Þjóðviljinn - 17.08.1979, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 17.08.1979, Blaðsíða 8
8. SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 17. ágúst 1979 Föstudagur 17. ágúst 1979 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 9 t nágrenni öskjuhllöarskólans er mikill gróöur og skemmtilegt útivistarsvæöi, en spildan sem Þróunarstofnun hefur til athugunar nær allt aö Fossvogskirkjugaröi. Hugmyndin er aö vegaspottinn yfir hæöina veröi lagöur niöur en tenging komi út á Kringlumýrarbraut. Sú vartiöin aö landsmenn lögöu frásérorf og ljá og héldu suöur tii höfuðstaöarins i leit aö nýjum ævintýrum og bétra lífi, — burt frá striti og amstri sveitanna. Reykjavik þandist út fyrir gamla blettinn i kvosinni, inn meö Elliöaánum, út á Nes og niður I Fossvogsdal. Nú hefur þessi þró- un snúist viö, — á siðustu þremur árum hefur ibúum höfuöborgar- innar farið fækkandi. Fjöldi fólks hefur á undanförnum árum flutt út i úthverfin og gömlu bæjar- hverfin taka á sig mynd kyrröar og festu. En hver veröur framtiöin, hvaöa stefnu á aö taka i byggingarmálum á Reykja- vikursvæöinu? A aö nema land utan núverandi byggöar viö Úlfarsfell og Keldur eöa á aö reyna aö nýta betur þaö svæöi sem þegar er byggt innan gömlu borgarmarkanna? Þróunarstofnun Reykjavikur vinnur nú aö könnun á svæðinu vestan Elliðaáa i þeim tilgangi að finna bletti, þar sem hægt er að þétta byggðina, án þess aö borg- armyndin raskist og umhverfi spillist. í tilefni af Reykjavikurvikunni kynnir stofnunin þessa dagana starfsemi sina aö Kjarvalsstöð- um og þriöjudaginn var á dag- skrá „Athugun á þéttingu byggðar”. Þar var samankominn álitlegur hópur fólks til aö heyra og sjá það sem arkitektar og verkfræðingar borgarinnar hafa fram að færa varðandi þetta mál. Er það vissulega fagnaðarefni að almenningi skuli gefinn kostur á að kynna sér skipulagsvinnu af þessu tagi á frumstigi áður en nokkrar endanlegar ákvaröanir eru teknar. Þess má geta hér að á laugardag kl. 17 verður haldinn annar slikur fundur ásamt skoö- unarferð. Fyrir utan fundarsalinn á Kjar- valsstöðum hefur verið komið fyrir spjöldum með myndum, teikningum og skýringum sem sýna þau fimm svæði sem rann- sóknaraugu sérfræðinganna hafa numið staðar viö. A fundinum gerði Guörún Jónsdóttir arki- tekt, sem veitir Þróunarstofnun- inni forstööu, grein fyrir hug- myndum þeim sem nú liggja fyrir. Þau svæöi, sem hér um ræðir, eru skikinn austan og sunnan Borgarspitala, svæöi viö öskju- hliðarskólann, holtiö á Laugar ásnum viö Vestur- og Austurbrún og slétturnar vestan Glæsibæjar og milli Suöurlands-brautar og Miklubrautar i Sogamýrinni. Sem byggingarsvæöi hafa öll þessi svæði sina kosti og galla. Þar er byggð I kring og þvi auö- velt að nýta þá þjónustu sem er fyrir hendi, skóla, verslanir, gatnakerfi og lagnir, auk þess sem ný byggð myndi væntanlega blásalifi i þessi hverfi og skólarn- ir sem hafa verið að tæmast taka við sér að nýju. Aætlanir hafa veriðuppi um að byggja stofnanir á þrem þessara svæða en tvö þeirra, Sogamýrin og Laugarás- inn hafa veriö ætluð til útivistar. Gallarnir viö hugmyndir um íbúöabyggð á þessum svæðum eru þvi þeir að þar yrðu skorin niður „græn” svæði borgarinnar, en eftir þvi sem fram kom á fund- inum á að gæta þess aö væntanleg byggð falli sem best aö umhverf- inu og endanlegar tillögur um byggð verða ekkimótaðar fyrr en umsögn frá Umhverfismálaráði og Náttúruverndarráði