Þjóðviljinn - 15.08.1979, Síða 16
wwn v/fHi v
MiOvikudagur 15. ágúst 1979
Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9 — 20 mánudaga til
föstudaga, kl. 9 — 12. f.h. og 17 — 19 e.h. á laugardögum.
Utan þess tima er hægt að ná i blaðamenn og aðra starfs-
menn blaðsins i þessum simum_: Ritstjórn 81382, 81527,
81257 og 81285, afgreiösla 81482 og Blaðaprent 81348.
S 81333
Kvöldsími
er 81348
Flugleiöir:
Hækkun
á utan-
lands far-
gjöldum
í bígerö
Fyrir skömmu
ákváðu flugfélögin 1
iATA-samtökunum að
hækka fargjöld sín úm
18% „vegna eldsneyt-
ishækkana" einsog það
hét. En einsog kunnugt
er, þá er Flugfélag Is-
lands meðlimur í
IATA/ en Loftleiðir
hins vegar ekki.
Til að forvitnast um, hvort
rikisstjórnin megi vænta
hækkunarbeiðni frá Flug-
leiðum f kjölfar IATA hækk-
unarinnar leituðum við til
Helgu Ingólfsdóttur hjá
kynningardeild Flugleiða.
Hún upplýsti, að Flugleiðir
heföu í hyggju að fara fram á
samsvarandi hækkun og hjá
IATA. Að sögn hennar verð-
ur slik beiðni lögð fyrir rikis-
stjórnina, og meira að segja
er þegar búið að reikna út
hver fargjöldin á Evrópu-
leiðum Flugleiða verða eftir
hækkunina, sem er þó enn
ekki búið að veita fyrirtæk-
inu. Flugleiðir virðast þvl
næsta vissir um, að beiðnin
verði samþykkt!
— ÖS
t sfðustu viku var sumarbliða á Austurlandi en nú hafa veöur skipast i lofti og sumariö loksins komið
fyrir norðan. Þessa mynd tók eik austur á Sföu I siðustu viku og á henni eru systkinin Erna og Svein-
björn f heyskap hjá afa sinum Matthfasi Olafssyni bónda á Breiðabólstað á Siðu.
LEIGJENDAMÁLIN
Framkvœmda-
stjórastaðan hjá
æskulýðsráöi
Frestað
í borgar-
ráði
Ráðningu framkvæmda-
stjðra Æskulýðsráðs
Reykjavikur var i gær frest-
að á fundi borgarráðs, en
sem kunnugt er fékk Ómar
Einarsson fulltrúi hjá Æsku-
lýðsráði 5 atkvæði í æsku-
lýðsráði en Gylfi Kristins-
son, forseti Æskulýðssam-
bands Islands 1 atkvæði. 1
fulltrúi I ráðinu sat hjá við
afgreiðsluna, en lét bóka að
hann teldi báða þessa um-
sækjendur jafnhæfa.
Búast má við að borgarráð
taki málið fyrir á fundi sin-
um I næstu viku.
— AI
Hvað líður kynningu laganna?
Sveitarfélögin skipa húsaleigunefndir
1 blaðinu I gær var sagt frá við-
skiptum leigjanda i Mosfellssveit
við fulltrúa laga og reglna þar i
sýslu og kom fram að þeir ágætu
herrar telja sig ekki þurfa að fara
eftir þeim lögum sem i gildi eru
um réttindi leigjenda.
1 framhaldi af þessu máii vakn-
ar sú spurning hvernig og hvenær
félagsmáiaráðuneytið ætlar að
kynna lögin um húsaleigusamn-
inga.
Við eftirgrennslan kom I ljós að
nefnd er starfandi á vegum fé-
lagsmálaráðuneytisins og á hún
að semja tillögur um væntanlega
kynningu. 1 nefndinni eiga sæti
Jón Sigurpálsson fh. ráðuneytis-
ins, Jón Asgeir Sigurösson f.h.,
Leigjendasamtakanna og Sigurð-
ur Sigurðsson f.h. húseigendafé-
lagsins.
Að sögn Jóns Asgeirs hefur
nefndin haldið nokkra fundi en
ekki hefur enn verið gengið frá
neinum tillögum. Hins vegar er
nýbúið að senda sérprentun lag-
anna til allra bæjarfélaga á land-
inu, en i lögunum er m.a. ákvæði
um að kjósa skuli nefndir sem
annist framkvæmd tittnefndra
laga.
