Þjóðviljinn - 14.12.1979, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 14.12.1979, Blaðsíða 12
12 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 14. desember 1979. Eflum Málfrelsissjóð í dag áritar Thor Vilhjálmsson bók sina Turnleikhúsið °g Egill Egilsson áritar bók sina Erla Magnúsdóttir Sveindómur i Bókabúð Máls og menningar frá kl. 15 —18. öll framlög fyrir áritanir renna óskipt i Málfrelsissjóð. Thor Vilhjálmsson Egill Egilsson Málfrelsissjóður Ahugafólk um bætt húsnæðiskjör ÁHUGAFÉLAG UM HÚSEININGAVERK- SAAIÐJU h/f, boðar nú fil stofnfundar i Loft- leiðahótelinu sunnudaginn 16. des. ki. 14.30. Þeir, sem vilja taka þátt í þessum samtökum og gerast stofnfélagar, snúi sér til skrifstof- unnar Borgartúni 18, sími 19788 fyrir þann tima, en hún verður opin alla daga f rá kl. 12 á hádegi til kl. 18.30. Þeir, sem hafa undir höndum undirskrifta- lista, skili þeim í síðasta lagi fimmtudaginn 13. des. Undirbúningsnefndin. Laus staða Staða skrifstofustjóra við lögreglustjóra- embættið i Reykjavik er laus til umsókn- ar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir.ásamt upplýsingum um mennt- un og fyrri störf, skulu sendar undirrituð- um fyrir 1. janúar 1980. Lögreglustjórinn í Reykjavík 12. desember 1979. F j órðungss júkrahúsið á Akureyrl Staða yfirlæknis i geðlækningum við geð- deild (T-deild) Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri er laus til umsóknar, umsóknar- frestur er til 12. janúar 1980. Upplýsingar veitir Ásgeir Höskuldsson, framkvæmdastjóri F.S.A., simi 96-22100. Stjórn F.S.A. Við skerum niður því þetta fólk þegir.. SiTJastliðið föstudagskvöld var sýnd í sjónvarpínu mjög áhrifa mikil kvikmynd um baráttu ein- stæðrar móður við það sem við köllum „kerfið”. Til er fólk sem stóð upp eftir myndina og sagði: „Jú, þetta var dgæt mynd, en I al- vöru er þetta ekki svona, það verður jú alltaf að ýkja svona myndir til að fá fram áhrifin”. Aðrir reistu sig lika og vissu að það vor engar ýkjur. Þeir eru margir sem litils mega sin, sem hafa á einhvern hátt í viðskiptum sinum við yfirvöld fengið að berja höfðinu við steininn. Mér hefur alltaf þótt merkilegt hvað þeir sem málum ráða hafa litið virst skilja þegar um hefur veriðað ræða ýmislegt sem snert hefur einstaklinga sem á aðstoð hefur þurft að halda, — þó eru báðir aðilar bara manneskjur. Sumir segja að við búum i vel- ferðarrfki, — gott og vel. Velferðarríki í þessu velferðarriki er stór hópur aldraðra sem nýtur styrks sem ekki er ólikur þeim sem móð- irin i' fyrrnefndri kvikmynd fékk. Það er eliilifeyrir sem svo aug- ljóslega er viðurkenndur að vera langt fyrir neðan þá upphæð sem dugir til framfæstlu að umyrða- laust er bætt við hann öðrum skammti sem heitir „tekjutrygg- ing”, — og enn erþað ekki nóg.og þá fá þeir einn skammtinn enn sem nú heitir „heimilisuppbót” og samt nær upphæðin ekki lág- markslaunum verkamanns. Er það ef til vill vegna þess að hug- myndaflugið er ekki meiraog þvi ekki til nöfn á fleiri skammta, — eðaer einfaldlega ekki meiningin að þetta fólk, sem búið er að skila öllu sinu i hendur þeirra yngri og ráðandi hafi möguleika á að lifa þvi sem við köllum mannsæm- andi lífi. Það er nú einu sinni svo að þótt fólk nái ákveðnum aldri, þýðir það ekki það sama og að nú geti það að öllu leyti látið af venjulegum lifsháttum. Það er stór hópur ellillfeyris- þega sem ekki á kost á öðru en þeim lifeyri sem greiddur er hjá Tryggingastofnun rikisins. Skyldi þeim,sem ráöa, ekki þykja það þröngur kostur, — jafnvel þó þeir yrðu gamlir. Ivelferðarrikinuerulika fatlaðir og aðrir öryrkjar sem eiga þess litinn eða engan kostað hreyfa sig af þeim stað sem þeireru nú einu sinni settir hiður á. Á þessari jafnréttisöld hefur þetta fólk, ef það er i hjólastól, engan mögu- leika á aö kornast i bió, — á veit- ingastað, — jafnvel ekki i kirkju, og þeir eru undir sömu sök seldir og aidraðir hvað fjárhag varðar. Ef dvaliö er á stofnun fær ein- staklingurinn til eigin ráðstöfun- ar af bótunum sem nemur 20 sígarettupökkum á mánuði, — svo ef hann reykir, þá á hann ekki að hafa aðrar persónulegar þarf- ir. Það eru