Þjóðviljinn - 22.07.1979, Blaðsíða 21

Þjóðviljinn - 22.07.1979, Blaðsíða 21
Sunnudagur 22. júli 1979. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 21 Börnum Framhald af bls. 24. son sinn sem sat og skoðaði Andrésblaö hvort hann langaöi ekki að læra að lesa. Hann svar- aði afdráttarlaust Nei. Af því að þá mundi hann ekki vita hvort hann ætti að trúa textanum eða því sem myndin sýndi. Þannig er myndin aðfáofurvaldyfir orðinu. Þörfum barna ekki sinnt Töluvert var rætt um skólann og einn fyrirlesarinn hélt þvi fram að hann hefði brugðist að mörgu leyti. Hann hefur nánast eingöngueinbeittsér að lestri, en hvað varðar túlkun mynda, tal og lifandi sköpun hefur hann ekki sinnt sinu hlutverki. Það kom fram sú gagnrýni að föndriö og sköpunarstarfiðsemnúfer fram i skölunum sé i raun aðeins fram- hald á þvi sem áður var, börnun- um sé afhent ákveöið verkefni og sagði að búa til þetta eða hitt, alveg eins og okkur var sagt að teikna sveitabæ hér áður fyrr. | Sköpunargáfan og imyndunarafl- ið fá ekki að njóta sin. I einu erindanna kom fram að 15% bóka sem gefnar eru út i' Svi- þjóð eru barnabækur, en 50% af útlánum bókasafna fer til barna. Þarna er mikið misræmi og þörf- um þeirra er ekki sinnt sem skyldi. I framhaldi af þessu vaknar spurningin um framlag opinberra stofnana eins og leikhúsa, út- varps og sjónvarps til barna- menningar hér á landi. Viö verð- um að viðurkenna að þaö er harla litið miðað við mikilvægi þess að bjóða börnum upp á gott efni. i Þess má geta að hjá fjölmiðlum hér er aðeins einn fastráöinn starfsmaður sem sér um barna- efni. Það sýnir kannski betur en flest annað hvern hug ráöamenn bera til barna og þarfa þeirra. Kanasjónvarpið sáluga Jakob fjallaði i erindi sinu um aðstæður á tslandi. Hann sagði I ma. frá könnun þeirri sem Simon Jóh. Agústsson gerði um miðjan siðasta áratug á börnum og bók- I um. Þar kannaði hann m.a. börn sem horfðu á Kanasjónvarpið og kom fram að þá höfðu 38% barna á höfuðborgarsvæöinu aðgang að sjónvarpi, meðan ekki var starf- rækt islenskt sjónvarp. Þessi frá- sögn vakti mikla athygli ráð- stefnugesta sem undruðust að islensk stjórnvöld skyldu leyfa hermannasjónvarp inni á heimil- um landsmanna og innflutning á tækjum. Jakob fjallaði einnig um fjöl- miðlamenningu hér og benti á þann átrúnað sem tónlistarmenn njóta meðal barna og könnuðust ! margir við þaö fyrirbæri. A Norðurlöndum reyna opin- berir aðilar að skapa mótvægi við auglýsingaskrumsmenninguna með þvi að bjóða upp á annars konar efni. Það er eitthv aö annað en hér, þar sem t.d. sjónvarpið gengst upp i að auglýsa hljóm- plötur og ýta undir halla-ladda - menninguna. Ein ágæt kona á ráöstefnunni sagði að það væri alveg óhætt að auka kröfur til barna. Þau þurfa að finna að þeirra sé þörf i' sam- félaginu i stað þess að þau séu alltaf fyrir eins og þau fá hvar- vetna að finna nú. —ká Þegar ég varð Framhald af bls. 3. Róðrar byrja Eftir aö ég hafði dvaliö þarna I viku byrjuöu róðrar. A þvi tíma- bili kom þarna annar maöur, sem átti að róa með okkur, Þorsteinn Sigurjónsson að nafni. Eftir þvi sem ég best veit mun hann nú vera vistmaöur á Sólvangi i Hafnarfiröi. Svo kom áð þvi að farið var 1 fyrsta róðurinn. Báturinn hét Sörli, 13 tonna mótórbátur. Viö vorum 8 um borð: Sigurjón, sem var skipstjóri, Guöjón bróöir hans, viö Þorsteinn og svo frá Minni-Vogum: Sæmundur Klemensson, vélstjóri, Halldór bróðir hans, Jón, sem ég man nú ekki lengur frekari deili á og Ingi- mundur