Þjóðviljinn - 20.10.1979, Blaðsíða 11
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 20. október 1979
Laugardagur 20. október 1979 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11
á dagsKrá
>Mikil og margvísleg ábyrgd hvílir á
konu sem gengur með barn og sumir
'þœttir hennar eru ekki á valdi móðurinnar
einnar,en það ermargt sem hún getur látið
ógert til að tryggja barni sínu heilbrigði
Vímuefni á
meðgöngutíma
1 tilefni af alþjóðaári barnsins
hafa um 300 þjóðkunnir menn
undirritað áskorun til að vekja
athygli á þvi, hvilikt böl neysla
vfmuefna og þá einkum áfengis
er þjóðinni og hve miklum þján-
ingum hún veldur börnum.
Skorað er á landsmenn að
hverfa til heilbrigöari hátta og
byrja á aö neita sér um öli
vfmuefni vikuna 21.-27. október.
t tilefni vikunnar eru tekin á
dagskrá ýmisleg mál er varða
vfmuefni. Guðsteinn Þengilsson
læknir hefur orðiö:
Markmiö þessa greinarkorns
er að ræða mjög stuttlega áhrif
vimugjafa á mannsftístur, ef
móðirin neytir þeirra á með-
göngutimanum.
Vfmugjafar kallast efni sem
koma huganum i annarlegt
ástand, oftast með þvl að
sljóvga hann. Þau lama þannig
bæði dómgreind og rökhugsun.
Flestum sem neyta þessara
efna finnst þetta vlmuástand
þægilegt og sækjast eftir þvi.
Þessvegna nefnast þau einnig
fikniefni og er alkóhól þeirra
langþekktast, þótt fleiri efni
sæki nú fast á eftir.
Þau áhrif sem flestirtíttast og
setja í samband við lyfjanotkun
á meögöngutima er vansköpun-
in. Allir muna eftir thaliadomid-
börnunum, og hve mörg þeirra
hlutu hryllilegan vanskapnaö.
Sannleikurinn er þó sá, aö þau
lyf sem hér eru tiöast notuð
gegn streitu og taugaspennu
valda ekki neinnivansköpun svo
vitaðsé. Þó er rétt aö hafa gát á
allri lyfjagjöf um meðgöngu-
timann, þar eð áhrif þeirra á
fóstrið séu ekki fyllilega þekkt.
En sá læknir, sem takmarkar
lyfjagjafir til þungaðrar konu
við brdönauðsynlegustu tilvik,
og notar aöeins þau lyf, sem
löng reynsla er fyrir að séu
hættulaus, hann á ekki að þurfa
að óttast skaöleg áhrif á barnið
af völdum lyfjanotkunar.
Meöal þeirra lyfja, sem mest
eru í uppáhaldi hér gegn streitu
og spennu er diazepam
(valium). Það er sums staðar
mikið notaö til að koma i veg
fyrir yfirvofandi fæðingar-
krampa. Um það og skyld efni
(t.d. librium og mogadon) er
þaöaðsegja aö berast greiölega
gegnum legkökuna til fóstursins
og safnast fyrir i vefjum þess.
Hafi þess verið neytt I verulegu
magni fyrir fæðingu, getur þaö
valdið syfju og slekju hjá hinu
nýfædda barni, heilaskemmd-
um, grunnri öndun eða jafnvel
öndunarstöðvun um tima. Það
hefur truflandi áhrif á hjarta-
sláttinn í fæöingunni, og barnið
sýgur brjóstið slaklega.
Notkun sterkari fikniefna, s.s.
morflns og heróins á meðgöngu-
tima getur truflaö eða tafiö vöxt
fóstursins. Strax eftir fæöingu
geta komið upp næringarvanda-
mál hjá barninu, það þjáist af
uppköstum, almennri vanliðan
og er mjög óvært. Ef ekkert er
aö gert geta þessi börn dáiö
skömmu eftir fæöingu. Talið er
aö um fráhvarfseinkenni sé að
ræða hjá þessum börnum og
kemur það einkum skýrt fram,
hafi móðirin neytt þessara efna
stöðugt og I nokkrum mæli fyrir
fæðinguna.
Þá mun LSD-notkun leiöa til
breytinga á litningum hjá barn-
inu sem getur haft mjög alvar-
legar afleiöingar.
Um notkun cannabis og
amphetamin á meðgöngutima
er ekki fyllilega ljóst, hvaða
áhrif hún hefur á fóstrið, þaö er
umdeilt atriði, en vist má telja
að sú notkun sé afar óheppileg
eins og neysla annarra vimu-
gjafa.
