Þjóðviljinn - 02.09.1979, Blaðsíða 8
8 StÐA — ÞJÖÐVILJINN Sunnudagur 2. september 1979.
INIý plata Heimavarnarliðsins
Eitt
verð
segja
þér...
Diddi stjórnar söng Heimavarnarliösins á tónleikum I Háskólabiói I vor
t vikunni efndu Samtök
herstöðvaandstæðinga til
btaðamannafundar í
veitingasal Hótel Borg til
að greina frá útgáfu
nýrrar hljómplötu. t»að er
ekki á hverjum degi sem
út koma hljómplötur og
enn sjaldnar sem plata
sem þessi lítur dagsins
Ijós. Eins og greint hefur
verið f rá áður i blaðinu er
hér um að ræða baráttu-
plötu sem inniheldur lög
og Ijóð sem varða Island
og frelsi þjóðarinnar á
einn eða annan hátt.
Mikil vinna
Asmundur Ásmundsson for-
maður Samtaka herstöövaand-
stæðinga sagði að mikil vinna og
fórnfúst starf lægi á bakvið
þessa plötu. Hún væri eiginlega
búin að vera i deiglunni frá þvi i
mars. Þegar verið var að æfa
efni fyrir Menningardaga her-
stöövaandstæðinga nú i vor kom
upp sú hugmynd að athuga
kostnaðarhlið þess að gefa út
baráttuplötu með efni þvi sem
flutt yrði á tónleikum i Háskóla-
biói 30 mars. Þegar búið var að
safna efni og smala saman fólki
til að flytja það var hópurinn
orðinn mjög stór sem að'
flutningi stóð.
Sigurður Rúnar segist fyrst og
fremst hafa útsett efnið með
þennan hóp i huga og þá ein-
göngu fyrir tónleikana. Það var
alls ekki ákveðið aö gefa út
plötu fyrr en i april, nokkru eftir
tónleikana. Sigurður sagði á
fundinum sl. miðvikudag að
hann hefði eflaust útsett ýmis-
legt á annan veg ef hann hefði
eingöngu haft hljómplötu i huga
þegar lagt var af stað. En út-
koman væri samt sem áður
mjög skemmtileg.
Að sögn Ásmundar var oft á
tiðum mjög erfitt að koma svo
stórum hóp sem að plötunni
vann saman, og oft hefði andinn
verið misjafn. Það er alltaf
erfitt að byggja á sjálfboða-
vinnu, en sú er raunin með
þessa plötu að allir sem koma
fram á henni gáfu sina vinnu.
Það hefði verið ógerningur að
fara úti þetta verkefni ef greiða
hefði átt öllu fólki fuli laun. Að-
eins launin hefðu trúlega numið
miljónum.
Kostnaðarsamt
verkefni
Þrátt fyrir að allir söngvarar
og hljóðfæraleikarar hafi gefið
sina vinnu, er kostnaðurinn við
gerð plötunnar rúmlega 5
miljónir. Þaraf nemur kostnað-
ur við hljóöritun rúmlega helm-
ingi og efniskostnaður viö gerð
hljómplötunnar og prentun um-
slags ásamt öörum kostnaðar-
liðum er siðan annar eins. Þaö
þykir eflaust ýmsum þessi
kostnaður hár, en hann er þó
ekki nema rétt tæplega
helmingur þess sem gerð hljóm-
plötu kostar á almennum mark-
aði.
Samtök herstöðvaandstæð-
inga byggja algerlega á frjáls-
um framlögum. Sjóðir samtak-
anna eru ekki tryggir og þurftu
samtökin þvi að slá sér vixla til
að geta mætt þessum útgjöld-
um. Það þarf trúlega 1500 til
2000 seld eintök til að ná uppi
kostnað plötunnar, en eftir að
þeirri sölu er náð, ættu samtök-
in að geta haft tekjur af plöt-
unni. Að sögn Asmundar eru
rúmlega 3000 manns á skrá hjá
Samtökum herstöðvaandstæð-
inga svo að varla þarf að kviða
þvi að platan skili ekki hagnaði.
Þaö koma fram rúmlega 40
manns á plötunni „Eitt verð ég
aö segja þér...” Þetta er stór
hópur og fólkið oröið tvistrað út-
um allt. Ekki verður hægt að
fylgja henni eftir með tónleika-
haldi einsog vaninn er með
hljómsveitir sem gefa út plötur i
dag.
Þeir sem koma fram á plöt-
unni eru sönghópurinn Kjara-
bót, hljómsveitin Póker,
söngvararnir Pálmi Gunnars-
„Eins og Gylfi segir, þetta er algerlega ópólitiskt umslag, llklega fyrsta ópólitiska myndin sem hann
gerir”.
son, Ragnhildur Gisladóttir,
Karl Sighvatsson, og Bergþóra
Árnadóttir. Auk þess léku
nokkrir meðlimir sinfóniunnar
á plötunni ásamt fleirum.
