Þjóðviljinn - 16.09.1979, Page 9
Sunnudagur 16. september 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
Vantar rafeindaheila
En Gunnar varð ekki barinn
niður. Hann vann sér hvarvetna
traust hjá góðu fólki. Hann var
fjöldamörg ár formaður verka-
mannafélagsins Þróttar á Siglu-
firði og sat lengi i bæjarstjórn
Siglufjarðar, stundum sem for-
seti hennar stundum varaforseti.
Það var mikið verk að vera for-
maður Þróttarog valt á miklu, að
það væri samviskulega rækt.
Gunnar var þar öllum stundum á
skrifstofunni. Eitt af þvi, sem si-
fellt þurfti að vaka yfir,var, að
kauptaxtar þeir, sem búið var að
semja um hverju sinni, væru
haldnir af atvinnurekendum. Það
varð sifellt að vera á verði gegn
þvi, að verkafólkið væri beitt
ranglæti ,og það var verk sem
Gunnar vann ekki fyrir aftan
bakið.
Eitt sinn hringir siminn hjá
mér og er spurt eftir Gunnari.
Hann var þá ekki heima, hafði
farið inn i Fljót i veiðiskap með
einhverjum félögum sinum. Þetta
var þá verkstjóri i rikisverk-
smiðjunum að spyrja eftir
Gunnari. Ég segi að hann sé ekki
heima en „get ég nokkuð greitt úr
þessu?”.
„Nei, en þetta er nú bara svo-
leiðis, að ég skil ekki þennan
taxta, sem við höfum fengið i
hendur”.
Við höfðum nú áður komist I
kast við þennan verkstjóra i sam-
bandi við launagreiðslur og hon-
um var sannast sagna óvenjulega
tamt að skilja ekki hlutina. Það
fýkur i mig svo ég segi:
„Rikið hefur nú gert annað eins
fyrir ykkur þótt það skaffaði i
hausinn á ykkur rafeindaheila
svo þið getið skilið taxtana, sem
þið eigið að greiða eftir, og sam-
þykktir hafa verið af hlutað-
eigendum og undirskrifaðir af
Gunnari og ykkar höfuðpaurum”.
Mörgum árum seinna kom til
min maður austan af Seyöisfirði
og spurði mig hvort ég hefði sagt
þetta: Þetta var þá komið alla
leið austur á Seyðisfjörð. Hún
flýgur, fiskisagan.
Já, það er kannski rétt að ég
skjóti þvi hér inn aö eftir að ég
hætti að vinna i sjúkrahúsinu þá
vann ég 11 ár i Alþýðuhúsinu og
svo við bióið hjá honum
Thorarensen.
Gott samfélag
— Þegar við Gunnar komum til
Siglufjarðar fundum við það
strax, að við vorum komin innan
um fólk, sem var á sömu bylgju-
lengd og viö. Það þurfti að berj-
ast fyrir sinu daglega brauði rétt
eins og viö. Þetta mátti heita eins
og ein stór fjölskylda. Ef einhver
þurfti einhvers með þá var hver
hönd tilbúin til hjálpar, svona var
samhjálparandinn rikur.
Þarna fundum við að við áttum
heima og á Siglufirði dvöldumst
við i 37 ár. Þaðan hefðum við
aldrei flutt ef eitthvað af börnun-
um hefði viljað setjast þar að. En
börnin okkar fjögur voru sitt i
hverju landinu og Gunnar búinn
að missa heilsuna. Þaö þýddi þvi
ekki annað en flytja suður aftur.
En mér finnst alltaf að Sigluf jörð-
ur verði aldrei of metinn né það
fólk, sem byggir bæinn.
Upphaf Borðeyrar-
deilunnar
— Nií kom þaö fram I
sjónvarpsviðtali sem Björn Þor-
steinsson átti við Óskar Gari-
baldason á Siglufirði fyrir nokkru
að þú hefðir tekið þátt i þeirri
frægu orrustu, sem Siglfirðingar
háðu i sambandi við Borðeyrar-
deiluna. Viltu segja mér eitthvað
nánar frá þátttöku þinni i þeirri
viðureign?
— Já, ég ætti nú að geta það þó
að min aðild að þeim átökum sé
náttúrulega sist orðaverðari en
félaga minna.
Það er rétt að Óskar Garibalda-
son félagi minn og góður vinur
sem aldrei hefur brugðist, ræddi
um þennan slag i sjónvarpsvið-
talinu, sem þú nefndir.
