Þjóðviljinn - 17.08.1979, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 17.08.1979, Blaðsíða 2
2 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 17. ágúst 1979 Kosningarnar i Nígeriu: Shagari forseti (Jtvarpið i Lagos höfuöborg Nigeriu tilkynnti i gær að Shehu Shagari hefði farið með sigur af hóimi i forsetakosningunum i landinu á laugardaginn var. Shagari uppfyllti það ákvæði kosningalaganna frá 1977 um að forseti yrði að fá a.m.k. 25% at- kvæða i 2/3 hinna 19 fylkja Nigeriu til að ná kjöri i fyrstu um- ferð. (Jtvarpið sagði i gær að hann hefði hlotið meira en fjórðung at- kvæða i 10 fylkjum. Þá voru enn ókomin endanleg úrslit úr tveim- ur fylkjum en skömmu siðar til- kynnti kjörstjórn að hann hefði uppfyllt ákvæði laganna. Shagari mun taka formlega við völdum úr hendi herforingja- stjórnarinnar 1. október næst- komandi. Samkvæmt stjórnar- skránni nýju hefur forseti Nigeriu ekki ósvipað valdsvið og forseti Bandarikjanna. Shagari var frambjóðandi Þjóðarflokks Nigeriu (NPN) sem öflugastur er meðal þjóð- flokka i norðurhluta landsins. Flokkurinn hafði unnið umtals- verða sigra i þingkosningunum i siðasta mánuði. I öðru sæti i kosningunum varð Obafemi Awolowo sem hlaut fjórðung atkvæða i 6 fylkjum. Framhald á 14. siðu Stuðningsmenn Mujahedin samtakanna mynda keðjur fyrir framan aðalstöövar þeirra til að verjast árásum herskárra fylgismanna Khomeinis. Gróði Shell fyrstu 6 mánuöiþessa árs: 1100 miljarðar Fjölþjóöaoliufélagiö Skeljung- ur (Royai Dutch Sheii Oii Company) tilkynnti í gær að gróði þess á öörum ársfjórðungi þessa árs hefði numið 710 miijónum sterlingspunda, sem er 80% aukn- ing miðað við sama timabil i fyrra. Þetta eru um 586 miljarðar isienskra króna. Gróða sinn þakkaði Shell hækk- un olíuverðs og aukinni oliufram- leiðslu í Norðursjó. Ekki kváðu gengissveiflur hafa spillt fyrir. Athafnasemi þessa holl- ensk/enska auðhrings um allan heim hefur þá skilað eigendum hans 1328 miljónum sterlings- punda gróða á fyrri helmingi þessa árs, eða nær 1100 miljörð- um islenskra króna. A fyrri árshelmingi 1978 nam gróði Shell ekki „nema” 394 mil- jónum sterlingspunda. Svo virðist sem oliukreppur hafi einstaklega örvandi áhrif á gróða oliuhringa. Sú var einnig raunin 1973/4. Kúrdar fara sínu fram Khomeini þrumar gegn vinstrimönnum Khomeini trúarieiðtogi i tran hélt ræðu i gær þar sem hann þrumaöi mjög gegn vinstrimönn- um og hótaði þeim ásamt menntamönnum sem hcfðu tengsl við Ameriku tortimingu. Ræðu sina hélt Khomeini i kjöl- far harðrar atlögu sem fylgis- Þar fór Young Andrew Young hefur sagt af sér og Jimmy Carter tekið af- sögnina til greina. Ekki veröur betur séð en að þessi gangur mála komi Bandarikjastjórn illa og forsetanum sjálfum i enn meira klandur i baráttunni fyrir endurkjöri á næsta ári. Klaufaskapur stjórnarinnar hefur átt stóran þátt i að svona fór. Astæður afsagnarinnar geta varla virst gildar. Young átti fund með áheyrnarfulltrúa Frelsissamtaka Palestinu (PLO) i sendiráöi Kuwait þann 26. júli. Sá fundur hefði ekki þurft að draga neinn dilk á eftir sér ef ekkert sem máli skipti hefði verið rætt á honum. Bandarikjastjórn heldur enn i þá stefnu sina að viðurkenna ekki PLO og eiga engar form- legar viðræöur við fulltrúa þeirra samtaka fyrr en þau hafa lýst þvi yfir að þau viðurkenni tilverurétt Israelsrikis. Flestum bandariskum stjórn- málamönnum sem ekki eru þvi flæktari i net kalda striðs- ins ber saman um að