Þjóðviljinn - 16.09.1979, Side 13
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 16. september 1979
Sunnudagur 16. september 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13
Notkun örvandi lyfja til
þess að auka afkastagetu
líkamans er ekkert nýtt
fyrirbirgði. Fyrir 5000
árum notuðu kínverskir
læknar seyði af AAa Huang
jurtinni til þess aðstyrkja
hjartað og gafst vel. Það
var ekki fyrr en 1924 að
efnagreining jurtarinnar
leiddi í Ijós að hún innihélt
efedrin sem hefur örvandi
áhrif á miðtaugakerfið.
Annars hefur alkóhólið verið
vinsaelasta örvunarlyfið og eru til
margar sagnir um notkun þess
þegar menn hafa viljað auka þrek
sitt og þol. Hermenn Ghengis
Kahn fengu t.a.m. áfengi til þess
að styrkja þrek sitt þegar barist
var i marga daga um Peking árið
1215.
Dagar kraftaverkalyf j-
anna.
A 19.öldinni var mikið um
svokölluö kraftaverkalyf f
iþróttalifi Evrópumanna. Arið
1879 var haldin i fyrsta skipti
6 daga hjólreiðakeppni og voru
þátttakendur frá mörgum
20% keppenda voru
undir áhrifum lyfja
þjóðum, hver meö sitt krafta-
verkalyf. Frönsku þátttakendurn-
ir voru meö blöndu sem innihélt
mest koffein, Belgarnir sötruðu i
sig sykur,- sem var uppleystur i
eter, og mjög margir voru með
alkóhóiglundur. Þjálfararnir
voru sérfræöingar i að útbúa
„lyfin” og sumir geröust svo
kræfir að nota heróin og kókain og
má nærri geta hvaöa afleiðingar
notkun þeirra efna hefur haft.
Þaö hlaut að reka aö þvi aö
iþróttamennirnir dræpu sig af
notkun þessara lyfja. Arið 1886
hné enskur hjólreiðakappi niöur
örendur i keppni og var sannaö aö
dauðaorsökin var of mikil lyfja-
inngjöf, en þar áttu mesta sök
þjálfarinn og eigandi hjólhesta-
fyrirtækis þess, sem hinn látni
keppti fyrir.
Uppúr aldamótunum fóru menn
aö reyna nýjar leiðir og knatt-
spyrnumenn i Belgiu og á
Englandi reyndu aö auka afreks-
getuna með súrefnisinngjöfum,
en ekki er getiö um árangurinn.
öllu stórtækari voru hnefaleika-
menn á þessum árum þvi þeir
tóku ekki einungis inn allskonar
lyf, heldur reyndu aö koma
einhverri ólyfjan ofani andstæð-
inginn til þess aö minnka baráttu-
þrek hans. Arið 1910 fullyrti
James Jefferie að mótherji sinn,
Jack Johnsen, hefði komiö róandi
lyf jum i teið sem hann drakk fyrir
keppnina, en þess má geta að
Johnsen rotaði Jefferie eftir
stuttan bardaga.
Amfetamin kemur til
sögunnar.
Arið 1910 fékk rússneski efna-
fræðingurinn Bukowski i Vinar-
borg send hrákasýni úr
þarlendum veöhlaupahestum og
eftir aö hafa rannsakaö sýnin
fann hann mikið af akkloider i
þeim. t kjölfar þessarar rann-
sóknar var fariö aö fylgjast vel
meö hestunum og sett bann á þá
menn sem gáfu þeim lyf. A þess-
um árum var álitiö aö 30 til 50% af
öllum veðhlaupahestum væru
gefin örvandi lyf i eða fyrir
keppni. 1 dag er talið að um 1%
hestanna fái lyfjainngjöf, en mjög
erfitt er að koma algjörlega I veg
fyrir slikt.
Eftir þetta vaknaði nokkur
áhugi á þvi hjá visindamönnum
að rannsaka áhrif hinna ýmsu
lyfja á afreksgetuna og 1919 var
gerð umfangsmikil rannsókn á
þessu sviði. Sérstaklega höföu
margir áhuga á áhrifum amfeta-
mins. 1934 var iþróttamaður
gómaður eftir að hafa sannanlega
neytt amfetamíns fyrir keppni.
Þessi áhugi á amletamlninu
vaknaði i kjölfar fyrri heim-
styrjaldarinnar, hvar lyfið var
notað til þess að draga úr þreytu
hjá hermönnum eða öllu heldur
örva þá um stundarsakir. í seinni
heimstyrjöldinni voru þessi efni
notuð i enn rikara mæli. Pervitin
notuðu Þjóðverjar, en Englend-
ingar methedrin.