Vika
baráttu
gegn
neyslu
vímuefna
Af engi i'litlu magni hefur ekki
teljandi bein áhrif á fóstrið á
meðgöngutimanum. Þó berst
það greiðlega um legkökuna til
fóstursins, en skilst fljótlega út.
Meiri háttar áfengisnautn móð-
urá meðgöngutima getur valdið
ótimabæru fósturláti, og sé
áfengisins neytt til lengdar,
hindrar það vöxt og þroska
fóstursins og skaðar miðtauga-.
kerfi þess með ófyrirsjáanleg-
um afleiðingum.
Tóbaksreykingar á með-
göngutlma eru fóstrinu hættu-
legar séu þær umtalsveröar.
Nikótíniö þrengir æðarnar i leg-
kökunni og truflar þannig nær-
ingu fóstursins, sem þroskast
seinna og getur borið þessa
varanlegar menjar.
Sé fleiri tegunda vimugjafa
neytt samtimis, magnast skaö-
semi þeirra verulega. Það á við
á meögöngutimanum, ekki sið-
ur en endranær, að lyfjameö-
ferö og áfengisneysla eiga ekki
samleið, ég tala nú ekki um, ef
lyfin eru einnig notuð sem
vimugjafi. Áhrifin af tveim eða
fleiri vimugjafa-tegundum, sem
neytt er samtlmis, geta verið
ófyrirsjáanleg. Benda verður
einnig á, aö auk þess sem vimu-
gjafaneysla hefur bein skaðleg
áhrif á fóstrið, eru hinir óbeinu
skaðar af völdum þess ekki sið-
ur umtalsverðir. Næringar-
skortur, s vefntruflanir og óholl-
ir lifnaðarhættir almennt er
meðal þess er nefna mætti um
þetta óbeina tjón. Móðirin veikl-
ar likama sinn svo, að hún verð-
ur þess siður umkomin aö
veita barni sinu góða umhirðu
og holla móöurmjólk og næga
eftir fæðingu. Auk þess stofnar
hún sjálfri sér i verulega hættu.
Það er mikil ábyrgð, sem
hvilir á móðurinni meöan hún
gengur með barn sitt og verð-
andi þegn I samfélaginu. Þessi
ábyrgð er margvisleg og sumir
þættir hennar ekki á valdi
móðurinnar einnar. En það er
margt, sem hún getur gert eða
látið ógert til aö tryggja barni
sinu heilbrigöi sálar og likama
og byggja þannig traustan
griínn undir hamingju þess og
lifsfyllingu. Eitt af þvi allra
mikilvægasta er aö foröast
vimugjafa um meðgöngutim-
ann. Geri hún það ekki, er eins
vist aö hún sé að leggja stein i
götu lifveru, sem er aö verða
maður, hún sé að kyrkja þaö líf,
sem hún ber undir brjósti sér.
Þótt dauði fósturs eða nýfædds
barns af völdum vimugjafa,
sem móðirin hefur neytt um
meögöngutimann, sé ekki al-
gengur, má rekja ýmsar trufl-
anir sem verða á andlegum og
likamlegum vexti barnsins til
vimugjafaneyslu móðurinnar.
Þessar vaxtatruflanir geta sið-
an haft áhrif á feril barnsins
alla þess ævi.
Guösteinn Þengilsson
Það var 1917, miðað viO 7.
nóvember, sem rússnesku bolsé-
vikarnir GERÐU HREINT I
Rússlandi undir forustu Lenins
og hans félaga, ótaldra hundraOa
og þúsunda hundraöa manna,
sem hvergi eru skráO nöfn á.
Þetta var mesta bylting, sem orö-
iö haföi nokkru sinni I heiminum,
og haföi feikileg áhrif á mikinn
hluta heims. A0 minu viti uröu
áhrifin hvergi jafnmikil og i
Þýskalandi. Þar mun hafa veriö
þá þegar öfhigasti kommúnista-
flokkur utan Rússlands, og viö
þessar aögeröir Rússanna
tviefldust Þjóöverjarnir undir
stjórn sfns ástsæla foringja,
Ernst Thalmann.
En s vo sprattupp annar flokkur
I Þýskalandi með ótrúlegum
hraða eins og gorkúlur á mykju-
haug, sem voru nasistarnir undir
stjórn Hitlers. Þeir svifust
einskis, óðu yfir allt og alla. Þeir
tóku Thalmann og murkuðu úr
honum lifiö, ekki með skoti eöa
henginu, sem munu vera tiltölu-
lega góðir dauðdagar — nei,hann
var drqiinn á hinn viðbjóösleg-
asta hátt með löngu kvalræði og
sem mestum hörmungum, og
þannig fóru nasistarnir meö
hundruð þúsunda
kommúnistanna 1 Þýskalandi.
