Þjóðviljinn - 17.08.1979, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 17.08.1979, Blaðsíða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 17. ágúst 1979 Orðsending frá Getraunum Getraunir hefja starfsemi sina á ný eftir sumarhlé með leikjum ensku deilda- keppninnar hinn 25. ágúst. Seðill nr 1 hef- ur verið sendur aðilum utan Reykjavikur og nágrennis. Félög i Reykjavik og ná- grenni sæki seðilinn á skrifstofu Getrauna i íþróttamiðstöðinni. Lögtök Að kröfu gjaldheimtustjórans f.h, Gjald- heimtunnar i Reykjavik og samkvæmt fó- getaúrskurði, uppkveðnum 16. þ.m., verða lögtök látin fara fram fyrir vangreiddum, opinberum gjöldum, skv. gjaldheimtu- seðli 1979, er féllu i eindaga þ. 15. þ.m. Gjöldin eru þessi: Tekjuskattur, eignar- skattur, kirkjugjald, kirkjugarðsgjald, slysatryggingargjald, vegna heimilis- starfa, iðnaðargjald, slysatryggingar- gjald atvinnurekenda skv. 36. gr. 1. nr. 67/1971 um almannatryggingar, lifeyris- tryggingargjald skv. 25. gr. sömu laga, at- vinnuleysistryggingargjald, launaskatt- ur, útsvar, aðstöðugjald, iðlánasjóðsgjald, iðnaðarmálagjald, sjúkratryggingargjald og sérstakur skattur á skrifstofu- og versl- unarhúsnæði. Ennfremur nær úrskurðurinn til gjald- hækkana og skattsekta, sem ákveðnar hafa verið til rikissjóðs og borgarsjóðs,svo og til skatta, sem innheimta ber skv. Norðurlandasamningi sbr. 1. nr.l 11/1972. Lögtök fyrir framangreindum sköttum og gjöldum, ásamt dráttarvöxtum og kostn- aði, verða látin fram fara að 8 dögum liðn- um frá birtingu þessarar auglýsingar, verði þau eigi að fullu greidd innan þess tima. Borgarfógetaembættið í Reykjavík, 16. ágúst 1979. Blaðberar óskast ÞINGHOLTSSTR. — MIÐSTRÆTI (25. ág.-l. sept.) EFRI-LAUGAVEGUR (21. ágúst) EFRI-SKtrLAGATA (21. ágúst) DJOtMU/NN Simi 81333 Áskriftarsími Þjóðviljans 8-13-33 Afmæliskyeðja Ágúst Vigfússoin 70 ára Litt hef ég lagt það i vana minn að skrifa afmælisgreinar i dag- blöðin. Hins vegar hef ég alloft minnst fólks sem horfið er af sjónarsviði mannlifsins. í dag á sá maður afmæli, er ég tel mér skylt að minnast .i dag- blöðum með nokkrum orðum. Hann er þjóðkunnur orðinn af Ut- varpserindum, blaðagreinum og bókum, sem hann hefur skrifað. Fyrir réttum áratug fluttist ég með börn min til Reykjavikur og settist að i ibiið, sem ég hafði keypt nokkru áður. íbUðin er i fjölbýlishUsi. Fljótlega komst ég i kynni við mann einn vel mið- aldra. Við áttum eitthvað sam eiginlegt. Það var lóðið. Má segja að siðan höfum við hist svo að segja daglega, þegar ég hef verið i bænum. Hver er maðurinn? AgUst Vigfússon fyrrum barna- kennari, sem er sjötugur i dag, er fæddur vestur i Dölum, að Hörða- bóli. Voru foreldrar hans Vigfús íkaboðsson bóndi á Hörðabóli og kona hans Margrét Sigurðar- dóttir. Frá uppvexti sinum segir Agúst gjörla í bókum sínum, sem bera heitin Mörg eru geð guma (1976) og Dalamaður segir frá (1978). Æska AgUsts var sannar- lega enginn dans á rósum. Föður sinn missti hann á fyrsta árinu. I barnaskóla var hann lítið sem ekkert. Var á hrakhólum sem barn og i vinnumennsku sem ung- lingur. En þrátt fyrir allt baslið komst Agúst í framhaldsnám, að visu búinn að losa tvitugsaldur þegar það var. Lá þá leiðin i héraðsskóla — að Laugarvatni. Þaðan er haldið i Kennaraskól- ann viðLaufásveg. Skóladvöl þar var þrautalending margra, sem á þessum árum gátu ekki klofið langt nám i menntaskóla og há- skóla sökum fjárskorts. Eftir kennaraprófið hélt Agúst vestur i Bolungarvik. Þar kvæntist hann konu sinni, Aðal- heiði Haraldsdóttur, og þar fæðast og vaxa upp tvö börn þeirra, Sveinn og Dóra. Agúst tafði heldur betur i Vikinni — eða i 23 ár. Hann þótti góður kennari, en einkum við sögukennslu. Olli þvi að sjálfsögðu meðfædd frá- sagnakunnátta hans og minni. Þá var Agúst góður skriftarkennari, hann skrifar listavel. 