Borðeyrardeilan átti sér auð-
vitað sinar orsakir einsog allt
annað. Borðeyri var lltið þorp.
Þar var simstöð þar var verslun
og fáein ibúðarhús. Fólkið, sem
þarna vann við verslunina og
MHG
ræöir við
Steinþóru
Einarsdóttur
Síðari hluti.
ýmis störf i kringum hana, sá
aldrei pening. Kaupið var goldið i
vörum, sjálfsagt stundum á ekki
alltof sanngjörnu verði. Ekki var
óeðlilegt þó að þetta fólk færi að
hugsa um að „höndla” sjálft með
sina vinnu. Þvi stofnar það
verkalýðsfélag. Til var Alþýðu-
samband en það vildi ekki viður-
kenna þetta litla félag, sem risið
var á legg á Borðeyri. Þú skilur
það, en við getum nú sett allskon-
ar gæsalappir við þetta, Magnús
minn.
„Og hnútur fjúga
um borð”
— Nú er hringt i Gunnar. Hann
er ekki heima svo ég svara i sim-
ann. Þetta er þá Borðeyri. Ég er
beðin að biðja Gunnar að hringja
strax til Borðeyrar þegar hann
komi heim. Ég spyr hvort alvara
sé á ferðum.
hrúgað upp oliutunnum og alls
kyns skrani. Við gerum aðvart
um þennan undirbúning og okkar
menn skuinda á vettvang. Þá hefui
búist um á bryggjunni fjölmenn
sveit hvitliða ásamt sjálfri lög-
reglunni náttúrulega. Allt hirðist
þetta friða lið á bak við viggirð-
inguna og hafði auk þess tekið
brunaslöngur bæjarins til handa-
gagns i þvi skyni að nota þær til
þess að dæla sjó á rauðliða. Þarna
var sjáanlega við ærinn liðsmun
að etja þvi við vorum ekki nema
eitthvað um 30 en hinir margfalt
fleiri, svo maður minnist nú ekki
á hergögnin.
Við hikuðum samt hvergi við að
gera árás á viggirðingu þeirra
hvitliða og brutumst i gegnum
hana. Var nú barist af hörku á
bryggjunni um hrið. Ekki urðu þó
stór slys en einn af okkar
mönnum fór i sjóinn. Óskar
minntist á það i sjónvarpinu en ég
tók ekki eftir þvi að hann nafn-
greindi manninn. Þaö var nefni-
Veggteppi þaö, sem viö sjáum hér, hefur Steinþóra nýlokiö viö aö
sauma. Hún segir okkur aö það heiti „Stúlkan i dalnum” og aö fyrir-
myndin sé ættuð úr Dölunum i Sviþjóö. — Mynd: Leifur.
,,Já, það getur verið það. Það
er að koma skip með vörur en við
fáum engan stuðning frá Alþýðu-
sambandinu og verðum þvi að
leita aðstoðar félaganna á Siglu-
firði og Akureyri, þvi þeir eru
búnir að ákveða að skipa vörun-
um upp á öðrum hvorum staðnum
og aka þeim til Borðeyrar.”
Og nú kemur skipið til Siglu-
fjarðar. Það er haldinn fundur i
verkamannafélaginu og ákveðið
að reyna að stöðva uppskipun á
Siglufirði ef til komi. Það er sett á
verkfallsvakt. í henni eru þrjár
konur og ég ein af þeim. Hlutverk
okkar var að fylgjast með þvi
hvort tilraun yrði gerð til upp-
skipunar og láta þá okkar menn
vita af þvi. Þetta var bölvað kalsa
veður og ég berhausuð. Jón Val-
fells, kaupmaður sér okkur ganga
framhjá, kallar i mig og segir, aö
svona geti ég ekki verið um haus-
inn á verkfallsvakt i sliku veðri,
hleypur inn I búð, kemur aftur
með forláta lambhúshettu, treður
á hausinn á mér og segir mér aö
eiga.
Nú sjáum við, að undirbúningur
er hafinn að uppskipun meö þvi
að víggirða bryggjuna. Er þar
lega Oskar minn sjálfur, sem féll
fram af bryggjunni,en hann er nú
vanur að hafa mann fyrir sig og i
þetta sinn tók hann tvo hvitliða
með sér i hafið.