Ahrifanna af rússnesku bylt-
ingunni gætti viða um heiminn,
meira aö segja á norðurhjara
veraldar, Akureyri. Upp úr 1930
var stofnaöur Kommúnistaflokk-
ur Islands og ein öflugasta deildin
i honum var hér á Akureyri. I
deildinni hér var flest af
menntaðasta og duglegasta fólk-
inu hér þá, en það var fyrst og
fremst verk Einars Olgeirssonar
að stofna flokksdeildina hér.
Hann var þá nýkominn heim frá
námi 1 Þýskalandi, hámenntaður
maður, og áhugann og dugnaðinn
var ekki aö tvila. — Það var hægt
að öðlast góöa menntun I
Þýskalandi áður en nasistarnir
brutu alla þá möguleika niður.
Þyrnir i augum
Egheld, að það hafi verið búiö
aö stofna þýskt konsúlsembætti á
Akureyriáðuren nasistarnir tóku
völdin, og konsúllinn var Siguröur
E. Hllðar dýralæknir, og þar af
leiðandi varö hann nasista-
konsúll. Þetta konsúlatvarmesta
hatursmál i hugum okkar
kommúnistanna, og höföu margir
fullan hug á að gera þvi
skráveifu. Og það hleypti
heiftarhug i marga, þegar
Siguröur E. Hliðar flaggaði haka-
krossfánanum á feikihárri stöng
við húsið sitt I Búöargilinu. —
Gaman væri nú að skera haka-
krossinn niöur og brenna hann.
Svo var þaö, aö þýski haka-
krossinn blakti við hún fyrsta
desember, á sjálfan fullveldisdag
Islands, við þýska konsúlatið
islenska fullveldinu til heiðurs, og
var af nokkurra manna hálfu haft
vakandi auga með að fá tækifæri
til að komast að stönginni og ná
fánanum. Og tækifærið kom.
Tveir menn lögðu til atlögu,
náðuhakakrossfánanum og komu
honum I eldinn, en hirtu
sigurnagla úr snúrunni, og hefur
ságripur veriö vel geymdur inni I
skáp öll árin siöan, og fylgir hér
meö mynd af honum. Annar þess-
arra manna er enn á lifi og i fullu
fjöri, og hef ég beðið hann að
skýra frá, hvérnig þessir hlutir
gengu fyrir sig, og gef ég nú
Agúst Asgrimssyni, Aðalstræti
70, oröið:
l.des 1933
— Það var 1. desember 1933, að
mér datt i' hug aö fara út i Verka-
lýðshús og vita, hvort þar væri
nokkuð um aö vera. En þegar ég
gekk framhjá Lækjargötunni eða
Búðargilinu, einsog það heitir,sé
ég hvar þýski nasistafáninn
blaktir viö hún á flaggstöng, er
stóð i brekkunni ofan viö hús
Sigurðar Hliðar, sem þá var
þýskur konsúll og búinn aö vera
þaö um nokkurt skeiö. En
nasistarnir höfðu þá fyrir nokkru
tekið völdin i Þýskalandi, og var
þá orðið allheitt I kolunum milli
okkar þessarra rauöu og
nasistanna, sem hér var nokkurt
slangur af. Ekki man ég, hvort þá
var búið aö skera hakakrossinn
niður af þýska skipinu Diönu i
Reykjavik og á Siglufirði, en á
leiðinni út i bæinn fer ég að hugsa
sem svo, að „gaman væri aö
skeradrusluna niður og látahana
hverfa”, jivi margar minningar
blóðs og tára voru þá þegar
bundnar við fána þennan, þó það
hafi litið verið hjá þvi, sem siðar
varð.
Þegar ég kem út i Verkalýðs-
hús, er þar fyrirhópur manna, og
fór ég þá að tala um þetta við þá
og stinga upp á, að við færum
nokkrir inneftir og skærum
fánann niöur, en fékk engar
undirtektir og labbaði við svo
búið til baka. Mun þá fullveldis-
ræðan hafa staðiö yfir i Gúttó.
Á leiði
séra Matthiasar.
