Þjóðviljinn - 22.07.1979, Qupperneq 11

Þjóðviljinn - 22.07.1979, Qupperneq 11
Sunnudagur 22. júll 1979. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11 hefur bannað eru: Frimúrarar, Oddfellows, og Good-Templars. Varastu þvi að gjörast meðlim- ur í nokkru sliku fjelagi, þvi að þá ert þú ekki lengur kaþólskur, og getur ekki, á meðan þú ert meðlimur sliks fjelags fengið hin heilögu sakramenti á dauða- stundu þinni, nje heldur getur þú eftir dauðann fengið kirkju- lega greftrun...” Þetta leizt mér nú rétt svona og svona á, þvi aö ág var siálfur starfandi i gútemplarastúku á þessum ár- um. — Sömuleiðis tók pastorinn okk- ur vara fyrir að lesa vondar bækur, að sjálfsögðu. Við leidd- um talið að Halldóri Kiljan. Hann vildi meina að Kiljan væri bráðvelgefinn maður, en skrif- aði ekki góðar bækur. Mér heyrðist hann segja „ógurlegur höfundur”, en þegar ég hváði: „óguðlegur höfundur”. Sérstak- íega mæltisthann til þess, að við læsum ekki eina af bókum þessa höfundar, Alþýðubókina. Ég þarf varla aö taka þaö fram, að ég fór strax upp á Landsbóka- safn daginn eftir og las. hana spjaldanna á milli, sumt marg- sinnis. Siðast frétti ég það af pastor Boots þar sem ég var staddur i millilandaflugvél i fyrravor, að hann sæti nú i hárri elli suður i Hollandi, og til viðbótar að það hefði glatt hans gamla hjarta fyrir rúmu ári eða svo að fá sent litið ljóðakver eftir mig — þar sem birt er gamalt kvæöi um hann sjálfan. Hann hafði vist haldið, að allir á hinu fjar- læga Islandi væru búnir að gleyma sér. En þvi fer auðvitað fjarri. Þeir eru enn margir sem muna séra Gerhard Boots og kunna að meta starf hans hér, m.a. þær ágætu tungumála- kennslubækur sem hann samdi. Hann var hámenntaður maður og vel lesinn; það má mikiö vera, ef hann hefur sloppið viö það um ævina að opna eina og eina synduga bók. Aður en ég hvarf af þessum slóðum á göngu minni sl. sunnu- dag leit ég að sjálfsögðu inn i kirkjuna. Hún stendur alltaf öll- um opin, tákn náöarfaðmsins. En í timans rás hafa orðið nokkrar breytingar á þessari kirkju, sem orka kunna tvi- mælis og ekki verða raktar hér, þvi að þetta sundurlausa mál er þegar orðið miklu lengra en þvi var ætlað, og bezt að nema stað- ar að sinni. Þann dag sem þessi grein kemur fyrir almenningssjónir eru liðin fimmtiu ár frá vigslu- degi Dómkirkju Krists konungs, eins og hún heitir réttu nafni. Ekkert man ég frá þeim degi, og þó var það sá merkisdagur i minu eigin lifi að ég var búinn að afplána réttan hálfan áratug af minni jarðvist; hinsvegar man ég mætavel eftir jarð- skjálftanum daginn eftir, lik- lega þeim fyrsta sem ég lifði, einkum óttasvipnum á fólki og viðbrögðum þess. En þó svo að mánudaginn 22. júli 1929 stæði Rómarkirkja mjög i sviösljósi hér á suð- vesturhorni landsins, þá sá Almættiö jafnframt fyrir þvi, að Lúter fengi sitt — og jafnveí heiðindómurinn. Hjónum norð- ur i Skagafirði fæddist sonur, sem var vatni ausinn og látinn heita eftir hinum hvita ás. I fyll- ingu timans gerðist sveinninn prestur. Og nú hefur góðkunn- ingi minn séra Baldur Vilhelms- son setið Vatnsfjarðarpresta- kall með sóma og sann um ára- tugi, og ekki nema viðeigandi að ég sendi honum heillakveöju i tilefni dagsins svona i framhjá- leiðinni. 