Þjóðviljinn - 13.11.1979, Page 3

Þjóðviljinn - 13.11.1979, Page 3
ÞriOjudagur 13. nóvember 187* 'ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 Tónleikar George Adams/Don Pullen kvartettsins í fyrrakvöld: DJASS hápunktur „Þetta er hápunkturinn á starfi Jazzvakningar”, sagói einn tón- leikgesta i hléi á tónleikum George Adams/Don Pullen kvartettsins i Austurbæjarbiói s.l. sunnudagskvöld. Félagi hans tók undir þetta og sagói „Þetta eru langbestu tónleikar sem ég hef verið á. Ég er feginn að ég lét mig hafa það að mæta.” Það var auðheyrt á fólki að tón- list og húmor þeirra George Ad- ams, Don Pullen, Dannie Rich- mond og Cameron Brown, hafði snert það djúpt og hrifið það frá önnum liðandi stundar. Andi Charles heitins Mingusar sveif greinilega yfir vötnunum því að hluti efnisskrárinnar var helgaö- ur þessum fallna meistara. En það var greinilegt að kimni meistarans fylgdi þessum læri- sveinum hans og það kunni land- inn svo sannarlega að meta. Stór- kostlegur hljóðfæraleikur f bland við léttkryddaðan húmor sveifl- aöi öllum salnum f tæplega tvær klukkustundir samfleytt, eða þar- til Don Pullen afkynnti meðlimi kvartettsins og þeir tóku saman dótiö sitt og gengu út. Fagnaðar- látunum ætlaði aldrei að linna þvi að fólkiö vildi meira. Það töldu allir aö tónleikunum væri lokið, þareð kvartettinn haföi þá þegar skilaö tæplega tveggja tima spil- verki einsog um var samið. Þaö þurfti þvf að tilkynna fólki að óþarfi væri að klappa þá upp þvi aönúværiaðeins hlé á tónleikun- um. Við þessa tilkynningu fagn- aði fólk ákaft. Eftir nokkuð langt hlé gengu djasshetjurnar aftur inná sviðiö og léku tvö lög og þarmeð átti tón- leikunum að vera lokið. En ákafir djassunnendur heimtuðu eitt lag enn og fengu vilja sinum fram- gengt. George Adams sagöi áður en þeir léku siðasta lagið: „Við er- um að fara heim. Þessir tónleikar eru þeir siðustu á þriggja og hálfs mánaða ferðalagi okkar um Evrópu, sem hljómsveitina svona skipaða, og það hefur svo sannar- lega verið yndislegt að hafa við- komu á svona stað á leiö okkur yfir Atlantshafið í lok þessa feröalags.” Samstarfsnefnd Sjálfsbjargar og Blindrafélagsins kynnir svör stjórnmálaflokkanna á blaðamanna- fundi ígær. Frá vinstri: Sigursveinn D. Kristinsson, Rafn Benediktsson, Magnús Kjartansson, Haildór Rafnar og Gisli Helgason. (Ljósm.:Jón) Svör stjórnmálaflokka við spurningum fatlaðra: Kappsamlega verði unnið að því á nœsta kjörtímabili að hrinda fyrirheitum flokkanna í framkvœmd „Svörin eru öll jákvæð og við lltum á þau sem sameiginleg drög j að mannréttindayfirlýsingu fyrir fatlað fóik á tslandi," sagði Magnús Kjartansson starfs- maður samstarfsnefndar Sjálfs- bjargar og Blindrafélagsins á fundi með blaðamönnum i gær. Stjórnmálaflokkarnir hafa nú sent nefndinni svör við þeim spurningum sem beint var til þeirra 23. október sl. „Orðin eru til alls fyrst”, sagði Magnús, „en þau veröa innantóm ef þeim verður ekki fylgt eftir I verki ”.Hann sagði aö óskað yrði eftir þvi viö Alþingi aö föst samvinnunefnd verði sett á lagg- irnar til að gera framkvæmda- áætlun i málefnum fatlaöra. Veröi unnið kappsamlega að þvi á næsta kjörtimabili að hrinda i framkvæmd þeim fyrirheitum sem gefin eru I stefnuyfirlýsing- um flokkanna. „Þetta mun kosta verulega fjármuni og það veltur þvi á miklu að þjóðin I heild skilji að þetta er mikilvægasta jafnrétis- máiið,” sagöi Magnús Kjartans- son. Margt bar á góma á blaða- mannafundinum i gær. Meðal annars var minnst á allan þann ónýtta vinnukraft sem byggi I miklum fjölda fatlaðra. Það væri þvi tvimælalaust ábatasamt