Þjóðviljinn - 25.11.1979, Blaðsíða 21
Sunnudagur 25. ndvember 1979 ÞJÚ'ÐVILJINN — SIÐA 21
Lausn orkukreppunnar liggur i
sorpi, var helsta tillaga ráöstefnu
um endurnýtingu, sem haldin var
i Vestur-Berlin i október s.l.
„Sorp” hefur löngum haft niör-
andi merkingu,nú skal þaö hafiö
til vegs og viröingar. Arlega er
fleygt 18 miljón tonnum af sorpi
frá vestur-þýskum heimilum en
i öllu þessu sorpi liggur orka, sem
jafngildir þeirri orku sem öll
kjarnorkuver i Vestur-Þýska-
landi framleiöa — aö meötöldum
þeim sem fyrirhuguö eru!
„Fyrir tiu árum hefðum viö átt
aö gera sorp-áætlanir en ekki
kjarnorkuáætlanir” segir for-
stöðumaður Orkustofnunar Efna-
hagsbandalagsins, Guido Brunn-
er. Hann hyggst nU beita sér fyrir
að Efnahagsbandalagið láti nýta
þau hráefni og þá orku sem hægt
er að vinna úr sorpi. „Við getum
annað tveim prósentum af
heildarorkuþörfinni með sorp-
vinnslu” sagir Guido Brunner.
Endurnýting
Vestur-Þjóðverjar standa mjög
framarlega i endurnýtingu hrá-
efna og orku sem hjá mörgum
þjóðum fara beint á haugana. A
ráðstefnunni i Vestur-Berlin
komu yfir 1000 sérfræðingar frá
26rikjum, til að fræðast um það
nýjasta i þessum efnum.
Leysir
sorpið
orkukreppuna?
Ýmiskonar auðæfi
Eins og áður segir fara 18 mil-
jón tonn af sorpi frá vestur-þýsk-
um heimilum á ári hverju. Það
mun jafngilda nær 80.000 tonnum
af sorpi frá íslenskum heimilum.
Væntanlega er ekki mikill munur
áinnihaldisorpsinshér ogþar,en
skiptingin á herju sorptonni er
þessi i Vestur-Þýskalandi: 14
prósent gler, 23 prósent pappir og
pappi, 18prósent gerviefni, leður
og giimmi og 5 prósent málmar.
Meðal málma i sorpi er hreint
gull. t næfurþunnri hUöun gjafa-
pappirs liggja ónýtt auöæfi.
Bandariskum sorprannsóknar-
mönnum reiknast, að I einum
teningsmeter af stórborgarsorpi
sé meira gullmagn en i einum
teningsmeter af þvi málmgrýti
sem gull er unniö úr. Að sjálf-
sögðu eykst gullmagnið verulega
um jól og pdska. En hér gildir það
sama og um allt silfrið sem fer á
haugana með ljósmyndaúrgangi,
enn er endurnýtingin of
kostnaðarsöm.
Simaskrá og tré
Endurnýting á pappirsvörum
hefur veriö stunduð um árabil er-
lendis. Vestur-Þjóðverjar komast
hjá þvf að fella 15 miljón tré á ári
hverju, vegna þess að 45 prósent
alls pappirsúrgangs eru endur-
nýtt I pappirsverksmiðjum. Tök-
um dæmi: Árlega verða 60.000
tonn af simaskrám Urelt i
Vestur-Þýskalandi. Til aö fram-
leiða eitt tonn af pappir þarf að
fella 15 trjástofna. Ef öllum þess-
um Ureltu simaskrám væri fleygt
þegar ný Utgáfa kemur Ut, mundi
það jafngilda 900.000 trjám á ári.
Og þaö er ekkert smáræðis skóg-
lendi sem þar færi forgöröum, ef
ekki kæmi til endumýting.
Til samanburðar má geta þess,
að islenska simaskráin er gerð Ur
llOtonnum af pappir, samkvæmt
upplýsingum Hafsteins Þor-
steinssonar hjá Pósti og sima.
Endurnýting hefur verið til um-
ræðu, en ekki þótt borga sig að
senda úreltar simaskrár til Ut-
landa einkum vegna mikils
flutningskostnaðar.
Endurnýting timburs er sér-
lega mikilvæg, vegna þess hve
langan tima það tekur tré að ná
fullum vexti. 1 spám um fram-
viridu pappirnotkunar og -fram-
boðs, ber mönnum saman um að
við óbreyttar aðstæður muni
skortur gera vart við sig á næsta
áratug. Vestur-Þjóðverjar fram-
leiða núþriðja hvert papplrstonn
úr pappír sem til skamms tima
var kaliaður „sorp”. Ef viö miö-
um enn við simaskrárdæmið, þá
tekst Vestur-Þjóðverjum að hlifa
300.000 trjám á ári, með þvi að
endurnýta gömlu simaskrárnar.
Sorp minnst frá
heimilum
Aður hefur verið minnst á, aö
frá vestur-þýskum heimilum fari
18 miljón tonn af sorpi á ári. Þetta
eru þó aðeins 10 prósent alls Ur-
gangs þar I landi. Bilahræ, gömul
dekk, leifar af hUsum sem hafa
verið rifin, niðurföll, úrgangur
sláturhúsa og fiskiðjuvera, eitrað
fráfall iðnverksmiðja, — mynda
til samans um 220 miljón tonn af
sorpúrgangi árlega i Vest-
ur-Þýskalandi einu.