Þegar öll þessi vitneskja um
gerð, eðli og áhrif örvandi lyfja lá
fyrir er e.t.v. ekki óeðlilegt að
iþróttamenn hafi leiðst út i notkun
þeirra, sérstaklega á stórmótum
s.s. ólympiuleikum. Fullyrt var
aö japönsku sundmennirnir, sem
tóku þátt I ólympiuleikunum i
Los Angeles 1932 , hefðu allir
fengið súrefnisinngjöf skömmu
áður en þeir hófu keppni. Fleiri og
fleiri fóru aö gefa þessum málum
gaum og mikil og hávaöasöm
umræöa varð i Bandarikjunum
1946 eftir aö hnefaleikamaöur
nokkur viöurkenndi opinberlega
aö hafa verið sprautaöur meö lyfi
sem geröi hann árásargjarnan og
sterkan.
Sprautur í búningsher-
bergjum
A vetrarolympiuleikunum í Oslo
1952 fundust sprautur og margs
konar lyf i búningsherbergjum
skautahlauparanna. Hið sama
átti við á olympiuleikjum I
Melbourne 1956 og þar voru
margir hjólreiðamenn sakaðir
um notkun á stryknin, sem er
örvandi efni. Hjólreiðamennirnir
hafa einmitt ákaflega oft verið
undir smásjánni i þessum efnum
og i Tour-de-France keppninni
1955 reyndust 20% keppenda vera
undir áhrifum lyfja. Einn
keppenda reyndist hafa 20
amfetamfntöflur með sér til þess
að vera viss um að hann gæti
lokið keppninni. Ef upp um hjól-
reiðamennina komst var þeim
yfirleitt meinað að taka þátt I
keppni i skamman tima eöa þeir
látnir fá léleg rásnúmer. A
þessum árum var þaö öllum ljóst
að hjólreiöamennirnir notuðu
örvandi lyf, en þrátt fyrir það
voru margir þeirra dýrkaðir sem
þjóðhetjur I sinum heimalöndum.
Lyfjaneysla dánarorsökin.
Um 1960 fóru iþróttamennirnir,
þjálfararnir og almenningur
loksins aö átta sig á hvað væri hér
á feröinni og til þess þurftu
nokkrir iþróttamenn að drepast
af völdum örvandi lyfja. 25 ára
gamall hjólreiðamaður dó i
keppni eftir aö hafa tekið 8 töflur
Sagt frá
nokkrum
staöreyndum,
sem sjaldan
er getið í
íþrótta-
sögunni
af feniyl-isopropylamin og 15
töflur af amfetamíni. Skömmu
siöar eða i olympluleikunum i
Róm 1960 dó danskur hjólreiöa-
maður eftir að hafa neytt of stórs
skamtar af amfetamini og
nikotfnsýru. Sá sem vann 3.
verölaun i 400 m hlaupi á sömu
leikum dó skömmu seinna i
keppni, en krufning leiddi i ljós,
aö dánarorsökin var heróinneysla
skömmu fyrir keppnina.
Þrátt fyrir allar ofantaldar
staðreyndir hefur neysla hinna
ýmsu lyfja margfaldast hjá
iþróttamönnum hin seinni ár.
Skýringin er eflaust sú að i
mörgum greinum komast menn
hreinlega ekki á toppinn nema að
nota lyf vegna þess að metin eru
orðin það góð aö „heilbrigð sál i
hraustum likama” dugir ekki
lengur. Þetta á einkum viö i þeim
greinum, sem krefjast hraða og
krafts og reyndar einnig þols. Þá
er pressan á iþróttamönnunum
orðin mjög mikil, heilu þjóðirnar
hreinlega krefjast þess að þeir
standi sig. Fyrir bragðiö er
mörgum iþróttamanninum att út
I foraö lyfjaneyslunnar.
Ariö 1959 var haldin i Paris
fyrsta alþjóðlega ráðstefnan um
lyfjaneyslu iþróttamanna og
áhrif hennar og þá má segja að
byrjað hafi verið að taka þessi
mál föstum tökum. Þó að visinda-
leg vitneskja liggi fyrir um skaö-
semi hinna ýmsu efna, sem
iþróttamennirnir nota.verður
aldrei hægt að stöðva neysluna
algjörlega, en úr henni má draga
með þvi að benda á vitin til varn-
aöar.
Sjá næstu siðu.
Tour-de-France hjólreiðakeppnin 1955:
Vísbending?
