Þjóðviljinn - 08.12.1979, Side 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 8. desember 1979
( byrj un nóvember tóku
konur frá um 30 kvenna-
samtökum og hópum
stofnun nokkra í Kaup-
mannahöfn, sem kennd
er við greifynjuna af
Danners, og settust þar
að um óákveðinn tíma.
Hústakan var gerð til að
leggja áherslu á þá kröfu
kvennasamtakanna, að
stofnunin verði lögð undir
starfsemi kvennahreyf-
ingarinnar og þar verði
m.a. komið á fót neyðar-
húsnæði fyrir konur sem
hafa orðið fyrir nauðgun-
um eða verið beittar of-
beldi af eiginmönnum
sinum.
Danner-stofnunin
seld
Forsaga þessa máls er sú, að
fyrir rúmum hundraB árum
lagði greifynjan af Danners,
ekkja Friðriks konungs 7.,
hornstein að húsi sem sam-
kvæmt óskum hennar átti að
notast í þágu kvenna úr verka-
lýösstétt sem einhverra hluta
Guðmundur
Hallvarðsson
Hildur
Jónsdóttir
Ingibjörg
Haraldsóttir
Gunnarsdóttir
Sigrún
Hjartardóttir
Eirikur
Guðjónsson
Umsjón
af hálfu
Þjóðviljans:
Ingibjörg
Haralds-
dóttir
Hörkukvendi í
Danners stofnunin hertekin
Plakat frá Joan-systrum.
vegna hefðu beðið skipbrot i
lifinu. Árið 1876 bjuggu i húsinu
66konur á aldrinum 54-87 ára en
i dag búa þar aðeins 4 fullorðnar
konur. Fyrir stuttu ákvað svo
stjórn stofnunarinnar að leggja
hana niður og selja húsið fyrir-
tæki að nafni A. Jespersen og
synir sem ætlar að nota það
undir skrifstofur. Salan getur
hins vegar þvi aðeins átt sér
stað að dómsmálaráðherrann
samþykti hana.
begar fréttist um söluna
ákváðu ýmis kvennasamtök, i
samráði við ibúasamtök
hverfisins sem Danners stofn-
unin er i, að taka málið i sinar
hendur og reyna að koma i veg
fyrir söluna með þvi að pressa á
dómsmálaráðherrann, Henning
Rasmussen, að samþykkja
hana ekki. Heldur nú fjöldi
kvenna til i húsinu allan sólar-
hringinn og gengst þar fyrir
margs konar starfsemi máli
sinu til stuðnings. Alla daga vik-
unnar er eitthvað um að vera og
var m.a. haldinn þar fundur
með fulltrúum frá 25 verkalýðs-
félögum sem samþykktu
einróma að hvetja öll verka-
lýðsfélög til að styðja tökuna á
húsinu og kröfur kvenna-
samtakanna. Samhliða þessu
hafa verið haldnar kvenna-
hátiðir i fjáröflunarskyni þar
sem konur hafa flutt leikþætti
og kvennahljómsveitir spilað.
Afstöðuleysi
þingkvenna
Ýmsar starfsstéttir hafa safn-
að undirskriftum til stuðnings
þvi að Danners stofnunin verði
fengið kvennasamtökunum i
hendur og skrifuðu t.d. 133
starfandi læknar i Kaupmanna-
höfn undir yfirlýsingu þess
efnis. Slik undirskriftasöfnun
fór einnig fram meðal kvenna
sem sitja á danska þjóðþinginu
og þá sýndi það sig að nokkuð
skortir á að þær konur leggi
kvennabaráttunni sérstakan lið
i starfi sinu. Aðeins 17 af 42 kon-
um á þingi skrifuðu undir. Kon-
ur i þingliði sósialdemókrata
afsökuðu sig með þvi að þær
vildu heldur reyna að tala
flokksbróður sinn, dómsmála-
ráðherrann, til og komu sér þar
með hjá þvi að taka ákveðna af-
stöðu til krafna kvennasamtak-
anna.
bau samtök sem mæðir mest
á i þessari aðgerð eru án efa
Joan-systurnar en þær veita
konum, sem orðið hafa fyrir
nauðgunum og ofbeldi, ráðgjöf
og aðstoð. bær starfa i tengslum
við kvennahúsið i Gothersgötu
(þar er danska Ruðsokkahreyf-
ingin m.a. til húsa) en sökum
þrengsla þar er aðstaða þeirra
mjög slæm.
