Þjóðviljinn - 02.09.1979, Blaðsíða 19
Sunnudagur 2. september 1979. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 19
Atribi úr myndinni Svart og hvltt I lit.
Gamla bió:
Feigðarförin
Myndin á aö gerast í Suö-austur Asiu (líklega
Thailandi) þar sem ameriskum auBkýfingi er rænt
af skæruliöum, i þeim tilgangi aö fá hjá honum
upplýsingar um mútuþega. Fyrrum atvinnu-
moröingjar úr Bandarikjaher, sem löngum hafa
haft hina mestu skemmtun af manndrápum, eru
fengnir til aö hafa uppi á mannræningjunum gegn
hæfilegri þróknun.
Svo viröist sem meiningin sé aö gera mynd um
valdabaráttu og pólitiska spillingu, en útkoman
veröur enn einn viöbjóöurinn þar sem áhorfandan-
um er ætlaö aö hafa gaman af blóösúthellingum og
hrottaskap.
Nýja bió:
Á krossgötum
Þessi mynd er af gamla Hollywoodskólanum sam-
kvæmt umsögn Shirley MacLaine, og erfitt er að
bera á móti þvi þar sem hún er rómantisk i meira
lagi. Efniviöurinn er tilfinningasveiflur (og átök)
gamalla vinkvenna (Anne Bancroft og Shirley
MacLaine) sem hafa valið sitthvort viðfangsefniö i
lifinu, önnur helgað sig listinni, hin fjölskyldunni.
Endurfundir þeirra verða til þess að gamlar efa-
semdir rifjast upp.
Háskólabió:
Svart og hvítt í lit
(Black and White in Color)
Frönsk, gerö 1977
Leikstjóri Jean-Jacques Annaud
Af einhverjum ástæöum hlaut þessi mynd
Oscarsverðlaun sem „besta útlenda myndin” áriö
1977, sem bendir einna helst til þess aö dómnefndin
hafi séö fremur fáar útlendar myndir á þvi ári.
Myndin byggistá nokkuö góöri hugmynd og heföi
getaö oröiö hressileg ádeila á nýlendustefnuna, en
úrvinnslan er ekki aö sama skapi góö. Þetta á aö
vera gamanmynd, en hún nær þvf aldrei aö veröa
verulega skemmtileg, enda byggist gríniö mest á
útjöskuöum klisjum og kynþáttafordómum. Ekki
bætir þaö úr, aö Islenski textinn er meö öllu
óskiljanlegur og lltur helst út fyrir aö vera geröur af
Frakka sem veriö hefur á vikunámskeiöi I íslensku.
Einnig er leikskráin ein herjans endaleysa. Þaö er
talsvert alvörumál aö bióin skuli ekki gera meira til
aö laöa fólk aö kvikmyndum sem ekki eru meö
ensku tali. Ekkert eftirlit viröist vera meö þvi
hvernig islenski textinn er unninn, og engar kröfur
geröar til þýöendanna.
Háskólabíó (mánudagsmynd):
Themroc
Frönsk frá 1972
Leikstjóri: Claude Faraldo
Mánudagsmyndin aö þessu sinni er er nokkuö
sérstæö, m.a. aö þvi leyti, aö leikendurnir tala ekk-
ert sérstakt tungumál heldur tjá sig meö dýrslegum
öskrum, bauli eöa óskiljanlegu bulli. Myndin er full
af gálgahúmor og gerir leikstjórinn óspart grin aö
samfélagsformi okkar. Hann er aö sýna hvernig
hægt sé að brjótast út úr kerfinu og lifa lifinu eftir
eigin höföi og til aö undirstrika þetta skeytir hann
oft á tiöum fáránlegum atvikum inn i atburöarás-
ina.
ABalpersóna myndarinnar er miöaldra verka-
maður, sem ákveöur aö segja skiliö viö samfélagiö
og fara aö lifa eins og hellisbúi.
Tónabíó:
Þeir kölluðu manninn hest
Richard Harris heldur áfram aö bregöa sér i
indiánabúning eftir að hafa leiöst tiiveran sem
enskur lávaröur. Þar meö er lopinn teygður áfram,
en eins og menn kannski muna eftir var fyrri mynd-
in um Hest — A man called Horse — sýnd i Hafnar-
bió fyrir nokkrum árum. Þessi mynd er verri en sú
fyrri, enda hættir flestum svonefndum framhalds-
myndum til þess. Harris, sem eitt sinn var efnilegur
leikari i breskum nýraunsæismyndum á sjötta ára-
tugnum, gerir litiö eitt annaö en aö muldra og þjást
karlmannlega, sbr. endurtekningaratriöiö þegar
hann er hengdur upp á brjóstunum. Myndin dýpkar
ekki heldur skilning manna á menningu indíána, en
kyndir undir gamla hefðbundna fordóma.