Þegar ég kom inn aö Lækjar-
götu 2, stóð Þorkell prentari þar
úti, en hannbjó þar þá. Égstansa
hjá honum og benti honum á
fánann, sem þá blasti við okkur
blaktandi i þeirri sunnarigolu,
sem engin minning blóðs og tára
var bundin. Sting ég nú upp á þvi,
aö viö reynum aö ná fánanum
niður, og var hann til i það. Fór-
um við nú suöur I bæjarhús
(Aöalstræti 23) til Stefáns
Magnússonar og fengum lánaðan
vasahníf, og sögðum honum hvað
til stæöi. Fórum við siðan upp á
höfðann ofan viö Aöalstræti 36,
noröan við kirkjugarðinn, en
gengum svo út og niður höfðann i
átt aö flaggstönginni, en skriðum
siðasta spölinn. Man ég enn eftir
hvininum i snúrunni, þegar hún
dróst i gegnumi götin á stangar-
húninum eftir að skorið var á
hana. Halaði ég svo fánann með
snúrinni til min og hljóp meö
hann suöur og upp höfða og inn i
kirkjugarö, en beir þar eftir
Þorkeli þvi ég var á undan hon-
um. Ekki þorði ég aö fara með
fánann heim,svo viö földum hann
i miklum bing af laufi, sem
hrúgast haföi saman á leiði séra
Matthiasar, og vona ég að hann
hafi fyrirgefið það.
Fórum viö svo suður og niður I
Aðalstræti 74 og slðan gengum við
i bæinn. Var þá orðið dimmt. En
þegar við komum út að Sam-
komuhúsi mætum viö bil á mikl-
um hraða, og I honum er öll sú
lögregla, sem þá var á Akureyri.
Ekki var laust við, að manni yrði
dálitiö bilt við. Sástu, h verjir voru
I bilnum? spurði ég Þorkel. Já,
ansaði Þorkell. Snérum viö svo
fljótlega viö og fór hvor heim til
sin.
Næsta kvöld sóttum við svo
fánann og fórum meö hann út i
Aðalstræti 17, og þar var hann
brenndur, en sigurnaglann úr
snúrunni á ég enn.
Byssa og fjaðrafok
Einn er sá atburður, sem ég
minnistfrá þessum árum, en þaö
var þegar ég keypti skammbyss-
una i versluninni Norðurland,
sem þá var i gömlu Hamborg, en
þar er enn verslað. Það mun hafa
verið 1933 eða 4, en þá var hér um
nokkurntima Áki Jakobsson, sem
siðar varð atvinnumálaráðherra.
Sáum við þessa byssu i glugga
verslunarinnar, og kom okkur
saman um að kaupa hana i félagi.
Fór ég svo nokkru siöar og keypti
hana og 20 skot. Minnir mig, aö
hún kostaði 38 krónur. Ekki þurfti
maður þá leyfi til að kaupa skot-
vopn og seldi stúlkan, sem
afgreiddi I búðinni, mér byssuna
án nokkurra spurninga. En
eitthvað var fariö aö grennslast
eftir, hver hefði keypt gripinn og
hafðist upp á þvi, og varö eitt-
hvert fjaðrafok og smábyltingar-
hræðsla greip um sig hjá sumuiri,
og hefði orðið meiri, ef vitað heföi
verið, hver hinn hluthafinn var.
En aldrei var ég spurður eöa
krafinn um byssuna.
En nokkrum dögum siðar fór ég
með byssuna upp fyrir bæinn og
skaut i mark til að prófa hana, en
hitti ekki I einu einasta skoti, og
fannst mér litiö gaman aö þessu,
svo ég seldi hinum hluthafanum
minn part, og hef ég ekkert af
henni frétt siðan,—.
Agúst Ásgrlmsson: Ég vona að séra
Matthlas hafi fyrirgefiö þaö.
Steingrimur Eggertsson: Þaö
greip um sig smábyltingar-
hræösla þegar fréttist um byssu-
kaupin.
Sigurnaglinn úr fánasnúrunni hefur veriö geymdur inni I skáp öll árin siöan.
Þegar haka-
krossfánlim
var skorinn
niður...
Gamlar minningar úr stétta-
baráttunni á Akureyri
Þeir voru m.a. aö hefna fyrir Ernst Thal- Þorkell V. Ottesen var meö I þvl
mann- aö skera niður fánann.
Flatarmál
frelsisins
— Viö ætlu m aö ræöa u m f relsi I
mjög viötækum skilningi. Hug-
takiö frelsi hefur löngum veriö
taliö einkaeign svonefndra f rjáls-
hyggjumanna. Viö viljum hins-
vegar varpa nýju ljósi á frelsis-
hugtakiö og sögulega þróun þess
frá frönsku stjórnarbyltingunni.
Allt frá þeim tima hefur frelsiö
veriö I vörslu borgarastéttarinn-
ar og misnotaö af henni.
