Þjóðviljinn - 02.09.1979, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 02.09.1979, Blaðsíða 3
Sunnudagur 2. september 1979. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3 flöskuskeyti að utan ...flöskuskeyti að utan ... flöskuskeyti aö utan ... Hnípinn her í vanda Mikil vandræöi rlkja nú i at- vinnuher USA, en eins og mönn- um er kunnugt lögðu Bandarikin niöur herskyldu fyrir nokkrum árum. Vandræði þessi stafa aö hluta til af þeirri ástæðu, að æ færri láta skrá sig I herinn. Varnarmála- ráðherra USA, Harold Brown, sem enn hefur mikla trú á frjálsu framboöi hermanna bað fyrir nokkru yfirmenn Bandarlkjahers um nákvæmar og yfirgripsmiklar skýrslur um ástandið i hermálum landsins, og þá einkum með tilliti til þeirra vandkvæða, sem sigla I kjölfar minnkandi áhuga banda- riskra karlmanna á að taka þátt i herþjónustu. Skýrslan liggur nú fyrir og lofar ekki góðu um framtið hersins. Allar fjórar höfuðdeildir hersins fara minnkandi sökum mann- eklu. Einnig eru brögð að þvi að verri mannkostur en fyrr sýni áhuga á herþjónustu. Haldi þessi þróun áfram getur svo farið aö bandarisk yfirvöld hugleiði að koma á herskyldu á nýjan leik. Rafrmgns- sekkjapípur Loksins er búiö aö finna upp rafmagnssekkjapipu. Þetta eðla hljóöfæri er um 1500 ára gamalt og þvi timi til kominn aö gefa þvi nútímalegra hljóð — eöa hvaö? Þetta felur I sér marga kosti: i fyrsta lagi getur blásarinn ýtt á takka sem hleypir á rafknúnum blæstri og losnar þvi við að reyna á öndunarfærin. I öðru lagi geta þeir, sem af einhverjum ástæð- um eru ekki hrifnir að sekkja- pipuhljóðum lækkað i hljóðfærinu eða skrúfað alveg fyrir það. Georg Smith heitir snillingur- inn á bak við þessa merku nýjung Enginn vill lengur ganga i bandariska herinn. og er ættaður frá Mull á Skot- landseyjum. Þegar i næsta mán- uði hefst skoska fyrirtækið Electro Mechanical Assembly Ltd. i Glasgow handa við að framleiða rafmagnssekkjapipur. Sekkjapipur Smiths framleiða nákvæmlega sömu yndisfögru tóna og hin hefðbundnu hlióðfæri, en eru án sekkjar og blásturs- belgjar. Verðið á nýju hljóðfær- unum er um 75 þúsund krónur islenskar, en venjuleg sekkjapipa kostar rúmar 600 þúsund krónur. Hættulegt að vera piparsveirm Piparsveinar lifa 10 árum skemur en giftir karlmenn! Amerisk könnun sem nýlega var gerö IUSA hefur leitt ofangreinda staöreynd I ljós. Litum nánar á niöurstööurnar: Ef karlmenn eru 20% þyngri en eðlileg þyngd þeirra segir til um, lifa þeir 900 dögum skemur en ella. Hins vegar er tiltölulega hættulaust að drekka kaffi — lif þitt styttist aðeins um fimm daga við það. Bandariskir vettvangskönnuðir hafa lagt mikla vinnu I að skil- greina hugtakið „hætta”, þeas. þau atriði I llfinu sem geta valdið styttri ævitima. Þegar á þessari rannsókn stóð, komust menn að þvi hve hættulegt piparsveinalifið er. Piparsveinar, séöir sem þjóð- félagshópur, hafa ákveðnar llfs- venjur, sem ógna ævitimanum skelfilega. T.d drekka þeir og reykja meira en tiökast meðal giftra kalrmanna og lifa óreglu- bundnara lifi. Ef þú ert karlmaö- ur sem lest þessar linur og enn ógiftur og sé þér það að auki annt um lifið — þá giftu þig I hvelli! Útgefandi „Der Spiegef ’ handtek- inn með hass Rudolf Karl Augustein, útgef- andi þýska timaritsins „Der Spiegel”, var handtekinn fyrir nokkru á Sardiniu fyrir að hafa flkniefni I fórum sinum. Lögreglan i Cagliari staðfesti að útgefandinn, sem er 56 ára að aldri, hafi verið handtekinn er hann var á leiö um borð i einka- þotu sina. Lögreglan á flug- stöðinni fann 40 grömm af kanna- bis i fórum Rudolfs við vanalega tollskoðun. Rudolf Karl Augustein tók við útgáfu „Der Spiegel” árið 1964 og hefur siðan gert timaritiö aö einu mest lesna og virtasta sinnar teg- undar i Evrópu. Chaplin meö stafinn. Stafur Cnaplins hverfur Stafurinn hans Charlies Chaplins er horfinn. Þaö var tékkneskt æskurit sem kom meö þessar upplýsingar fyrir skömmu. Stafur kvikmyndaleik- arans góökunna hefur veriö á safni I Prag en hvarf skyndilega nýveriö. Samkvæmt æskuritinu „MLADY SVET” var það tékk- neskur leikari sem kom fram i fimm af myndum Chaplins, sem kom með stafinn til Tékkósló- vakiu árið 1947 eftir að hafa þegið bambusstafinn sem gjöf frá meistara sinum. Leikarinn færði tæknisafninu i Prag stafinn aö gjöf tveimur árum siöar. Forstjóri tæknisafnsins hefur lýst þvi yfir að stafurinn sé horf- inn en ekki gefið neina nánari skýringu. SKELLIÐ rYKKUR IBÆINN SKOÐIÐ SÝNINGUNA Hér er einstakt tækifæri. Vegna sérstakra samninga milli Flug- leiða, Hótel Esju, Hótel Loftleiða og Alþjóðlegu vörusýningar- innar, er utanbæjarfólki boðið sérstök vildarkjör á gistingu, þegar keyptur er flugfarmiði í bæinn og til baka ásamt aðgöngu- miða á sýninguna. Frí gisting fyrstu nóttina, síðan sérstök kjör. Snúið ykkur til afgreiðslna og umboðsmanna Flugleiða um land alltog leitið nánari upplýsinga. Skellið ykkur af stað. Það er margt að sjá: 150 sýningardeildir. 1OOOm^ sérstök sjávarútvegssýning. Stórglæsilegar Disco tísku- sýningar. Landsfrægir skemmtikraftar. Skoðunarferðir um borgina í 2ja hæða strætisvagni. g ALÞJÓÐLEG VÖRUSÝNING 1979 OPNUM KL.1 FLUGFAR OG GISTING Á GÓÐUM HÓTELUM, - ALLT í EINUM PAKKA VELKOMIN TIL REYKJAVÍKUR

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.