1 tvö ár minnkaöi sala á anabolic steroider
um 14% i Noregi og samtimis sýndu norskir
lyftingamenn 3.2% lélegri árangur á Norður-
landamóti. Þetta er e.t.v. ekki raunhæfur
samanburður, en sýnir öngvu að sföur
ákveðna þróun.
Einföld skýring
Arangur lyftingamanna i norskum bæ
minnkaði verulega eitt árið. Farið var aö
leita skýringa og kom þá i ljós, að nokkru
áður hafði læknir bæjarins dáið, en sá var
vist ansi kærulaus I útgáfu lyfseöla.
Dinabol örvar
eggjahvítumyndun
Anabolic steroider, sem mikiö er rætt um
hér á siðunum, eru gervihormónar, sem
likjast þeim hormónum er koma frá nýrna-
berkinum. Sé þessu efni komið i likamann
örvar það eggjahvitumyndun frumanna, sem
hefur i för með sér stærri vöðva.
Aukið smygl
Eftir að farið var að fylgjast með neyslu
hinna ýmsu lyfja hjá Iþróttamönnum hefur
smygl hinna forboðnu efna milli landa stór-
aukist. Fyrir nokkru fann ta .m. norskur toll-
vörður umtalsvert magn hormónaefna, sem
smygla átti inn i landið.
Hver er skýringin?
Ameriski kringlukastarinn Mac Wilkins
hefur oftsinnis verið ásakaður um lyfja-
notkun og aö hann hafi foröast að keppa þar
sem hætta væri á að hann lenti i lyfjanotk-
unarprófi. Þessi ásökun kom m.a. fram i
norskum blöðum fyrr i sumar. Þvi hljótum
við að spyrjat Hvað er þessi hreimsfrægi
kringlukastari að vilja hingað til lands ár
eftir ár meðan hann hefur úr aragrúa stór-
móta annars staðar i Evrópu að velja?
5 ára keppnisbann
Fyrir rúmum mánuði var 22 ára gamall
kraftlyftingamaður norskur dæmdur i 5 ára
keppnisbann vegna þess að hann seldi kunn-
ingja sinum lyfseðil upp á anabolic steroider.
Læknirinn sem lyfseöilinn skrifaöi slapp ein-
ungis vegna þess að hann útfyllti seðilinn
með nafni og heimilisfangi „sjúklingsins’
Karlhormóninn
testosteron
Hormóninn testosteron er tittnefdur hér á
siðunum. Þetta er karlhormón, þ.e. hefur
örvandi áhrif á það sem kalla má karllega -
eiginleika, s.s. skeggvöxt, röddina og vöðva-
uppbyggingu.
25,5% neyttu lyfía
Misnotkun á hinu örvandi lyfi amfetamin
er mjög útbreidd meðal hjólreiðamanna
Arið 1965 gerði belgiskur visindamaður, dr
A. Drix, könnun á þessu eftir keppnir þar i
landi. Alls athugaði hann 254 hljólreiðakappa
og reyndust 25,5% eöa 63 þeirra hafa neytt
amfetamins. Samsvarandi athugun sýndi að
23% áhugahjólreiðamanna neytti amfeta
mins fyrir keppni og 7% af keppendum
barna- og unglingaflokkum.
Svíar engin lömb
Úr þvi að kannanir á lyfjanotkun iþrótta
manna eru á dagskrá má geta þess aö 75% af
bestu kösturum Svfa 1975 viðurkenndu
leynilegri könnun aö hafa neytt anabolic
steroider um lengri eða skemmri tima.
Heimildir:
Við samantekt efnisins um lyfjaneyslu
iþróttamanna hef ég einkum stuðst viö eftir
taldar heimildir:
1. Fyrirlestur dr. Sveins Oseid á þingi nor
rænna iþróttafréttamanna i Moss 11. júni
s.l..
2. Bæklinga Norska iþróttasambandsins um
iþróttir og lyfjaneyslu, einkum nr. 3
„idrett og stimulerende midler-doping”
3. Álit nefndar á vegum Norðurlandaráðs um
þetta efni, fram komið 14. mars 1978.
4. Fjöldamargar greinar I norska Dag
blaðinu, sem birst hafa það sem af er þessu
ári.
Helsta ástæða þess að leitaö er til Noregs i
gagnaöflun er sú, að þar eru eöa öllu heldur
voru viðhorf til þessara mála mjög svipuð þvi
sem hér á landi eru nú. Þar hristu menn lengi
vel hausinn ef minnst var á lyfjaneyslu
iþróttamanna. —IngH
QiaííaWa
friðhelgi einstaklingsins. Menn
mega drepa sig á brennivins-
drykkju, en ekki neyta vööva-
þrútnunarlyfja til þess að geta
kastað kringlu 4 metrum lengra.