ekki allir sem eiga að ættingjaeða vini sem hlaupa und- ir bagga, — enda á þess ekki að þurfa i þjóðfélagi sem oft ekki virðist horfa i kostnaö á öðrum sviðum. Sement og fólk Umrædd kvikmynd fjallaði að hluta um hlutskipti þroskahefts barns, — og þar virtist ástandið ekki vera betra en hér. Fyrir nýafstaðnar kosningar kom fram i fjölmiðlum að áætlað væri að það myndi kosta 150-300 miljónir að halda vegum opnum vegna kosninganna. Það hefur sjálfsagt ekki verið neitt álitamál að það yrði gert, — en það var svo sannarlega álitamál fyrir skömmu hvort halda ætti Skála- túni opnu. Þeir sem þar dvelja og á öðrum sambærilegum stofnun- um geta jú ekki barist fyrir sinum hagsmunamálum á sama hátt og þingmenn og þingmannsefni. Rikir ekki sama viðhorf hér og i myndinni? „Við skerum niðu’- fjárframlag til þessa fólks, því það þegir”. 1 vikunni fengum við i fréttum að heyra um hörmulegan verknað sem geðsjúkur maður varð vald- ur að, — siðan er hann settur i fangelsi, þvi sjúkrahúsvist fæst ekki fyrir hann. Við fengum lika fréttir af tilraunaframkvæmdum i sementsgerð, 100 miljónir i fyrsta áfanga og siðan aftur 100 miljónir. Vissulega er sement hagnýtt, — en hvað með mann- eskjuna? Sýnir þetta ekki aðeins að það er ekki alfarið fjármagns- skortur sem veldur þvi að ekki fæst sjúkrahúsvist fyrir þá sem mest þurfa hennar með. Það eru höfð stór orð um dagheimilisvist fyrir öll börn, — og sá þrýstihópur sem á bak við þau stendur er sterkur i' krafti þess að þar er um að ræða starfhæft fólk, — hinir, þ.e. aldraðir, fatlaðir, þroska- heftir og veikir geta aldrei orðið sterkir sem slikir, — þar verða aðrir að beita sér i þeirra þágu. Á hvaða leið Fyrir kosningar heyröum við meira og minna um allt það sem gera þurfi fyrir þá verr settu i þjóöfélaginu, — siðan verður hlé (fram að næstu kosningum?). Er ekki timi til að staldra ögn viö og i'huga á hvaða leiö við erum eiginlega? Er það ekki I okkar verkahring, sem fullt sartfsþrek höfum, að vera sá þrýstingur sem þetta fólk þarf á að halda? Er það ekki okkar að búa öldr- uðum mannsæmandi afkomu- möguleika? Er það ekki okkar að vinna að þvi að þeir sem með málefni þeirra ósjálfbjarga fara þurfi ekki aðvera i vafa um að þeireigi styrk visan? Er það ekki okkar að sjá um að fatlaðir eigi sömu möguleika og heilbrigðir hvort sem um er að ræða vinnumarkað, eða annað? Með „okkur” á ég við þá sem fullt starfsþrek hafa og vist get- um viö ýmislegt gert, — en fram- kvæmdaaðilar hljóta fyrst og fremst að vera yfirvöld á hverj- um ti'ma. í blaði mátti lesa fyrir skömmu að hér væru 30-40 þúsund fatlaðir á einhvern hátt. Hefur enginn stjórnmálamaður hugleitt það hvað þessi tala gæti staðið á bak við marga þingmenn, — ekki er óliklegt að sá,sem raunverulega beitti sér fyrir úrbótum á málefn- um þessara hópa, ætti sér veru- legan styrk vísan. í kosningasjónvarpi fengum við að sjá heyrnarlausan pilt flytja kosningafréttir á táknmáli, — hafi þeir sem að þvi stóðu hjart- anlega þökk fyrir, og vonandi er þetta aðeins byrjunin. Þetta er ekki aðeins spursmál um að heyrnarlausir geti nýtt sér sjón- varpið á borð við aðra, — heldur er þetta lika leið til að rjúfa þá einangrun sem þeir búa við. Það eru mörg ár síðan aðrar þjóðir gerðu sér ljóst að þetta var sjálf- sögð þjónusta, — vonandi eru auguyfirvalda að opnast hérlika. 1 þjóðfélagi, sem hefur ráð á að eyða hundruðum miljóna i til- raunastarfsemi, eða snjómokstur fyrir kosningar-, sem hefur ráð á þvi að eyða fé i tima i að þinga um bjór og Z, hljóta að vera ráð á að veita þeim sem sjúkireða aldrað- ir eru, mannsæmandi h'fsafkomu. Erla Magnúsdóttir gæslukona. Starfsfólk G-listans í Reykjavík Kosninga- hátíð á laugardag Kosningahátfð starfsfólks G-listans i Reykjavik verður i Atthagasal Hótel Sögu laugardaginn 15. desember kl. 20.30 til 03.00 Guðrún Helgadóttir flytur ávarp. Hijómsveit Birgis Gunn- iaugssonar leikur fyrir dansi. Boðsmiðar eru afhentir á Grettisgötu föstudag. (Athugið:Upplag miða tak- markast af stærð salar- kynna). Stjórn Alþýðubandalagsins i Reykjavik Guðrún Helgadóttir.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.