Þjóðviljinn - 11.08.1979, Blaðsíða 11
Laugardagur 11. ágúst 1979 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11
j íþróttír Pfj íþróttir [S íþróttir {J\
J M Umsjón: Ingólfur Hannesson ^ I
Menotti, þjálfari argentfnska
landsliösins hefur sagt um Mara-
dona: „Hann sameinar marga af
bestu kostum Péle og Puskas.”
Maradona
argentínska undrabarnið í knattspyrnu, sem
skaut upp á stjörnuhimininn fyrir skömmu
Fyrir 6 árum tapaði ungiingalið Argentinos Juniors
naumlega fyrir Pinto de Santiago frá Cordoba og var
þetta úrslitaleikur í argentínsku unglingakeppninni.
Flestum strákunum í liði Argentinos varð svo mikið
um tapið að þeir hágrétu eftir leikinn. Einn varnar-
manna gekk þá að tengilið Argentinos, snáða að nafni
Diego Maradona, og sagði: „Einhvern tíma átt þú
eftir að verða besti miðvallarspilari heimsins." Spá
pinto-stráksins er nú í þann veginn að rætast.
Hinn 18 ára gamli Maradona
fæddist i einu af fátækrahverfum
Buenos Aires og um leiö og hann
gat gengið var farið að sparka
samanvöðluðum tuskuslitrum,
sem voru notuð i stað knattar.
Fljótlega fór strákur að vekja at-
hygli fyrir mikla hæfileika i
knattspyrnunni og 9 ára gamall
var hann tekinn i unglingaliö Est-
rella Roja, sem faðir hans sá um.
Maradona lék 140 leiki með liðinu
án þess að biða ósigur. Árið 1973
var hann 12 ára gamall og þá
komu útsendarar Argentinos
Juniors auga á hann og eftir það
var frami hans skjótur. Tiu
dögum áður en Maradona varö 16
ára lék hann sinn fyrsta leik i 1.
deild og var leikið gegn Telleres.
Fjórum mánuðum seinna var
Menotti, landsliðseinvaldur
kominn með strákinn i landsliðs-
hópinn og hann kom inná i leik
gegn Ungverjalandi. Menotti var
kominn á skrið.
Komst ekki
í landsliðshópinn
Fyrir heimsmeistarakeppnina
á siðasta ári valdi Menotti, ein-
valdur argentinska landsliðsins
25 manna hóp til æfinga og var
Maradona þar á meðal. En siðar
beðið lengi.
Þegar Alan Simonsen fór
siðan til Barcelona var
útséð að ekkert
yrði af þessum
kaupum.
þurfti að tilkynna 22 manna hóp
til keppninnar og geröi Menotti
sér litið fyrir og setti Maradona út
i kuldann með þeim oröum, að
strákur væri ekki tilbúinn I hinn
stóra slag, sem I hönd fór, hvorki
andlega né likamlega. Maradona
firrtist við I fyrstu, en siðar sagöi
hann: ,,Ég veit nú að ákvörðun
Menotti hefur verið hárrétt.”
Margir um hituna
Svo furðulegt sem það kann aö
virðast, munaði ekki miklu aö
Maradona færi til Sheffield Uni-
ted og léki með þeim i 2. deildinni
ensku. Félagiðbauð 450 þús. pund
I hann og miðvöröinn Carlos
Fren. Allt virtist klappaö og
klárt, en á siðustu stundu tók for-
seti Argentinos í taumana og
sagði að ekki kæmi til mála, að
Maradona færi. Fleiri félög komu
nú I kjölfar Sheffield m.a. Boca
Juniorsog Rosario frá Argentlnu,
italska liðið Napoli og siöast en
ekki sist Barcelona frá Spáni.
Þeir siðastnefndu byrjuöu á að
bjóöa 500 þús. pund, siöan var
hækkað i 700 þús. og þegar það
gekk ekki var boðin 1 miljón
punda. Þetta tilboð var mjög
freistandi fyrir Argentinos, en
þeir drógu aö svara vegna þess að
þeir vissu að Barcelona gæti ekki
Maradona í
lykilhlutverki
Nú mun Menotti hafa gert það
ljóst, að Maradona á að gegna
lykilhlutverki i liði Argentinu i
heimsmeistarakeppninni á Spáni
1982 og þeir sem sáu hann leika
varnarmenn Skota grátt i leik
Argentinu og Skotlands fyrir
skömmu, eru ekki i nokkrum vafa
um að svo verði.