Dæmið getur einnig snúist við
þegar opinber yfirvöld beinlinis
krefjast þess af iþróttamanni að
hann neyti lyfja.
in gefið út lista, sem inniheldur öll
þau efni sem þátttakendum á
olympiuleikum er óheimilt að
nota.
Siöfræðileg hætta fyrir
hendi.
Úti í hinum stóra heimi
iþróttanna er stööugt i
gangi fjörug umræöa um
lyfjanotkun íþróttamanna.
Spurningarnar sem vakna
eru ekki eingöngu um and-
legarog líkamlegar afleið-
ingar, heldur einnig um
siðferðileg vandamál. Hér
á eftir verður stiklað á
stærstu steinunum og ekki
fjallað um stöðu þessara
mála hér á landi, en e.t.v.
verður það gert siðar.
Þegar undirritaður var á
ferð í Noregi í sumar var
mikið rætt um þessa lyfja-
notkun, og kom sú umræða
í kjölfar þess að upplýst
var i norska Dagblaðinu að
14 ára strákar í Friðriks-
stað höfðu neytt margvís-
legra lyf ja til þess að auka
afreksgetuna. Slíka stór-
frétt þurfti til þess að far-
ið var að ræða opinskátt
um málið.
Hvað er „doping"?
Nokkuð hefur veriö á reiki hvað
telst óleyfileg lyfjanotkun eða
eins og á erlendum tungumálum
kaliast „doping” Iþróttamanna.
Dönsk skilgreining frá 1962 segir
svo: „Þegar rætt er um „doping”
iþróttamanna er. átt við neysiu
efna, sem stuðla að þvi að auka
afreksgetuna óeðlilega mikið með
þvi að hafa áhrif á miðtaugakerf-
ið, blóðrásina eða vöðvabygg-
ingu. Einnig telst það „doping”
þegar reynt er að koma i veg fyrir
eölilega þreytutilfinningu.”
Þessi skilgreining nær e.t.v.
ekki langt, en segir samt nokkuð
mikið. Til þess að loka sem flest-
um smugum hefur olympiunefnd-
Þá vaknar spurningin um ýms-
ar aöferöir til afkastaaukningar
sem ekki falla undir lista
olympiunefndarinnar s.s. blóð-
flutning. Hinn frægi finnski
hlaupari, Lasse Viren, er álitinn
nota þessa aðferð fyrir stórmót.
Þetta fer þannig fram aö viðkom-
andi lætur taka úr sér blóð á
ákveönum tima fyrir keppnina.
Likaminn hefur strax uppbygg-
ingarstarfsemi og þegar blóðinu
er dælt inn i likamann á nýjan leik
kemur það sem umframmagn.
Þetta þýðir að meira hemoglobin
(efni sem flytur súrefni) er i lik-
amanum, meiri fylling veröur i
hverju slagi hjartans o.s.frv. Er
óleyfilegt að nota þessa aðferð?
Slikum smugum hefur verið reynt
að loka með þvi að segja að ekk-
ert megi aðhafast sem gefur
óeðlilegt forskot framyfir kepp-
endurna, allt slikt samræmist
ekki anda iþróttanna. Spurning-
unni um það hvað sé óeðlilegt og
hvar mörkin liggi hefur enn ekki
verið svarað.
Liffræðilegar ástæður:
Ástæður þess að reynt er af
mætti að koma i veg fyrir lyfja-
notkun iþróttamanna eru þrenns
konar:
A. Yfirvofandi heilsu- eða lifs-
hætta (stöðvun blóðrásarinnar,
andleg röskun o.s.frv.).
B. Varanleg lifs- og heilsuhætta
(breytingar á liffærastarfsemi,
andlegar breytingar, erfiðleikar
meö svefn o.s.frv.).
Siðfræöilegar ástæður:
A. Striðir gegn siðfræöi/móral
Iþróttamanna.
B. Biöur heim hættunni á sið-
fræðilegu hruni þjóöfélagsins.
Lögfræöilegar ástæður:
A. Notkun nokkurra lyfjanna s.s.
kókains og heroins striðir gegn
fikniefnalöggjöf flestra landa.
Upptalningin hér að ofan er ein-
ungis til þess ætluð að benda á
hluta af þvi sem óæskilegt kann
að teljast. Raunar er það alltaf
umdeilanlegt hvað opinberir aðil-
ar eiga að teygja sig langt inn i
Lyf janotkunarpróf
gagnslaus
Lyfjanotkun iþróttamanna má
skipta i tvo meginflokka
1. Lyfjaneysla skömmu fyrir
keppni eða i keppninni sjálfri.