Útreiknmgar LÍÚ um Fiskveiðasjóðslánin:
OF SVARTSÝNIR
% segir Gunnar Ragnars, forstjóri Slippstöðvarinnar
á Akureyri
A Óvíst þó með verkefni í nýsmíðum
Ég held aö útreikningar
Llú séu óhagstæðari en
ástæða er til — sagði Gunn-
ar Ragnars forstjóri Slipp-
stöðvarinnar á Akureyri.
Þjóðviljinn hafði sam-
bandi við hann i framhaldi
af útreikningum Llú um
lánakjör Fiskveiðasjóðs.
Þessir útreikningar út-
vegsmanna benda tii að
það sé ómögulegt með öllu
fyrir útgerðarmenn að iáta
byggja fyrir sig skip, þvi
mestallt aflaverðmætið
fari í greiðslu afborgana
og vaxta.
— Mér sýnist aö útkoman hafi
verið gefin fyrirfram og siðan
reiknað inn i hana — sagði Gunn-
ar. — Þarna eru ótalmörg atriði
sem endalaust má deila um. T.d.
finnst mér þaö aflaverðmæti sem
þeir gefa sér i útreikningunum
allt of lágt.
Ég hef sjálfur reiknað þetta
dæmi út og fæ aðra útkomu en
LttJ. Og ég held að minir útreikn-
ingar séu engu verri en þeirra.
Það er hinsvegar alveg ljóst að
verðtrygging hefur aukist mjög
og að byggingavisitalan er óhag-
stæðari en gengistryggingin. En
ég held að það hljóti að jafna sig
til lengri tíma.
Ég reiknaði dæmiö út fyrir Sig-
urbjörgu, nýjasta skipið okkar,
sem við afhentum I vor. Ég reikn-
aði dæmið bæði meö Fiskveiða-
sjóðslánum og svo einnig einsog
um eintóm erlend lán væri að
ræða. Og ég fekk það út að Fisk-
veiðasjóðslánin væru hagstæðari.
Hinsvegar verðum við mjög
varir við minni áhuga á nýsmlði.
Það er aðeins hreyfing, en alltof
lltil. Það er mjög óljóst með
framhaldið hjá okkur, og nú er
komiö fram yfir þann tíma að við
þyrftum að hafa eitthvað ákveðið
verkefni I höndum til að geta
skipulagt af viti — sagði Gunnar
að lokum. — eng.
Gunnar Ragnars
A næstu vikum verða nefndirn-
ar væntanlega kosnar og geta
leigjendur þá snúið sér til þeirra
ef þeim sýnist aö lögin séu brotin
á sér. Þess má geta að á borgar-
ráðsfundi I gær báðu fulltrúar
Sjálfstæðisflokksins enn um
frestun á skipun þessarar nefndar
I Reykjavik þar sem þeir hafa
ekki tilbúna tilnefningu slns full-
trúa I nefndina.
Innan Leigjendasamtakanna
hefur verið rætt um að gefa út
sérstakan bækling um réttindi
leigjenda, en eins og nú stendur
hafa samtökin ekki fjárhagslegt
bolmagn til sllkra framkvæmda,
þar sem þau félög sem upphaf-
lega stóðu að stofnun þeirra hafa
algjörlega svikist um að greiða
fjárframlög sín, enda er ekki einu
sinni hægt að greiða starfsmanni
laun. I málefnum leigjenda er þvl
enn margt óunnið, en kynning
laganna hlýtur að vera brýnasta
verkefnið, einkum ef menn ætla
að traðka á þeim, eins og dæmin
sanna.
— ká
Samdráttur hjá SVR?
Beiðni um hækkun var synjað af
samgönguráðuneyti
Á fundi borgarráðs í
gær var lagt fram bréf
frá samgönguráðuneyt-
inu, þar sem beiðni um
28,3% hækkun á fargjöld-
um Strætisvagna Reykja-
víkur var synjað. Allir
fulltrúar í borgarráði
stóðu að ef tirf arandi bók-
un:
„Borgarráð mótmælir mjög
eindregið synjum stjórnvalda á
beiðni um hækkun strætis-
vagnafargjalda og telur hana i
algjöru ósamræmi við þarfir
Strætisvagnanna til að geta
haldið uppi nauðsynlegu al-
menningsvagnakerfi. Telur
borgarráð enn brýnna nú vegna
sihækkandi benslnverðs að
strætisvagnarnir geti rekið sem
besta þjónustu.
Fáist ekki eðlileg hækkun á
fargjöldum strætisvagnanna til
samræmis við aðrar hækkanir,
hlýtur það óhjákvæmilega að
valda samdrætti I rekstri þessa
nauðsynlega þjónustufyrirtæk-
is.”
— ká