Þarna var helviti mikill kola-
bingur og fuku kolastykkin óspart
á báða bóga. En ég var svo helviti
feit og þung að ég komst aldrei
upp á kolabinginn og það þótti
mér verst.
Það kom náttúrulega að þvi aö
við, þessi litli hópur, var ofurliði
borinn, með lögregluna, hvit-
liðana, brunaslöngurnar og öll hin
„helgu” lög landsins á móti sér.
Og hvað stoðaði það, þó að við
værum bara að berjast fyrir ein-
földustu mannréttindum með-
bræðra okkar. Það er hart, að
þurfa að berjast upp á lif og
dauða fyrir slikum réttindum
handa meðbræðrum sinum.
Sárast var þó að þurfa að sjá
suma félaga sina, verkamennina,
standa I - „andskotaflokknum
miðjum”.
Kölluð fyrir réttvisina
Þegar við svo höfðum lotið i
lægra haldi, eins og við var aö bú-
ast, eftir harða viðureign, þá
var farið að kalla menn fyrir
rétt. Meðal þeirra sem þá frægð
hlutu, var ég. Var haldið heilmik-
ið réttarhald yfir Steinþóru, með
réttarvitnum og öllu tilheyrandi,
það vantaði nú svo sem ekki. Ég
var spurð að nafni og föðurnafni,
— það var ekki von aö sjálfur fó-
getinn þekkti mig, áminnt um
sannsögli og ég man ekki hvað og
hvað. Svo þegar lokið er nú öllum
serimonfunum spyr fógeti:
„Kastaðurðu grjóti, kastaðurðu
kolum?”
Þetta fannst mér svo fáránleg
spurning að ég svaraði henni
ekki.
Þá spyr fógeti og byrsti sig:
„Veistu ekki að það kostar nú
bara 24 daga fangelsi upp á vatn
og brauð að svara ekki fyrir rétti?
„Nei”, sagði ég, „ég hef enga
hugmynd um það, hef aldrei
heyrt eða séð neinar reglur um
það”.
Meðan þessu fór fram var hann
alltaf að skrifa i einhvern heljar-
doðrant. Svo lítur hann upp og
segir:
„Þú mátt fara”.
„Nei, ég fer ekki strax. Fyrst
verð ég að fá að vita hvað þú ert
að pára i bókina.”
Hann var ófáanlegur til að
segja mér það en skipar mér að
hypja mig heim. Ég hef alltaf
veriö dálitið þrjósk og nú var
komin I mig veruleg kergja svo ég
segi:
„Þú segir að það kosti 24 daga
fangelsi upp á vatn og brauð að
svara ekki fyrir rétti. Og þá vil ég
bara fara héðan beint i tugthúsið
þvi ég kæri mig ekki um að fá ein-
hvern mannskap til þess að sækja
mig heim einhverntima seinna.”
Þetta endaði svo auðvitað með
þvi að ég fór heim til min. Og
eftirmál urðu engin. Ég held, að
yfirvöld hafi áttaðsig á að illa var
stætt á þvi, vegna almennings-
álitsins, þrátt fyrir allt, — að
sækja það fólk til saka sem þarna
átti hlut að máli.
Oftast var
þó friðsamlegt
Annars er ekki annað hægt að
segja en að friður og eining hafi
yfirleitt rikt á Siglufiröi á þessum
árum og horfi ég þá framhjá
hrindingum og pústrum sem
stundum komu fyrir yfir sild-
veiöitimann, þegar Siglfirðingar
sjálfir voru ekki nema litill hluti
þess fólks, sem gisti bæinn. Deil-
ur voru aðallega i sambandi við
kaupgjaldsmái, hjá þeim var ekki
hægt að komast.
Góð eining var yfirleitt meðal
verkafólks á Siglufirði og Þróttur
var öflugt verkalýðsfélag, sem
naut dugmikillar forystu. Og það
var Þróttur, undir stjórn
Gunnars, sem braut isinn fyrir
þvi, að farið var að borga helgi-
daga eins og aðra daga.
Siglufjörður kvaddur
Þegar við Gunnar svo yfir-
gáfum Siglufjörö, eftir 37 ára dvöl
þar, voru okkur haldin kveðju-
samsæti bæði af verkalýðsfélag-
inu og bæjarstjórninni og færðar
góðar gjafir, m.a. málverk af
Siglufjarðarskarði og fallegur
hvildarstóll. Seinna færðu vinir
minir á Siglufiröi mér útskorinn
stól. Siglfirðingar kvöddu okkur
svo elskulega sem frekast er hægt
að hugsa sér.