Viömælendur okkar i dag eru
þau Jóhanna V. Þórhallsdóttir og
Óskar Sigurðsson. Þau stunda
bæði nám i Háskóla lslands,"Jó‘
hanna i félagsfræöi og Oskar i
heimspeki, og þau eru meðal
þeirra sjö, sem Félag vinstri
manna býður fram til 1.
des.-nefndar i ár undir kjöroröinu
Frelsi.Kosningarnarfara fram á
mánudaginn næstkomandi.
Valfrelsi á
vörumarkaði
— 1 umræöum i Háskólanum
meöal hægri manna hefur frelsis-
hugtakið veriö notað I þeim skiln-
ingi, aðum sé aö ræða valfrelsi á
vörumarkaöi. Við viljum reyna
að draga fram i dagsljósiö þaö
sem dylst á bakviö þetta frelsis-
glamur þeirra. M.a. munum við
koma inn á tjáningarfrelsi og
ýmiskonar frelsi fólks til að gera
það sem hugur þess stendur til'.
Og viö vörpum fram þeirri spurn-
ingu hvort frelsið sé jafn mikið i
raun og hægrimenn vilja vera
láta.
Með þvi aö skilgreina frelsið á
sinn hátt eru hægri menn um leiö
aötakmarka það, þvi aö hugtakið
felur það i sér, að iraun megi ekki
taka þaö þeim tökum. Frelsis-
hugtakið hefur þá merkingu sem
fólk vill leggja i það. Okkur finnst
að ekki eigi að mata fólk á full-
yröingum um það hvað frelsið sé,
þvi þá hefur hugtakiö snúist viö.
Það er þvi ekki ætlun okkar 1.
desember að fara að skilgreina
frelsiö og troða þeirri skilgrein-
ingu upp á fólk. Þessvegna skil-
ur umfjöllunin kannski eftir
fleiri spurningar en svör, og þá er
vel.
Margt er frelsið
— Hvernig ætlið þið að haga
dagskránni 1. desember, ef þið
fáið fulltingi stúdenta til starfs-
ins?
— Viö erum ekki alveg búin að
skipuleggja það, hvernig við
munum skipta verkum innan
hópsins. Sennilega munum við
haga störfum okkar þannig, aö
hver nefndarmaður ásamt starfs-
hópi tekurfyrir sérstakar greinar
innan svonefnds frelsis. Til dæm-
is má'nefna þar tjáningarfrelsi,
sögulega þróun orðsins og hug-
taksins frelsi, kvenfrelsi, frelsi á
heimilum, frelsi á vinnustað,
spurninguna um hvort frelsi riki I
þvi landi þar sem atvinnurekend-
ur stjórna fyrirtækjunum, og
frelsi i þriðja heiminum.
Við munum reyna aö fá fólk til
þess að taka þátt i þessari um-
ræðu með okkur. Við ætlum okkur
llka að vikka umræðuna eftir
föngum oggera eitthvaö bitastætt
úr þessu málefni, ef við vinnum
kosningarnar.
Hinsvegar er nú mjög stuttur
timi fram aö kosningum. Þær
farafram á opnum fundi i Hátiða-
sal Háskólans á mánudaginn
kemur frá kl. 8-12 um kvöldiö.
Menn geta nú komið og farið eftir
hentugleikum og kosið meðan
ræður eru i gangi, ef þvi er að
skipta.
Jóhanna V.
Þórhallsdóttir og
Óskar Sigurðsson
— Hvað taka framsöguræðurn-
ar langan tíma?
— Hvor listi fær aöeins hálf-
tima.ensjöeruiframboði, svo að
hart verða tryppin rekin. Hver
ræðumaður fær þvi aðeins
nokkra minútur til umráöa. Þetta
velturmikiðá að ftílkið mætivel á
fundinn, virkt og hresst.
Hverjir njóta
frelsis?
— Nokkur stór orð að lokum?
— Við minnum bara enn á það,
að 1. desember ætlum við okkur
að skyggnast eilitið á bak við hið
margrómaöa frelsishugtak. Er
frelsið það að kaupa, selja og
neyta eða er það frelsi aö hugsa,
tala og skapa? Við vörpum fram
þeirri spurningu, hverjir séu
raunverulegir möguleikar okkar
til að stunda nám og vinnu og
hvort einhver timi sé aflögu. I
okkar þjóöfélagi er frelsið fyrst
og fremst þeirra sem hafa tima
og peninga til að njóta þess.
Hverjir eru það, spyrjum við, og
hvers eiga hinir að gjalda? Við
ætlum semsé að reyna að finna
flatarmál frelsisins og rannsaka
hverjir smiöa rammann um það.
-eös
á framboðslista
Félags vinstri manna
til 1. des.-
nefndarkosninga
í Háskólanum