Stjörnubíó:
Varnirnar rofna
Innrás Bandamanna i Normandi 1944 hefur löng-
um verið vinsælt efni i kvikmynd. Þessi mynd er
hvorki verri né betri en margar aðrar um svipaö
efni. Þó er hún kannski frábrugöin aö þvi leyti, að
hún fylgir ekki gömlu forskriftinni um hetjulund
Bandamanna og illmennsku nasista, þvi nú er búið
að flokka Þjóðverjana i vonda og góða.
Margir ágætir leikarar koma fram i þessari
mynd, en engir þeirra sýna áberandi tilþrif i hlut-
verkum sinum.
Regnboginn:
Rio Lobo
Leikstjóri: Howard Hawks
Varla er hægt aö hugsa sér betri upplyftingu fyrir
kvikmyndaunnendur en góöa kúrekamynd. Þaö
verður enginn svikinn af þvi aö bregöa sér i B-sal
Regnbogans þessa dagana — nema þá þeir sem yf-
irhöfuð kunna ekki að meta slikar myndir.
Þetta er atburðarik mynd og bráðskemmtileg.
Howard Hawks er löngu kunnur fyrir gerö margra
ágætra vestra og John heitinn Wayne stendur fyrir
sinu i aðalhlutverki myndarinnar.
Kvikmyndamenning Bandarikjamanna byggir
ekki hvað sist á gerö kúrekamynda og Rio Lobomá
hiklaust flokka meö þeim betri af þeirri tegundinni.
Regnboginn:
Hjartarbaninn
(The Deer Hunter)
Leikstjóri: Michael Cimino.
Þessi viöfræga og umdeilda óskarsverölauna-
mynd er aö mörgu leyti mjög vel gerö og leikurinn
er frábær. En sú mynd, sem hún dregur upp af
striðinu i Vietnam, er ekkert annaö en lymskulegur
áróöur, þvi aö Vietnamarnir eru sýndir sem fantar
og illmenni, en aftur á móti er látiö aö þvi liggja, aö
Bandarikjamenn hafi litinn sem engan þátt átt i
þeim hrottaskap og þeirri spillingu, sem þar viö-
gekkst á þeim tima, — heldur hafi þeir aöeins veriö
leiksoppar örlaganna.
■■■■■■■!■■■■■■■■■■■■■......
Eiginleikar sjávar-
dýra útskýrðir
— Ég er alveg dæmigeröur
fiskur segir hún. — Ég er
rómantisk, bliðlynd og ákveö-
in i að veröa kvikmynda-
stjarna.
Timinn
Alltaf verið að rægja
mjólkina
Jafnauðvelt aö kaupa hass og
mjólk
Fyrirsögn I DB
Ný staða
Bændur i viðbragösstööu.
Fyrirsögn I Timanum
Glöggskyggni
Þessi ákvöröun útvarpsráös
mun vafalítiö kæta knattspyrnu-
unnendur um land allt þvi ekki
eiga allir þess kost að komast á
völlinn.
Dagblaöiö
Islendingar erlendis
„Spurning um siöferöilegt for-
dæmi” — segir Brynjólfur
-Ingólfsson ráöuneytisstjóri, um
Brasillufara Pósts og sima.
Fvrirsögn I Visi
iþróttir efla alla dáð
Rugla KGB og CIA saman reit-
um vegna ólympiuleikanna?
Visir
Eru þær eitthvað öðruvísi
þar?
Vissu allt um umferöarreglurn-
ar á ísafirði
Fyrirsögn IDB
Vafasamur heiður
Barmur Mountbattens rúmaöi
vart fleiri heiöurs- og viöurkenn-
ingarmerki. Skæruliöar bættu um
betur i gær meö aö myröa 17
breska hermenn meö þvi aö
sprengja bil þeirra i loft upp.
Myndartexti IDB
Það munar ekki um það...
Ef þetta er ekki vltaspyrna þá
er á ekkert hægt að dæma vita-
spyrnu, néma á morö inn i teig.
Tlminn.
Hér er svo önnur mynd sem þið, kæru lesendur,
megið glíma við. Sendið lausnir sem fyrst og merk-
ið: „Myndartexti óskast" — Sunnudagsblaðið,
Þjóðviljinn, Siðumúlaó, Reykjavik. Brjótið heilann
um helgina!
Takk, takk! Fjöldi bréfa
hefur borist og dómnefndinni
mikill vandi á höndum. Eftir-
farandi lausn var talin sú
besta:
•
— Hvaö hefur oröið af hárinu
minu?
Svariö var merkt Egill
Skallagrimsson.og seljum viö
paö ekki dýrar en viö keypt-
um.
önnur svör:
— Ætli þaö sé eitthvaö til i
þessu sem blööin hafa verið aö
skrifa um hárætumaurana?
Hólmfríöur B. Keflavfk.
— Frægöin hefur vist stigiö
mér til höfuös!
Gunnar Karlsson, Breiöholti
Tilkynning frá
Orkustofnun
Skrifstofa Orkustofnunar ásamt Raforku-
deild eru fluttar að Grensásvegi 9,
Reykjavik, simi 83600. Aðrar deildir stofn-
unarinnar flytja að Grensásvegi 9 um
miðjan september.