Þjóðviljinn - 25.11.1979, Page 25
Sunnudagur 25. nóvember 1979 ÞJÓDVILJINN — SIÐA 25
Kvikmyndir
Framhald af bls 9
umsvifameiri framleiðslufyrir-
tæki.
Kvikmyndin Anti Clock byggir
á myndsegulbandstækni á
tilraunakenndan og leitandi hátt
en kvikmyndin Secret Police-
man’s Ball byggir á einföldum
kvikmyndatökum (og vinnslu) af
vinsælu leikhúsverki. The Sinking
Feeling er hrollvekja úr
raunveruleikanum og lýsir
myndin átökum og erfiöleikum
atvinnulausra unglinga I Glasgow
sem hafa einungis um eina at-
vinnubraut að velja, glæpa-
brautina. The song of the Shirt
lýsir og kannar stööu fátækrar
konu.sem vinnur ifataiðnaðinum
I London um miðja 19. öld. Bresk
kvikmyndagerð er lifandi og i
stöðugriframföraðþvier virðist.
R. W. Fassbinder
Hlutur einstakra leikstjóra er
stærri en annarra á hátiöinni, og
er þar fyrst nendur þjóöverjinn
R.W. Fassbinder.
Reiner Werner Fassbinder hef-
ur verið nefndur undrabarn
þýsku nýbylgjunnar i kvik-
myndagerð og hélt hann upp á 33.
afmælisdag sinn á árinu með þvi
að senda frá sér þr jár nýjar kvik-
myndir sem af mörgum eru
taldar hans bestu verk. Siðan
Fassbinder kynnti sina fyrstu
löngu kvikmynd á kvikmynda-
hátiðinni i Berlin 1969 (fékk
frekar óhagstæða dóma — svo
ekki sé meira sagt) Þá hefur
hann á þessum tiu árum sem eru
liðin siðan gert 35 langar kvik-
myndir, 30 leikhúsverk og mikinn
fjölda s jónvarps og útvarpsþátta.
Hlutverk Fassbinders er þvi stórt
I þýskri kvikmyndagerð og
margar kvikmynda hans hafa
notið mjög almennra vinsælda
auk þessað hljóta lof fyrir listræn
gæði og er Fassbinder i dag hvað
þekktastur og virtastur þýskra
kvikmyndagerðarmanna innan
lands sem utan.
1 april 1978 kynnti „National
Film Theatre” 29 af kvikmyndum
hans og hefur þetta kynningar-
prógramm verið sýnt i mörgum
þjóðlöndum. Þær þrjár kvik-
myndirsem verða sýndar laugar-
daginn fyrsta desember I
Lundúnum eru allar einkennandi
fyrir stil Fassbinders, þrátt fyrir
að tónn þeirra og innihald sé mjög
ólikt.
„Die Ehe der Maria Braun”
(hjónaband Mariu Braun) fjallar
um stúlkuna Mariu frá fátækri
fjölskyldu i Miinchen i lok seinna
striðsins. Maria giftist elskhuga
sinum deginum áöur en hann er
sendur i fremstu viglinu
styrjaldarinnar, þar sem hann
slöan hverfur. Nöturleg mynd er
gefin af eyðingu Þýskalands,
skortinum og eymdinni sem fylgir
i kjölfarið. En Maria er bjartsýn
og neitar að viöurkenna aö eigin-
maðurinn sé horfinn fyrir fullt og
allt enda kemur hann fram á
sjónarsviðið aftur en á óheppi-
legasta tima, þvi Maria er þá 1
slagtogi við negra nokkurn Maria
drepur negrann i þeim átökum
sem koma eiginmannsins veldur,
en eiginmaðurinn tekur á sig
morðið og fer i hennar staö á bak
viðlás og slá. Mikil ást einkennir
samband þeirra hjóna og viröist
ótryggð Mariu einungis stjórnast
af hagsýni. Allavega kynnist hún
valdamiklum iðjöfur á meðan
eiginmaðurinn er i fangelsinu og
hann gerir Mariu að áhrifamanni
i viðskiptum sinum, sem hún
notfærir sér til hins ýtrasta.