þessi af- staða, sem mótuð var meö sér- stakri samþykkt 1975, sé þrjóskufull og úrelt. Þeir telja að margt bendi til þess að senn veröi hægt að sveigja PLOinn á „viðráðanlegri” brautir og þvi sé nauðsynlégt að eiga viðræður við samtökin. Slikt er fulltrúum Bandarikjastjórnar meinað nema í samkvæmum („on soci- al occasions”) þar sem ekkert sem máli skiptir berst i tal. Young hélt þvi fram i fyrstu aö hann hefði ekki rætt nein stefnumótunaratriði við fulltrúa PLO, Terzi að nafni, og hafi Palestinumaöurinn staðfest það. Hefði þá fundur þeirra verið i engu frábrugðinn þeim fundi sem sendiherra Banda- rikjanna i Austurriki átti nýlega með sendimanni PLO. En siðar hvarf hann frá þvi og játaði að umræöur Sameinuðu Þjóðanna um Palestinumálið heföu borist i tal. Þá hafði Isra- elsstjórn harðlega mótmælt fundinum sem bandariskt blað heldur fram að israelska leyniþjónustan hafi hlerað. Andrew Young kunni allra manna best að fóta sig á hálu dansgólfi Sameinuðu þjóðanna. Carter og Vance brugöust æfir við vegna þess að Young hafði ekki gefið rétta skýrslu um fundinn. Young lýsti þvi yfir að hann liti ekki svo á að sér hefði orðið neitt á en taldi hins vegar stefnu Bandarikjastjórnar gagnvart PLO fáránlega. Þegar svo var komiö þótti stjórnvöldum sem hann heföi hlaupið nægilega útundan sér og hann varð að láta af embætti. Sendi forsetinn honum mærðar- legt kveðjubréf og þakkaði hon- um starf hans. Það veldur sjálfsagt miklu i þessu sambandi að samskipti Bandarikjanna og ísreels eru með stiröasta móti um þessar mundir einsog fram hefur kom- ið i fréttum. En sjálfir lýstu Israelsmenn þvi yfir i gær að af- sögn Youngs breytti litlu um það viðhorf þeirra að Bandarikjastjórn væri i vaxandi mæli að snúast á sveif með Aöbum. Andrew Young var af riku foreldri og snemma vildi hann gerast trúboði. En hann sneri sér i vaxandi mæli að stjórn- málum og tók þátt i mannrétt- indabaráttu svertingja. Hann flutti til Georgiu-fylkis og varð FRETTASKYRING fulltrúadeildarþingmaður þar fyrir demókrata. Um það leyti munu hann og Jimmy Carter hafa tengst vináttuböndum. Og vist er um það að hann vann Carter mikið gagn i bar- áttunni fyrir forsetatigninni. Þá var Young auðvitað löngu orð- inn talsmaður bandarisks kapi- talisma og frjáls framtaks. En fortið hans i mannréttindabar- áttu og ýmsar frjálslyndar yfir- lýsingar höfðu gert hann vin- sælan mjög af svertingjum. SvofóraðCarterhlaut 90% af atkvæðum bandariskra svert- ingja og ber ekki að vanmeta hlut Youngs i þeim sigri. Carter lofaði auðvitað ýmsum endur- bótum og félagslegum fram- kvæmdum i þágu svertingja i kosningabaráttunni en við fæst þeirra loforða hefur hann stað- ið. Og þó Young hafi lofað þvi i gær að hann muni hjálpa Carter að ná endurkjöri er vist að af- sögn hans mun enn draga úr þvi trausti sem forsetinn nýtur meðal svertingja. Og afsögn Youngs mun lika gera Carter- stjórninni erfitt fyrir á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Þó kjaftforar yfir- lýsingar Youngs hafi jafnóðum verið bornar til baka af stjórn- inni gekk honum mjög vel að vinna með fulltrúum kapital- iskra rikja þriðja heimsins. Enda mun Carter hafa verið vel ljóst að Young vann hagsmun- um bandarisks auðvalds meira gagn hjá Sameinuðu Þjóðunum með skeleggri framgöngu sinni og samningalagni en flestir hvitir starfsbræður hans hefðu getað gert. Það tókst að binda endi á stööuga ósigra Banda- rikjanna i atkvæðagreiðslum á