Þjóðviljinn - 14.07.1979, Side 6
6 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 14. jiilt 1979.
Sumarferð Alþýðubandalagsins á Vestfjörðum
Um Jökulfirði og Djúp
Geysileg þátttaka var I hinni árlegu sumarferö Alþýöubandalagsins
á Vestfjöröum, sem farin var helgina 30. júni til 1. júli, og komust
færri meö en vildu. Þaö voru 180 manns sem héldu meö Djúpbátnum
Fagranesi noröur 1 Jökulfiröi. Siglt var aö Hesteyri, og leifar slldar-
verksmiöju Kveldúlfs þar baröar augum.Þá var fariö í Veiöileysufjörö,
hvar enn liggja stórar f annir i f jöllum og allt til sjá var.
Þótti mönnum heldur kuldalegt um aö litastog litt byggilegt. Var siö-
an siglt aö Flæöareyri, farangur og fólk flutt i land og tjöldum slegiö.
Um kvöldiö var stiginn dans i samkomuhúsi Grunnavikurhrepps viö
harmonikkuspil Jörundar Garöarssonar frá Bildudal.
A sunnudaginn fór hluti hópsins i siglingu um Aöalvik, Rekavik bak
Látur ogFljótavik aö Kögri, undir leiösögn Gisla Hjartarsonar frá Isa-
firöi. Annar hópur fór gangandi inn Leirufjörö, sumir aö jaöri Drangat-
jökuls en aörir hlupu allar götur I Hrafnfjörö og lásu blóm af leiöi
Fjalla-Eyvindar.
Vegna oröróms um isbjarnarspor á Hornströndum þótti vissara aö
senda vopnaöa veröi meöhópnum, en ekkiuröu menn varir viö bangsa.
Þeir sem eftir uröu viö tjöldin lágu i leti eöa gengu styttri leiöir aö ná-
lægum eyöibýlum, Dynjanda og Höföa.
Um klukkan 6 á sunnudagskvöld voru tjöldin felld og haldiö heim.
Strandamönnum og Djúpmönnum var skilaö að Bæjum I Djúpi en ferö-
inni lauk á ísafiröi um miönætti þó aö sumir ættu þá eftir 6-8 tima akst-
ur heim.
Þ.P.
Yngsti þátttakandinn
Foringinn skráir heimtur.
Setiö þar sem sætt er. Fagranesiö fullsetiö
Strandamenn og Djúpmenn slást i hópinn
Fólk og farangur flutt I land.
CITROÉN
Citroen — Sparneytni
Þegar minnst er á Citroén detta manni fyrst i hug þægindi,
öryggi og að sjálfsögðu sparneytni.
Enginn annar bill hefur t.d. oftar unnið
sparaksturskeppnina hér á landi.
Eigum fyrirliggjandi nokkrar bifreiðar af G.S. og CX tegundum.
Hafið samband við sölumenn okkar i sima 81555.
G/obus?
LA(..MUir> SIMÍ
Fræknar skyttur, Tryggvi Guömundsson og Þorsteinn Magnfreðsson,
tilbúnar í bangsaslaginn.
Hetjan og björninn
Það bar við um þessa helgi aö maður sást á ferö i Leirufiröi og
fór mikinn. Þótti þeim er til sáu mikið til um hvatleik mannsins
og minntust þess eigi að hafa áöur séö svo mikil hlaup.
Hvarf svo náungi þessi sjónum bak viö leiti og var fariö aö
grennslast fyrir um hvaö hlaupunum olli. Sást þá hvit kind,
kollótt, meö tveim lömbum koma i humátt á eftir hlauparanum.
Höfðu menn þaö fyrir satt að hann hefði séð i ferfætlingi þess-
um, sauömeinlausum, imynd heimskautabanga. þ.P.