roskinn maður, tengda- faðir Sæmundar. Við fiskuðum sæmilega og var aflinn mest megnis vænn þorsk- ur. Veiðarfærin voru net. Ekkert spil var i bátnum og varð þvi handaflið að duga viö netadrátt- inn. Dálitið erfitt aö sjálfsögðu en aðferðin var sú, að við drógum sem ákafast er aldan lyfti bátnum en settum svo fast er hann seig niður i öldudalinn. Ég hafði aldrei komið á sjó áður og kveið þvi nokkuö fyrir sjóveiki, — (tel ekki ferðina á milli Borgarness og Reykjavikur), — en er til kom varð ég hennar aldrei var. Raunar voru gæftir að jafnaði góðar, við fengum lang- oftast gott veöur, enda rérum við frekar grunnt, út á Leirur eða i Garðssjó. Allur fiskur var verkaöur I salt, þannig vildi Sigurjón hafa það. Unglingspiltur var hjá Sigurjóni. Sá hann um að þurrka þorsk- hausana og munu þeir hafa veriö seldir til skepnufóðurs. Auk þess sá hann um skepnuhirðingu en Sigurjón hafði um 200 fjár og 4 kýr og seldi mjólk. Gripið til segla Mótorinn I Sörla gamla var bölvaöur skrjóöur og alveg furðu- legt að hann skyldi þó ekki bila nema einu sinni. Þá vorum við náttúrlega i róðri. Segl voru um borð og var nú ekki um annaö að gera en aö reyna að kóklast I land á þeim. Þetta voru helviti góðir sjómenn um borð, þótt ég undan- skilji mig nú þar. Við „krusuð- um” þarna fram og aftur, komust jafnvel upp undir Keflavik og hélt ég á timabili aö við myndum lenda þar. Svo varö þó ekki og heim náðum við. Við vorum á útleiö þegar vélin gerði verkfall sem var auövitaö fullkomið ábyrgöarleysi af henni, mundi Sigurður Lindal segja og er náttúrlega hárrétt. Við áttum net i sjó og þeim varö að bjarga. Fangaráöið var, aö ýta á flot áttæringi og á honum dömluðum við útað netunum. En nú vildi svo til að við fengum i fyrsta og eigin- lega eina skiptiö andskoti vont veður og var hörkubarningur að komast heim. Ingimundur gamli I Minni- Vogum þoldi ekki þennan hrakn- ing og fór ekki á sjóinn meir, þessa vertiöina a.m.k. I hans rúm kom Grimur Pálsson frá Hjálms- stöðum i Laugadal. Aöeins einu sinni fórum við á færi og þá suöur I svokallaöar Rennur. Fengum þar aöeins fáein steinbitskvikindi og var þetta ekki reynt aftur. í lokin var fiskurinn rifinn upp úr stöflunum, settur um borð I mótórbát og lagöur inn i Hafnar- firði hjá Þórarni Egilssyni eöa a.mk. tók hann á móti honum. Urðu þetta tveir bátsfarmar. Ekki tók fæðið framförum En það varð biö á nýja fiskin- um, þótt farið væri að róa. Framanaf fengum við ekki að bragöa á honum en þaö kom þó fyrir er frá leið. Hinsvegar feng- um við kjöt tvisvar i viku til aö byrja meö en aðeins einu sinni 1 viku er á vertföina leiö. Mér þótti þetta þunnur þréttándiog eittsinn að kvöldi til sá ég súrt slátur á eldhúsborðinu, Hafði ég þá engin umsvif en reif það I mig I snatri. Var ekki um það fengist en það fann ég samt, að gömlu konunni þótti alveg nóg um frekjuna i þessum norðanstrák. Fyrir kom, aö ég tók heim meö mér þorskhausa og lifrarbrodda og bað hana að sjóða þetta handa okkur. Það gerði hún en kvartaði þó undan þvi hvað mikil vinna væri við að verka þorskhausana. Sigurjón lét þessa sjálfsbjargar- viðleitni mina óátalda. Ef fiskur maröist eöa morknaöi þá fengum viö hann ævinlega. Stundum fengum við ekkert annað á kvöld- in en hafragraut og svona pela af mjólk. Mjólkin var af svo skorn- um skammti að hún vildi endast illa með grautnum en mér féll bölvanlega að borða mjólkur- lausan graut. Fór ég þvi fram á aö fá meiri mjólk. Hana vildi sú aldraða með engu móti