allsherjarþingi Sameinuðu Þjóðanna og ugglaust lagði Young fram sinn diplómatiska skerf til þess. Viðbrögð i þriðja heiminum við afsögn Youngs staðfesta þetta, reiði og vonbrigði með „undanlátssemi Bandarikja- stjórnar gagnvart Isrealsmönn- um” eru viðkvæðið. Halda mætti aö Carter ætti þegar við ærin vandamál aö striða og hefði sist efni á aö missa „vinstra” andlitið nú. hg menn hans gerðu um helgina að bækistöðvum vinstri afla i Teher- an. Hún var helguð „degi Jerú- salem”, en dagurinn i dag er helgaður baráttu Palestinu- manna skv. ákvörðun trúarleið- togans. Þessi dagur er jafnframt sið- asti dagur ramadan, hins heilaga mánaðar múhameðstrúarmanna. Sérstök ganga verður farin i dag til stuðnings baráttunni fyrir frelsun Jerúsalem. Meðal þeirra sem boðað hafa þátttöku eru Mujahedin skæruliðarnir, isl- amskur hópur sem þó hefur mátt þola ýmsar kárinur af hálfu harð- skeyttra stuðningsmanna Kho- meinis vegna samstarfs sins við vinstri menn. 1 ræðu sinni fordæmdi Kho- meini Bandarikin og Israel sér- staklega sem óvini Islams en um leið bannaði hann vinstri mönn- um að hafa sig nokkuð i frammi og sagði að þeim yrði tortimt skjótlega ef þeir létu að sér kveða. Það virðist þvi ljóst að vinstri mönnum verður meinað að starfa áfram opinberlega i Iran, a.m.k. i höfuðborginni. Aðalstöðvar Fedayeen skæruliðanna sem eru stærstu vinstrisamtök landsins eru enn hersetnar af byltingar- varðmönnum. 1 gær skýrði blaðið Kayhan, sem kemst næst þvi að vera mál pipa stjórnvalda i Teheran, frá Framhald á 14. slöu Indland: Kommúnistar stydja Singh Næst komandi mánudag verða greidd atkvæði um traustsyfir- lýsingu á rikisstjórn Charan Singh i neðri deild indverska þingsins. Horfur stjórnarinnar bötnuöu i gær þegar Kommúnistaflokkur Indlands (marxiskur), CPlm, tilkynnti að hann myndi styðja stjórnina. Flokkurinn, sem hefur forystu fyrir fylkisstjórn Vestur-Bengal, hefur 22 þingmenn. Kommúnista- flokkur Indlands, sem er moskvu- sinnaður, hefur einnig tilkynnt að hann muni styðja Singh, en sá flokkur hefur helmingj færri þingmenn. CPIm lýsti þvi jafnframt yfir að hann yrði áfram i stjórnarand- stöðu. Stjórn Singh sem mynduð var eftir afsögn Desai og klofning Janatabandalagsins, stendur mjög tæpt. Allt veltur á afstöðu þess hluta indverska þjóðar- flokksins sem lýtur forystu Indiru Gandhi. Hún hafði áður lofað Singh stuðningi gegn ýmsum skilyrðum en ekki liggur ljóst fyrir hvernig þingmenn þessa flokksbrots (71 að tölu) munu greiða atkvæði á mánudaginn. Mikil upplausn hefur veriö i indverskum stjórn- málum að undanförnu og flokka- kerfið allt hefur riðlast. Til skýringar má geta þess að Kommúnistaflokkur Indlands klofnaði 1964 og fór meirihluti hans yfir i CPIm, sem tók gagn- rýna afstöðu til Sovétrikjanna. Siðar klofnuðu úr honum hinir svonefndu naxalitar sem sterk- astir urðu i Bengal. CPIm stefnir að samstjórn með lýðræðislegum borgaralegum öfl- um og studdi á sinum tima Janata- bandalagið gegn Indiru Gandhi. I skoðanakönnun sem birt var i gær kom fram að Indira nyti nú meira fylgis en Charan Singh. Utför Karlinnu gerö í dag 1 dag kl. 14.00 verður gerð frá Hveragerðiskirkju útför Karlinnu G. Jóhannesdóttur frá ísafirði. Eftirlifandi maður hennar er Jón Jóns- son, klæðskeri, og stóð heim- ili þeirra um áratuga skeið að Fjarðarstræti 29 á ísa- firöi. Þessarar merku konu verður minnst nánar hér i blaðinu síðar.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.