Þjóðviljinn - 14.07.1979, Page 5
Laugardagur 14. júll 1979. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA S
aðrar fá ekki hjá Flugleiöum h.f?
Þjarmað að okkur
Fá sumar ferðaskrifstofur ivilnanir sem
Samþykkt stjóma sambanda lífeyrissjóðanna
Verötrygging lána
2% vextir og jafnari afborganir, meöal
tillagna sambanda lífeyrissjóðanna
Stjórnir Landssambands
llfeyrissjóða og Samband
almennra lifeyrissjóða hafa lagt
tilaðfróogmeð 1. september n.k.
verði öll lán lifeyrissjóðanna
lánuð út gegn fullri verðtrygg-
ingu, veictir verði 2% og lánstím-
inn 25 ár.
Eins og greint hefur verið frá i
Þjóðviljanum var skipuð nefnd á
vegum Sambands almennra
llfeyrissjóða og Landssambands
llfeyrissjóða til að taka afstöðutil
tilkynningar frá Seðlabanka
Islands frá þvi I lok mai, um að
heimilt sé að miöa verðtryggingu
lánsfjár og sparifjár við visitölu
sem birt var 10. april s.l. ásamt
vaxtakjörum.
Nefnd þessi lauk störfum i
byr jun þessa mánaðar og hafa nú
stjórnir lifeyrissjóðssamband-
anna tekið afstöðu til tillagna
hennar. Niðurstöður nefndar-
innar voru þær að lifeyrissjóð-
irnir veiti framvegis lán gegn
fullri verðtryggingu. Höfuðstóll
skuldabréfanna hækki í hlutfalli
við breytingar á lánskjaravisi-
tölu, sem Seðlabankinn auglýsir
mánaðarlega. Vextir verði 2% á
ári eftirgreiddir og breytilegir
samkvæmt ákvörðun Seðlabank-
ans. Lánin verði veitt á þeim
kjörum að afborganir verði
jafnar og stefnt skal aö þvi að
lánsti'minn verði 25 ár.
t áliti nefndarinnar er þess
einnig getið að lántakendur eldri
lána verði gefinn kostur á að
breyta lánsskilmálum sinum i
samræmi við hinar nýju
reglur. Slik heimild skal þó eigi
veitt nema eftirstöðvar láns nemi
eigi lægri fjárhæð en 1 miljón
króna. Þá er að lokum i áliti
nefndarinnar lagt til að breyt-
ingar þessar taki gildi 1. septem-
ber n.k. og jafnframt lögð á það
áhersla að sambærileg lánskjör
verði tekin upp hjá öllum lífeyris-
sjóðum i landinu, til að koma i
veg fyrir núverandi misræmi I
þessum efnum.
í fréttatilkynningu frá li'feyris-
sjóðasamböndunum segir að
stjórnirnar séu i meginatriðum
sammála niðurstöðum nefndar-
innar en munu senda greinar-
gerðina til aðildarsjóða
sambandanna með ósk um
athugasemdir og ábendingar. Þá
telja stjórnirnar að afstaða til
nýrrar stefnu i ávöxtunarmálum
lifeyrissjóðanna hljóti að taka
mið af túlkun stjórnvalda um
meðferð veröbóta og visitölu-
hækkana eftirstööva lifeyris-
sjóðslána gagnvart frádráttar-
bærni til skatts og að eftir þeirri
túlkun verður leitað. —Þig
Oliuveröhækkanir og gengisbreytingar nær tvöföldudu
fargjaldid með Funchal
Flestir afþöntuðu
Sunna svarar fyrir sig
Fjölmargir af þeim liðlega 300
manns sem bókaðir voru á vegum
Ferðaskrifstofunnar Sunnu með
skemmtiferðaskipinu Funchal
hafa breytt bókunum sinum i
aðrar ferðir eða faigið endur-
greitt það sem þeir höfðu greitt
inn á. Heftir farþegum af þessum
sökum fækkað svo mikið að ekki
er lengur grundvöllur fyrir þvi að
taka skipið á leigu nema með þvi
móti að þeir fáu farþegar sem
eftir eru yrðu þá að borga gifur-
lega háar upphæöir i fargjald.
Þetta kemur m.a. fram í
tilkynningu sem ferðaskrifstofan
Sunna hefur sent frá sér vegna
skrifa i fjölmiðla um að ferð með
umræddu skemmtiferðaskipi falli
niður vegna þess að Sunna hafi
ekki staðið við gerða samninga.
I fréttatilkynningunni er greint
frá þviað Sunnahafitekið skipið,
sem er portúgalskt, á leigu s.l.
október með bráðabirgða-
samkomulagi við griskan skipa-
miðlara, en Porúgalarnir höfðu
hvatt til að skipið yrði leigt i
gegnum sænska aðila. I janúar
s.l.kom hins vegar upp deila milli
sænsku aðilanna og þeirra grisku
annars vegar og útgerðar skips-
ins hins vegar, en Portúgalarnir
vildu að Sunna leigði skipið beint
af þeim, án milligöngu miðlar-
anna. 1 deilunni kom i ljós að Svi-
arnir töldu sig hafa skipið á leigu
til 18. ágúst og vildu ekki gefa það
eftir. Sunna tók þá ákvörðun að
eiga viðskipti beint við Portúgal-
ana án milligöngu.
1 fréttatilkynningu Sunnu segir
ennfremur, að nýlega hafi Portú-
galarnir komið að máli við ferða-
skrifstofuna með kröfu um
hækkun á leiguverði skipsins
vegna oliuverðhækkananna sem
hefði þau áhrif að fargjaldið
hækkaði um 42%. Þá bætist við
það 14% hækkun vegna gengis-
breytinga. Fargjaldið yrði þvi
rúm miljón fyrir manninn I stað
650 þúsund eins og áætlað hafi
verið.