láta af hendi. Þá sótti ég budduna mlna og baö hana aö selja mér mjólk, það þyrfti þá ekki að flytja þann dropann til Hafnarfjarðar eða Reykjavikur. Ekki vildi hún versla við mig en tók við bollan- um kom með slatta neðan I hon- um, fékk mér og sagði: „Hana þá”. Eftir þetta hafði ég alltaf þennan háttinn á og meö þvi móti tókst mér aö verða pakksaddur af graut og mjólk. Blandaða mjólkin A sjóinn höfðum við alltaf með okkur rúgbrauö og margarin- stykki, vafið innan i strigapoka. Auövitað gegnblotnaöi þetta i ágjöf og varð ekki beint kræsi- legur matur. Og svo hafði hver okkar þriggja pela flösku af mjólk. Mér þótti þetta nokkuð ein- kennileg mjólk og æriö þynnkuleg miöað við þaö, sem ég átti að venjast. Ég fór að tala um þetta viö Grim frá Hjálmsstöðum og hann bað um að fá að smakka. „Nú hver andskotinn”,, segir Grimur, er hann hafði sopið á flöskunni. „þetta er hér um bil tómt vatn”. Réttir mér síöan sina flösku, ég sýp á henni og það var sko aldeilis mjólk. Ég hafði eigin- lega ekkert gert mér almennilega grein fyrir hvað að mjólkinni var þótt mér fyndist hún óeölilega þunn. Ég tala um þetta viö Sigur- jón, segi honum aö mér þyki litiö variö i þessa mjólk, sem við fáum með okkur á sjóinn, hún sé vatns- blönduð. Ég skal játa það, segir hann, að ég hef látiö setja vatn saman við mjólkina, þvi mér finnst mig þyrsta af óblandaðri mjólk. Ég segi það ekki vera svo með mig og ég vilji fá almenni- lega mjólk. En ekkert breyttist svo ég tala um þetta við þá gömlu. Hún þræt- ir fyrir að hafa blandað mjólkina og hefur sterk orð um sakargiftir. Ég segi henni þá að Sigurjón hafi viöurkennt að mjólkin væri blönduð og þýddi ekkert aö þræta fyrir þaö. En þá setti kerla hnef- ann i borðiö og segir: Þetta getið þið fengiö og annað ekki. Og við þaö sat. Ég nennti þá ekki að standa I freskari þrætum um þetta, enda farið að liöa á ráðningartlmann. RÍKISSPÍTALARNIR Lausar stöður LANDSPÍTALINN AÐSTOÐARLÆKNIR óskast sem fyrst til afleysinga i 6 vikur á göngudeild geisla- deildar Landspitalans. Starfið er einkum fólgið i lyfjagjöf og göngudeildareftirliti. Upplýsingar veitir forstöðumaður geisla- deildar Landspitala i sima 29000 (438). KÓPAVOGSHÆLI LÆKNIR óskast i 1/2 starf til afleysinga á Kópavogshæli sem fyrst. Upplýsingar veitir yfirlæknir i sima 41500. KLEPPSSPÍTALINN Staða LÆKNAFULLTROA við Klepps- spitalann er laus til umsóknar frá 1. ágúst. Stúdentspróf eða hliðstæð menntun áskil- in, ásamt góðri vélritunarkunnáttu. Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf sendist Skrifstofu rikisspital- anna fyrir 28. júli. Nánari upplýsingar gefur læknafulltrúi spitalans i sima 38160. Reykjavik, 22. júli 1979. SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA EIRÍKSGÖTU 5, Simi 29000 P Hjúkrunarfræðingar Staða aðstoðardeildarstjóra við Grensás- deild, Endurhæfinga- og hjúkrunardeild Borgarspitalans er laus til umsóknar. Umsóknir ásamt upplýsingum um mennt- un og fyrri störf sendist til hjúkrunarfor- stjóra Borgarspitalans. Nánari upplýsingar um stöðuna eru veitt- ar i sima 81200 (202 eða 207) Umsóknarfrestur er til 30. júli 1979. Reykjavík, 22. júli 1979. BORGARSPÍTALINN ifl Fóstrur Barnaleikvellir Reykjavikurborgar vilja ráða tvær umsjónarfóstrur við gæsluvelli borgarinnar. Upplýsingar um störfin veitir Bjarnhéð- inn Hallgrimsson, Skúlatúni 2, simi 18000. Leikvallanefnd Reykjavikur. Jón i Minni-Vogum mun hafa haft einhvern grun um hvernig háttað mundi verða meö fæöið, þvi