Skyldi frægðin ekki hafa stigiö
hinum 18 ára gamla Maradona til
höfuðs? Við skulum athuga hvað
hann segir sjálfur um frægöar-
Ijómann.
— Þegar ég var yngri átti
ég einungis einar buxur, en nú get
ég keypt hvað sem ég vil, hvenaw
sem ég vil. Mér er jafnvel borgað
fyriraðklæðastákveönum fötum.
Þetta er mikil breyting.
— 1 augablikinu hef ég aðeins
tvær óskir. 1 fyrsta lagi að mér
takist að leika betri knattspyrnu
og i öðru lagi aö ég geti séð til
þess að foreldrar minir þurfi ekki
aö vinna lengur. Þau hafa slitið
sér út fyrir okkur systkinin og það
er kominn timi til þess að ég fari
að borga þeim til baka. Það
veröur þó erfitt að meta vinnu
þeirra til peninga.
(IngH byggði á World Sccer
ogSHOOT).
Víkingar daprir
og töpuðu fyrir KA 1:3 á Akureyri i gærkvöldi ^
fííX
rnna
Kóngurinn Péle skrif-
aði á fótbolta fyrir
Maradona þegar arg-
entinska landsliðið
var i Brasiliu og sagði
siðan: ,,Nú tekur þú
boltann og sýnir mér
hvernig á að leika
knattspyrnu”.
Kári í bann
,,Ég hef vart séð daprara lið en
Vikingana hér lengi,” sagði
fréttaritari blaðsins á Akureyri
þegar við leituðum frétta af leik
KA og Vikings i gærkvöldi, en KA
kom mjög á óvart og sigraði 3-1
og var sá sigur sist of stór.
Vikingarnir voru öllu atgangs-
harðari rétt i byrjun en siöan
jafnaðist leikurinn. Eyjólfur átti
KNATTSPYRNA
1 dag leika á Kaplakrika-
velli Haukar og Fram kl. 16 og kl.
20 leika KR og IBV á Laugardals-
velli. t 2. deild eru 3 leikir á dag-
skrá, Magni — Þróttur, Austri —
IBV og Reynir — Fylkir.
A morgun, sunnudag, verður
siðan stórleikurinn. IA og Valur
leika á Skipaskaga og hefst leik-
urinn kl. 19. A mánudaginn leika
siðan IBK og Þróttur kl. 20 i
Keflavik.
FRJALSAR IÞRÓTTIR
Bikarkeppni 16 ára og yngri
verður á Kópavogsvelli og hefst
keppnin kl. 14 i dag. Atta lið taka
þátt I keppninni, sem inniheldur
20 greinar.
1 dag verður landskeppni i kast-
greinum á Laugardalsvelli milli
íslands og Italiu. Keppnin hefst
kl. 14.
skot rétt framhjá Vikingsmark-
inu og stuttu slðar fengu Vikingar
gott færi, sem ekkert varö úr.
Gúnnar Gislason skoraöi fyrsta
mark leiksins á 25. min. með skoti
i stöng og inn af um 20m. færi.
Glæsilega gert, l-0fyrir KA. A 39.
min. bætti Elmar öðru marki við
eftir að hafa fengið stungubolta
inn fyrir vörn Vikings, en nokkur
HANDKNATTLEIKUR
1 næstu viku hyggst Handknatt-
leiksdeild Hauka gangast fyrir
handknattleiksnámskeiði fyrir
börn á aldrinum 6—10 ára og
verður þetta framlag deildar-
innar til barnaársins. Ollum
börnum i Hafnarfiröi er boðin
þátttaka og verður kennt á- úti-
vellinum við Haukahúsið eða inni
i íþróttasalnum.