Ekki er svo miklum vandkvæðum
bundið að koma i veg fyrir þessa
neyslu þvi hægt er að gera próf-
anir strax að keppni lokinni.
2. Lyfjaneysla þegar keppni er
ekki i nánd t.d. á æfingatimabili.
Þessi neysla er stóra vandamálið,
sem illa gengur aö ráða við, eink-
um vegna þess að efnin gefa ekki
jákvæða svörun i prófi, sem tekið
er nokkrum vikum eftir að neyslu
lýkur.
Fyrir nokkru var gerð athugun
á þvi hve lengi eftir að neyslu
anabolic steroider lýkur er hægt
að fá jákvæöa svörun i athugun. 1
ljós kom aö einungis I örfáum til-
,fellum fékkst jákvæð svörun viku
eftir að neyslu lauk, en taka verð-
ur með I dæmið að þarna var um
að ræða mjög litla neyslu. Norsk-
ur iþróttamaður hefur fullyrt að
hann hafi neytt anabolic steroider
viku fyrir próf, en sú neysla ekki
komið fram i prófinu. A hinn bóg-
inn fékk sænskur iþróttamaður
jákvæða svörun 4 vikum eftir að
hann neytti anabolic steroider
siðast. Þetta er þvi ákaflega ein-
staklingsbundið, en með nokkurri
hyggni ætti að vera hægt að forð-
ast að falla á sliku lyfjanotkunar-
prófi.
Hvar á að
setja mörkin?
Karlhormóninn testosteron er
mikið notaöuraf iþróttamönnum,
einkum konum. Iþróttakonur frá
Austur-Evrópu liggja mjög undir
grun i þessu sambandi og finnst
mörgum undarlegt að sjá margar
þeirra hálfskeggjaöar og dimm-
raddaðar.
Mjög einstaklingsbundið ér hve
mikið af testosteroni er i
blóði/þvagi og þá vaknar spurn-
ingin um það hvar eigi að setja
mörkin. Sumir sjúkdómar auka
testosteron-magn likamans og
mögulegt er að Iþróttamaður
sem nýlega er stiginn upp úr slik-
um sjúkdómi myndi falla á lyfja-
notkunarathugun.
Athuganir á lyfjanotkun
iþróttamanna eru einkum þrenns
konar:
1. Munnvatnssýni
2. Blóðsýni
3. Þvagsýni.
Sýnin eru efnagreind eins og
kostur er, en efnagreiningin er
erfið, dýr og gefur ekki niðurstöð-
ur af öllum þeim efnum sem til
greina koma. Vegna kostnaöarins
er einungis hægt að taka sýni á
svokölluðum stórmótum. Norð-
menn senda öll sin sýni til Lon-
don, hvar þau eru efnagreind og i
vor var kostnaðurinn á hvert
þeirra 500 n. kr. eða um 40 þús. isl
kr.
Þvagi annars
manns
sprautað inn
i þvagblöðruna
Ýmsar aöferðir hafa iþrótta-
menn notað til þess aö fara i kring
um slik próf. Fyrir mörgum arum
fóru menn með þvag annars
manns innanklæða og helltu þvi i
glasiö. Lokað var fyrir þá smugu
með þvi að láta fylgjast með þvi
er viðkomandi kastaði þvagi.
Mótleikur iþróttamannanna varð
siöan sá, að sprauta þvagi annars
manns, t.d. þjálfarans.inn I þvag-
blööruna áður en að sýnatöku
kom. Svona mætti lengi telja.
Hér að framan hefur einkum
verið fjallað um neyslu anabolic
steroider og testosteron sem eru
hormónaefni og hafa áhrif á
vöðvauppbyggingu og hormóna-
starfsemi likamans. Þessi efni
eru mjög i sviðsljósinu nú af ýms-
um orsökum. En lyfjaneysla
Iþróttamanna er langtum viðtæk-
ari. Efna sem hafa áhrif á mið-
taugakerfiö (amfetamín, koffein,
kokafn, efedrin o.s.frv.j, róandi
lyfja (mepromat, valium o.s.frv.)
og æðavikkunarlyf jai (t.d.
ronicol) er einnig neytt og væri of
langt mál að fara að rekja áhrif
þessara lyfja hér.
Hvað með
okkur?
Eins og hér að framan hefur
verið rakið er lyfjaneysla iþrótta-
manna mikið vandamál úti i hin-
um stóra heimi. En spurningin er
einungis þessi: Hvernig skyldi
þessum málum vera háttað hjá
islenskum iþróttamönnum?
-IngH