hann sagöi eitt sinn við mig skömmu eftir að ég kom þarna suöureftir: „Þú munt fá nóg aö dútla viö en það er ekki vist að þú veröir alltaf með fullan kvið. Hins vegar er svo sjálfsagt að geta, að þjónustubrögö voru ágæt hjá gömlu konunni og hugsaði hún vel um það að hafa fatnað okkar i lagi. Fábreytt skemmtanalíf Litið fór nú fyrir skemmtanalif- inu þarna suöurfrá þessar vikur. Helsta tilbreytingin i þvi fólgin að taka lagið með Þorsteini, en hann var ágætur raddmaöur. Að visu hafði hann bassarödd eins og ég en þó sungum viö stundum tvi- raddaö. Og á sumardaginn fyrsta kom piltur I heimsókn til Þor- steins, Þorlákur að nafni. Hann haföí háa og fallega rödd og gát- um við nú sungiö þriraddaö. Var þá heldur betur tekið lagiö þarna I Vogunum á sumardaginn fyrsta. Eitt sinn kom islenskur linu- veiðari inn á leguna. Tve:*- menn af honum réru i land. Annar þeirra var Þorvaldur bróðir minn, sem nú er látinn en hinn var kallaöur Gvendur Kortsson. Var hann að heimsækja einhvern þarna á ströndinni. Bróðir minn kom I Stóru-Voga. Mig lang- aði um borö og fór út meö þeim á skekktunni. En þá var komiö hifandi rok og mátti ekki tæpara standa meö að viö næöum skipinu. Og þarna fékk ég þá heldur betur að borða að þvl er mér fannst eiginlega i fyrsta og eina skiptiö þessar vik- ur. Ég held, aö ég hafi næstum þvi lokiö viö heilan lambsbóg. Mér fannst ég ver botnlaus og sann- leikurinn var sá, aö ég var orðinn langsoltinn. Mig minnir að þessi línuveiöari hafi heitiö Golan og skipstjóri var Kristófer Eggertsson, frændi minn. Eftir matinnn var fariö að spila „l’hombre og spiluöum viö lengi dags. Siðan tók við kaffi meö brauöi og loks kvöldmatur. Taldi ég mig mundi töluvert búa að öllu þessu áti hjá þeim Ilnu- veiöaramönnum. Þegar ég kom I land sagöi ég gömlu konunni að ég hefði fengiö heldur betur veislu um borð. „Það hefur nú bara veriö af þvi að þú varst gestur”, sagði sú gamla og lét sér hvergi bregöa við þessar fréttir. Þá sagði ég henni aö ég hefði grætt I spilun- um. Þaö þóttu henni góö tiöindi. Afleiðing Vogavistarinnar „Jæja, nú skulum við koma fram I eldhús og fá okkur kaffi, mjólk eða kók eftir þvl sem þú vilt, ég er einn heima, konan brá sér norður I land með Hólmgeiri syni okkar. Nú er ástæðan til þess að ég hef gerst svona fjöloröur um þessi matarmál er sú, aö þau uröu til þess að gerbreyta samfélags- viðhorfum mlnum. Ég vil alls ekki gera að þvl skóna aö að- búnaöur okkar hafi veriö lakari en sumsstaðar hefur gerst annarsstaðar á þessum árum. Atvinnurekendur reyndu þá, eins og jafnan fyrr og siöar, að ná sem mestu út úr vinnu sjómanna og verkafólks fyrir sem minnst. Einn liðurinn I þvi var aö halda fæðis- kostnaðinum i lágmarki. Nú er talað um að laklega sé búið að farandverkafólki, þrátt fyrir okk- ar dugmiklu verkalýðsfélög. Ég var einskonar farandverkamaöur á þessum árum. Svo slaklega sem búið er að sliku fólki nú var það þó enn verr þá. Maður varð bara aö beita kjafti og klóm ef þvi var að skipta, á annað var ekki að treysta, — og dugði þó sjálfsagt sjaldnast til. Síðan ég var á vertiðinni i Stóru-Vogum veturinn 1925 hef ég viljaö leggja lið baráttumálum verkalýðshreyfingarinnar og það engu siður þau ár, sem ég stund- aöi búskap. Bændur eru nú hvort sem er ekkert annað en verka- menn hjá sjálfum sér. „Blessaöur fáðu þér meira kaffi. Er það kannski kalt,?, það getur svo sem verið þegar konan er á ferðalagi”. -mhg

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.