu ýmsar breytingar á útliti grindarinnar Þegar upp var staðið kom i ljós að billinn notaði innan bæjar ekki nema um 5 litra af dlseloliu á hundraðið og i hraðbrautarakstri Billinn, sem fyrrum kappakstursliðar Ford-bilaverksmiðjanna smlð- uðu. ekki nema rúma þrjá. Hröðunin var frá 0 — 95 km/klst á 17 sek- úndum og hámarksharði rúmlega 160 km/klst. Til dæmis um sparnaðinn sem myndi fylgja notkun bilsins má nefna, að kostnaður við för hans milli Reykjavikur og Keflavikur og til baka aftur, yrði ekki nema um 330 krónur miðað við islenskt verðlag. Sama vegalengd á nýj- um, sjálfskiptum átta strokka Blaser sem eyðir 22 bensinlitrum á hundraðið kostar hins vegar fimmtánfalt meira, eða rúmar 5 þús. krónur. (Heim.: Newsweek). —Ö.S.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.