Kvennahús en ekki
geymslustað!
Ýmsar málamiðlunartillögur
hafa komið fram i deilunni um
Danners stofnunina og ganga
þær flestar út á það að láta
Joan-systrunum i té eigið
húsnæði fyrir starfsemi sina.
M.a. náði Lis Möller, formaður
Félags einstæðra mæðra, sam-
komulagi við dómsmálaráð-
herrann um að gera Danners
stofnunina að neyðarhúsnæði
fyrir konur sem yrði rekið sam-
eiginlega af Joan-systrunum og
Félagi einstæðra mæðra. Joan-
systurnar hafa algerlega visað
þessu samkomulagi á bug og
gagnrýnt Lis Möller harðlega
fyrir að semja við dómsmála-
ráðherrann án nokkurs samráðs
eða samvinnu við þau kvenna-
samtök sem standa að hústök-
unni. Hafa þær látið i ljós þá
skoðun, að þær kæri sig ekki um
að reka starfsemi sina einangr-
aða frá ööru kvennastarfi, né
heldur vilji þær neyðarhúsnæði
rekið af hinu opinbera. bær
vilja kvennahús og segja i þvi
sambandi: „Joan-systurnar
kæra sig ekki um að taka þátt i
þvi að koma upp húsi sem er
aðeins geymslustaður fyrir kon-
ur sem hafa flúið að heiman.
bað er nauðsynlegt að konum,
sem orðið hafa fyrir ofbeldi og
nauðgunum, standi til boða
húsnæði þar sem eru aðrar kon-
ur. bað veitir öryggi að búa i
húsi þar sem er fullt af öðrum
lifandi manneskjum. bað er það
sem maður hefur þörf fyrir
þegar maður er einmana og illa
farinn.”
Deilan um Danners stofnun-
ina er enn óleyst og hinn sósial-
demókratiski dómsmálaráð-
Varið ykkur á strumpunum!
Strumparnir,eða skrýplarnir,
eru nýjasta afsprengi fjölþjóö-
lega samprentsins svonefnda,
og tröllriða nú börnum landsins.
bað er ekki vist að öllum for-
eldrum sé ljóst hvílikur saman-
setningur er hér á ferðinni, og
full ástæða til aö vara við þvi að
strumpabækur séu settar i jóla-
pakka barnanna.
Til að sýna fram á réttmæti
þessara sterku oröa birtum við
nokkrar myndir úr einni
strumpabókinni. Hún heitir
„Strympa” og fjallar um það
óskaplega vesai sem upphefst
þegar kvenstrumpur ryðst inn I
friðsama karlaveröld „litlu
sartu strumpanna”. baö sem við
viljum benda á hér á þessum
vettvangi er aðeins ein hliðin á
boðskap þessara „bókmennta”,
þ.e. botnlaus kvenfyrirlitning.
Við látum allt annað liggja milli
hluta að þessu sinni, enda verða
strumpunum gerð betri skil hér
i blaðinu siðar.
Éó 6KAL HEFMA /VMN A )»E56UM
ANDétyóó/LEóU ÓTI?UA\PUM/ PAÐ
VERÐUR ORlMMILCð HEFNP/
Nó verr to.
HVAV É6 6CRl/
ÉG e>Ý TIL KVEN6TRUMP/Éó SENDI F£lM
STKYMPU!
Eina skeid af hegoma... Vaena sni
undirferli... brjú krótódílstir... Eii
Maiada hóggormstungu... Nokkur «
ráókaensku... Nokkrir hnefar af sk;
Agnarógn af hvítum lygum... Dáiitid ai
Efna ákeió af oheilindum... Eina finqurl
leysl... Hroka á hnífsoddi... ógn at öh
skamt af lilfinningasemi... ðgn af fák
saman vio slaagd, þynrrt með miklu hi
meo dalítilli hrjósku... Eitt kerti. brui
........ báda enda...