fyrir þjóðfélagið ef vinnuafl og hæfi- leikar fatlaðra nýttust sem best! Samkvæmt erlendum rannsákn- jum eru fatlaöir öruggasti vinnu- kraftur sem völ er á. Ororkulifeyrir, tekjutrygging og heimilisaðstoð nemur nú sam- tals mest 154 þúsund kr. á mánuði. Þar af eru örorkubæt- urnar 60-70 þúsund krónur. Hins Framhald á 13. siðu Kosið utan- kjörfundar í Miðbœjar- skólanum Utankjörfundaratkvæða- greiösla vegna aiþingiskosning- anna er hafin I Reykjavik. Kosið er i Miðbæjarskóianum alla virka daga kl. 10-12, 14-18 og 20-22. A sunnudögum er kosiö utan kjör- fundar kl. 14-18. Þeir sem ekki veröa heima á kjördag eru hvattir til að kjósa sem fyrst. Þegar kosiö er utan- kjörfundar á að skrifa listabók- stafinn skýrt og greinilega. Alþýðubandalagiö veitir þjón- ustu vegna utankjörfundarat- kvæðagreiöslunnar aö Grettis- götu 3. Siminn er 17 500. Þeir sem þess óska geta einnig fengið þar aöstoö við að leita að nöfnum á kjörskrá og kæra þau inn ef þörf krefur. -eös JMannréttindayfirlýsing fyrir fatlaða á íslandi’ ✓ Alyktun Verkalýðsmálaráðs Alþýðubandalagsins: Sameinumst um Alþýðu bandalagið Sameinumst gegn árásum afturhaldsins á félagsleg réttindi og lífskjör almennings Allt frá þvi að samningarnir voru gerðir 1977 hafa veriö gerðar Itrekaðar tilraunir til þess að skerða ávinning þeirra. Fyrsta atlagan að samningunum var gerð með kaupránslögunum I febrúar 1978, sem gerðu ráö fyrir þvi að einungis helmingur yrði bættur I kaupi. Þessari árás var hrund- ið með samstilltu átaki samtaka launamanna og meö úrslitum kosninganna 1978, er þáverandi stjórnarflokkar biðu afhroð. t framhaldi af þvi var ný rikisstjórn þriggja flokka mynduö. Stjórnin hóf starf sitt á þvi að afnema kaupránslögin, en Alþýðubandalagiö og verka- lýðshreyfingin uröu þó stöðugt að vera á verði gegn árásum á kaupiö. Ekki tókst alltaf að koma I veg fyrir kjara- skerðingartilraunir Alþýðu- flokksins og Framsóknar- flokksms, sem vildu leysa efna- hagsvandann með árásum á launakjör. Vegna 14% skeröingar viðskiptakjara hefur einnig orðiö nokkur Frá haustfundi Verkalýösmálaráðs Alþýðubandalagsins sem hald- inn var á Hótei Sögu á sunnudaginn. Óiafur Ragnar Grimsson I ræðustól, en við boröið eru Erlingur Viggósson fundarstjóri og Benedikt Daviðsson formaður Verkaiýðsmáiaráðsins. Framsögu- menn á fundinum voru Svavar Gestsson, Guðrún Helgadóttir og Benedikt. kaupmáttarskerðing miðað við samningana 1977. Þriðja megin árásin að kjarasamningunum frá 1977 er gerö nú i kosninga- baráttunni. Alþýðuflokkurinn og Fram- sóknarflokkurinn hafa lýst þvi yfir að þjóðarbúiö „þoli ekki” þann kaupmátt, sem um var samið I samningunum 1977. Sjálfstæðisflokkurinn boðar nú ómengaöa afturhaldsstefnu, leiftursókn gegn lifskjörum, og afnám allra visitölubóta á laun. 1 afturhaldsstefnu Sjálfstæöis- flokksins er gert ráð fyrir eftir- farandi megin atriðum: — Stórfelldri skerðingu kaupmáttar. — Arásum á lifskjörin I heild, þar með talið skólakerfið, heil- brigðiskerfiö og önnur félagsleg þjónusta. — Samdrætti i atvinnulifi og framkvæmdum. — Erlendri stóriðju. — Skattfriðindum fjármagns, frjálsri verslunarálagningu, skeröingu niöurgreiðslna af vöruverði, ógnuninni vaxta- skráningu og auknu misrétti. Launafólk veröur að sam- einast gegn þessari blygöunar- lausu árás Sjálfstæðisflokksins. Verkaiýðsmálaráö Alþýöu- bandalagsins tekur undir og heitir stuðningi við þær megin kjarakröfur sem alþýðusam- tökin hafa þegar mótað vegna komandi kjarasamninga, en þær eru: — Full verðtrygging launa. F’ramhald á bls. 13

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.