1 Bolungarvik kom Agúst nokkuð við sögu opinberra mála og sat i hreppsnefnd eitt kjör- timabil. Ekki sóttist hann eftir lengri setu I þeirri virðulegu sam- kundu. Frá Bolungarvik fluttist Agúst með fjölskyldu sina til Reykja- vikur sumarið 1957. En kennara- stöðu fékk hann i Kópavogi og kenndi i Kársnesskóla þar til hann var orðinn riflega hálfsjö- tugur. Þá hafði hann kennt sam- fleytt I rúma fjóra áratugi, og að- eins skipt einu sinni um kennslu- stað. Sýnir það ekki glöggt, að Agústhefur notiö trausts I starfi? Ég hef dvalið fram að þessu i grein minni við ævistarf Agústs, kennsluna. Þar hefur hann skilað góðu og drjúgu ævistarfi, en mér er til efs, að það varðveiti nafn hans og minningu lengur en rit- störfin, sem hann leggur á rika stund nú þegar um hægist og ald- urinn færist yfir. Bækur tvær eru út komnar frá hans hendi og ein bók mun enn koma út undir hans nafni. Þá hefur Agúst skrifað fjöldann allan af blaðagreinum , aðallega minningaþætti, í Lesbók Morgunblaðsins og viðar. Hannn er tiðurgestur i Utvarpinu í seinni tið. Allt sem Agúst semur er á góðu máli sem allir skilja. Það er engin stofnanaislenska á greinun- um hans Ágústs Vigfússonar heldur þróttmikið tungumál, eðli- legt og óþvingað. 1 útvarpinu er Agúst skýrmæltur. Hvert orð kemst til skila sem hann segir. Það að Agúst hefur ekki fyrr sent frá sér efni mun aöallega stafa af þvi að lifsönnin hefur setið dottandi i dyrum hans fram undir þetta. Ég hef lesið flest það i handriti, sem Agúst hefur látið frá sér fara. Mun ég upphaflega hafa hvatthann til að koma þvl á framfæri, bæði i blöðum og út- varpi. Agúst hefur oftast lesið fyrir mig það, sem hann hefur verið að semja hverju sinni, til að leita álits mins á þvi. Stundum hefur hann beðið mig að lesa það yfir, ef vera kynni að ég fyndi ein- hverja agnúa á máli, sem honum hefði sést yfir. Allt þetta vil ég þakka, vegna þess trausts sem hann hefur sýnt mér. Auk þess að vera vel ritfær I ó- bundnu máli er AgUsthagyrðingur góður.Hann yrkir að sönnu ekki mikið af visum, en vandar gerð þeirra þvi meir. Nokkrar af vis- um Agústs eru i Vlsnasafni Sigurðar frá Haukagili. Oft höfum við AgUst ræðst við. Við fórum gjarnan i stuttar gönguferðir, þegar við höfum tima og vel liggur á okkur. Aðal- umræðuefnin eru þá gjarna stjórnmál, bókmenntir eða stór- menni sögunnar, einnig persónu- legir hagir. Ágúst er jafnlyndur maður. Honum gekk vel að um- gangast nemendur sina. Jafnvel verstu óróaseggir róuðust i návist hans. Ein visa lýsir vel lundarfari AgUsts — hann er höfundur hennar: Gott er að hafa létta lund, — ljúfur eðlisþáttur. Geta’ að lokum Guðs á fund gengið alveg sáttur. Ef þú, lesari góður, skyldir eiga erindi I Háskólabió um helgi, þá sérðu væntanlega mann einn nokkuð við aldur, þéttvaxinn, meðalháan og hæruskotinn, sem rifur af miðanum hjá þér um leið og þU gengur inn i anddyri kvik- myndahUssins. Þetta er hann Agúst, sem er sjötugur I dag. Hann ber aldurinn vel. Og nU sinnir hann áhugamálum sinum, laus við fjárhagsáhyggjur og daglegt