Þjóðviljinn - 22.07.1979, Page 9

Þjóðviljinn - 22.07.1979, Page 9
Sunnudagur 22. júll 1979. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9 Meulenberg. — Hann sagöi aö yfir tslandi væri himinninn alltaf blár Aöur stúö á Landakotstúni timburkirkja sem flutt var inn frá Noregi, í ip ííHíé; • iíl 111 !i?ÍS3| ÍHi P upp mikla umræöu um afstöðu kirkjunnar til stjórnmála og fé- lagslegra vandamála. Hvert er yðar álit? — Ég verð að játa mig lítt fróð- an um þessi mál, þótt ég hafi að sjálfsögðu reynt að kynna mér þau. Mér sýnist að i Suður-Ame- ríku hafi páfi fyrst og fremst reyntað fara meðalveg. Hann tók afstöðu gegn frelsunarguðfræð- inni, sem leggur höfuðáherslu á þátttöku i þjóðfélagsbaráttu og ég held það hafi verið rétt, þvi að talsmenn frelsunarguðfræðinnar hafa viljáð ganga mjög langt, og hætta á sundrung i kirkjunni var mikil t.'d. i Brasiliu. En ég tel lika, að frelsunarguðfræðin hafi sprottið af raunverulegri þörf vegna þess misréttis sem við- gengist hefur, og ég tel ekki að gagnrýni páfa á þessa strauma þýði, að hann sé að taka máli kapitalisma eða eitthvað i þá veru, eins og sumsstaðar hefur verið skrifað. Það sem svo gerðist i Póllandi er eiginlega enn dularfyllra fyrir mér og maður þyrfti að þekkja ástand mála i smáatriðum tíl að geta urn það fjallað. Sjálfur þekkti ég ekki Wojtyia kardinála áður en hann varð páfi, nema hvað mér var kunnugt um að hann var mjög atkvæðamikill á Vatikanþinginu og mikill skör- ungur yfirleitt. En nú var ég að lesa eina af bókum hans, sem heitir „Um ást og hjónaband” og sé mér til ánægju og undrunar, að hann er fræðimaður ágætur, hinn lærðasti maður. — AB Frelsunarguð- frœðin spratt af raunverulegri þörf IListin að bíða Mikiö hefur veriö rætt og ritaö um Tigran Petrosjah, fyrr- verandi heimsmeístara. Meöal leikmanna er honum iöulega lýst sem ákaflega litlausum skák- manni, jafntefliskéngi eöa hræöslupúka. Þegar Petrosjan vann Askorendamótiö 1962 og ávann sér um leiö rétt til aö skora á heimsmeistarann Botvinnik, áttu menn varla orö til aö lýsa undrun sinni. Allir höföu veöjaö á Tal, Fischer, Keres eöa jafnvel Geller. Petrosjan kom alls ekki til greina. Þegar skákir jafntefliskóngs- ins voru hinsvegar skoðaðar fóru að renna á menn tvær grlmur. Það var ekki nóg með að Petrosjan hafi farið taplaus gegnum mótið heldur komst hann aldrei i hina minnstu tap- hættu. Arin liöu og ætíð var hinn hægláti still Tigrans sá sigur- sæli. Heil 6 ár liðu þar til loks tókst að velta honum úr sessi. Siðan hefur litið breyst. Petrosjan tekur enn þátt i mótum með góðum árangri og það vekur ætið athygli er hann tapar skák. Eitt af aðals- merkjum góðs skákmanns er þolinmæði og hana hefur Petrosjan i rikum mæli og ófáir eru þeir sigrar sem hann hefur unnið svo til eingöngu með þvi að biða eftir frumhlaupi andstæðingsins. Að sjálfsögðu fer ekki alltaf svo að andstæðingurinn missi þolin- mæðina en hin dæmin eru mörg og m.a.s. frá skákmönnum i fremstu röð, Bobby Fischer gerði þessari taktik „Petrosjans skil I bók sinni „60 minnisstæðum skákum”. A millisvæðamótinu i Portoroz 1958 tefldu þeir eina allra lengstu skákina á mótinu. Fischer hafði svart og fékk snemma lakara tafl, þó ekki svo að það væri tapaö. Við skulum glugga niður I einn hluta þessarar skákar og sjá Jivað Fischer hefur til málanna að leggja i áður- nefndri bók: 36... Rg8? 