Þátttökugjaldinu er mjög i hóf
stillt eða kr. 1000 og skal þátttöku-
tilkynningum komið á framfæri i
Haukahúsinu eða hjá ísleifi Berg-
steinssyni (s. 52451) eða Þorgeiri
Haraldssyni (s.51050)
Hitt Hafnarfjarðarliöið, FH,
efnir til svokallaös FH-dags á
morgun, sunnudag og verður eitt
og annað á dagskránni, m.a.
knattspyrna, handbolti, frjálsar
og ratleikur. Hátföin verður I
Kaplakrika og hefst kl. 10 f.h.
rangstöðufnykur þótti af þessu
marki, 2-0.
I seinni hálfleiknum var aðeins
eitt liö á vellinum, KA og þeir
léku Vikingana sundur og saman.
Elmar skoraði 3.mark KA á 53.
min. eftir að honum hafði mistek-
ist að skora i tvigang stuttu áður,
3-0. Og áfram sótti KA, en undir
lok ieiksins rétti Lárus Guö-
mundsson aðeins hlut Vikings
með marki af stuttu færi, 3-1.
Hjá KA voru allir sprækir, en
mest bar á Elmari, Einari, Gunn-
ari Blöndal og nafna hans Gisla-
syni, sem nú lék sem tengiliður.
Róbert var skástur i slöku liði
Vikings.
JÓÓ/IngH
Selfoss
vann FH
Selfyssingar gerðu sér litið
fyrir I gærkvöldi og sigruðu efsta
lið 2. deildar, FH i mjög fjörugum
og skemmtilegum leik, I gær-
kvöldi. Mörk Selfoss gerðu
Heimir Bergsson úr viti og Gisii
Sváfnisson, en fyrir FH skoraði
Pálmi Jónsson.
Þá sigraði UBK Þór á Kópa-
vogsvelli með 4 mörkum gegn 1 i
þumbaralegum og hnoðkenndum
leik. Sigurður Grétarsson, (2),
Hákon Gunnarsson og Þór
Hreiöarsson skoruöu mörk
Breiðabliks.
Einn efnilegasti knatt-
spyrnumaður Vestmanna-
eyinga, Kári Þorleifsson, var
settur ibann af unglinganefnd
KSt fyrir skömmu og honum
meinað að taka þátt i Norður-
landamóti drengjalandsliða i
knattspyrnu, sem nú stendur
yfir i Sviþjóð. Bannið er til-
komið vegna agbrots Kára og
er liklegt að þetta mál hafi
einhvern eftirmála, þvl fyrir
3—4 árum var Pétur
Pétursson ekki valinn i lands-
lið tslands næstu 2 árin. Að
visu var það vegna annars
konar agabrots, er Kári á að
hafa framið.
L.
Jóhann Olafsson, formaður ■
Knattspyrnuráös IBV kom af I
fjöllum þegar hann var spurð- i
ur um þetta mál og sagðist I
ekkert um þetta vita. Kári
Þorleifsson sagði þetta vera .
tilkomið vegna rifrildis, á I
milli hans og unglingar- j
nefndarm. á fimmtudag i siö- |
ustu viku þegar liðið dvaldi á ■
Laugarvatni i æfingabúðum. I
Þaö heföi veriðbúiðaðlofa sér J
að fara á leik ÍBV og KA, en ■
það svikið. Hannhefði þvi far- I
ið til Eyja i óþökk nefndar- 5
manna. Siðan hafihann komið |
til Reykjavikur á sunnudag, ■
en verið tilkynnt þar að hann I
fengi ekki aö fara til Sviþjóö- i
ar.
— Kári laumaðist i burtu ■
frá Laugarvatni án þess að ■
kveðja kóng né prest og þvi I
fékk hann þetta straff, sagöi ■
Jón Ólafur Jónsson, unglinga- |
nefndarmaöur i gær. ■
— Strákurinn gaf ekki full- I
nægjandi skýringar á þessu |
skyndilega ferðalagi sinu og ■
m.a. gengum viö úr skugga I
um að hann væri ekki I hópn- m
um sem mæta átti KA á I
fimmtudagskvöldið. Kári J
verður þvi aö taka afleið- ■
ingunum, sagði Jón ólafur að I
Iþróttir um helgina
IngH