Gunnar átti gott bókasafn. Að
honum látnum gáfu Pétur sonur
okkar og Svanhildur kona hans
Vöku á Siglufirði þetta bókasafn,
og munu þau hafa fullan hug á að
hlynna að þvi framvegis. Þetta
var vel til fundið. Gunnar vildi
veg verkalýðsins ávallt sem
mestan og vann honum það, sem
hann mátti. Með afnotum af
bókasafninu heldur siglfirskur
verkalýður áfram að njóta Gunn-
ars og verka hans.
Siglfirðingar og Skagfirðingar
sýndu Gunnari það traust, að
kjósa hann á þing. Ég veit, að
hann mun ekki hafa brugðist þvi
trausti. Og þessa nýt ég nú i ell-
inni. Þessvegna hef ég nóg fyrir
mig að leggja og get meira að
segja leyft mér að gleöja aðra.
Hvers getur maður beðið, sem
betra er en það?
Ég vil svo biðja blaðið fyrir
kærar kveðjur til Siglfirðinga og
Skagfirðinga.
— mhg
J
ISLAND
140
ALWÓÐAÁR
BARNSiNS 1979
8 ára lista-
maður teiknar
frimerki
bamaársins
Aiþjóðapóstsambandið (UPU)
hefur beitt sér fyrir þvl aö
aðildarlönd þess gæfu út frimerki
i tilefni Aiþjóðaárs barnsins. ls-
lenska frimerkiö er teiknaö af 8
ára listamanni, Nönnu Huld
Reykdal, og sýnir börn að leik. A
frimerkinu er einnig hið opinbera
merki Alþjóðaárs barnsins, sem
valið var á sinum tlma úr 170 til-
lögum og er eftir Erik Jerichau
frá Danmörku. Verðgildi merkis-
ins er 140 kr. og útgáfudagur er
12. september.
Sami útgáfudagur er á frimerki
sem Póst- og simamálastjórnin
gefur út i tilefni 75 ára afmælis
Stjórnarráðs Islands sem tók til
starfa 1. febrúar 1904. Það er
hannð af Þresti Magnússyni og
sýnir skjaldarmerkið fram til
1904 annarsvegar og hinsvegar
skjaldarmerkið 1904-1919. Verð-
gildi er 500 krónur.
31. þing UMFÍ:
Öflugt starf
og vaxandi
gengi ung-
menna-
félaganna
Sl. tvö ár voru óvenju mikil
framkvæmda- og umsvifaár hjá
Ungmennafélagi lslands, að þvi
er fram kom i skýrslu stjórnar á
31. þingi UMFl að Stórutjarnar-
skóla i byrjun september. öflugt
starf var unniö að útbreiðslu- og
fræðslumálum, aukin erlend
samskipti, landsmót haldiö á Sel-
fossi sl. sumar og keypt húsnæði
fyrir skrifstofu og þjónustumið-
stöð samtakanna i Rvk.
Allmörg mál lágu fyrir þinginu,
m.a. tillögur um fjármál, um
uppbyggingu i Þrastaskógi, um
fræðslu og útgáfumál, Iþrótta-
kennaraskóla Islands, bindindis-
mál, auk samþykktar á reglugerð
fyrir næsta landsmót UMFI sem
verður haldið á Akureyri i júli
1981.
Hafsteinn Þorvaldsson gaf ekki
kost á sér til áframhaldandi for-
mannsstarfa og var Pálmi Gisla-
son kosinn formaður UMFI til
næstu tveggja ára. Aðrir i stjórn
voru kosnir þeir: Guðjón Ingi-
mundarson, Bergur Torfason,
Jón Guðbjörnsson, Þóroddur Jó-
hannsson, Diðrik Haraldsson og
Björn Agústsson. I varastjórn
vorukosnir: Dóra Gunnarsdóttir,
Haukur Hafsteinsson, Finnur
Ingólfsson og Hafsteinn Jóhann-
esson.
Þingið sátu um 70 fulltrúar og
gestir. Ungmennafélögin hafa átt
vaxandi gengi að fagna á undan-
förnum árum og eru nú tæplega
22 þúsund félagar innan Ung-
mennafélags Islands, i 196 félög-
um.