liggur fyrir hvaðvaröa minjarfrá jökul- timanum sem er að finna á Laugarásholtinu. I máli Guðrúnar kom fram, að yfirleitt er gert ráð fyrir að á þessum svæðum verði byggðar I- búðir, þó aö ýmislegt annað gæti komið til greina eins og þjónustu- fyrirtæki og jafnvel smá atvinnu- rekstur. Eftir að kynningunni lauk gafst fimdarmönnumkostur á að varpa fram fyrirspurnum og einnig var dreift spurningarlista þar sem menn voru beðnir um að segja á- lit sitt á þéttingu byggðar. t umræðunum kom fram að yfirleitt leist fólki nokkuð vel á þessar hugmyndir en einkum var bent á holtið i Laugarásnum sem einstakan blett i Reykjavik. Þar er eitt af fáum svæðum þar semminjarfrá jökultimanum eru ósnertar, jökulsorfnar klappir og ruðningur. útsýni er einnig feg- urra en annars staöar I borginni fráþessarrhæð.þaðansésttil Snæ- fellsjökuls i góðu skyggni og fjallahringurinn blasir við inn til landsins. Svæðið nýtist nú illa til útivistar þrátt fyrir þessa kosö en gróður er þó að nema land á holtinu, ljónslappi, blóðberg og fleiri tegundir. Það er þvi margs að gæta við skipulagningu byggðar á Reykja- vikursvæðinu, en þaö er ósk þeirra sem að þessum málum vinna að sem flestir borgarbúar láti álit sittI ljós, leggi leið sina aö Kjarvalsstööum og kynni sér hugmyndir stofnunarinnar. Skýr- ingar hanga uppi á göngunum á venjulegum opnunartima Kjar- valsstaða og á laugardag kl. 17 verður kynningarfundurinn og skoðunarferöin endurtekin. 1 dag er á dagskrá Reykja- vikurviku kynning á Rafmagns- veitu Reykjavikur. Hefst hún kl. 17 og á sama tima verður einnig verðlaunaafhending fyrir sigl- ingar i Nauthólsvik þar sem siglingaklúbbur Æskulýðsráös býöur mönnum I bátsferð. —ká. Borgarspitalinn á rétt á nokkru iandi til stækkunar sjúkrahússins, en þar fyrir utan er landspilda sem nýta má til þéttingar byggðarinnar I átt til Fossvogsins. 1 Sogamýri var unnið að slætti þegar ljósmyndarann bar að, en myndin sýnir vel þab svæði sem hugsanlega má nýta tii byggðar, þó þannig að hesturinn hans Sigurjóns Ólafssonar fái að njóta sin áfram. Vestan Glæsibæjar er eitt þeirra fimm svæða sem til greina koma við þéttingu byggöar i Reykjavik. Eins og sjá má eru þar grasi grónir vellir og sláttur hafinn. Inn viö Laugarás. Guðrún Jónsdóttir lýsir hugmyndum um byggingar á svæðinu, en þar er að finna jökulruðning frá Isöld, sérstæðan gróður og einstakt útsýni. Þorleifur Ein- arsson jaröfr. hlýðir á þungt hugsi, en hann var heldur mótfallinn byggingum þarna. Kynningarfundur Þróunarstofnunar. Guðrún Jónsdóttir i ræðustól. Eins og sjá má var fundarsalurinn að Kjarvalsstöðum þéttsetinn. Fremst á myndinni eru starfsmenn Þróunarstofnunar. Sogamýri, milli Suðurlandsbrautar og Miklubrautar, er óbyggð og hafa þeir þróunarstofnunarmenn látið sér til hugar koma að þar megi risa nokkur byggð sem nyti þeirrar þjónustu sem þegar er fyrir i nágrenninu. Norðan og austan öskjuhliðarskóla er autt svæði sem ætlað var undir opinberar stofnanir, en tillögur Þróunarstofnunar eru að þar risi Ibúða- byggö. A göngum Kjarvalsstaöa var komið fyrir sýningu á uppdráttum, myndum og teikningum sem sýna hugmyndir Þróunarstofnunar um þéttingu byggðar á fimm svæðum I Reykjavik. Eftir kynningarfundinn var farið i skoðunarferð um borgina i strætó. Kristinn Ragnarsson arkitekt var leiðsögumaður. Myndin er tekin utan við öskjuhliðarskóla.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.