Þjóðviljinn - 15.08.1979, Qupperneq 7
Miövikudagur 15. ágúst 1979 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 7
Garðyrkjuskóli rlkisins að
Reykjum i ölfusi hefur nú starfað
i 40 ár. Hann var vigður á sumar-
daginn fyrsta 1939 af þáverandi
landbúnaðarráðherra, Hermanni
Jónassyni. Fyrsti skólastjóri var
Unnsteinn ólafsson, og gegndi
hann þvi starfitil dauðadags 1966
en þá tók við skólastjórninni
núverandi skólastjóri, Grétar
Unnsteinsson.
Nú hefur verið ákveðið að
minnast afmælisins með veglegri
garðyrkjusýningu, sem opnuð
veröur á laugardaginn kemur,
þann 18. ágúst,og lýkur henni 26.
ágúst. Hefst sýningin kl. 14 á
laugardag með móti nemenda,
kennara, starfsmanna og boðs-
gesta.
Að garðyrkjusýningunni standa
auk skólans: Búnaðarfélag
lslands, Félag blómaverslana,
Félag garðyrkjumanna, Félag
skrúðgarðyrkjumeistara, Félag
isl. garðmiðstöðva, Garðyrkju-
félag Islands, Samband
garðyrkjubænda, Sölufélag garö-
yrkjumanna, Félag landslags-
arkitekta, Skógrækt rikisins og
Skógræktarfélag Reykjavikur.
Á fundi, sem skólastjóri Garð-
yrkjuskólans, Grétar Unnsteins-
son, hélt með fréttamönnum s.l.
mánudag jsagöi hann m.a., að
ánægjulegt væri, aö saman félli
við 40 ára afmæli skólans að nýtt
skólahús væri nú á góðum vegi og
þegar að nokkru tekið i notkun og
jafnframt hefðu skapast mögu-
leikar á fullkomnari og fjöl-
breyttari rekstri garðyrkju-
stöövarinnar.
A garðyrkjusýningunni mun
gefa að lita þverskurð af þvi hvar
islenskir garðyrkjumenn eru á
vegi staddir i ræktunarstörfum
sinum, bæði hvaö varðar fram-
leiðslu og tækni. Nemendur og
kennarar verða staddir hér og
þar um sýningarsvæðið til þess
að fræða og leiðbeina sýningar-
gestum. Grétar Unnsteinsson
sagði m.a. á fundi sinum með
fréttamönnum:
„A undanförnum áratug hefur
orðið gifurleg þróun á hinum
ýmsu sviðum garðyrkjunnar
almennti heiminum. Framfarir á
þessum sviðum byggjast á
auknum undirstöðurannsóknum
og betri hagnýtingu þeirrar þekk-
ingar, sem fyrir er nú, ásamt
skipulegum ræktunaráætlunum.
Islenskir garðyrkjumenn og þeir,
sem að garðyrkjumálum vinna,
verða að fylgjast vel með þeim
nýjungum, sem koma fram á
sjónarsviðið, hagnýta sér þekk-
ingu erlendra tilraunamanna og
staðfæra niðurstöður þeirra fyrir
islenskar aðstæður, eftir þvi sem
hægt er. En leggja verður mjög
mikla áherslu á aö gera hagnýtar
rannsóknir og undirstöðurann-
sóknir á þessum sviðum I landinu,
þar sem þess er þörf og hægt er að
koma þvi við.
Góð starfemenntun er þvi hér,
eins og á öðrum sviðum, bæði
þýöingarmikil og nauösynleg til
þess að skapa þá undirstöðu, að
hægt sé að hagnýta sér þá rækt-
unartækni, sem völ er á nú*og
standast sifellt harðnandi sam-
keppni.
Afmælissýningu þessari er
einnig ætlað að sýna almenningi
hvað áunnist hefur á liðnum árum
og á hvern hátt viö getum hagnýtt
okkur tæknina i þjónustu
islenskrar garðyrkju.”
Garðyrkjuskólinn er þriggja
ára skóli. Að vetrinum er námið
bóklegt en verklegt að sumrinu.
Eftir fyrsta áriö velja nemendur
um þrjár námsbrautir: ylrækt,
skrúðgarðyrkju eða garðplöntu-
námsbraut. Nemendur eru teknir
inn i skólann annað hvert ár.
Slðastliðinn vetur stunduðu 30
nemendur nám viö skólann en
alls eru þeir orönir um 280. Um
þaö bil tveir þriöju þeirra starfa
við garðyrkju. Þegar nýja skóla-
húsið verður fullfrágengið mun
það rúma 50-60 nemendur. Frá
Reykjum komast nemendur beint
inn i garðyrkjuskóla á Norður-
löndum og raunar einnig háskóla,
meö nokkru viðbótarnámi.
I tengslum við skólann er rekin
garðyrkjustöð, sem nú er um 5
þús. ferm., auk sólreita og úti-
ræktunarsvæða. I garðyrkju-
stöðinnifer fram fjölbreytt rækt-
un i sambandi viö kennsluna sér-
staklega og ýms fræðslunám-
skeiö , viösvegar um land, sem
eru vaxandi þáttur I starfi skól-
ans. Ennfremur er rekin all
umfangsmikil tilraunastarfsemi,
en á þann þátt hefur verið lögð
| ■Mi í
E* ^iÉÉÉii Wmm *
1 mh: 1 L,,.vv- *,< /4,. :ák~. JflHHtiew
Gengið um trjáræktarstööina.
F j ölbrey tt
og vönduð
garðyrkj u-
sýning
í tilefni af afmælinu
vaxandi áhersla á undanförnum
árum.
Aukskólastjóra starfa við skól-
ann þrir fastráönir kennarar:
Auður Sveinsdóttir, landslags-
arkitekt, Sigurður Þráinsson,
garðyrkjukandidat,og Þórhallur
Hróðmarsson, kennari.
Þórður Jóhannsson, kennari,
hefur verið aö rita sögu skólans.
Aðgangur að garðyrkjusýning-
unni er 2000,- kr. fyrir fullorðna
en börn innan 12 ára aldurs fá
ókeypis aðgang. —mhg
Grétar Unnsteinsson skólastjóri útskýrir leyndardóma ylræktarinnar.
Mynd:
Það er blómlegt um
^ammMÉá 9B_____________
aö litast i húsakynnum Garöyrkjuskólans þar sem fréttamenn sitja fund mc
IftriiiT'i
Grétari skólastjóra.