36... óöagot sem gefum honum tækifæri sem hann hefur lengi beðið eftir, þ.e. aðleika — b4 á þvi augnabliki þegar svartur getur ekki andæft með — axb4 og — Ha8. Petrosjan vill hvenær sem færi gefst leika sér að andstæð- ingnum eins og köttur að mús. Vonar að honum verði á fótaskortur þegar ekkert sér- stakt er á seyði. Það merkilega er að, flestir falla beint i þann fúla pytt. Hér að framan er eitt dæm- ið! Taflinu mátti halda með t.d. 36. — Ha8 37. Bh5 Hc8. Hel Kf6 og ef 39. Re6 þá 39 — c8. 37. b4 Rf6 38. Bd3! axb4 39. axb4 Kg6 40. Hal! (Nú er ljóst hvað er áunnið. Svartur berst fyrir lifi sinu en á jafnteflinu tókst Fischer að hanga eftir frækilega vörn.) Annað dæmi mátti sjá á Olympiumótinu i Nozza 1974 i viðureign Sovétrikjanna og Bandarikjanna: Stööumyndin er úr skák Petrosjans (hvitt) og Browne. Eins og sjá má hefur Petrosjan heldur rýmra tafl, en það orkar tvimælis hvort það dugir til vinnings. Petrosjan á leikinn: 20. Kfl!! (það er i sjálfu sér ekkert stór- kostlegt við þennan leik sem rétt- lætir upphrópunarmerkin en hins vegar er árangur hans svo stór- kostlegur að hann jaðrar viö heimsmet.) 20.. .KÍ8 21. Kel ( Kóngurinn er þá kominn til el i tveimur skrefum i staðinn fyrir eitt. Það vefst þá væntanlega ekki fyrir neinum að 20. Kfl var hreinræktaður biðleikur, leikur sem greinilega reyndi mjög á þol- inmæðina hjá Browne þvi nú brást hún heiftarlega.) 21.. . b5?? 22. Rd5! (Nú er rétti timinn fyrir þennan leik. Hvitur mátti vitaskuld ekki leika 22. cxb5 vegna 22. — Bxb5.) 22.. .. Bxd5 23. Hxd5 bxc4 24. Hxa5 c3 (Arangurinn með biðleiknum verður deginum ljósari. Ef 24. — cxb3 þá 25. Hxc7 Hxc7 26. Ha8+ og nú væri svarti kóngurinn betur staddur á g8!) 25. b4 Hb8 26. a3 e6 27. Bd3 Re5 28. Ke2 Rc6 29. Ha6 Ke7 30. b5 (Endataflið er að sjálfsögðu vitavonlaust fyrir svartan.) 30.. . Rd4 + 31. Rxd4 Bxd4 32. a4 Hcb7 33. Bc4 f5 34. Kd3 Be5 35. h3 Kf6 36. a5 Hxb5 37. Bxb5 Hxb5 38. Ha2! (Hrókurinn á bak við friðeðin er „móttóið” I hróksendatöflum.) 38.. . d5 39. exf5 Kxf5 40. Hb6 Hc5 41. a6 og Browne lagði niður vopnin. Sumarráðsteina Sumarráðstefna SÍNE verður haldin i Fé- lagsstofnun Stúdenta við Hringbraut sunnudaginn 29. júli n.k. kl. 14.00. Fundarefni: 1) Skýrsla stjórnar og fulltrúa SINE i stjórn LÍN. 2) Stjórnarskipti. 3) Kjör fulltrúa i stjórn LIN og i sam- bandsstjórn ÆSl. 4) önnur mál. Fundargögn munu liggja frammi á skrif- stofu SÍNE frá og með 26. júli n.k. Skrifstofu og Sölustarf Viljum ráða starfsmenn i eftirtalin störf sem fyrst. 1. Starf við útflutningspappira. Samvinnuskóla eða hliðstæð menntun æskileg. 2. Sölustarf. Reynsla af starfi i matvöruverslun æskileg. Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf berist starfsmannastjóra fyrir 27. þ.m. ^ SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA KR - HAUKAR Á LAUGARDALSVELLI (EFRI), KL. 20.00 KL. 20.00

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.