Myndin sýnir forvitnileg en
sterk tengsl á milli elskanda,
eiginmanns og eiginkonu og stööu
Mariu sem sjálfstæðrar,
„nýrrar” konu.
Kvikmyndin hefur verið kynnt
ákvikmyndahátiðum i New York,
Toranto og Berlin, þar sem hún
hlaut verðlaun.
„Die dritte Generation”
(Þriðja kynslóðin) er fhugun
Fassbinders og vangaveltur um
hryðjuverkastarfsemi
(terrorisma). Myndin er saga
ástriöna, innri átaka og afbrýöi-
semi I hóp Berlinska byltingar-
sinna, sem hafa það aö markmiöi
aö kollvarpa Vestur þýsku þjóö-
skipulagi meö öllum hugsanleg-
um ráðum. Frásögnin er kenjótt
og ruglandi og það er mjög erfitt
að ráða I afstööu höfundar — er
hún til vinstri, hægri eða i mið-
ið? En Fassbinder snertir marga
viðkvæma strengi án þess að
draga fram beinar ályktanir enda
þótt oft megi geta I eyöurnar.
Myndin vekur upp margar spurn-
ingar en gefur færri svör.
„Ineinem Jahrmit 13 Monden”
(A ári með 13 tunglum) f jallar um
giftan mann sem gengst undir
kynjaskiptaaðgerð til að vera
hafnað af þeim karlmanni sem
hann er i ástarsambandi við. Aö
lokum eftir mikil átök fremur
hann sjálfsmorð þar sem hann
hvorki finnur friö innra meö sér
né I sambandi sinu við karlmann-
inn eða fyrrverandi eiginkonu.
Það má segja að myndin sé
dæmisaga um hinn sterka og hinn
veika og hvernig hinn sterki
niöist á og brýtur þann veika
niður. Þeir sem eru tilfinninga-
næmir eru auðsærðir og það mun
ætlð vera nóg af fólki sem er
tilbúið og virðist hafa ánægju af
aöbr jóta slika einstaklinga niður.
Þetta virðist I stuttu máli vera
boðskapur myndarinnar.
Starf og kjör
Framhald af 27 siðu
timans en það er þó spor I rétta
átt að færa hana inn i háskóla.
Þessa menntun þarf þvi að færa
alla undir einn hatt og skipu-
lagning námsins á að taka mið af
þeim rannsóknum 1 hjúkrun sem
fram hafa farið erlendis á undan-
förnum árum. Það voru
hjúkrunarfræöingar sem hófu
þessar rannsóknir og i kjöifar
þeirra kom kenningin um
hjúkrunarferli.
Hjúkrunarferli
— Hvernig er sú kenning?
— Hún er sú að I öllu hjúkrunar-
starfi, hvar sem það er af hendi
leyst megi finna sameiginlega
þætti sem stööugt endurtaka sig,
ákveðið ferli hvort heldur sem er
á sjúkrahúsum i heilsuvernd eða i
heimahjúkrun. Þessi kenning
hefur staðist margar prófanir og
1967 settu bandariskir hjúkrunar-
fræðingar fram niðurstööur af
rannsóknum sinum á hjúkrunar.
ferlinu. Samkvæmt þeim skiptist
það i fjóra meginþætti sem alltaf
birtast I sömu röð. Fyrst safnar
hjúkrunarfræðingurinn upp-
lýsingum um sjúklinginn og dreg-
ur af þeim ályktanir um
hjúkrunarþörfina. Þá gerir hann
hjúkrunaráætlun sem hann svo
framkvæmir og að lokum er
árangur athugaður og hjúkrunar-
þörfin endurmetin og meöferð
breytt með hliðsjón af þvi. Þetta
er hliðstætt læknaferlinu sem
unnið hefur verið eftir langalengi.