Margir farþegar, segir i frétta-
bréfinu, höfðu fylgst með þessum
hækkunum öllum og höfðu þvi af-
pantað ferðir með skipinu, það
margir að Sunna varð að aflýsa
ferðinni.
Þjóðviljinn hafði samband við
Guðna Þórðarson forstjóra ferða-
skrifstofunnar Sunnu og innti
hann eftir þvi hvort rétt væri að
Sunna hafi ekki staðið við gerða
samninga og ekki látið far-
þegana, sem höfðu átt pantað far
vita hvernig málum væri komið.
Guðni sagði að frá hendi Sunnu
væri málið skýrt i fréttatilkynn-
ingunni, sem vitnað er I hér að
ofan. Varðandi sambandsleysið
við farþegana sagði Guðni að
ástæðurnar fyrir þvi að ferðin var
ekki farin, væri sú að farþegar
hefðu fengið upplýsingar um
verðhækkunina og þvi af-
bókað. Þeim farþegum sem ekki
hefðu aflýst ferðinni, hefði Sunna
nú sent bréf, þar sem þeim er
greint frá málavöxtum. Jafn-
framt er þeim boðið upp á i stað-
inn, að fá sólarlandaferð strax,
endurgreiðslu innborgunar-
innar, inneign hjá ferðaskrifstof-
unni fyrir Kanarieyjaferð næsta
vetur eða taka 15 daga skemmti-
ferð með skemmtiferðaskipinu
Britanis frá Amsterdam 1.
september n.k. 1 þessari ferð yrði
fariðtil hafna á Norðurlöndum og
við Eystrasalt. Verð þessarar
ferðar með flugfari til og frá
Amsterdam væri svipað áætlaða
verðinu með Funchal, þ.e. 650
þúsund.
—Þig
Sumarsýning Norræna hússins opnar I dag. Frá vinstri: Hrólfur
Sigurðsson, Þórdis Þorvaldsdóttir, Hafsteinn Austmann og Gunn-
laugur Þórðarson.
Norrœna húsið
Sumarsýning
1 dag verður opnuð i
kjallara Norræna hússins sumar-
sýning á verkum Gunnlaugs
Scevings, Hafsteins Austmann og
Hrólfs Sigurðssonar.
Hér er um meiriháttar listvið-
burð að ræða þvi flestar mynda
meistara Gunnlaugs hafa ekki
áður verið sýndar opinber-
lega. Þær eru úr einkasafni
Gunnlaugs Þórðarsonar sem
lánar þær á þessa sýningu. Elsta
myndin er frá þvi um 1930 en
meðal annars getur þar að líta
myndir frá Grindavlkurskeiöi
Gunnlaugs.
Þá ereinnigorðið langt um liðiö
frá þvi að Hrólfur Sigurðsson
hefur sýnt svo mörg verk, hann
hélt siðast einkasýningu 1963, en
hefur siðan tekið þátt I fjölda
samsýninga heima og er-
lendis. Hann gat þess að allar
myndirnar utan tvær væru nýjar
og hafa ekki sést áður á sýn-
ingum.
Hafsteinn Austmann er yngstur
þeirra þriggja og einnig hann
sýnir ný verk. Hann hélt einka-
sýningu i vetur er leið og hefur
tekið þátt i fjölda samsýninga.
A sumarsýningunni eru þrjár
kynslóðir málara og þrjár
stefnur, hver með sinu móti og
ætti sýningin að gefa Islending-
um sem útlendingum mynd af
viðfangsefnum islenskra mál-
ara. Sýningin stendur til 19.
ágúst og er opin daglega frá kl.
4-10. —ká
segir Guðni í Sunnu
• 4 hjóla drif • Þriggja dyra
I samtali sem Þjóðviljinn átti
við Guðna i Sunnu vegna
Funchals-málsins var Guðni
inntur eftir þvf hvort rétt væri að
Flugleiðir h.f. hefðu tekið fyrir
greiðslufrest til ferðaskrifstof-
unnar.
Guðni sagði að viðskipti sin við
Flugleiðir væru með eðlilegum
hætti. Hins vegar væri vissulega
verið að þjarma að ákveðnum
aðilum, sem ættu i flutningum
eins og ferðaskrifstofum, með
ákveðnum undan-
tekningum. Sumar ferðaskrif-
stofur geta selt ferðir þar sem
aðeins eruborguð 18% inn á ferð-
ina, þ.e. mörgdæmi væru um það
að i ferð sem ætti að kosta 250-450
þúsund þyrfti ekki að greiða
meira úten 40þúsund, þ.e. 10-20%
útborgun. „Gaman væri að vita
hvernig þessar ferðaskrifstofur
fara að þessu,” sagði Guðni.
— Stundið þið þá ekki slikan
viðskiptamáta?
— Þaðgerum við ekki og höfum
aldrei gert. Ég skil ekki hvernig
sumir geta þetta. Annaðhvort
eruþeir þaðrikir eða þáað þeir fá
einhverja fyrirgreiðslu hjá Flug-
leiðum sem aðrir fá ekki, sagði
Guðni að lokum.
—Þig
• Fjórsidrif
• 4 cyl. 86 ha
• Hátt og lágt drif
• 16" felgur
• Lituö framrúöa
• Hituð afturrúða
• Hliðarlistar
• Vindskeið
Verð ca. kr.
4.400
Bifreiðar & Landbúnaðarvélar hf
Suðurlandsbraut 14 — Reykjavik — Simi 38600