18/7 1979. Reið- hjól seljast eins Qg. heitar fW JyÉ m SœB - ;:JS% m lummur Nú er mikið að gera i reiðhjóla- verslunum eftir tollaafnámiö, sem lækkar verð á reiðhjólum um amk. 30%. Það er margs að gæta þegar reiðhjól eru keypt, en það sem þó skiptir kannski mestu máli er að hjóliö sé hvorki of stórt né of lítið. Til dæmis er mjög hættulegt aö láta börn fá of stór hjól, sem þau ráða ekki vel við. Fjölskylduhjólin svokölluðu hafa ýmsa kosti, m.a. þann að hægt er að taka þau i sundur og setja t.d. i bflskott. t Fálkanum fengum við þær upplýsingar að góð full- orðinshjól kostuðu frá tæpum 90 þúsund krónum, en barnahjólin kosta 33.900, 46.800, 82,500 og 114.350 eftir stærðum. örninn átti von á hjólasendingu þegar við höfðum samband við verslunina, en endanlegt verö var ekki komiö á hjólin. Worchersterhire- sósa á 137 krónur Þessi eöla sósa hefur tilheyrt matartilbúningi breta um langan aldur, og þykir ómissandi með ýmsum réttum't.d.fleski, eggjum, bökuðum baunum o.fl. Hún er lika mjög góö i kryddlegi á kjöt sem á aö steikja, i sósur, súpur, kjötrétti og með hrisgrjónarétt- um. Sú ódýrasta sem ég hef rekist á fæst i KRON við Stakkahlíð, kostar 137 krónur og er frá Hol- brooks. Bœtiefni í sólarleysinu Enda þótt menn greini nokkuö á um nauðsyn vitamina i töflu- formi, er flestir sammála um að það getur veriö nauðsynlegt að bæta sér upp sólarleysi og litla útiveru með þvi að taka vita- mintöflur. Alhliða næringarrik fæða er auðvitað skilyrði fyrir likamlegri hreysti, en þegar Þeir voru margir sem komu að lita á nýju hjólin I Fáikanum. örninn átti von á s.l. viku, og var megnið af þeim upppantað. rigningin heldur fólki inni vikum og jafnvel mánuðum saman, veit- ir ekki af að hressa sig við með t.d. lýsi og C vitamini. Heilsufar bæjarbúa ku vera heldur bágbor- ið i sumar og margir sem kvarta undan sleni, svefni og þreytu. Lýsið er eitt ódýrasta og besta bætiefnið sem við eigum völ á en Ufsalýsið kostar 400 krónur og • Þorskalýsið 393. (Frá Rekord) Hvort tveggja inniheldur mikið magn af A og D vitaminum, en Ufsalýsið þó meira, og þvi þarf minna af þvi. Margir hafa tröllatrú á stórum skömmtum af C vltamini. Hægt er að fá stórar bragðgóðar hjólum á nýja veröinu I „tyggitöflur” frá Dansk Droge Import á 833 krónur, en hver tafla inniheldur 500 mg. af ascorbinsýru. Þessar töflur eru einkum góðar fyrir börn þar sem þær eru svo bragögóðar, en þær innihalda 1. g af sykri hver. Þær fást viða, t.d. i mörgum KRON verslunum. ÞAÐER VISSPASSI! Ný bók um Morgan Kane Prenthúsiö hefur gefiö út fimm- tándu bókina i fiokknum um Morgan Kane. Bókin ber nafniö „MiIIi heims og helju" og fjallar um það, er hetjan Morgan Kane er aö ná sér eftir skotbardaga, og lætur hugann reika til „þeirra æsilegu atburða, sem leiddu til þess aö hánn varö aö velja milli gálgans eöa stjörnunnar” eins og segir I fréttatilkynningu frá út- gefanda. 1 fréttatilkynningunni segir aö flokkurinn um Morgan Kane hafi náð vinsældum lesenda, enda greina „bækurnar frá viðureign hans við harösvirustu glæpa- flokka vestursins,” og „meö snarræði sinu og hörku sýndi hann og sannaði að hann væri of- jarl þeirra á öllum sviöum”. Svo mörg voru þau orð. Bókin er 128 bls. og kostar 1475 i krónur með söluskatti. —ÖS i í l I í Vísir er smekkiegt og lifandi blað sem er í takt við ólíkustu strauma hvunndagsins svo ekki sé talað um helgarblaðið. Pólitík, kvikmyndir, myndlist, leiklist, umhverfi, bókmenntir o.m.fl. fá öll sína umfjöllun. Með áskrift að Vísi losnar þú við óþarfa hlaup og vesen en færð blaðið borið inn á gafl til þín stundvíslega dag hvern. Það er viss passi.Sendu seðilinn til Vísis Síðumúla 8 eða hringdu í síma 86611 og við sjáum um framhaldið. / Ég óska eftir að gerast áskrifandi að Vísi \ vlsm ...og segir rétt íiá!

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.