Læknirinn tekur sjúkrasögu gerir
sjúkdómsgreiningu gerir sina
meðferðaráætlun m.t.t.
greiningarinnar metur árangur-
inn og breytir um meöferð með
hliðsjón af árangrinum.
— Ég tel ákaflega brýnt aö
koma á svona vinnubrögöum i
öllu hjúkrunarstarfi. Þá ættu
hjúkrunarfræðingar aö geta farið
meira að hjúkra sjúklingum eins
og þeireiga aö gera, og losnaö við
alls kyns pappirsvinnu, sem með
núverandi skipulagi á sjúkrahús-
unum, tekur alltof mikið af
starfstima þeirra. Þessa vinnu
eiga ritarar aö sjá um.
— En mér er það ljóst aö þessi
vinnubrögð verða ekki almennt
tekin upp nema til komi aukin og
bætt menntun hjúkrunar-
fræðinga.
— Er henni ábótavant?
— t Hjúkrunarskólanum fá
nemar bóklega kennslu aðeins i
u.þ.b. 57 vikur samtals á náms-
timanum.
A þeim tima er ekki hægt að
kenna hjúkrunarfræöinemum allt
þaö sem þeim er nauðsynlegt að
læra miöað við þær kröfur sem
gerðar eru til starfsins i dag.
Stýrimaður
Óskum að ráða stýrimann á M.S. Odd, til
linuveiða frá Grindavik. Uppl. hjá skip-
stjóra i sima 92—8218
Þar viö bætist að undirbúnings-
menntun er oft ekki sem best. Það
hefur oft verið gagnrýnt aö fariö
sé að krefjast stúdentsprófs til
inngöngu I Hjúkrunarskólann. Ég
tel þessa gagnrýni mjög ósann-
gjarna. Stúdentsmenntun er góð
almenn menntun bæði I málum,
stærðfræði, efnafræði o.fl. og all-
góð kunnátta i þessum greinum
er nauösynleg til að geta stundað
hjúkrunarnám nú á timum. Sé
þessari almennu menntun nema
hins vegar verulega ábótavant,
fer mikill timi i að bæta þar um,
timi sem fremur ætti að verja til
hinnar eiginlegu faglegu mennt-
unar i hjúkrun. Við hjá
Hjúkrunarfélaginu erum ósam-
mála stefnu fræðsluyfirvalda I
hjúkrunarmenntun. Þar er stefn-
an sú að hjúkrunarnám geti hafist
með litilli undirbúningsmenntun i
framhaldsskólum og siðan bæti
menn viö sig i sérskólum. Við
teljum aftur á móti aö allt
hjúkrunarnám eigi að fara fram i
háskóla. Þá hafa nemendur góða
grunnmenntun sem hægt er að
byggja ofan á.
— Er þá nám á hjúkrunar-
brautum framhaldsskólanna ekki
nægur undirbúningur undir
hjúkrunarnám?
— A tveggja ára brautunum er
hann það ekki. Sú hjúkrunar-
kennsla sem þar fer fram er ákaf-
lega litil sem von er til á svo
skömmum tima og þessum tima
væri satt aö segja betur varið til
kennslu I málum og raungrein-
um. öðru máli gegnir með
fjögurra ára brautirnar þar er
menntunin að sjálfsögöu meiri.
Kvennastarf
— Hafa hjúkrunarfræðingar
góð laun?
— Nei, laun hjúkrunarfræðinga
eru svo sannarlega ekki góð.
Byrjunarlaunin eru núna 304.494
þús. kr. á mánuði. Þaö er Bll 2.
þrep. Þeir byrja i 2. þrepi vegna
þess að vinnan á námstimanum
reiknast 2 ár og 8 mán. Upp á
þriðja þrep komast menn svo ekki
fyrr en eftir 6 ára starf. (þar af
tæp þrjú ár á námstima). Eftir
fjögurra ára starf að námi loknu
hækka launin um einn flokk og
aftur eftir tvö ár. Hámarkslaun
hjúkrunarfræðinga i dag eru þvi
340.200 þús. kr. Það er B13 3. þrep.
— Af hverju eru launin svona
lág?