streð. Hann er gæfumaö • ur. Mig langar til aö ljUka þessari afmælisgrein með tveimur erind- um, sem ég sendi Agústi sex tugum, rétt i þann mund er kynni okkar hófust: Eru okkar kynni ekki löng — en greið. Mestu skiptir máli manns á ævileið hitta þá sem hafa hjartaþelið gott. Býst ég við að beri báðir þessa vott. Þessa taug sem tengir tvo, fær enginn séð. Hún er innst i hjarta hitar mannsins geð. Lengst um ieið ófarna lifðu I trú og von, er það ósk mins hjarta, Agúst Vigfússon. Auðunn BragiSveinssoi Það var einhvern tima á við- reisnarárunum að lög voru herfi- lega brotin á opinberum starfs- mönnum. Stjórn BSRB boðaði til mótmæla- og baráttufundar i Háskólabiói. Félagar BSRB létu ekki standa á sér og troðfyUtíT bióið. Hins vegar varð bið á þvi að fundurinn hæfist. Biósýning var nýafstaðin og það þurfti að koma fyrir á sviðinu mikrófónum, ræðupúlti, stólum og drykkjar- föngum fyrir leiðtoga BSRB. Fyrir þessum framkvæmdum stóð dyravörður hússins, gild- vaxinn maður og svipmikill með augabrúnir eins og Brésnef. Loksins hófst fundurinn, en þvilikar barátturæður, Jesús minn! Þær einkenndust af linku, eftirgjöf og meiningarlausu gaspri. Talsmaður Starfsmanna- félags Reykjavikur mælti óbeint lagabrotunum bót. Þá var það, að dyravörðurinn gekk enn á ný upp á sviðið og virtist ætla að hagræða mikra- fóninum en hann fór þá að halda ræðu, sannkallaða barátturæðu og það blaðalaust. Marg-oft var hann að gera hlé á máli sinu vegna dynjandi lófaklapps og þegar hann lauk ræðunni var klappið slikt að halda mátti að Stefán, Islandi hefði verið að ljúka við að syngja ökuljóð. Þegar lófaklappinu linnti sögðu menn hver við annan: Hver er þessi dyravörður? Hver er þetta sem talar eins og sá sem valdið hefur? Það gátu ekki allir svarað þessum spurningum, þvi ræðu- maðurinn hafði ekki verið kynntur. Þessi dyravörður sem fór að flytja barátturæðu, þegar honum ofbauð uppgjöfin og lág- kUran,er70ára I dag og nafn hans er Agúst Vigfússon. 1 tuttugu ár störfuðum við Agúst saman við Kársnesskólann i Kópavogi og i mörg ár vorum við nábúar. Þó aldursmunur væri nokkur, kom það ekki að sök. AgUst er miklu yngri i anda en aldurinn segir til um. Kennslu- stofur okkar lágu oft saman. Við vorum fyrstu kennararnir á Islandi sem komum á opnum skóla og kenndum nemendum sjálfstæð vinnubrögð. Við opnuðum stofurnar upp á gátt og af göngunum fylgdumst við með vinnubrögðum nemenda milli þess sem við spjölluðum um pólitik, veðrið eða nýjustu kennsluaðferðir. Ekki minnist ég þess, að við höfum fengið þakkir fyrir að hafa verið frumkvöðlar opins skóla hérlendis. 1 þessum linum verða ekki rakin æviatriði Agústs enda hefur hann skrifaö tvær bækur um ævi sina og uppvaxtarár. ÁgUst hefur ætið verið áhuga- maður um pólitík og er mikill verkalýðssinni. Þó ég hafi ekki hitt hann nýlega segir mér svo hugur, að hann sé ekkert ofsahrifinn af þeirri vinstri stjórn, er nU situr. Ég held það væri ekki úr vegi að ráða nýjan dyravörð við Stjórnarráðið . Lifðu heill Agúst, Þórir Hallgrimsson. Kvedja frá Þjóöviljanum A þessum timamótum i' ævif Agústs Vigfússonar sendir Þjóð- viljinn honum árnaðaróskir með þökk fyrir ánægjuleg viðskipti á liðnum árum. Ritstj. Blaðberabíó Doktor Goldhood og Bikinívélin. Spennandi gamanmynd með VINCENT PRICE og FRANKIE AVA- LON i aðalhlutverkum. Sýnd laugardaginn 18. ágúst kl. 13.00 i Hafnarbiói.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.