Bílar og dekk
Ef samskonar hlutföll gilda hér
á landi, þá fleygjum viö allt aö 1
miljón tonna af sorpi árlega. Hins
vegar nýtum viö sumt af þessum
Urgangi, t.d. bilhræ. 1
Vestur-Þýskalandi eru 1.500.000
bilar tættir I sundur og þjappaðir
saman i smáböggla. Þessir
málmböggiar fara aftur til stál-
verksmiðjanna, og lætur nærri að
annaðhvert stáltonn sé framleitt
Ur endurnýttum málmi.
Bildekk má nota til margskon-
ar hluta, eftir að þau hætta að
þjóna upprunalegum tilgangi. A
meðfylgjandi mynd sést hvernig
þau voru notuð niðursneidd sem
undirlag fyrir veg, sem lagður
var rétt utan við borgina
Múnchen i suðurhluta
Vestur-Þýskalands. En það er
lika oröið mögulegt að endurnýta
gömul bildekk til að framleiða
iðnaðarhráefni m.a. tóluól, nafta-
linogbenzól, sem áöur hafaveriö
unnin Ur jarðollu. Vinnsluhrá-
efni verksmiðjunnar verða 6.000
tonn af gömlum bildekkjum á ári
hverju.
Sóun
Jógúrtdollur Ur gerviefnum eru
dæmigerðar fyrir óþarfa sóun á
efnum og orku. Æviskeið jógUrt-
dollunnar lýsir vel fjöldafram-
leiðsluþjóðfélaginu sem gerir
neytendum lifið léttara með þvi
að bjóða vörur sem „má fleygja
eftir notkun”.
Jógúrtdollan vegur 7,5 grömm,
hefur næfurþunna veggi og er
framleidd Ur pólýstýról, þ.e.a.s.
gerviefni úr jarðoliu. A dollurnar
eruprentaðar fallegar myndir og
þær flytja neytendum jógUrt með
margs konar bragði. Notkunar-
timi hverrar dollu eru nokkrir
dagar.
FYamleiösla jógUrtdollu tekur
nokkrar sekúndur, notkun hennar
við morgunverðarborðið nokkrar
minútur, en dollan endist samt
von Ur viti. JógUrtdollur rotna
ekki, ryðga ekki og bakteriur
vinna ekki á þeim. Það liða 25.000
ár frá þvi að jógUrtdolla lendir á
haugunum, þar til hUn fer að leys-
ast upp.
En þótt þessháttar gerviefni
lendi miljónum tonna saman á
ruslahaugum heimsins árlega, þá
sér þó i skimu framundan. Viö
Hamborgar-háskóla hafa vis-
indamenn smlðað tæki til að
endurnýta m.a. hina „eilifu”
jógUrtdollu. Með brunaaðferðum
hefur þeim tekist aö leysa jógúrt-
dolluna upp i frumefni sin, og þau
má nota til að hefja leikinn aö
nýju.
Enn er þó margt ógert i sorp-
nýtingarmálum. Tveir þriöju
hlutar Urgangs frá vestur-þýsk-
um heimilum lenda enn á
haugunum i orðsins fyllstu merk-
ingu. En þróunin I orkumálum,
bæði takmarkaðar ollubirgðir i
jörðu, oliuverðhækkanir, og
hætturnar sem stafa frá kjarn-
orkunni, hafa ýtt undir áhugann á
endurnýtingu og þá sérstaklega
hinum ýmsu möguleikum sem
sorp býður uppá.
Þetta er heildarútgáfa á ljóðum
Stefáns Harðar, eins sérkennilegasta
og listfengasta skálds samtiðarinnar.
Ljóð Stefáns Harðar eru kjörbók
vandfýsinna ljóðavina.
„Útgáfa lðunnar á Ljóðum Stefáns
Harðar Grímssonar er hin smekkleg-
asta. Myndir Hrings Jóhannessonar
eru eins og Ijóðaskreytingar eiga að
vera... skal sem flestum bent á að
kynna sér þessi sérstæðu ljóð...“
J.H./Morgunblaðið
MNA
Stefán Höröur
Grímsson
LIÓÐ
Myndáaneytt af Hring Jóhannessyni
„...það sem á þessum síðum stendur er
svo þrungið tilfinningu, harmi og von
samtíðar okkar að enginn sem lætur
sig bókmenntir skipta eða hugsar um
vanda vorn getur látið sem ekkert sé...
Þvílik útgáfa ber vitni um stolt og virð-
ingu fyrir ljóðinu.“
H.P./Helgarpósturinn
„...má segja að Stefán Hörður hafi
náð svo langt i hreinni ljóðagerð, að
lengra verði varla komist... Þessi út-
gáfa er í alla staði til fyrirmyndar. Hún
er bæði vönduð og falleg...“
H.K./Dagblaðið
Bræðraborgarstíg 16 Sími 12923-19156
I ~ ~