Anthony Malcolm Cook og
Gunnar Smári Helgason sáu um
upptökustjórn. en Sigurður
Rúnar Jónsson hafði yfirumsjón
með verkefninu.
Ópólitískt umslag
Þó svo að platan sé vissulega
pólitisk er það von aðstandenda
að hún nái til eyrna sem flestra
landsmanna þvi að efnið er
nokkuð blandað og flutningur
þess með miklum ágætum.
Umslag plötunnar hannaöi
Umsjón:
Jónatan
Garðarsson
Gylfi Gislason myndlistarmað-
ur, en hann er þekktur fyrir
sinar pólitisku myndir. Hann
sagði hinsvegar á blaðamanna-
fundinum að þetta væri alger-
lega ópólitiskt umslag. Það er
eingöngu hreint og klárt upp-
lýsingaplagg sem fylgir plöt-
unni.
Athygli vekur að með öllum
lögunum nema einu eru skrifað-
iir hljómar, þannig að þeir sem
áhuga hafa á að spila og syngja
með geta lært lögin með þvi að
lesa hljómana. Þetta er
skemmtileg nýjung.
Plata Heimavarnarliðsins
„Eitt verð ég að segja þér....”
er sannarlega ánægjulegt vopn I
baráttunni gegn erlendum
„varnarliðum”. —jg
...neyslupunktar poppara
Nú er kominn sá timi að allir
eru farnir aö undirbúa jólin i
heimi kaupsýslunnar. Það fer
ekki á milli mála að ýmsar
hljómsveitir stefna á þennan
markað þvi núna á næstu
mánuðum hafa ýmsar hljóm-
sveitir áætlað plötur til útgáfu.
Verða nokkrar þeirra kynntar
hér I punktunum.
• Bob Dylan er kominn meö
nýja plötu sem ber heitið Slow
Train Coming. Þessi plata fær
ekki sérlega góðar viðtökur I
Bretlandi, en gagnrýnendur I
Bandarikjunum eru þó jákvæð-
ari. A þessari plötu syngur Dyl-
an mikíð um trúmál, en eínsog
einhverjir vita kannskí er Dylan
gyðingur, sem heitir réttu natni
Robert Zimmermann. A þessari
plötu þykir nokkuö skina I gegn
Zionismi og andstaða gegn
aröbum vegna oliu-þvingana
þeirra I garð vestrænna þjóða.
Þetta kunna Bretar hinsvegar
ekki að meta hjá Dylan og gagn-
rýna hann fyrir bragðið.
Annars er þetta ein best unna
plata Dylan tónlistarlega séð og
eru það helst þeir Mark Knopfl-
er og Pick Withers úr Dire
Straits sem lifga uppá plötuna.
• Nýbylgjuhljómsveitin
Blondie sendir væntanlega frá
sér plötu i september. Mun plat-
an heita Eat the Beat. Blondie
átti eina vinsælustu plötu siö-
asta árs, Parallel Lines, en af
þessari plötu komust fjögur lög
uppá toppinn.
• Jethro Tull eru ávallt seigir
viö að gefa út plötur. Það má
vænta nýrrar plötu frá þeim I
lok september. Hefur þessi nýja
plata þeirra Ian Anderson og fé-
laga verið skirö Storm Watch.
• Led Zeppelin eru búnir að
senda frá sér nýja plötu. Kom
útgáfa hennar ýmsum á óvart,
þvl mjög hljótt hefur verið um
hljómsveitina I nokkuð langan
tima, eða allt frá þvf Robert
Plant missti son sinn I bflslysi
fyrir u.þ.b. tveimur árum.
Þessi plata ber heitiö In
Through the Out Door.
• Hljómsveitirnar Fleetwood
Mac og Eagles hafa látiö aðdá-
endur sina blöa i tvö ár eftir nýj-
um plötum. Þær eru loksins að
láta bóla á sér, þvi Eagles senda
trúlega frá sér plötuna The
Long Runi september, en Fleet-
wood Mac gefa ekki plötuna
Tusk út fyrr en i nóvember. Það
eru eflaust ýmsir orðnir spennt-
ir að heyra hvað þessar hljóm-
sveitir hafa verið aö fást við all-
an þennan tima.
• Yes eru að senda frá sér
hljómleikaplötuna Yesshows nú
á næstunni. Siðasta hljómleika-
albúm þeirra Yessongs er ein
mest selda plata þeirra, hvað
svo sem þessi á eftir aö gera.
• Hljómsveitin Toto sem
skyndilega varö vinsæl I fyrra
er að senda frá sér nýja plötu en
það er ekki enn búið að á-
kveða nafn hennar.