— Ég tel ekkert vafamál að það
er fyrst og fremst af þvi að við er-
um kvennastétt. Hjúkrunar-
fræðingar með fjögurra ára há-
skólanám að baki er eina stéttin I
landinu sem ekki fær menntun
sina metna til launa. Þeir eru I
BHM og kærðu þessi lágu laun sin
en kjaradómur féll þeim i óhag.
— Nú er talaö mikið um að
spara i rekstri sjúkrahúsanna,
telur þú að það sé hægt?
— Ég tel ekki fært að fækka
starfsfólki við rikjandi skipulag
og aðstæður á sjúkrahúsunum.
En ég tel hins vegar er afar brýnt
að taka allan rekstur sjúkrahús-
anna til endurskoðunar og einnig
þarf að endurskipuleggja alla
heilsugæslu- og hjúkrunarþjón-
ustu. Heimahjúkrun á að auka
verulega sérstaklega fyrir aldrað
fólk og þá sem eru nýútskrifaðir
af spitala. Bæði er þetta ódýrara
en aö vera á stofnun og eins er
allajafna eðlilegra að litið veikt
fólk geti verið heima. Vitaskuld
er það skilyrði að menntað fólk
sjái um þessa hjúkrun og skipu-
leggi hana. Núna eru margir á
spitölunum sem vel væri hægt að
hjúkra heima.
Opnir heimsóknartímar
— Ég vil lika nefna heim-
sóknartimana i þessu sambandi.
Það er alltof litið að leyfa heim-
sóknir til sjúklinga aðeins 1-2
tima á dag. Viöa erlendis eru opn-
ir heimsóknartimar allan daginn
og þaö truflar starfiö ekkert. Hér
eru að visu i orði kveðnu opnir
heimsóknartimar á flestum
spitölum, en fólk veit þaö bara
ekki. Það eru auglýstir ákveönir
heimsóknartimar i blööunum og i
simaskrá svo að menn halda aö
einungis þá séu heimsóknir
leyfðar. Allt starfsfólk sjúkrahús-
anna verður aö muna það fyrst og
siðast að sjúkrahúsin eru fyrir
sjúklingana og þeirra hagur og
vellíðan verður ævinlega aö vera
efst á blaði.
—hs
Landssmiðjan
SÖLVHÓLSGÖTU• 101 REYKJAVIK SÍMI 20680 TELEX 2207
z.
Ávallt fyrirliggjandi
loftpressur
af öllum stæréum
Jltla&Copco
LANDSSMIDJAN annast viðgerSaþjónustu á öllum tegundum
loftverkfæra og tækja.
Ef óskað er sjáum við einnig um fyrirbyggjandi viShald.
oxel
PRISMA
_ ÍSLENSK
LÖGREGLUSAGA
Gunnar Gunnarsson
GÁTANLEYSr
Maxgeír
Þetta er fyrsta sagan ( flokki lögreglu-
sagna um Margeir. Nýjung.á Islenskum
bókamarkaöi. Gátan leyst er spennandi
saga sem gerist I Reykjavlk og á Akur-
eyri, og leikurinn berst til Spánar. Um-
hverfiö er allt kunnuglegt og greint frá
atvikum sem standa okkur nærri.
„Gátan leyst er ágæt afþreyingarsaga...
Þarna bregöur fyrir glæpum sem enginn
getur horft framhjá I þjóðfélagi okkar —
og mér finnst ágæt hugmynd að flækja
akureyska góðborgara ( málin... Takk
fyrir skemmtunina.“
H.P./Helgarpósturinn
„Spilling f fslensku samfélagi, skattsvik,
gjaldeyrisbrask, sala eiturlyfja og fleira
er viðfangsefni Gunnars Gunnarssonar...
Gunnar Gunnarsson hefur metnað til að
bera, vill Fkrifa vel og um leiö vekja les-
endur til umhugsunar um þjóðfélags-
vanda.“
J.H./Morgunblaðið
Bræðraborgarstíg 16 Sími 12923-19156